Morgunblaðið - 24.04.2003, Qupperneq 1
STOFNAÐ 1913 109. TBL. 91. ÁRG. FIMMTUDAGUR 24. APRÍL 2003 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is
Sólstafir í
Sólheimum
Spunaverk byggð á
lífsreynslusögum Listir 34
Veitt athygli
í Cannes
Mynd Sólveigar Anspach í
sérstakri dagskrá Fólk 72
ÞESSAR stúlkur létu fara vel um sig í Suður-
bæjarlaug í Hafnarfirði ásamt öðrum sundlaug-
argestum. Margir vita fátt betra en að skella
sér í sund þegar vel viðrar, synda nokkrar ferð-
ir og styrkja útlimi og líkama. Aðrir slappa af í
heitu pottunum, liðka málbeinið og kjósa að
hvíla aðra líkamsparta. Þeir sem yngri eru eru
gjarnan hrifnari af óhefðbundnu sundsprikli og
njóta sín þá best í grunnu lauginni.
Morgunblaðið/RAX
Gleðilegt sumar
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦
ALAN Greenspan, seðlabankastjóri
Bandaríkjanna, lýsti því yfir í gær að hann
myndi þiggja að sitja í embættinu fimmta
fjögurra ára skipunartímabilið í röð. Kom
yfirlýsingin í kjölfar þess að George W.
Bush Bandaríkjaforseti lét óvænt þau orð
falla á þriðjudag, að hann hygðist endur-
skipa Greenspan er núverandi skipunar-
tímabil hans rennur út, um mitt næsta ár.
Greenspan fyllti nýlega 77. aldursárið.
Greenspan vill
sitja áfram
Washington. AFP, AP.
YASSER Arafat, leiðtogi Palest-
ínumanna, og forsætisráðherraefni
nýrrar heimastjórnar þeirra,
Mahmoud Abbas, bundu í gær
enda á deilur sínar um mannaskip-
an stjórnarinnar og skiptingu ráð-
herraembætta. Með samkomulag-
inu var brautin rudd fyrir
gildistöku alþjóðlegrar áætlunar
um lausn á þeirri lotu átakanna
fyrir botni Miðjarðarhafs, sem nú
hefur staðið sleitulaust í meira en
30 mánuði.
Ráðamenn Bandaríkjanna, Evr-
ópuríkja, Rússlands og arabaríkja
höfðu þrýst mjög á Arafat að láta
undan helztu kröfum Abbas, og lét
hann loks undan þeim í gær. Ara-
fat hyggst þar með una því að for-
sætisráðherraefnið taki jafnframt
yfir ráðuneyti innanríkismála og
tilnefni Mohammed Dahlan í emb-
ætti yfirmanns öryggismála
heimastjórnarinnar.
Leiðtogar ríkja heims fögnuðu
samkomulaginu í gær. Talsmenn
Bandaríkjastjórnar sögðust
hlakka til að vinna með hinni nýju
heimastjórn Palestínumanna og
boðuðu að hinn margumtalaði
„vegvísir“ að friði milli Ísraela og
Palestínumanna yrði lagður fram
mjög fljótlega, eða strax eftir að
palestínska þingið hefði staðfest
skipun nýju stjórnarinnar. „Strax
og það gerist, eða fljótlega eftir
það, munum við leggja vegvísinn
fyrir deiluaðila,“ sagði Ari Fleisch-
er, talsmaður Hvíta hússins.
Stjórn George W. Bush Banda-
ríkjaforseta og ísraelska ríkis-
stjórnin vilja sniðganga Arafat,
sem bæði ísraelski forsætisráð-
herrann Ariel Sharon og banda-
rískir ráðamenn hafa sakað um
tengsl við hryðjuverkamenn, og
vonast til að skipun palestínsks
forsætisráðherra auðveldi þeim
það.
Höggvið á hnút
Fram að því að Arafat lét
skyndilega undan í þessari valda-
togstreitu milli sín og forsætisráð-
herrans tilvonandi, stefndi allt í að
sá frestur sem Abbas, eða Abu
Mazen eins og hann hefur verið
kallaður, hafði til að leggja fram
ráðherralista sinn rynni út. Aðeins
sex tímar voru eftir af frestinum
þegar Arafat hjó á hnútinn. Hefði
það ekki gerzt, hefði þurft að út-
nefna nýtt forsætisráðherraefni og
deilan innan forystu Frelsissam-
taka Palestínu, PLO, hlaupið í enn
harðari hnút.
Palestínskir embættismenn
sögðu sennilegt að þingið myndi
koma saman á sunnudag eða
mánudag til að greiða atkvæði um
nýju stjórnina, sem umbótasinnar
og alþjóðasamfélagið bindur vonir
við að muni taka til við að uppræta
spillingu, handtaka öfgamenn og
opna leiðina að nýrri friðarsamn-
ingalotu við Ísraela.
Þótt leiðtogarnir tveir, Arafat
og Abbas, hefðu loks komið sér
saman um ráðherralistann og
skiptingu ráðuneyta sögðu emb-
ættismennirnir það taka einn til
tvo daga að ganga til fullnustu frá
listanum til að tryggja að hann
hljóti samþykki þingsins.
Nabil Abu Rudeina, einn aðstoð-
armanna Arafats, skoraði á
George W. Bush Bandaríkjafor-
seta að efna loforð sitt hið snarasta
um að birta „vegvísinn“, en sam-
kvæmt honum er stefnt að því að
stofna sjálfstætt ríki Palestínu-
manna í áföngum til ársins 2005.
Ehud Olmert, varaforsætisráð-
herra Ísraels, brást varfærnislega
við tíðindunum frá Ramallah. „Það
er hyggilegra að dæma af gerð-
unum en orðunum,“ sagði hann í
samtali við CNN-sjónvarpsstöð-
ina.
Arafat lætur und-
an kröfum Abbas
Fjölþjóðlegur „vegvísir“ að friði milli Ísraela
og Palestínumanna lagður fram fljótlega
Ramallah. AFP, AP.
BANDARÍSK stjórnvöld vöruðu í gær Ír-
ana við „hvers kyns íhlutun“ í Írak, en
fregnir herma að útsendarar Íransstjórnar
séu þegar að verki í Írak, hugsanlega í því
augnamiði að stuðla að íslamskri byltingu.
„Við höfum vel þekktar samskiptaleiðir
við Íransstjórn og höfum gert henni það
ljóst að við munum beita okkur gegn hvers
konar íhlutun í þróun Íraks í lýðræðisátt,“
sagði Ari Fleischer, talsmaður Hvíta húss-
ins. „Að gera út útsendara til að kynda
undir ólgu meðal sjíta í Írak myndi ótví-
rætt flokkast undir slíkt,“ sagði hann.
Dagblaðið The New York Times birti í
gær grein, þar sem það er haft eftir
stjórnarerindrekum að útsendarar, þjálf-
aðir í Íran, kæmu þessa dagana yfir landa-
mærin inn í Suður-Írak og reyndu að
hjálpa sér vinveittum sjía-klerkum til
áhrifa.
Bandaríkja-
stjórn varar
Írana við
Washington. AFP, AP.
Garner segir/18
COLIN Powell, utanrík-
isráðherra Bandaríkj-
anna, tjáði hinum
franska starfsbróður
sínum, Dominique de
Villepin, í símtali í gær
að Frakkar fengju að
gjalda þess með áþreif-
anlegum hætti, að hafa
beitt sér gegn hernað-
aríhlutun Bandaríkja-
manna og Breta í Írak.
Í viðtali við banda-
rísku sjónvarpsstöðina
CBS var Powell spurður
að því hvort Frakkar
myndu fá að kenna á því
að hafa sett sig upp á
móti Bandaríkjamönn-
um innan Sameinuðu
þjóðanna, og svaraði
hann því játandi.
Eftir því sem AP hef-
ur eftir ónafngreindum
háttsettum embættismanni í Washington
hefur m.a. verið rætt um að útiloka Frakka
frá fundum bandarískra ráðamanna með
bandamönnum sínum og sniðganga Norð-
ur-Atlantshafsráðið, þ.e. ráðherranefnd
NATO, sem Frakkar eiga aðild að.
Frakkar fái
að gjalda
stríðsandstöðu
Washington. AFP, AP.
Dominique
de Villepin
Colin
Powell
FJÓRIR menn sem voru hátt settir
í fallinni stjórn Saddams Husseins
Íraksforseta gengu í greipar banda-
rískra hermanna í Írak í gær, þar á
meðal fyrr-
verandi yfir-
menn flug-
hersins og
leyniþjónustu
íraska hers-
ins.
Hæst setti
maðurinn af
fjórmenning-
unum er
Muzahim Sa’b
Hassan al-Tikriti, sem stýrði loft-
vörnum Íraks. Hann var 10. mað-
urinn á listanum sem Bandaríkja-
menn hafa dreift yfir þá 55
ráðamenn sem þeir leggja mesta
áherzlu á að finna.
Zuhayr Talib Abd al-Sattar al-
Naqib, fyrrverandi yfirmaður leyni-
þjónustu Írakshers, gaf sig fram við
bandaríska hermenn í gær. Naqib
var nr. 21 á lista Bandaríkjamanna.
Hinir tveir, sem handsamaðir
voru í gær, eru Muhammad Mahdi
al-Salih, fyrrverandi viðskiptaráð-
herra, og Said Khalaf al-Jumayli,
sem var reyndar ekki á 55 manna
listanum, en kvað hafa verið meðal
æðstu stjórnenda njósna Íraka í
Bandaríkjunum.
Hátt settir
Írakar
hand-
samaðir
Washington. AP.
Zuhayr al Naqib
Æfir með Lemgo til
reynslu Íþróttir 68
Logi til
Þýskalands