Morgunblaðið - 24.04.2003, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 24.04.2003, Blaðsíða 32
LISTIR 32 FIMMTUDAGUR 24. APRÍL 2003 MORGUNBLAÐIÐ NÚ ER sá árstími í Parísþegar hvað erfiðast erað hemja sig innandyra, jafnvel þótt það sé til þess að fara í bíó. Það eru alls konar blóm á trjánum, fugl- arnir syngja, og hægt að stunda útisetur fram á nótt. Til þess að ná öllum mark- miðum, njóta dagsbirtu og nýta sólarhringinn, er ekki vitlaust að skreppa í bíó kringum tíu og fá sér útisnarl á undan eða eftir. Mesti lúxus er auðvitað að hafa þetta á sama stað svo maður megi saddur slangra inn næstu dyr á vel valda mynd. Einn allra indæl- asti og frumlegasti staður fyrir þetta er MK 2 Quai de Seine, metró Stalíngrad, í vari fyrir bíl- um og mannmergð. Ég hef áður sagt frá þessu kvikmyndahúsi við vatnið og veit- ingastaðnum, en þá í vetrarham. Með vori kemur nýr sjarmi. Ástin blómstrar á stéttinni fyrir framan veitingahúsið. Einkennileg borg- arbörn með stórt safn af hundum, og hvolpa í pappakassakerrum stunda líka þessa stétt undir fullu tungli, meðan vatnið gárast í ýms- ar áttir. Ein af nýju myndum vikunnar er Frida, um listmálarann Fridu Kahlo, með Salma Hayek í titil- hlutverki. Mynd þessarar ægi- fögru mexíkönsku leikkonu prýðir borgina þvera og endilanga. Jú, falleg var Fríða, en ekki eins fal- leg og Salma, sagði útvarpsmað- urinn. Samt er munnurinn á okk- ur eins, sagði þá Salma. (Svo við komum okkur nú að aðalatriðum.) Jafnvel með þesssari fegurðardís og sjarmatrölli í gervi Fridu þá sýndist mér helst af sólar- merkjum að hér væri verið að sullast eitthvað í lífi og list þessa stórkarakters og ég hafði ekki hugrekki til að skoða málið að svo stöddu. Ég tók kúrsinn lengra í suður, til Patagóníu, og sá Historias Minimas, Smá sögur, eftir Arg- entínumanninn Carlos Sorin. Hún hefur verið til sýninga í um þrjár vikur, við góðan orðstír, og það er enn hægt að sjá hana víða um borgina. Þessi dýrlega mynd geristá strjálbýlli og hrjóstr-ugri Patagóníusléttunni.Leikstjórinn hirti leik- endur upp af götu sinni til þess að leika í þessari vegamynd. Hann segir reyndar að þarna sé ekki hægt að gera neitt annað en vega- mynd, því íbúarnir hugsi ekki um annað en að komast burt. Þar skipti bílarnir meira máli en hús- næði, því þeir vísi á langþráðar undankomuleiðir. Historias minimas er hvíld og léttir frá hefðbundnu bíói og leik. Umhverfið er líka „óhefðbundið“ og stórfenglegt í eyðileika sínum og það er hluti af lífi fólksins en ekki umgjörð og mjög vel fest á filmuna. Hér er fléttað saman sögu af gamla manninum sem ákveður að drífa sig þrjú hundruð kíló- metra til að finna aftur hundinn sinn, af ungri móður sem leggur land undir fót til þess að vera með í sjónvarpslottói, og af sölumann- inum sem ferðast með afmæl- istertu, í stanslausum eftir- þönkum um hvernig hefði átt að skreyta hana. Hann fær ýmsa eft- irminnilega karaktera til liðs við sig til að bæta um betur. Það er mjög athyglisvert hvað fléttan er ljúflega gerð og áreynslulaus. Kraftaverkið í þess- ari mynd eru þó karakterarnir. Leikstjóranum tekst að draga fram kjarnann í manneskjunum sem hann fjallar um og það er yfir þeim ótrúlegur sjarmi og reisn. Um leið er myndin alveg kostuleg. Umfram allt er fjallað um fólkið og líf þess af hlýju og virðingu, og þannig umgengst fólkið í þessari mynd líka hvert annað. Fyrir áhorfandann er það einlæg skemmtun með svolítið döprum blæ að fylgjast með endalausu bjástri þess við að ná markmiðum sem eru ekki stór í sniðum en leið- in að þeim er væntanlega það sem er kallað lífið sjálft. Bíókvöld í París Smá sögur Eftir Steinunni Sigurðardóttur Reuters Jú, falleg var Fríða, en ekki eins falleg og Salma. ÞAÐ er árlegur viðburður að Stórsveit Reykjavíkur bjóði skóla- stórsveitum víða að til veislu í Ráð- húsi Reykvíkinga. Þær hafa aldrei verið fleiri en nú og sýnir það þá grósku sem ríkir í þessum geira og ekkert skýtur sterkari stoðum undir flaggskip íslenskrar djasstónlistar; sjálfa Stórsveit Reykjavíkur. Hér á árum áður voru lúðrasveitir nær einasti vettvangur ungra blás- ara til að öðlast reynslu í hljómsveit- arleik. Innan þeirra voru oft reknar einskonar léttsveitir til að koma til móts við þarfir liðsmanna til að leika rýþmískari tónlist en hina hefð- bundnu lúðrasveitarmarsa eða klassísk verk og söngdansa sem mis- vitrir útsetjarar framleiddu fyrir slíkar sveitir. Ein sú besta og fyrsta var starfandi innan Svansins á stjórnarárum Sæbjarnar Jónssonar og hafði innanborðs einn af frum- herjum Íslandsdjassins, Svein Ólafs- son saxófónleikara. Sæbjörn var einnig brautryðjandi í stórsveitar- málum tónlistarskólanna með sveit sína í Tónmenntaskóla Reykjavíkur auk þess sem hann lyfti því grett- istaki að stofna og stjórna Stórsveit Reykjavíkur af þeim krafti og hug- sjónaranda sem einkenndi allt hans starf. Nú hefur Sæbjörn dregið sig í hlé og reyndustu hljóðfæraleikarar Stórsveitarinnar skiptasta á um for- ustuna milli þess sem erlendir stór- sveitarmeistarar sækja sveitina heim og efla hana til stórvirkja. Tónleikarnir í Ráðhúsinu hófust á því að Sigurður Flosason taldi í út- setningu Maríu Schneider á Lady Bird Tad Damerons. Þetta var hefð- bundin útsetning sem ekki bar sterk höfundareinkenni Maríu, sem er einn helsti stórsveitargúrú djass- heimsins og stjórnaði Stórsveit Reykjavíkur fyrir fáeinum árum. Einn af ungu efnilegu trompetstrák- unum úr FÍH, Kjartan Hákonarson, sem hefur gert það gott allt frá Bossa nóva-bandinu á Seltjarnar- nesi til Jagúars, blés ágætan sóló í anda Clifford Browns og þeirra fé- laga og Ólafur Jónsson var traustur að vanda í einleik sínum. Síðan brast á með tætluhryn í Outrageous Moth- er, ópusi Phil Wilsons sem var einn af toppbásúnuleikurum Woody Her- mans. Þar léku Ástvaldur Trausta- son og Edward Frederiksen hefð- bundna sólóa af miklum þokka. Afurá móti minnti útsetningin á það sem Ellington var að leika á böllum þegar verst lét. Annað var uppá ten- ingnum í Space Shuffle Pat LaBarb- era, sem skrifað var fyrir Buddy Rich-bandið, en Stórsveitin hélt fína Rich-tónleika í fyrra undir stjórn Greg Hopkins. Verkið var fautavel leikið af sveitinni og Jóel óvenju coltrenískur í sóló sínum og enn einn hörku ungliðinn á trompetinn, Ívar Guðmundsson, sem einnig leikur í Stórsveit Tónlistarskóla FÍH. Þá var komið að hlut gestanna og var gaman að fylgjast með leik þeirra því þar var margt vel gert þó hafa beri í huga að þetta eru skóla- sveitir. Þarna eru fleiri hljóðfæra- leikarar en Ívar Guðmundsson sem eiga mikla athygli skilda. Fyrst lék eldri sveitin frá Reykjanesbæ, en Karen Sturlaugsson hefur af mikilli elju staðið fyrir sveiflunni þar í bæ um langt árabil. Þar var í hópnum efnilegur söngvari, Jón Marinó Sig- urðarson, sem söng All Of Me í stíl Armstrongs í Mílanó 1956. Þá lék sveit Tónmenntaskólans og Sigur- sveins undir stjórn Sigurðar Flosa- sonar. Þetta eru ungir krakkar og var stórskemmtilegt að hlusta á þau leika Four, sem oft er ranglega eign- að Miles Davis, en er eftir eftir Edd- ie Cleanhead Vinson einsog Tune Up, annar ópus eignaður Miles. Krakkarnir úr Hafnarfirði og Garða- bæ renndu sér á sveifluskriði gegn- um bæði Nestico og Niehause og yngri deildin í Reykjanesbæ, sem byrjaði fyrst í haust, tók hressilega á í blúsnum. Þessir krakkar eru efni- viðurinn fyrir Stórsveit FÍH sem afturá móti hefur skilað mörgum mætum liðsmönnum til Stórsveitar Reykjavíkur. Edward Frederiksen hefur lengstum stjórnað FÍH-band- inu, lunkinn stjórnandi og sjóaður stórsveitarmaður. Útsetning bari- tonsaxófónleikarans Ronnie Cuber á Nostalgia In Time Square lifnaði þó aldrei við en bandið lék Basie Straight Ahead af miklum krafti og setti þar endapunktinn við ánægju- lega tónleika. Það verður gaman að heyra þessar sveitir að ári því Stór- sveit Reykjavíkur ræktar sam- bandið við uppeldisstöðvarnar. Framsækinn hefðardjass Kvintettinn Motif hélt dúndurtón- leika í Kaffileikhúsinu í fyrra og í hitteðfyrra var sveitin kjörin besta ungliðadjasssveit Norðurlanda á djasshátíðinni í Kaupmannahöfn. Sveitin var stofnuð af bassaleikaran- um Ole Morten haustið 1999 og voru drengirnir fimm þá við tónlistarnám í Þrándheimi. Síðan er mikið vatn runnið til sjávar og þeir allir í fremstu röð ungdjassista á Norður- löndum þó á engan þeirra sé hallað að nefna trommarann Håkon Mjåsted fremstan meðal jafningja. Sá drengur kemur manni alltaf jafn mikið á óvart er hann leikur og hing- að hefur hann komið með tveimur öðrum hljómsveitum; hinu firna- skemmtilega tríói Urban Connection og sveitinni Come Shine þar sem ein eftirtektastaverða söngkona Evr- ópudjassins þenur raddböndin ljúf- lega: Liv Marie Roggen. Nú er kvintettinn enn einu sinni á tónleikaferðalagi og hafði leikið þrenna tónleika í Noregi áðuren stefnan var tekin á föðurland hljóm- borðsleikarans, Davíðs Þórs frá Akranesi. Stúdentakjallarinn var troðfullur og tónleikarnir enn magn- aðri en þeir í fyrra og ekki verra að Davíð Þór sæti við rafpíanó – þótt gaman hefði verið að hafa hinn göf- uga flygil á stundum. Fresh Fish hét upphafsópusinn og var eftir Ole Morten einsog allir ópusar kvöldsins utan einn; undurfögur ballaða með norrænum blæ er Mathias Eick trompetleikari hafði samið. Þetta var sannkallaður framsækin hefðar- djass. Hljómsveitin skipuð að hætti djassendiboða Art Blakeys, uppfull af krafti harðboppsins, en nútíma- legri í hljómum og taktegundir fjöl- breyttar. Stundum af ætt hins hefð- bundna djass en oftar með viðkomu á Balkanskaga og í fönki nútímans. Í hrynsveitinni var akkeri hljómsveit- arinnar, einn af fremstu trommurum yngstu kynslóðarinnar evrópsku Håkon Måset Johansen. Hann minn- ir um margt á Elvin Jones þó stíll hans sé mun léttari – en einsog Elvin keyrði hann bandið áfram af sjald- heyrðri hörku og gaf engum eftir. Hann var stundum einsog í sóló í hrynleiknum án þess að skyggja nokkurn tíma á meðleikarana, sem Elvin gerði alltof oft eftir að hann varð hljómsveitarstjóri. Samvinna Håkons og Davíðs Þórs var aðdáun- arverð, en því miður heyrðist oft of lítið í Ole Morten, sem er þó kraft- mikill rýþmaspilari og spilaði hug- myndaríka sólóa. Þegar Davíð Þór er með góðum mönnum og hugar- flug hans og frumkraftur rétt virkj- að er leikurinn ævintýri líkastur og þannig var það oft þetta kvöld eins- og í næstsíðasta ópusi tónleikanna, Nine. Þar var grúfið í sólói hans á stundum nær óbærilegt meðan Hå- kon Mjåset fór hamförum á tromm- urnar. Matthias Eick er fínn tromp- etleikari af skóla Clifford Browns og þeirra félaga og stundum brá fyrir eldridgeískum hlaupum og tungu- skotum – kannski ættuðum frá Hardgrove. Hann er fínn ballöðu- spilari og segir það fleira en mörg orð. Alte Nymo er pottþéttur blásari með allt á tæru, en einsog hjá alltof mörgum tenóristum djassins er coltraneisminn oft of ágengur í leiknum einsog í fyrrnefndri ballöðu Mathiasar af norrænu ættinni þegar dúett hans og Håkons með léttum bassatónum minnti fullkomnlega á svipaðar uppákomur hjá Trane og Elvin – en skemmtilegur var hann og notaði meirað segja austurlenska djassfrasa af ætt svígarana í einum sóló sínum. Að lokum er bara að þakka fyrir að fá að eiga þessa stund eins fátæk- legt og djasslífi Reykjavíkur hefur verið undanfarið en nú er vonandi betri tíð í vændum. Motif á eftir að vekja mikla athygli í hinum norræna djassheimi á næstu árum. Við bíðum bara eftir diskum. Framsækinn hefðardjass ungra manna gerist ekki betri um þessar mundir. StórsveitarhátíðDJASSRáðhús Reykjavíkur Stórsveit Reykjavíkur undir forustu Sig- urðar Flosasonar; Stórsveit Tónlistar- skóla FÍH, stjórnandi Edward Frede- riksen; Stórsveit Tónmenntaskóla Reykjavíkur og Tónskóla Sigursveins D. Kristinssonar, stjórnandi Sigurður Flosa- son; Léttsveitir Tónlistarskóla Reykja- nesbæjar, eldri deild stjórnað af Karenu Sturlaugsson og yngri deild stjórnað af Eyþóri Kolbeins; Samvinnustórsveit Tónlistarskóla Hafnafjarðar og Tón- listarskóla Garðabæjar, stjórnað af Ed- ward Frederiksen í samvinnu við Stefán Ómar Jakobsson. Laugardaginn 12. apríl 2003. SEX STÓRSVEITIR Stúdentakjallarinn Mathias Eick trompet, Atle Nymo ten- órsaxófón, Davíð Þór Jónsson rafpíanó, Ole Morten Vågan bassa og Håkon Mjåset Johansen trommur. Fimmtudags- kvöldið 3.4.2003. MOTIF Vernharður Linnet NEMENDUR Tónlist- arskóla Kópavogs frumflytja óperuna Orfeo eftir Claudio Monteverdi í Salnum undir stjórn Gunnsteins Ólafssonar á morgun föstudag kl. 20. Leik- stjóri og söngkennari er Anna Júlíana Sveins- dóttir. Þetta er í fyrsta sinn sem ópera eftir Monteverdi er sett á svið hér á landi. Sýningin er liður í há- tíðahöldum vegna 40 ára afmælis Tónlistar- skóla Kópavogs. Aðalhlutverkið er í höndum Unn- ars Geirs Unnarssonar en auk hans taka sextán ungir söngvarar þátt í sýningunni. Þrír þeirra eru fengnir að láni úr Nýja tónlistarskólanum. Fimmtán manna hljómsveit núver- andi og fyrrverandi nemenda úr Tón- listarskóla Kópavogs leikur undir ásamt félögum úr Skólahljómsveit Kópavogs. Þá mæðir mikið á fjögurra manna barokksveit sem leikur á lútu, orgel, sembal og hörpu. Óperan fjallar um gríska hálfguð- inn Orfeif og för hans til undirheima að endur- heimta konu sína Evri- dísi úr ríki dauðra. Þar mæta honum guðir og illir andar sem hyggjast koma í veg fyrir að hon- um takist ætlunarverk sitt. Óperan Orfeo var frumsýnd í Mantova á Ítalíu árið 1607 og er jafnan talin fyrsta full- gilda ópera sögunnar. Hún markar straum- hvörf í tónlistarsögu Vesturlanda: endur- reisnartíminn er að baki og barokktónlistin að ryðja sér til rúms. Í stað þess að syngja eingöngu í kór stígur söngvarinn fram á sviðið sem sjálfstæður túlkandi tónlistar. Á endurreisnartímanum var textinn oft fyrir borð borinn en með tilkomu bar- okkóperunnar varð hann að þunga- miðju verksins. Sjálfstæðir hljóð- færakaflar heyrast og orðið sinfónía eða samspil kemur í fyrsta sinn fyrir. Óperan Orfeo verður endurtekin á laugardag, kl. 16. Miðasala er í Saln- um. Orfeo á svið í Salnum Gunnsteinn Ólafsson Hafnarhús Á sunnudag er komið að sýninga- lokum í öllum sýningarsölum Lista- safns Reykjavíkur – Hafnarhúsi. Af þeim sökum verður húsið lokað þar til útskriftarsýning nemenda Listaháskóla Íslands verður opnuð þar 10. maí. Þær þrjár sýningar sem nú eru að renna sitt skeið á enda í Hafnarhúsinu er fastasýning hússins á verkum eftir Erró sem ber yfirskriftina Erró og listasag- an. Einnig er komið að lokum sýn- ingar norska listamannsins Patriks Huse, Penetration. Heilbrigði, hamingja og friður – sovésk vegg- spjöld frá sjöunda og áttunda ára- tugnum er yfirskrift sýningar sem einnig lýkur á sunnudaginn. Þar eru til sýnis sovésk veggspjöld í eigu safnsins. Hafnarhúsið er opið daglega frá kl. 10–17. Leiðsögn er um sýningar Hafnarhússins alla sunnudaga kl. 15. Sýningum lýkur
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.