Morgunblaðið - 24.04.2003, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 24.04.2003, Blaðsíða 9
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. APRÍL 2003 9 RÁÐIST verður í endurbætur á Þjóðleikhúsinu um leið og fram- kvæmdum við Þjóðminjasafn lýkur. Þetta kom fram í máli Tómasar Inga Olrich menntamálaráðherra þegar Þorsteinn Gunnarsson, for- maður húsafriðunarnefndar rík- isins, færði honum að gjöf í fyrra- dag upplýsingarit sem nefndin hefur gefið út um steinuð hús og viðhald þeirra. Steining eða skeljun er gömul séríslensk aðferð þar sem útveggir steyptra húsa eru húðaðir með mulningi úr bergi eða skeljum. Þjóðleikhúsið er fyrsta húsið þar sem notast var við steiningu en að sögn Þorsteins er leikhúsið ein af þeim opinberu byggingum sem nefndin hefur lagt til að verði frið- aðar. „Þetta er sérstaklega falleg bygging og eitt af höfuðverkum Guðjóns Samúelssonar en hann var einn af forvígismönnum þeirrar að- ferðar að steina hús,“ segir Þor- steinn. Steining var mikið notuð á Íslandi frá fjórða áratugnum og fram á þann sjöunda og einkenna steinuð hús heilu hverfin í Reykja- vík, til að mynda Hlíðahverfi og Melahverfi. Þorsteinn segir að mörg hús sem hafi verið steinuð í upphafi séu nú komin til ára sinna og kominn tími á endurbætur og þá komi rit sem þetta að góðu gagni. Ritið er hluti af ritröð húsafrið- unarnefndar ríkisins um viðhald bygginga og endurbætur á þeim og eru helstu textahöfundar bók- arinnar Ari Trausti Guðmundsson jarðeðlisfræðingur og Flosi Ólafs- son múrarameistari. Upplýsingarit um steinuð hús kemur út Steining á Þjóðleikhús- inu lagfærð á næstunni Morgunblaðið/Árni Sæberg Tómas Ingi Olrich menntamálaráðherra tekur við bók um steiningu úr höndum Þorsteins Gunnarssonar (í miðið) og Magnúsar Skúlasonar. UM 48 Íslendingar munu taka þátt í Alþjóðasumarleikum þroskaheftra, sem nefndir eru Special Olympics á ensku. Leikarnir verða haldnir í Dublin á Írlandi í júní en þetta er í fjórða skiptið sem Íslendingar taka þátt í leik- unum. Sextán fararstjórar og um 40 aðstandendur munu fylgja keppendum til Írlands en auk þeirra verður forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, við- staddur leikana. Anna K. Vilhjálmsdóttir, framkvæmdastjóri Special Olympics á Íslandi, segir að undirbúningur sé þegar haf- inn hér heima og tilhlökkun farin að færast í hópinn. Allir fá tækifæri „Þetta eru alltaf mjög skemmtilegar ferðir. Þetta er ekki afrekskeppni og þar af leiðandi myndast ekki of mikil spenna í kringum sjálfa keppnina heldur er dagskráin öll mjög fjölbreytt, í hvaða formi sem hún er. Það er líka svo gefandi fyrir alla að taka þátt í þessu. Þarna fá allir tækifæri, líka einstaklingar sem aldrei væru valdir í svona ferðir ef aðeins væri miðað við árangur,“ segir Anna. Alþjóðasumarleikarnir eru nú í fyrsta sinn haldnir utan Bandaríkjanna en Special Olympics-samtökin voru stofnuð þar árið 1968. Íslendingar taka þátt í sumarleik- um þroska- heftra KÁRI Stefánsson, forstjóri Ís- lenskrar erfðagreiningar, segir að yfirlýsing um að búið sé að full- raðgreina erfðamengi mannsins sé merkingarlaus og í raun röng, því óendanlega mikið af upplýsingum eigi eftir að ná út úr erfðamenginu. Hins vegar sé skilgreindu verkefni lokið, verkefni sem miðaðist við það að varpa ljósi á hvernig erfðameng- ið sé sett saman. Merkilegum kafla sé því lokið og mjög mikilvægum áfanga náð, en mikið verk sé óunnið. Nýlega var gefin út yfirlýsing þess efnis að hinu fjölþjóðlega sam- vinnuverkefni vísindastofnana (Human Genome Project) væri lokið og búið væri að fullraðgreina erfða- mengi mannsins, en verkefnið hófst árið 1990. Greint var frá þessu í net- útgáfu The New York Times í síð- ustu viku og haft eftir Kára Stef- ánssyni, forstjóra Íslenskrar erfða- greiningar, að það væri stórkostlegt að hafa aðgang að þeirri röð sem væri til staðar. Hún væri geysilega mikilvægt tæki fyrir ÍE í þeirri vinnu sem fyrirtækið væri að vinna og ÍE hefði lagt svolítið af mörkum í þessu efni, því þegar sá hópur sem hefði raðgreint erfðamengið hefði fengið aðgang að erfðakorti ÍE, sem hefði verið birt í fyrra, hefðu gæðin eða nákvæmnin á því hvernig erfða- mörkin hefðu verið sett inn á röðina aukist úr 93% í 99%. Hins vegar væri bjánaskapur að segja að búið væri að fullraðgreina erfðamengi mannsins. „Það er svo óendanlega mikið af upplýsingum beint úr erfðamenginu sem á eftir að ná út,“ segir Kári en áréttar að vísindamennirnir hafi lokið myndarlega fyrirfram skil- greindu verkefni og þannig þjónað vísindasamfélaginu geysilega vel. Kári Stefánsson gagnrýnir yfirlýsingu um lok raðgreiningar á erfðamengi Mikilvægur áfangi en ekki búið Kringlunni - sími 581 2300 GLEÐILEGT SUMAR Danskar leðurtöskur Stærsta töskuverslun landsins, Skólavörðustíg 7, sími 551 5814. Gæðavara NÝJAR VÖRU Í HVERRI VIKU MIKIÐ ÚRVAL GOTT VERÐ STÆRÐIR 34-48 HLIÐARGANGINUM SMÁRALIND TOPPAR OG SKYRTUR Í MIKLU ÚRVALI GOTT VERÐ STÆRÐIR 34-56 Kringlunni, sími 588 1680. Seltjarnanesi, sími 5611680. tískuverslun iðunn Glæsilegt úrval af yfirhöfnum Gleðilegt sumar SUMARTILBOÐ Nú er tækifæri til að koma og gera frábær kaup hjá Sissu 20-50% afsláttur af völdum vörum fram að mánaðamótum Opið virka daga frá kl. 10.30-18 • Laugardaga 10-16
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.