Morgunblaðið - 24.04.2003, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 24.04.2003, Blaðsíða 13
Þetta ætlum við aðgera! Loforð um jafnrétti kynjanna Þrátt fyrir skýr ákvæði í jafnréttislögum er umtals- verður launamunur kynjanna óþolandi staðreynd og konur aðeins tæpur fimmtungur stjórnenda hjá ríkinu árið 2003. Hjá Reykjavíkurborg hefur á undanförnum árum tekist að minnka óskýrðan launamun karla og kvenna um helming og fjölga konum í stjórnunarstöðum úr innan við 10% í 50%. Loforð Samfylkingar- innar í jafnréttismálum er einfalt – að endurtaka leikinn hjá hinu opinbera. Konur eiga mikið inni. Réttindi og virðing í velferðarþjónustu Samfylkingin boðar samábyrgð og samhjálp. Öflug velferðarþjónusta er lykill að stéttlausu landi. Samfylkingin vill efla heilsugæsluna og setja lög um 3–6 mánaða hámarksbið eftir algengum læknisaðgerðum. Við munum hækka barnabætur, lækka skatta af lágum og millitekjum, og lækka matarverð. Samfylkingin ætlar að bæta kjör aldraðra og öryrkja, og fjölga félagslegum íbúðum. Allir eiga að hafa frelsi til að lifa með reisn. Jafnræði og atvinnufrelsi í fiskveiðum Eignarhald þjóðarinnar á auðlindum sjávar á að tryggja í stjórnarskrá og innkalla fiskveiðikvóta í smáum skrefum. Fiskveiðistefna Samfylkingarinn- ar tryggir rétt strandbyggða til grunnslóðaveiða, dregur úr hvata til brottkasts, eykur fiskvernd og skapar jafnræði fólks og atvinnugreina. Raunverulegar úrbætur í byggðamálum Byggðaröskun í tíð ríkisstjórnarinnar hefur kostað samfélagið milljarðatugi. Nú er komið að raun- verulegum úrbótum. Með uppbyggingu fram- halds- og háskólanáms á landsbyggðinni, tvöföld- un styrkja vegna náms fjarri heimahögum, jöfnum aðgangi allra að fjarskiptum, skattaívilnunum til sprotafyrirtækja, breytingum á þungaskatti og eðlilegri dreifingu verkefna á vegum hins opinbera. Byggðirnar eiga að blómstra á ný. Einörð Evrópustefna Samfylkingin vill Evrópuverð á matvælum, Evrópuvexti og stöðugt gengi. Íslendingar eiga að skilgreina samningsmarkmið sín gagnvart Evrópu- sambandinu, sækja um aðild þar sem full yfirráð yfir Íslandsmiðum eru ófrávíkjanlegt skilyrði og leggja niðurstöðuna undir þjóðaratkvæði. Íslendingar eiga samleið með Evrópu. Menntun borgar sig! Fjárfesting í menntun er forgangsverkefni á næsta kjörtímabili. Nýtt námsefni, netvæðing allra skóla- stofa og sérstök alúð við börn nýrra Íslendinga er á dagskrá. Samfylkingin ætlar að endurreisa iðn- og verknám, draga úr brottfalli nemenda og opna símenntunarstöðvar. Háskólarnir munu fá nýtt blóð með nýju fjármagni og verða skjól fyrir sprotafyrirtæki ungra vísindamanna. Samfylkingin vill fjárfesta í fólki. Sókn í íslensku atvinnulífi Sóknarfærin eru mýmörg. Aukin ferðaþjónusta, orkuvinnsla og fiskeldi við réttar aðstæður. En bestu tækifærin liggja í hugviti, menntun og hátækni. Samfylkingin ætlar að efla áhættu- fjármögnun fyrir smáfyrirtæki, einfalda reglur og eftirlit og örva útflutning á íslenskri list. Við viljum fleiri frum- kvöðla og ætlum að byggja upp hvetjandi skattaumhverfi fyrir vaxtarbrodda. Smátt er líka fagurt. Nýtt lýðræði Samfylkingin vill að landið verði eitt kjördæmi og að þjóðaratkvæðagreiðslu sé beitt í mikilvægum málum. Einstakt tölvulæsi landsmanna og net- tækni á að nýta til að þróa milliliðalaust lýðræði með beinum kosningum. Setja þarf lög um opnar fjárreiður og tekjuöflun stjórnmálaflokka og um ábyrgð ráðherra, fækka ráðuneytum og stofna eitt atvinnuvegaráðuneyti.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.