Morgunblaðið - 24.04.2003, Blaðsíða 57

Morgunblaðið - 24.04.2003, Blaðsíða 57
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. APRÍL 2003 57 Sumar vörur eru fyrir sumarbörn og sumar fyrir fullor›na debenhams S M Á R A L I N D ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S D EB 2 09 55 04 /2 00 3 Sumarhappdrætti fyrir viðskiptavini barnadeildar Debenhams 1. vinningur Rollerblade stækkanlegir barnalínuskautar og hlífar frá Útilífi að verðmæti 12.980 kr. og barnafatnaður frá Debenhams að verðmæti 20.000 kr. 2. vinningur Hlaupahjól frá Útilífi að verðmæti 5.990 kr. og barnafatnaður frá Debenhams að verðmæti 15.000 kr. 3. vinningur Barnafatnaður frá Debenhams að verðmæti 10.000 kr. gildir til sunnudagsins 27. apríl. Fatnaður á alla sumarkrakka frá 0 - 14 ára. Smáralind - Glæsibæ Sjóðheit sumartilboð í öllum deildum. Gleðilegt sumar Opið í dag frá 13-18 Fjölbrautaskólarnir sigruðu í Opnu meistaramóti framhalds- og grunnskóla í brids Samsett sveit fjölbrautaskólanna í Breiðholti, Ármúla og Garðabæ sigraði á Meistaramóti framhaldsskóla í brids sem spilað var laugardaginn 12. apríl sl. Átta sveitir mættu til leiks og sáust mikil tilþrif þennan dag eins og gjarn- an þegar ungir spilarar leika listir sín- ar. Sigursveitin sýndi þó mikinn stöð- ugleika, leiddi allan tímann og var sigurinn fyllilega verðskuldaður. Spil- arar sveitarinnar voru þau Guðbjörg Eva Baldursdóttir og Örvar Óskarsson úr FÁ, Inda Hrönn Björnsdóttir úr FB og Gunnar B. Helgason úr FG. Í öðru sæti varð sveit frá Versló og Iðnskól- anum, skipuð þeim Andra Þór Sturlu- syni, Þórarni Haukssyni og Steinari Björnssyni úr Versló, auk Guðmundar Sveinssonar úr Iðnskólanum. Þriðja sætið skipaði sveit úr Menntaskólanum við Sund, en þar spiluðu Ómar Valsson, Hjörtur Már Reynisson, Davíð Jó- hannsson og Guðmundur Andrésson. Efstu sveitir: 1. – 141 stig Fjölbraut (Guðbjörg Eva, Inda, Örvar, Gunnar) 2. – 125 stig Versló/Iðnskólinn (Andri, Þórarinn, Steinar, Guð- mundur) 3. – 106 stig MS (Ómar, Hjörtur, Davíð, Guðmundur) 4. – 94 stig MH (Fannar Örn Há- konars, Kári Hreinss., Sindri Sverriss. og Valgerður Pétursd.) Auk þess spiluðu tvær gestasveitir. Ein úr Tækniskólanum (þar voru spil- arar of gamlir til að sveitin teldist „lög- leg“) og stóð hún sig frábærlega, náði 139 stigum. Spilarar Tækniskólans voru Guðmundur Snorrason, Garðar Eyjólfsson, Kristján Helgi Haf- steinsson og Björgvin Óskar Sig- urjónsson. Hin gestasveitin var skipuð Kristínu Sigurjónsdóttur úr MR, Báru Valgerði Friðriksdóttur úr Kvennó, Hrafnhildi Ýr Matthíasdóttur úr Fella- skóla og svo þurfti að fylla fjórða sætið með „of gömlum“ spilara, þannig að sveitin taldi ekki til verðlauna. Hún stóð sig þó með miklum ágætum, náði alls 109 stigum. Einnig spiluðu tvær sveitir úr grunnskólum Reykjavíkur í mótinu, þær áttu við ramman reip að draga, en kláruðu mótið með sóma (og bros á vör), enda fengu báðar sveitirnar verð- laun í grunnskólaflokki. Sú sveit sem sigraði (með 63 stig) var skipuð Magna Rafni Jónssyni, Pétri Bjarna Péturs- syni, Kára Emil Helgasyni og Viktori Orra Valgarðssyni, en silfursveitin þeim Hjálmari Erni E. Hinz, Sindra Aroni Viktorssyni og Þorvaldi Gauts- syni auk Daníels Más Sigurðssonar, sem fékk þó reyndar ekki verðlaun, enda villtist hann milli aldursflokka. Mótið var liður í að endurvekja hið sögufræga Íslandsmót framhaldsskóla í brids sem hér á árum áður náði gríð- arlegum vinsældum meðal ungra spil- ara. Á næsta ári verður það mót haldið á ný, eftir nokkurra ára hlé og verður það kynnt vel þegar nær dregur. Ljóst er að fræðsluátak Bridssambands Ís- lands er þegar farið að bera nokkurn ávöxt, en lengi hefur verið mikil lægð í flokki yngri spilara. Nú sér fyrir end- ann á því tímabili og er mjög gaman að sjá ungt fólk einbeita sér að brids á nýjan leik. Spilaðar voru sjö umferðir, 6 spila leikir. Keppnisstjórar voru Björgvin Már Kristinsson og Daníel Már Sig- urðsson og fór mótið vel fram í alla staði. Íslenska karlalandsliðið spilar í Keflavík Íslenska karlalandsliðið í brids fer suður með sjó nk. laugardag og spilar æfingaleik við félaga í Bridsfélagi Suð- urnesja en dagana 25.-27. apríl eru svo- kallaðir frístundadagar í Reykja- nesbæ. Spilað verður í Flughóteli og í Kjarnakaffi og hefst spilamennskan kl. 13. Landsliðið er á förum á Norð- urlandamótið sem að þessu sinni verð- ur í Færeyjum í maí og er þessi heim- sókn liður í undirbúningi liðsins. Áhugamenn eru hvattir til að mæta því nú er að sjá hvort Suðurnesjamenn geta velgt okkar bestu spilurum undir uggum. Það eru fyrrnefnd fyrirtæki sem styrkja landsliðið og bridsfélagið til að halda keppnina. Sveit Frímanns Stefánssonar vann Halldórsmótið hjá BA Nú er Halldórsmót Bridsfélags Ak- ureyrar lokið, með öruggum sigri sveitar Frímanns Stefánssonar, en með Frímanni spiluðu þau Una Sveins- dóttir, Stefán Ragnarsson, Ólafur Ágústsson og Páll Þórsson. Loka- staðan varð: Sveit Frímanns Stefánssonar 212 Sveit Stefáns Sveinbjörnsson 199 Sveit Gylfa Pálssonar 168 Sveit Páls Pálssonar 168 Sveit Sparisjóðs Norðlendinga 144 Næsti sunnudagsbrids verður spil- aður sunnudaginn 27. apríl. Frá bridsfélagi eldri borgara Hafnarfirði Spilaður var Mitchell tvímenningur þriðjudaginn 15. apríl. Úrslit urðu þessi. Norður/suður-riðill Bragi Björnsson – Auðunn Guðmundss. 206 Árni Bjarnas. – Þorvarður S. Guðm. 179 Sófus Berthelsen – Ólafur Gíslason 177 Austur/vestur-riðill Guðmundur Guðm. – Sigurlín Ágústsd. 197 Guðmundur Árnason – Jón Gunnarsson 185 Oddur Jónsson – Katarínus Jónsson 179 Hermann Valsteinss. – Bjarnar Ingim. 179 Íslandsmót í tvímenningi Undanúrslitin verða spiluð 1. - 2. maí nk. 1. maí hefst spilamennska kl. 11.00 en 2. maí er byrjað að spila kl. 17.00. Úrslitin verða síðan spiluð 3. og 4. maí. Í undanúrslitum eru spilaðar 3 lotur og kemst 31 par í úrslitin. Til að auðvelda skipulag mótsins eru spilarar beðnir að skrá sig í síðasta lagi þriðju- daginn 29. apríl kl. 17.00. Skráning í s. 587 9360 eða www.- bridge.is. BRIDS Umsjón Arnór G. Ragnarsson Sigursveit fjölbrautaskólanna. Talið frá vinstri: Guðbjörg Eva Baldursdóttir, Inda Hrönn Björnsdóttir, Gunnar B. Helgason og Örvar Óskarsson. Fyrirtæki • stofnanir • heimili Hreinsum rimla-, viðar-, strimla- og plíseruð gluggatjöld Einnig sólarfilmur Eru rimlagardínurnar óhreinar? sími 897 3634 dgunnarsson@simnet.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.