Morgunblaðið - 24.04.2003, Blaðsíða 80

Morgunblaðið - 24.04.2003, Blaðsíða 80
Sími 588 1200 Lágmúla og Smáratorgi opið kl. 8-24 alla daga fyrir eftir Grei›slufljónusta  fyrir fyrirtæki N‡jung ! SVO virðist sem eftirlíkingar af hinni íslensku fálka- orðu gangi kaupum og sölum á uppboðsvefnum ebay.com, en vitað er um tvö mjög nýleg dæmi um slíkt. Annars vegar var um að ræða smækkaða út- gáfu af orðu frá fimmta áratugnum og lýkur upp- boði á henni í dag, sumardaginn fyrsta. Sölustaður- inn er San Francisco í Bandaríkjunum og er orðan metin á rúma 40 dollara eða um þrjú þúsund krónur. Hitt tilvikið er eftirlíking af stórriddarakrossi frá tímabilinu 1919 til 1938. Uppboðinu lauk á mánudag og mun orðan vera frá Þýskalandi og seld Íslendingi á 25 dollara. Tekið skal fram að seljendur reyndu ekki að telja fólki trú um að orðurnar væru ekta. Að sögn Stefáns L. Stefánssonar, forsetaritara og ritara orðunefndar, hefur nefndinni ekki verið kunn- ugt um þessa sölustarfsemi. Ekki mun vera bannað að framleiða eftirlíkingar af fálkaorðunni en Stefán segir það þó miður að þær skuli vera í umferð. Eftirlíkingar af íslensku fálkaorðunni seldar á Netinu EKKI liggur fyrir frá hvaða bakaríi brauðbit- inn var sem mávager slóst um yfir Elliðaár- um fer af því hvernig leikar fóru og hvort sá sem hnossið hreppti náði að halda því. dalnum í gær en mikið var rifist og þráttað með tilheyrandi gargi og látum. Engum sög- Morgunblaðið/Ómar Baráttan um brauðið SÓLON R. Sigurðsson, banka- stjóri Búnaðarbanka Íslands, segir að tveir af þeim fjórum lykilstarfs- mönnum sem sögðu upp störfum sínum hjá Búnaðarbankanum síð- astliðið mánudagskvöld geti ekki hafið störf hjá Landsbankanum fyrr en í fyrsta lagi hinn 1. júní næstkomandi. Þá segir hann að átta af þeim tíu starfsmönnum sem til viðbótar hafa sagt upp störfum sínum hjá bankanum í þessari viku séu bundnir til 10. júní. Að sögn Sólons geta þau S. Elín Sigfúsdóttir, fyrrverandi fram- kvæmdastjóri fyrirtækjasviðs bankans, og Yngvi Örn Kristins- son, fyrrverandi framkvæmda- stjóri verðbréfasviðs, ekki hafið störf hjá Landsbankanum fyrr en í fyrsta lagi hinn 1. júní næstkom- andi. Hann segir að boðum þessa efnis hafi verið komið til Lands- bankans. Hins vegar segir hann að það skipti ekki máli hvenær Sig- urjón Þ. Árnason, fyrrverandi framkvæmdastjóri rekstrarsviðs bankans, og Ársæll Hafsteinsson, fyrrverandi aðallögfræðingur, hefja störf hjá Landsbankanum. Þeir megi Búnaðarbankans vegna byrja hvenær sem er. Þessir fjórir fyrrverandi starfs- menn Búnaðarbankans hafa allir hafið störf hjá Landsbankanum. Átta bundnir til 10. júní Alls hafa fjórtán starfsmenn Búnaðarbankans sagt upp störfum sínum hjá bankanum frá því á mánudagskvöld. Fyrst sögðu fjórir lykilstarfsmenn bankans upp og síðan hafa tíu bæst við. Þar af eru átta af verðbréfasviði bankans og tveir af fyrirtækjasviði. Sólon segir að þeir átta starfs- menn af verðbréfasviði bankans sem sagt hafa upp í þessari viku geti ekki hafið störf hjá samkeppn- isaðila fyrr en í fyrsta lagi 10. júní næstkomandi, samkvæmt ráðning- arsamningum þeirra. Í ráðningar- samningum þeirra tveggja starfs- manna af fyrirtækjasviði sem einnig hafi sagt upp séu hins vegar ekki ákvæði svipaðs efnis. Sólon sagðist í samtali við Morg- unblaðið í gærkvöldi ekki geta nefnt nöfn þeirra tíu starfsmanna sem sagt hefðu upp störfum hjá bankanum til viðbótar við þau fjög- ur sem fyrst sögðu upp. Hann segir að auðvitað hrikti í þegar helstu starfsmenn á ákveðnum sviðum yf- irgefi vinnustaðinn, en maður komi í manns stað. Því sé ekki ástæða fyrir Búnaðarbankann til að hafa miklar áhyggjur af þessu máli. Fleiri ráðnir til Landsbankans Samkvæmt heimildum sem Morgunblaðið telur áreiðanlegar verða flestir ef ekki allir þeirra starfsmanna Búnaðarbankans, sem sagt hafa upp störfum sínum hjá bankanum, ráðnir til starfa hjá Landsbankanum. Sumir þeirra munu hafa haft frumkvæði að því að leita eftir starfi hjá Landsbank- anum en aðra hafði bankinn sjálfur samband við. Fjórtán starfsmenn Búnaðarbanka á leið í Landsbanka Tíu geta ekki byrjað strax hjá Landsbanka ÞRÍR bílar, sem stolið var af bílastæðum í Breiðholti og Árbæ í fyrrinótt, fundust í gærmorgun ofan í ánni Bugðu sem rennur í Elliðavatn. Bílarnir eru með topplúgu sem var í öllum tilvikum opin en það getur bent til þess að bílunum hafi verið ekið ofan í ána en ökumaður síðan smeygt sér upp um lúg- una og stokkið í land. Hestamaður sem átti leið þarna um til- kynnti um bílana á ellefta tímanum í gær- morgun. Lögregla og slökkvilið höfðu tals- verðan viðbúnað og kalla þurfti á kranabíla til að draga bílana upp úr ánni og síðan á brott. Nærri tuttugu ára bílar Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu eru bílarnir tæplega tuttugu ára gamlir, tveir af gerðinni Mercedes Benz og einn Saab 900. Annar Benzinn var ofan í ánni skammt frá vaði en hinir tveir voru á kafi neðan við göngu- og reiðbrú yfir Bugðu. Þak annars Benzins var talsvert rispað og virðist sem hann hafi rekið niður ána og rekist upp undir brúna áður en hann sökk til botns. Líklegt er að Saabinn hafi verið látinn renna ofan í ána fyrir neðan brúna, þar lá a.m.k. hljóðkútur úr bílnum. Í einum bílnum voru dýr rafverkfæri sem skemmd- ust við volkið. Að sögn lögreglu er talið hugsanlegt að þeir sem stálu bílunum hafi verið að taka upp myndband og aksturinn verið þáttur í því. Málið er í rannsókn og lýsir lögregla eftir vitnum. Morgunblaðið/Halldór Kolbeins Kafari slökkviliðsins kom böndum á Benz- inn svo hægt væri að draga hann upp úr. Stolnir bílar fundust ofan í Bugðu MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 FIMMTUDAGUR 24. APRÍL 2003 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK. Fíkniefni fundust í Reykjavík LÖGREGLAN í Reykjavík lagði í gær hald á 150 grömm af hassi, nokkur grömm af amfetamíni og þrjú grömm af kókaíni í þremur óskyldum málum. Almenna deild lögreglunnar fann hassið og amfetamínið en í samstarfi við fíkniefnadeildina lagði hún einnig hald á kókaínið. Efnin fundust öll í heimahúsum og voru tveir handteknir vegna hassmálsins og hvor sinn aðilinn vegna hinna tveggja málanna. Var þeim öllum sleppt að loknum yfir- heyrslum og teljast málin upplýst. Teikn um vaxandi umsvif í efnahagslífinu Veltuskatt- ar skila nær 9% meiru en í fyrra TÖLUR fjármálaráðuneytisins um greiðsluafkomu ríkissjóðs á fyrsta fjórðungi ársins sýna vaxandi um- svif. Tekjur af almennum veltu- sköttum jukust um 11% á milli ára eða um 8,7% að teknu tillliti til verðbreytinga. Vörugjöld af bens- íni og áfengi skiluðu einnig umtals- vert meiri tekjum en á sama tíma í fyrra og tekjur af vörugjöldum af bílum jukust um 50% milli ára. „Að öllu samanlögðu gefa inn- heimtutölur í mars þannig enn frekari vísbendingar um að innlend eftirspurn sé að taka við sér á nýj- an leik eftir samdrátt síðustu miss- era,“ segir í nýútkomnu Vefriti fjármálaráðuneytisins. Heildartekjur ríkissjóðs hækk- uðu um 23,2% eða um 12,9 millj- arða en lunginn af auknum tekjum eða 10,8 milljarðar komu vegna sölu á hlutabréfum ríkisins í við- skiptabönkunum tveimur. Ef litið er fram hjá þeirri sölu jukust tekj- urnar um 3,8%.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.