Morgunblaðið - 24.04.2003, Blaðsíða 64

Morgunblaðið - 24.04.2003, Blaðsíða 64
verði þetta allt sett í flokk með fjármagnstekjum og greiddur af því aðeins 10% skattur. Þykir mönnum réttlátt að efnað fólk sem lifir af fjár- magnstekjum greiði aðeins 10% skatt meðan aldraðir, öryrkjar og aðrir bótaþegar eru krafðir um 38% skatt af sinni hungurlús? Jón Kjartansson frá Pálmholti. Léleg þjónusta ÉG er með öll mín símavið- skipti hjá Íslandssíma. Ný- lega þurfti ég að athuga með internetþjónustu fyrir föður minn og gekk það ekki greiðlega. Hringdi ég með fyrirspurn til þjónustufull- trúa sem ætlaði að hringja í mig aftur þegar hann væri búinn að athuga málið. Þurfti ég að hringja 3 sinn- um til að ítreka þetta og fékk alltaf samband við nýj- an þjónustufulltrúa. Enginn þeirra hefur haft samband til baka til að svara fyrir- spurn minni. Finnst mér þetta ekki góð þjónusta hjá framsæknu fyrirtæki. 230461-2449. Tapað/fundið Hringar í óskilum í Fjarðarkaupum 4 hringar eru í óskilum hjá Fjarðarkaupum. Einn gift- ingarhringur með nafni og ártalinu 1952, einn karl- mannshringur með áletrun, einn hringur með steini og lítill sérsmíðaður hringur. Upplýsingar í síma 555 3500. Svart drengjahjól týndist SVART drengjahjól, Track, týndist frá leiksvæðinu við Túngötu. Skilvís finnandi hafi samband í síma 562- 1643. Jakki týndist BLÁR stuttur gallajakki týndist á Thorvaldsen bar sl. laugardagskvöld 19. apr- íl. Skilvís finnandi hafi sam- band í síma 847 3813. Dýrahald Dísarpáfagaukur týndist SKÆRGULUR dísarpáfa- gaukur týndist í Fellahverfi. Þeir sem hafa orðið varir við fuglinn hafi samband í síma 587 2431. Fallegur fress fæst gefins 8 mánaða fallega hvítur fress, hvítur með svart skott og annað eyrað svart, fæst gefins. Þetta er mjög sér- stakur köttur og gæfur. Upplýsingar í síma 823 9398 og 587 2474. VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15  Netfang velvakandi@mbl.is Skemmtilegar auglýsingar MIG langar að koma því á framfæri að þessar auglýs- ingar sem hafa verið að birt- ast frá Olís eru skemtilegar, fyndnar og hitta í mark. Þetta eru auglýsingar sem renna ekki beint í gegnum hugann heldur brosir maður líka eftirá. Sem sagt til lukku Olís með þessar skemmtilegu auglýsingar. Unnur. Sóðaskapur ÉG var að bíða eftir stræt- isvagni í biðstöð hjá Kringl- unni. Þar voru ungir menn sem voru að bíða en gerðu ekkert annað en að hrækja á stéttina og var gangstéttin orðin blaut eftir strákana. Finnst þetta ógeðslegt því fólk ber þetta í skónum heim til sín. Farþegi. 10% skatt af bótum ÉG vil biðja menn að taka til athugunar þá tillögu Guð- jóns A. Kristjánssonar, for- manns Frjálslynda flokks- ins, að úr því örorkubætur, ellistyrkur, atvinnuleysis- bætur og annað sem Trygg- ingastofnun greiðir fólki til framfærslu, er ekki með- höndlað sem laun og fylgir t.d. ekki launavísitölu þá Feðgin á hjólum við Nauthólsvík. Morgunblaðið/Ómar DAGBÓK 64 FIMMTUDAGUR 24. APRÍL 2003 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍM- AR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, aug- lýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið. Skipin Reykjavíkurhöfn: Arina Arctica, Laug- arnes, Alboran, Mána- foss og Þerney koma í dag. Helgafell, Detti- foss og Haukur fara í dag. Fréttir Mæðrastyrksnefnd Kópavogs er lokuð vegna flutninga, hún opnar aftur 6. maí að Fannborg 8, áður hús- næði Bókasafns Kópa- vogs, lesstofa á jarð- hæð. Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur. Skrif- stofa, s. 551 4349, opin miðvikud. kl. 14–17. Flóamarkaður, fataút- hlutun og fatamóttaka opin annan og fjórða miðvikud. í mánuði kl. 14–17, s. 552 5277. Mannamót Félag eldri borgara, Hafnarfirði, Hraunseli, Flatahrauni 3. Félags- heimilið Hraunsel verð- ur lokað í dag, sum- ardaginn fyrsta. Félag eldri borgara, Reykjavík, Ásgarði. Glæsibæ. Fimmtudag- ur: Brids kl. 13. Skrif- stofa félagsins er í Faxafeni 12, sími 588 2111. Gerðuberg, félagsstarf. Starfsfólk óskar þátt- takendum og sam- starfsaðilum fé- lagsstarfsins gleðilegs sumars með þakklæti fyrir samstarfið í vetur. Allar upplýsingar um starfsemina á staðnum og í síma 575 7720. Gullsmári, Gullsmára 13. Gleðigjafarnir syngja inn sumarið föstudaginn 25. apríl kl. 14. Gleðigjafarnir eru fólk sem hittist annan hvern föstudag og syngur og hlustar á söng saman. Allir vel- komnir. Gönguklúbbur Hana- nú. Morgunganga kl. 10 laugardagsmorgna frá Gjábakka. Krumma- kaffi kl. 9. Gigtarfélagið. Leikfimi alla daga vikunnar. Létt leikfimi, bakleik- fimi karla, vefjagigt- arhópar, jóga, vatns- þjálfun. Einn ókeypis prufutími fyrir þá sem vilja. Uppl. á skrifstofu GÍ, s. 530 3600. Stuðningsfundir fyrr- verandi reykingafólks. Fólk sem sótt hefur námskeið gegn reyk- ingum í Heilsustofnun NLFÍ í Hveragerði, fundur í Gerðubergi á þriðjud. kl. 17.30. GA-fundir spilafíkla kl. 18.15 á mánudögum í Seltjarnarneskirkju (kjallara), kl. 20.30 á fimmtudögum í fræðsludeild SÁÁ, Síðumúla 3–5, og í Kirkju Óháða safnaðar- ins við Háteigsveg á laugardögum kl. 10.30. Samtök þolenda kyn- ferðislegs ofbeldis. Fundir mánudaga kl. 20 að Sólvallagötu 12. Stuðst er við 12 spora kerfi AA-samtakanna. OA-samtökin. Átrösk- un / Matarfíkn / Ofát. Fundir alla daga. Upp- lýsingar á www.oa.is og í síma 878 1178. Ásatrúarfélagið, Grandagarði 8. Opið hús alla laugardaga frá kl. 14. Kattholt. Flóamark- aður í Kattholti, Stang- arhyl 2, er opinn þriðjud. og fimmtud. frá kl. 14–17. Leið 10 og 110 ganga að Kattholti. Sjálfsbjörg, félag fatl- aðra á Höfuðborg- arsvæðinu. Félags- heimilið, Hátúni 12. Aðalfundurinn verður laugardaginn 26. apríl kl. 14. Venjuleg aðal- fundarstörf. Minningarkort Minningarkort Lands- samtaka hjartasjúk- linga fást á eftirtöldum stöðum á Vestfjörðum: Jón Jóhann Jónsson, Hlíf II, Ísafirði, s. 456 3380 Jónína Högnadóttir, Esso- verslunin, Ísafirði, s. 456 3990 Jóhann Kára- son, Engjavegi 8, Ísa- firði, s. 456 3538 Kristín Karvelsdóttir, Mið- stræti 14, Bolungarvík, s. 456 7358. Styrktarfélag krabba- meinssjúkra barna. Minningarkort eru af- greidd í síma 588 7555 og 588 7559 á skrif- stofutíma. Gíró- og kreditkortaþjónusta. Samtök lungnasjúk- linga. Minningarkort eru afgreidd á skrif- stofu félagsins í Suð- urgötu 10 (bakhúsi), 2. hæð, s. 552 2154. Skrif- stofan er opin miðvi- kud. og föstud. kl. 16– 18. Einnig er hægt að hringja í síma 861 6880 og 586 1088. Gíró- og kreditkortaþjónusta. Minningarkort MS- félags Íslands eru seld á skrifstofu félagsins, Sléttuvegi 5, 103 Rvk. Skrifstofan er opin mán.–fim. kl. 10–15. Sími 568 8620. Tölvu- póstur ms@msfelag.is. FAAS, Félag aðstand- enda alzheimer- sjúklinga. Minning- arkort eru afgreidd alla daga í s. 533 1088 eða í bréfas. 533 1086. Í dag er fimmtudagur 24. apríl, 114. dagur ársins 2003, sumar- dagurinn fyrsti. Orð dagsins: Ég kann að búa við lítinn kost, ég kann einnig að hafa allsnægtir. Ég er fullreyndur orðinn í öllum hlut- um, að vera mettur og hungraður, að hafa allsnægtir og líða skort. (Fil. 4, 12.)     Í heilsíðuauglýsinguSamfylkingarinnar er úrklippa úr Morgun- blaðinu, með frétt þess frá 12. apríl, um nið- urstöður Hörpu Njáls hvað varðar stuðning hins opinbera við barna- fjölskyldur á Íslandi. Undir úrklippunni stend- ur stórum stöfum: „Þessu þarf að breyta!“     Fyrirsögn Morgunblaðs-fréttarinnar er: „Minnsti stuðningur við barnafjölskyldur á Ís- landi“. Birt er tafla yfir útgjöld hins opinbera á Norðurlöndunum vegna barnafjölskyldna, sem hlutfall af vergri lands- framleiðslu.     Þar sést, að árið 2000námu þessi útgjöld 2,3% af vergri landsfram- leiðslu á Íslandi, en á bilinu 3,1-3,7% á hinum Norðurlöndunum. Árið 1993 var hlutfallið 2,4% á Íslandi. Af þessum tölum dregur Samfylkingin þá ályktun, að hækka verði barnabætur um þrjá milljarða á ári, auk ým- issa breytinga á skatt- og velferðarkerfinu.     En hér ber að staldraaðeins við. Er stærðin „útgjöld hins opinbera vegna barnafjölskyldna sem hlutfall af vergri landsframleiðslu“ mark- tækur mælikvarði?     Þessi mælikvarði segirlítið um hver þessi út- gjöld eru í raun, því hann breytist eftir því sem landsframleiðsla breytist. Ef hagvöxtur er mikill, þ.e. aukning á vergri landsframleiðslu, þurfa þessi útgjöld að vaxa mik- ið til að vera sama hlutfall af landsframleiðslu. Þar að auki sýna rannsóknir að aukinn hagvöxtur veldur aukinni velsæld og því ætti þörf á slíkum út- gjöldum að minnka við slíka þróun.     Þannig verða útgjöldinað hækka um 5% ef hagvöxtur er 5%, til að vera áfram sama hlutfall af landsframleiðslu. Á ár- unum 1993-2000 var hag- vöxtur á Íslandi tæplega 33%. Það þýðir, að út- gjöld hins opinbera vegna barnafjölskyldna hafa vaxið um 27% á þessu tímabili!     Á sama tíma hefur hlut-fallið, kannski eðli- lega, lækkað hjá hinum þjóðunum. Í Svíþjóð voru þessi útgjöld 5,7% af vergri landsframleiðslu árið 1993, en 3,6% árið 2000. Í Danmörku lækk- uðu þau úr 3,9% í 3,7%. Í Finnlandi lækkuðu þau úr 4,7% niður í 3,1% og í Noregi úr 4,2% í 3,2%.     Ef Samfylkingin vill„breyta þessari þró- un“ er hún þá ekki að leggja til að framlög hins opinbera til barnafjöl- skyldna verði lækkuð? STAKSTEINAR Vill Samfylkingin lækka útgjöld til barnafjöl- skyldna? Víkverji skrifar... VÍKVERJI mælir meðþví að fólk fari inn á vefsvæðið www.hagur.is áður en það tekur neyslu- lán. Á vefnum má nefnilega reikna út hversu miklu hagkvæmara það er að spara en að taka lán. Dæmi: Sá sem á 50.000 krónur en ákveður að kaupa sófasett á 400.000 krónur á raðgreiðslusamn- ingi til 18 mánaða greiðir tæplega 100.000 krónum meira fyrir sófasettið en maður sem leggur 50.000 krónurnar í banka og sparar fyrir sófasettinu á 18 mánuðum. Mismunurinn er m.a. vegna þess að sparnaðurinn safnar innlánsvöxtum. Aldrei ætlar Vík- verji að kaupa nokkurn skapaðan hlut með raðgreiðslum. x x x ÍRÚMLEGA tvö ár hefur vinn-ingstalan í aðalúrdrætti Happ- drættis Háskóla Íslands aldrei end- að á sjö. Hún hefur á hinn bóginn fjórum sinnum endað á einum, þrisv- ar á tveimur, fjórum sinnum á þrem- ur, tvisvar á fjórum og fimm, fimm sinnum á sex, þrisvar á átta og níu og tvisvar á núlli. Víkverji veit þetta vegna þess að hann er í rauðvíns- happdrættisklúbbi í vinnunni en sá hlýtur vinninginn sem er handhafi síðustu tölunnar. Vinningurinn er ein flaska frá hverjum klúbbfélaga. Víkverji er með sjöuna. Hann tók við henni fyrir rúmlega tveimur árum eftir að hafa verið fullvissaður um að hún væri þvílík lukkutala. Víkverji var hóflega bjartsýnn en taldi ekk- ert fjarri lagi að líkurnar á að hljóta vinning væru um það bil 1:10. Síðan þá hefur hann látið vinnufélögum sínum 28 rauðvínsflöskur í té og kostað til þess um 35.000 krónum en aldrei unnið sjálfur. Ekki að Víkverji sjái eftir þessum flöskum, þannig séð. Það liggur hins vegar við að þessi sjöuskortur sé grunsamlegur. Kannski er sjöan ryðguð föst. Maður veit aldrei. x x x VÍKVERJI hugðist sjáheimildarmyndina Keil- að fyrir Columbine á annan í páskum, kíkti í Moggann og sá að hún var sýnd klukkan 8. Var kominn stundvíslega í Regnbogann en var þá tjáð að myndin væri sýnd klukkan 10. Þeg- ar afgreiðslustúlkunni var bent á auglýstan tíma í Morgunblaðinu svaraði hún með því að segja að sá tími hafi verið auglýstur í Sunnu- dagsmogganum. Nú væri mánudag- ur og þá væri annar sýningartími. „Og hvernig í ósköpunum átti ég að vita það,“ spurði Víkverji en fékk ekkert svar. Vita Regnbogamenn ekki að á Íslandi koma ekki út dag- blöð á annan í páskum? Víkverja finnst með ólíkindum hjá bíóinu að breyta sýningartímanum án þess að hafa möguleika á að tilkynna það væntanlegum bíógestum með full- nægjandi hætti. Varla er hægt að ætlast til að fólk hringi á undan sér eða athugi sýningartímann á Netinu. Morgunblaðið/Golli Það borgar sig að spara fyrir sófanum. LÁRÉTT 1 lyfta, 4 plönturíki, 7 fiskúrgangur, 8 tuskan, 9 ávinning, 11 kven- mannsnafn, 13 þrjóskur, 14 krús, 15 hörfa, 17 galdratilraun, 20 nóa, 22 lélegrar skepnu, 23 laun, 24 að inn- anverðu, 25 drykkju- maður. LÓÐRÉTT 1 ómjúka, 2 fálætið, 3 siga, 4 gaffal, 5 stór- sjór, 6 fífl, 10 dinguls, 12 keyra, 13 þekja, 15 líti, 16 lauslæisdrósin, 18 endurbót, 19 koma skapi við, 20 sleif, 21 bút. LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU Lárétt: 1 tónsmíðin, 8 glæða, 9 aflát, 10 Rán, 11 teikn, 13 syrpa, 15 hvarf, 18 safna, 21 róm, 22 miðli, 23 áferð, 24 tungutaks. Lóðrétt: 2 ónæði, 3 skarn, 4 Írans, 5 illur, 6 ógát, 7 ótta, 12 ker, 14 yla, 15 híma, 16 auðnu, 17 Frigg, 18 smátt, 19 flekk, 20 arða. Krossgáta 1 7 11 15 22 24 12 14 3 9 20 10 4 8 21 23 25 13 17 5 18 6 19 2 16
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.