Morgunblaðið - 24.04.2003, Blaðsíða 8
FRÉTTIR
8 FIMMTUDAGUR 24. APRÍL 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Fyrst bjóðum við upp einstæða móður með litla kútinn sinn, síðan manninn með þá „bláu“,
og þá Gauja goggara, Neijara-Grím og að síðustu the Saddams-killer.
Búa börn við fátækt á Íslandi?
Örbirgð eða
allsnægtir?
SPURNINGIN hvortfátækt sé á Íslandihefur verið áleitin í
umræðunni hin síðustu
misseri og eru skoðanir á
því ýmsar. Málþing verð-
ur haldið á vegum Ís-
Forsa á Grand hóteli á
mánudaginn og stendur
milli kl. 13 og 16.15. Yf-
irskrift málþingsins er
Örbirgð eða allsnægtir –
búa börn við fátækt á Ís-
landi? Sigríður Jónsdótt-
ir, framkvæmdastjóri
þróunarsviðs Félagsþjón-
ustunnar í Reykjavík, er
meðlimur í Ís-Forsa og
sat í undirbúningsnefnd
þingsins, auk þess að vera
einn fyrirlesara. Morgun-
blaðið lagði nokkrar
spurningar fyrir hana.
– Hver heldur málþingið,
þ.e.a.s. hvað er Ís-Forsa?
„Málþingið er haldið á vegum
Ís-Forsa, sem stofnað var í apríl
2002. Meginmarkmið Ís-Forsa er
að styðja við og efla rannsóknir á
sviði velferðar og félagsráðgjaf-
ar. Ís-Forsa meðlimir eru nú um
50 talsins. Ís-Forsa á systurfélög
á hinum Norðurlöndunum.
„Forsa Norden“ er samstarfs-
vettvangur norrænu félaganna
og heldur m.a. norræna ráð-
stefnu annað hvert ár. Næsta
Forsa ráðstefnan verður haldin í
Norrköping í nóvember.“
– Um hvað verður fjallað á
málþinginu?
„Á málþinginu verður velferð-
arhugtakið í brennidepli út frá
íslenskum og alþjóðlegum veru-
leika, en sjónum verður sérstak-
lega beint að aðstæðum barna.
Varpað verður fram þeirri
spurningu hvort börn búi við fá-
tækt á Íslandi.“
– Hvert verður hlutverk mál-
þingsins og hverju verður helst
leitast við að svara?
„Málþingið er liður í því að
efla faglega og fræðilega umfjöll-
un um áleitið og viðkvæmt mál
eins og fátækt í nútímavelferð-
arsamfélagi og þá sérstaklega
um áhrif fátæktar á börn. Leit-
ast verður við að svara ýmsum
spurningum, svo sem þeirri
hvernig íslenska velferðarkerfið
er að þróast og þá sérstaklega
m.t.t. hagsmuna barna og barna-
fjölskyldna. Hvaða afleiðingar
hefur það fyrir barnafjölskyldur
að búa við kröpp kjör og þá sér-
staklega með tilliti til uppvaxt-
arskilyrða barnanna. Hvaða
áhrif hefur það á möguleika
barna að búa í fjölskyldum með
lágar tekjur og takmarkaða
tekjumöguleika? Hvaða áhrif
hefur það á möguleika þessara
barna í nútíð og framtíð? Eru fá-
tæk börn dagsins í dag fátækir
foreldrar framtíðarinnar?“
– Hverjir munu taka til máls á
málþinginu og um hvað munu
þeir helst fjalla?
„Stefán Ólafsson, prófessor í
Háskóla Íslands, mun fjalla um
einkenni íslenska vel-
ferðarkerfisins í fjöl-
þjóðlegum saman-
burði, þróun þess og
breytingar á kerfinu á
liðnum árum. Guðný
Björk Eydal, lektor
við Háskóla Íslands,
beinir athyglinni að fátækt barna
í velferðarríkjum og gerir grein
fyrir samanburðarrannsóknum á
fátækt barna í vestrænum lönd-
um, eðli og umfangi hennar.
Harpa Njáls, skrifstofustjóri og
sérfræðingur á Borgarfræða-
setri, dregur fram skyldur ís-
lenskra stjórnvalda til að tryggja
öllum börnum velferð. Ég mun
fjalla um þróun fjárhagsaðstoðar
í Reykjavík með sérstakri
áherslu á stöðu barnafjöskyldna
í Reykjavík sem ekki ná endum
saman. Sigurður Snævarr, borg-
arhagfræðingur í Reykjavík,
fjallar um tekjudreifingu í sam-
félaginu og leitar svara við því
hvort barnafólk búi fremur við
fátækt en aðrir þjóðfélagsþegn-
ar. Gefn Baldursdóttir og Sig-
urður H. Sveinsson munu fjalla
um það hvernig það er að lifa af
lágum tekjum í íslensku sam-
félagi nútímans. Lára Björns-
dóttir, félagsmálastjóri í Reykja-
vík og stjórnarmaður í Ís-Forsa,
verður fundarstjóri málþingsins.
Í upphafi málþingisns mun Guð-
rún Kristinsdóttir, prófessor við
Kennaraháskóla Íslands og for-
maður Ís-Forsa, ávarpa mál-
þingsgesti og Halldór Gunnars-
son, fyrrum Þokkabótarmaður,
núverandi formaður Þroska-
hjálpar og stjórnarmaður í Ís-
Forsa, mun galdra fram ljúfa
tóna.“
– Verður leitað eftir einhvers
konar niðurstöðu eða ályktun í
málþingslok?
„Hinn góðkunni útvarps- og
dagskrárgerðarmaður Ævar
Kjartansson mun í lok málþings-
ins reifa þá þætti sem fram
komu og draga fram helstu nið-
urstöður málþingsins.“
– Fyrir hverja er þetta mál-
þing helst og er það öllum opið?
„Þetta málþing er opið öllum
og allir eru velkomnir
á meðan húsrúm leyf-
ir. Hins vegar er rétt
að geta þess að að-
gangseyrir er 2.500
krónur og nauðsynlegt
er að skrá sig til
þingsins. Það er hægt
að gera hjá Félagsþjónustunni í
Reykjavík eða á netföngin aud-
urv@fel.rvk.is og valgerdurs-
@fel.rvk.is“
– Hvað ef fólk vill forvitnast
frekar um Ís-Forsa?
„Upplýsingar um Ís-Forsa er
að finna á Netinu á slóðinni
http://starfsfolk.khi.is/gkrist/.“
Sigríður Jónsdóttir
Sigríður Jónsdóttir fæddist í
Reykjavík 1950. Stúdent frá
Menntaskólanum í Hamrahlíð
1970 og BA-próf í almennum
þjóðfélagsfræðum frá Háskóla
Íslands 1974 og MA-próf í félags-
legri stefnumótun og stjórnsýslu
frá Háskólanum í Manchester
1979. Hefur mest starfað við Fé-
lagsþjónustuna í Reykjavík og er
þar framkvæmdastjóri þróunar-
sviðs. Starfar einnig við Háskóla
Íslands. Sigríður á tvö uppkomin
börn, Jón Óskar og Halldísi, en
maki er Ólafur Örn Thoroddsen.
Eru fátæk
börn í dag fá-
tækir for-
eldrar fram-
tíðarinnar?
Sjálfstæ›isflokkurinn í Kópavogi
www.solidea.com
Fyrir flottar konur
Bankastræti 11 • sími 551 3930