Morgunblaðið - 24.04.2003, Blaðsíða 61

Morgunblaðið - 24.04.2003, Blaðsíða 61
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. APRÍL 2003 61 OD DI H F J 50 58 ...vísa þér veginnwww.lmi.is Ómissandi í ferðalagið Ferðakort 1:250 000 Vesturland og Suðurland Annað kortið af þremur í flokki nýrra vandaðra ferðakorta í mælikvarða 1:250 000 er komið út. Mjög handhægt brot sem hentar vel á ferðalögum. Mikil skörun á milli korta. Byggt á nýjum stafrænum gögnum. Kort sem ættu að vera til á hverju heimili Ný ferðakort Ferðakort 1:500 000 Vandað nýtt heildarkort af Íslandi með hæðarskyggingu og þjónustutáknum. Glæsileg og mikið breytt útgáfa af þessu vinsæla korti. Nýjustu upplýsingar um vegi landsins, vegalengdir og veganúmer, auk mikilvægra upplýsinga um ferðaþjónustu, svo sem bensínafgreiðslur, gististaði, söfn, sundlaugar, golfvelli og fleira. Kortinu fylgir nafnaskrá með yfir 3000 örnefnum. Skýringar á fjórum tungumálum. • Hæðarskygging og 50 metra hæðarlínubil • Vegir, vegalengdir, veganúmer og bensínafgreiðslur • Gisting, tjaldsvæði, sundlaugar og golfvellir • Söfn, friðlýstar minjar, hringsjár og áningarstaðir • Bæir í byggð, eyðibýli og rústir • Yfir 6000 örnefni • Upplýsingamiðstöðvar, bátsferðir og margt fleira • Skýringar á íslensku, ensku, frönsku og þýsku Útgefið 2002 Væntanlegt 2003 Fundir B-listans í Norðvestur- kjördæmi. Magnús Stefánsson, frambjóðandi B-listans Norðvest- urkjördæmi, verður með fund á Lýsuhóli á morgun, föstudaginn 25. apríl kl. 11. Einnig verður opinn fundur á Hofsósi á morgun, kl. 20.30. Sumargleði VG. Vinstrihreyfingin - grænt framboð heldur upp á sum- ardaginn fyrsta með fjölskylduhátíð í Nauthólsvík kl. 14, í dag. Stein- grímur J. Sigfússon heldur ræðu. Andlitsmálning og sandkastala- keppni. Frambjóðendur kjördæm- anna keppa í reipitogi og spákonur spá fyrir um framtíðina. Boðið upp á veitingar og allir velkomnir. Vöfflukaffi hjá VG á Akureyri. Vinstrihreyfingin - grænt framboð býður öllum í vöfflukaffi á sum- ardaginn fyrsta í kosningamiðstöð- inni, Hafnarstræti 94 á Akureyri kl. 14–17. Einnig verður opið á kosn- ingamiðstöðvum VG á Siglufirði, Ólafsfirði, Húsavík og á Egils- stöðum þennan fyrsta sumardag. Samfylkingin opnar þrjár kosn- ingaskrifstofur í Húnavatns- sýslum. Í dag kl. 14.30 verður opn- að á Blönduósi, í Blöndubyggð 1. Opið verður til að byrja með frá 16– 19. Kl. 17 í dag, verður opnuð kosn- ingaskrifstofa á Hvammstanga, að Strandgötu 6a. Opið verður kl. 17–19 fyrstu dagana en lengur þegar nær dregur kosningum. Boðið verður upp á léttar veitingar fyrir börn og fullorðna en auk þess verður harm- onikkuleikur og fleira á dagskrá. Frambjóðendur verða á staðnum og spjalla við kjósendur. Í gær opnaði Samfylkingin kosningaskrifstofu á Skagaströnd, í Miðnesi 2. Ungir jafnaðarmenn á Norðurlandi vestra verða með pitsukvöld með ungum kjósendum í dag, 24. apríl kl. 20, á Hvammstanga; á morgun, 25. apríl kl. 19, á Blönduósi og kl. 21 á Skagaströnd. 3. maí verður pitsu- kvöld eftir fótboltamót ungliða- hreyfinganna. Pitsukvöldin eru í kosningaskrifstofum á hverjum stað og verða ungir frambjóðendur á staðnum. Samfylkingin í Mosfellsbæ opnar kosningaskrifstofu á morgun, föstudaginn 25. apríl, kl. 17, á 1. hæð í verslunarmiðstöðinni Kjarna. Skrifstofan verður opin á virkum dögum kl. 15–18. STJÓRNMÁL Opið hús endurhæfingardeildar á Grensási. Um þessar mundir eru liðin 30 ár frá því að starfsemi hófst á endurhæfingardeild Land- spítalans áGrensási. Af því tilefni verður efnt til afmælisdagskrár á morgun, föstudaginn 25. apríl, í húsakynnum deildarinnar við Álm- gerði. Húsið verður opið almenn- ingi kl.15–16.30. Þar gefst kostur á að kynnast starfsemi deildarinnar og aðstöðu. Þjálfunaraðstaða, ásamt sundlaug og hluti legu- deildar á þriðju hæð verða opnar. Á MORGUN Skátamessa í Hallgrímskirkju í dag, sumardaginn fyrsta, kl. 11. Fyrir messu munu skátar standa heiðursvörð fyrir utan kirkjuna. Jón Dalbú Hróbjartsson þjónar til altaris. Ræðumaður verður Sveinn Guðmundsson, formaður Skáta- sambands Reykjavíkur. Skátakór- inn undir stjórn Arnar Arnars- sonar mun leiða sönginn. Að lokinni messu verður selt kaffi í safnaðarheimilinu. Jörvagleði 2003 verður sett í dag, fimmtudaginn 24. apríl, kl. 20 í Dalabúð. Þar verður m.a. hagyrð- ingamót og Þorrakórinn syngur. Á morgun, föstudaginn 25. apríl, verður ostakynning í Mjólk- ursamlaginu í Búðardal og Brids- mót verður í Tjarnalundi. Leik- klúbbur Laxdæla verður leiksýningu og Halli Reynis trúbador leikur. Laugardaginn 26. apríl kveður Steindór Andersen á Eiríksstöðum rímur, opnuð verður sýning að Vesturbraut 12, þar sýna Björg Thorlacius og Unnur Mjöll S. Leifsdóttir myndlistarnemar. Tónlistarveisla verður í Árblik þar sem m.a. koma fram Sophie Schoonjans hörpuleikari, Guttarnir, blues og jazzhljómsveitin „Hob“ o.fl. Dansleikur verður í Dalbúð, þar sem Stuðmenn leika fyrir dansi. Sunnudaginn 27. apríl verð- ur bíósýning í Dalabúð, sagnastund verður í gamla kaupfélaginu og um kvöldið verður kvikmyndin Hringa- dróttinssaga sýnd í Dalabúð. Í DAG FIMMTUDAGINN 10. apríl sl. um kl. 19.30 varð árekstur á gatnamót- um Sæbrautar og Langholtsvegar í Reykjavík. Þar var bifreið ekið um Langholtsveg í norður og beygt til vinstri í veg fyrir UE-210 sem er Ford Fiesta, en þeirri bifreið var ek- ið austur Sæbraut. Við þetta nauð- hemlaði UE-210 og hafnaði bifreiðin VZ-742 aftan á þeirri bifreið. Þeir sem hugsanlega hafa orðið vitni að árekstrinum og geta upplýst hver umrædd bifreið er sem ók Lang- holtsveginn eru beðnir um að hafa samband við lögregluna. Lýst eftir vitnumStaða úrgangsmála á Íslandi.Félag heilbrigðis- og umhverfisfull- trúa (FHU) mun standa fyrir ráð- stefnu undir yfirskriftinni „Staða úrgangsmála á Íslandi“ mánudag- inn 28. apríl kl. 9–12.40 í Norræna húsinu. Ráðstefnan er öllum opin og aðgangur ókeypis. Á meðal framsögumanna verða sérfræð- ingar frá opinberum aðilum, at- hafnamenn og frjáls félagasamtök. Markmið ráðstefnunnar er að skýra stöðu úrgangsmála á Íslandi og greina frá nýjum lögum á því sviði. Dagskrá fundarins er að finna á heimasíðu Heilbrigðiseft- irlits Suðurnesja, www.hes.is. Á NÆSTUNNI alltaf á fimmtudögumVIÐSKIPTABLAÐ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.