Morgunblaðið - 24.04.2003, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 24.04.2003, Blaðsíða 47
UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. APRÍL 2003 47 www.or. is Í tilefni af opnun nýrra höfuðstöðva Orkuveitu Reykjavíkur að Bæjarhálsi 1 bjóðum við gesti velkomna dagana 24.–27. apríl, frá kl. 14.–18.00. Laugardaginn 26. apríl kynnum við fyrsta vetnisbílinn á Íslandi. Hægt verður að skoða nýja húsið og fróðlega kynningu á starfsemi Orkuveitunnar. Sýnd eru tæki og tól, tölvur og teikningar, – allt sem þarf til að sjá ykkur fyrir heitu og köldu vatni, rafmagni og gagnaflutningum. Starfsmenn svara fyrirspurnum og við bjóðum að sjálfsögðu upp á besta vatn í heimi! Verið hjartanlega velkomin í nýjar höfuðstöðvar Orkuveitu Reykjavíkur. Stórbrotinn arkitektúr og fróðleg kynning á starfsemi fyrirtækisins. Spenna mótuð í form F í t o n / S Í A F I 0 0 6 7 8 5 ÞAÐ er erfitt að vinna á ríkis- reknu sambýli í Reykjavík í dag. Eftir að hafa fengið samþykkta til- lögu á síðasta BSRB-þingi um lág- markslaun hef ég ásamt fleirum í Starfsmannafélagi ríkisstofnana (SFR) og forstöðumönnum svæðis- skrifstofa málefna fatlaðra unnið að því að fá leiðrétt laun stuðningsfull- trúa á sambýlum. Í gegnum tíðina hafa þau verið skammarlega lág en á síðustu tveimur árum hefur orðið nokkur ávinningur sem skilar sér í launaumslagið. Það skilar sér síðan í minni starfsmannaveltu sem leiðir til betri líðan starfsmanna og skjól- stæðinga þeirra. Þetta þýðir líka aukin útgjöld fyrir málaflokkinn og fyrir það á að refsa okkur núna með því að félagsmálaráðherra skipar starfshóp sem á að leita allra leiða til að lækka kostnað við rekstur sambýlanna. Svæðisskrifstofa mál- efna fatlaðra í Reykjavík er sem sagt komin með niðurskurðarnefnd á bakið. Þetta er ansi kuldaleg kveðjugjöf frá félagsmálaráðherra og það á „ári fatlaðra“. Í forsvari fyrir nefndina er sá maður sem markvisst skar niður faglegt starf og þjónustu á sambýlum í Reykja- nesi. Tók m.a. sjálfstæðið af þroska- þjálfum eða svældi þá burt. Rétt er að taka fram að Svæðisskrifstofa málefna fatlaðra í Reykjanesi hefur fengið á sig kæru vegna lélegrar þjónustu við skjólstæðinga. En lítum á nokkrar af þessum niðurskurðarleiðum sem skósveinar ráðherra leggja til: Forstöðumönnum er meinað að senda stuðningsfulltrúa á námskeið sem gera þá hæfari í starfi og hækka laun þeirra. Fólk með reynslu er síður ráðið og fólk með háskólamenntun er á bannlista. Bannað er að kalla út „dýra“ starfs- fólkið á aukavaktir þ.e.a.s. þá sem eru með mestu starfsreynsluna. Á sumum sambýlum er gengið enn lengra og aukavaktir alveg bann- aðar. Þannig að ef starfsfólkið er of fáliðað þá skal það bitna á þjónustu við skjólstæðingana en ekki á rík- iskassanum. Starfsfræðsludagar eru lagðir af og starfsmannafundum fækkað. Í vaktavinnu eru slíkir fundir afar mikilvægir fyrir starfs- fólkið til að bera saman bækur sínar og samhæfa vinnubrögðin. Það lítur út fyrir að sumarleyfin hjá skjól- stæðingum okkar verði með rýrari móti á ári fatlaðra. Samkvæmt kjarasamningi fær stuðningsfulltrúi á sólarhringsferðalagi með íbúa greitt 8 klst. í dagvinnu og 6 klst. í yfirvinnu. Þetta höfum við sætt okk- ur við í gegnum tíðina þrátt fyrir að um sólarhringsvinnu sé að ræða. En ekki er þetta ráðherra þóknanlegt lengur því nú hefur það boð verið látið út ganga að ekki sé heimilt að senda stuðningsfulltrúa með í ferða- lag nema hann afsali sér yfir- vinnunni. Þ.e.a.s. íbúi á sambýli get- ur ekki ferðast í sumar nema starfsmaðurinn sé tilbúinn að gefa vinnuna ... Rétt er að taka fram að hér eru engir dagpeningar í boði eins og ráðherra virðist upptekinn af þetta misserið. Nýjasta hugmynd nefndarinnar er jafnframt sú alvarlegasta. Það er að fækka starfsfólki á næturvöktum. Láta einn starfsmann sinna starfi tveggja og jafnvel tveim sambýlum á nóttunni. Má vera að þetta líti vel út í augum viðskiptafræðings en hér er verið að stofna lífi fólks í hættu. Ég skrifa þessa grein af því mér er misboðið. Við höfum hist nokkrir trúnaðarmenn SFR og trúnaðar- maður fatlaðra til að bera saman bækur okkar og niðurstaðan er þessi. Það er markvisst verið að skera niður þjónustu á sambýlum í Reykjavík. Það er staðið á móti ráðningu þroskaþjálfa. Það er verið að brjóta á kjarasamningi starfs- fólks. Það er verið að hrekja burt starfsfólk með reynslu. Það er verið að brjóta lög um málefni fatlaðra. Svæðisskrifstofa málefna fatlaðra er undirmönnuð og í fjárhagslegu svelti. Starfsfólkið þar er undir sí- felldu áreiti frá niðurskurðarnefnd ráðherra, sífellt er krafist niður- skurðar sem ekki er framkvæman- legur. Svæðisskrifstofan sendir síð- an þessar kröfur til forstöðumanna sambýlanna vitandi að ekki er hægt að verða við þeim. Þetta skapar óánægju og pirring hjá forstöðu- mönnum sem leiðir til togstreitu milli þeirra og annarra starfsmanna og skerðir öryggi og frelsi íbúanna. Svo virðist sem ráðherra ætli að halda upp á alþjóðlegt ár fatlaðra með því að fara nokkra áratugi aftur í tímann þegar þjónustan var lítil og fólk meira og minna dópað upp og læst inni. Við trúnaðarmenn á sambýlum í Reykjavík viljum vekja athygli þína á þessu alvarlega ástandi sem er að skapast. Stuðningsfulltrúar á sam- býlum í Reykjavík eru um 400 tals- ins og á landinu öllu eru um 750. Á bak við okkur höfum við öflugt stéttarfélag og saman munum við berjast á móti þessari valdníðslu í þeirri von og trú að málefni fatlaðra fái meiri skilning hjá nýjum ráð- herra á vormánuðum. Kveðjugjöf félagsmálaráðherra Eftir Valdimar Leó Friðriksson „Má vera að þetta líti vel út í augum viðskipta- fræðings en hér er verið að stofna lífi fólks í hættu.“ Höfundur er stuðningsfulltrúi á sambýli fyrir fatlaða og fram- bjóðandi fyrir Samfylkinguna í Suðvesturkjördæmi. ER NEFIÐ STÍFLAÐ? Fæst í apótekum og lyfjaverslunum STERIMAR Skemmir ekki slímhimnu er náttúrulegur nefúði sem losar stíflur og léttir öndun. Fyrir 0-99 ára.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.