Morgunblaðið - 24.04.2003, Blaðsíða 57
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. APRÍL 2003 57
Sumar vörur
eru fyrir sumarbörn
og sumar fyrir fullor›na
debenhams
S M Á R A L I N D
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
D
EB
2
09
55
04
/2
00
3
Sumarhappdrætti
fyrir viðskiptavini barnadeildar Debenhams
1. vinningur
Rollerblade stækkanlegir barnalínuskautar og hlífar
frá Útilífi að verðmæti 12.980 kr.
og barnafatnaður frá Debenhams að verðmæti 20.000 kr.
2. vinningur
Hlaupahjól frá Útilífi að verðmæti 5.990 kr.
og barnafatnaður frá Debenhams að verðmæti 15.000 kr.
3. vinningur
Barnafatnaður frá Debenhams að verðmæti 10.000 kr.
gildir til sunnudagsins 27. apríl.
Fatnaður á alla sumarkrakka
frá 0 - 14 ára.
Smáralind - Glæsibæ
Sjóðheit sumartilboð
í öllum deildum.
Gleðilegt sumar
Opið í dag frá 13-18
Fjölbrautaskólarnir sigruðu í
Opnu meistaramóti framhalds-
og grunnskóla í brids
Samsett sveit fjölbrautaskólanna í
Breiðholti, Ármúla og Garðabæ sigraði
á Meistaramóti framhaldsskóla í brids
sem spilað var laugardaginn 12. apríl
sl. Átta sveitir mættu til leiks og sáust
mikil tilþrif þennan dag eins og gjarn-
an þegar ungir spilarar leika listir sín-
ar. Sigursveitin sýndi þó mikinn stöð-
ugleika, leiddi allan tímann og var
sigurinn fyllilega verðskuldaður. Spil-
arar sveitarinnar voru þau Guðbjörg
Eva Baldursdóttir og Örvar Óskarsson
úr FÁ, Inda Hrönn Björnsdóttir úr FB
og Gunnar B. Helgason úr FG. Í öðru
sæti varð sveit frá Versló og Iðnskól-
anum, skipuð þeim Andra Þór Sturlu-
syni, Þórarni Haukssyni og Steinari
Björnssyni úr Versló, auk Guðmundar
Sveinssonar úr Iðnskólanum. Þriðja
sætið skipaði sveit úr Menntaskólanum
við Sund, en þar spiluðu Ómar Valsson,
Hjörtur Már Reynisson, Davíð Jó-
hannsson og Guðmundur Andrésson.
Efstu sveitir:
1. – 141 stig Fjölbraut (Guðbjörg
Eva, Inda, Örvar, Gunnar)
2. – 125 stig Versló/Iðnskólinn
(Andri, Þórarinn, Steinar, Guð-
mundur)
3. – 106 stig MS (Ómar, Hjörtur,
Davíð, Guðmundur)
4. – 94 stig MH (Fannar Örn Há-
konars, Kári Hreinss., Sindri Sverriss.
og Valgerður Pétursd.)
Auk þess spiluðu tvær gestasveitir.
Ein úr Tækniskólanum (þar voru spil-
arar of gamlir til að sveitin teldist „lög-
leg“) og stóð hún sig frábærlega, náði
139 stigum. Spilarar Tækniskólans
voru Guðmundur Snorrason, Garðar
Eyjólfsson, Kristján Helgi Haf-
steinsson og Björgvin Óskar Sig-
urjónsson. Hin gestasveitin var skipuð
Kristínu Sigurjónsdóttur úr MR, Báru
Valgerði Friðriksdóttur úr Kvennó,
Hrafnhildi Ýr Matthíasdóttur úr Fella-
skóla og svo þurfti að fylla fjórða sætið
með „of gömlum“ spilara, þannig að
sveitin taldi ekki til verðlauna. Hún
stóð sig þó með miklum ágætum, náði
alls 109 stigum.
Einnig spiluðu tvær sveitir úr
grunnskólum Reykjavíkur í mótinu,
þær áttu við ramman reip að draga, en
kláruðu mótið með sóma (og bros á
vör), enda fengu báðar sveitirnar verð-
laun í grunnskólaflokki. Sú sveit sem
sigraði (með 63 stig) var skipuð Magna
Rafni Jónssyni, Pétri Bjarna Péturs-
syni, Kára Emil Helgasyni og Viktori
Orra Valgarðssyni, en silfursveitin
þeim Hjálmari Erni E. Hinz, Sindra
Aroni Viktorssyni og Þorvaldi Gauts-
syni auk Daníels Más Sigurðssonar,
sem fékk þó reyndar ekki verðlaun,
enda villtist hann milli aldursflokka.
Mótið var liður í að endurvekja hið
sögufræga Íslandsmót framhaldsskóla
í brids sem hér á árum áður náði gríð-
arlegum vinsældum meðal ungra spil-
ara. Á næsta ári verður það mót haldið
á ný, eftir nokkurra ára hlé og verður
það kynnt vel þegar nær dregur. Ljóst
er að fræðsluátak Bridssambands Ís-
lands er þegar farið að bera nokkurn
ávöxt, en lengi hefur verið mikil lægð í
flokki yngri spilara. Nú sér fyrir end-
ann á því tímabili og er mjög gaman að
sjá ungt fólk einbeita sér að brids á
nýjan leik.
Spilaðar voru sjö umferðir, 6 spila
leikir. Keppnisstjórar voru Björgvin
Már Kristinsson og Daníel Már Sig-
urðsson og fór mótið vel fram í alla
staði.
Íslenska karlalandsliðið
spilar í Keflavík
Íslenska karlalandsliðið í brids fer
suður með sjó nk. laugardag og spilar
æfingaleik við félaga í Bridsfélagi Suð-
urnesja en dagana 25.-27. apríl eru svo-
kallaðir frístundadagar í Reykja-
nesbæ. Spilað verður í Flughóteli og í
Kjarnakaffi og hefst spilamennskan kl.
13.
Landsliðið er á förum á Norð-
urlandamótið sem að þessu sinni verð-
ur í Færeyjum í maí og er þessi heim-
sókn liður í undirbúningi liðsins.
Áhugamenn eru hvattir til að mæta
því nú er að sjá hvort Suðurnesjamenn
geta velgt okkar bestu spilurum undir
uggum. Það eru fyrrnefnd fyrirtæki
sem styrkja landsliðið og bridsfélagið
til að halda keppnina.
Sveit Frímanns Stefánssonar
vann Halldórsmótið hjá BA
Nú er Halldórsmót Bridsfélags Ak-
ureyrar lokið, með öruggum sigri
sveitar Frímanns Stefánssonar, en
með Frímanni spiluðu þau Una Sveins-
dóttir, Stefán Ragnarsson, Ólafur
Ágústsson og Páll Þórsson. Loka-
staðan varð:
Sveit Frímanns Stefánssonar 212
Sveit Stefáns Sveinbjörnsson 199
Sveit Gylfa Pálssonar 168
Sveit Páls Pálssonar 168
Sveit Sparisjóðs Norðlendinga 144
Næsti sunnudagsbrids verður spil-
aður sunnudaginn 27. apríl.
Frá bridsfélagi eldri
borgara Hafnarfirði
Spilaður var Mitchell tvímenningur
þriðjudaginn 15. apríl. Úrslit urðu
þessi.
Norður/suður-riðill
Bragi Björnsson – Auðunn Guðmundss. 206
Árni Bjarnas. – Þorvarður S. Guðm. 179
Sófus Berthelsen – Ólafur Gíslason 177
Austur/vestur-riðill
Guðmundur Guðm. – Sigurlín Ágústsd. 197
Guðmundur Árnason – Jón Gunnarsson 185
Oddur Jónsson – Katarínus Jónsson 179
Hermann Valsteinss. – Bjarnar Ingim. 179
Íslandsmót í tvímenningi
Undanúrslitin verða spiluð 1. - 2.
maí nk. 1. maí hefst spilamennska kl.
11.00 en 2. maí er byrjað að spila kl.
17.00. Úrslitin verða síðan spiluð 3. og
4. maí. Í undanúrslitum eru spilaðar 3
lotur og kemst 31 par í úrslitin. Til að
auðvelda skipulag mótsins eru spilarar
beðnir að skrá sig í síðasta lagi þriðju-
daginn 29. apríl kl. 17.00.
Skráning í s. 587 9360 eða www.-
bridge.is.
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson
Sigursveit fjölbrautaskólanna. Talið frá vinstri: Guðbjörg Eva Baldursdóttir,
Inda Hrönn Björnsdóttir, Gunnar B. Helgason og Örvar Óskarsson.
Fyrirtæki • stofnanir • heimili
Hreinsum rimla-, viðar-, strimla-
og plíseruð gluggatjöld
Einnig sólarfilmur
Eru rimlagardínurnar óhreinar?
sími 897 3634
dgunnarsson@simnet.is