Morgunblaðið - 24.04.2003, Síða 4
FRÉTTIR
4 FIMMTUDAGUR 24. APRÍL 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Netsalan ehf., Garðatorgi 3, 210 Garðabæ
Sími 565 6241, 544 4210 - fax 544 4211, netf.: netsalan@itn.is
Heimasíða: www.itn.is/netsalan. Opið á virkum dögum frá kl. 10–18.
Lagan 251
aðeins kr. 3.990.000 stgr.
Lagan 410
aðeins kr. 4.170.000 stgr.
Opið í dag, sumardaginn fyrsta, frá kl. 11-17
McLOUIS HÚSBÍLAR
Fyrsta sending UPPSELD - önnur á leiðinni
SÖLU- OG KYNNINGARSÝNING
Innifalið í verði 100.000 kr. úttektarávísun í nýrri verslun sem
verður opnuð í maí. Fellihýsin eru tilbúin á götuna
með bremsubúnaði.
Takmarkað magn. Til afgreiðslu strax
Epic 1906 9 fet.
Verð kr.
798.000
*himinn fylgir ekki
STÓRTILBOÐ
VIKING FELLIHÝSI
*
NEMENDUR í Vesturbæjarskóla létu ekki sitt
eftir liggja á dögunum þegar þeir söfnuðu dósum
og flöskum heima við í tiltekinni viku og fóru svo
með kennurum sínum í Sorpu til að endurheimta
skilagjald fyrir þær. Það var svo Mæðrastyrks-
nefnd sem naut góðs af söfnuninni en hún er til
húsa í sömu götu og skólinn. Var ágóði sölunnar
afhentur í gær.
Söfnunin fór fram í tengslum við vinnu nem-
enda með hugtakið eða kjarnagildið „samkennd“
en í hverjum mánuði í vetur hefur verið tekið fyr-
ir eitt slíkt kjarnagildi sem foreldrar og starfsfólk
völdu í sameiningu. Gildin sem sammælst var um
að einkenna ættu skólann eru: virðing, jákvæðni,
samkennd, traust, ábyrgð, metnaður og gleði.
Morgunblaðið/Halldór Kolbeins
Söfnuðu dósum fyrir Mæðrastyrksnefnd
Samkomu-
lag um
hönnun
Fjölskyldu-
vogar
RANNSÓKNASTOFNUN Háskól-
ans á Akureyri, félagsmálaráðu-
neytið og fjölskylduráð hafa undir-
ritað samkomulag um hönnun og
þróun Fjölskylduvogar sem ætlað er
að verða safn lykiltalna, nokkurs
konar mælitæki fyrir vísitölu mál-
efna fjölskyldunnar.
Í tilkynningu frá þeim sem standa
að samningnum segir að fullyrða
megi að á Íslandi séu upplýsingar
um lífskilyrði fólks, lífsaðstæður
þess og fleiri atriði, af skornum
skammti. Löggjafann og sveitar-
stjórnir skorti þar af leiðandi upplýs-
ingar og almenna vitneskju um
hvaða áhrif ýmsar pólitískar aðgerð-
ir og ákvarðanir hafa á heilsufar
fólks, almennan hag þess og velferð.
Að sögn Grétars Þórs Eyþórsson-
ar, forstöðumanns Rannsóknastofn-
unar Háskólans á Akueyri, mun vog-
in m.a. nýtast opinberum aðilum sem
grundvöllur viðmiðana til mótunar
stefnu í málefnum fjölskyldunnar.
Rannsóknastofnunin sér um hönn-
un og þróun Fjölskylduvogarinnar
sem áætlað er að verði lokið í júní.
Drífa Hjartardóttir, formaður
fjölskylduráðs, segir gerð Fjöl-
skylduvogarinnar mikið framfara-
skref enda sé henni ætlað að veita
stjórnmálamönnum og öðrum
grundvöll sem stuðlað geti að því að
markmið fjölskyldustefnunnar náist.
Með Fjölskylduvoginni verði unnt
að mæla hvort velferð fjölskyldunn-
ar hafi aukist eða hvort dregið hafi
úr henni.
Upplýsingar misaðgengilegar
Að sögn Grétars Þórs er ljóst að
upplýsingarnar, sem safna á saman,
eru misaðgengilegar og fyrirsjáan-
legt að hluta þeirra verði safnað
saman með könnunum. Meðal upp-
lýsinga sem Fjölskylduvogin tekur
til eru félagsleg tengsl, vinnuum-
hverfi, vinnutími, fjölskyldutími, að-
gengi að heilbrigðis- og félagsþjón-
ustu, fjárhagsleg afkoma fólks og
aðgengi að afþreyingu og menningu.
STJÓRNVÖLD hafa ákveðið að
fjögur ráðuneyti leggi samtals 4,5
milljónir kr., eða rúmlega 1,1 milljón
kr. hvert, af því fé sem þeim er ætlað
af sameiginlegu ráðstöfunarfé ríkis-
stjórnarinnar til að auka við textaða
dagskrá Sjónvarpsins á þessu ári.
Þar með eykst framboð textaðs efnis
í Sjónvarpinu úr eitt þúsund mínút-
um á síðasta ári í fjórtán þúsund
mínútur í ár. Hefði þessi fjárveiting
ekki komið til hefði framboð textaðs
efnis í Sjónvarpinu verið 5.000 mín-
útur í ár. Ráðuneytin sem um ræðir
eru forsætisráðuneytið, mennta-
málaráðuneytið, félagsmálaráðu-
neytið og heilbrigðisráðuneytið.
Tómas Ingi Olrich menntamála-
ráðherra og Páll Pétursson félags-
málaráðherra kynntu þessa ákvörð-
un á blaðamannafundi í Þjóðmenn-
ingarhúsinu í gær. Tómas Ingi sagði
að stjórnvöld hefðu lagt á það
áherslu að unnið yrði að bættu að-
gengi allra að íslensku efni í Sjón-
varpi og minnti á að Alþingi hefði
samþykkt þingsályktun, hinn 19. maí
2001, þess efnis að menntamálaráð-
herra yrði falið að stuðla að því að ís-
lenskt sjónvarpsefni yrði textað eftir
því sem við yrði komið. Með fyrr-
greindu framlagi ráðuneytanna
verður hægt að texta alla þætti Sjón-
varpsins á árinu, sem ekki eru sendir
beint út, en árlegur kostnaður við
slíka textun er 7 milljónir kr.
Ýtir undir bætta lestrargetu
„Á Textaþingi sl. haust kom fram
að stór hópur landsmanna gæti ekki
nýtt sér innlenda dagskrá í sjónvarpi
og er talið að þessi hópur heyrnar-
skertra, eldri borgarar og nýbúar, sé
alls um 30.000 manns,“ sagði Tómas
Ingi. Ráðherra lagði einnig áherslu á
að textun íslensks efnis ýtti mjög
undir bætta lestrargetu heyrnar-
skertra barna og unglinga. Auk þess
væri slík textun mikilvægur stuðn-
ingur við Íslendinga af erlendu bergi
brotna sem væru að læra íslensku.
Páll Pétursson fagnaði einnig
þessu átaki en tók þó fram að Sjón-
varpið ætti einnig að sjá til þess að
allir landsmenn nytu þess efnis sem
þar væri framleitt. Sagði hann að
enn væru um 70 til 80 bæir á landinu
sem ekki næðu Sjónvarpinu. „Þetta
er að mínu mati til skammar,“ sagði
hann.
Framboð text-
aðs efnis eykst í
14.000 mínútur
Morgunblaðið/Halldór
Páll Pétursson félagsmálaráðherra og Tómas Ingi Olrich menntamála-
ráðherra kynntu átak ríkisvaldsins í textun á sjónvarpsefni.
AUÐUR Laxness opnaði í gær Lax-
nesslykilinn á veraldarvefnum en
hann markar tímamót í aðgengi les-
enda að verkum Halldórs Laxness.
Í tilkynningu frá Eddu útgáfu segir
að lykillinn opni fræðimönnum,
grúskurum og öllu áhugafólki um
verk Halldórs Laxness nýjar dyr að
einum af hornsteinum íslenskrar
menningar.
„Þarna er að finna texta allra
helstu skáldverka Halldórs, auk
orðastöðulykils að þeim sem unninn
var af Orðabók Háskólans. Halldór
Laxness hefði orðið 101 árs í gær, á
Alþjóðlegum degi bókarinnar.
Með opnun lykilsins var Gagna-
safni Eddu formlega hleypt af
stokkunum en slóð þess er
www.edda.is. Það verður opið fyrst
um sinn en þar verður í framtíðinni
hægt að kaupa áskrift á Netinu að
margvíslegu efni sem útgáfan hefur
yfir að ráða, s.s. Orðstöðulykli Ís-
lendingasagna, Íslenskri orðabók og
fleiri orðabókum, auk uppsláttar-
verka.“
Laxnesslykillinn veitir aðgang að
öllum texta úr fjórtán verkum
skáldsins en þau eru Atómstöðin,
Barn náttúrunnar, Brekkukotsann-
áll, Gerpla, Guðsgjafaþula, Heims-
ljós, Íslandsklukkan, Kristnihald
undir Jökli, Paradísarheimt, Salka
Valka, Sjálfstætt fólk, Smásögur,
Undir Helgahnúk og Vefarinn mikli
frá Kasmír. Alls eru verkin yfir átta
megabæt á tölvutæku formi en þess
má geta að allar Íslendingasögurnar
eru rúm fimm megabæt. Skáldsög-
ur og smásögur Nóbelsskáldsins
eins eru þannig helmingi meiri að
vöxtum en allar Íslendingasögurnar
og eru þá ótalin leikrit og ritgerða-
söfn Halldórs.
Gagnasafn Eddu opnað
Laxnesslykillinn er fyrsta stór-
virkið í Gagnasafni Eddu, sem þar
með hefur verið opnað. Ætlunin er
að á þeim stað verði hægt að nálg-
ast eitthvað af þeim miklu upplýs-
ingum og gögnum sem finna má í
bókum sem komið hafa út á vegum
Eddu og forlaga þess. Það mun
stórauka möguleika fræðimanna og
almennings á að nálgast einstæðar
upplýsingar og fróðleik hratt og vel.
Meðal þess sem þarna verður að
finna í framtíðinni eru Íslendinga-
sögurnar og orðstöðulykill þeirra,
tölvuorðabækur og margs konar
önnur uppflettirit.
Gagnasafnið verður opið og
ókeypis fyrst um sinn en síðan verð-
ur hægt að gerast áskrifandi að því.
Laxnesslykill opnaður á
Alþjóðlegum degi bókarinnar
Morgunblaðið/Halldór Kolbeins
Auður Laxness og Pétur Már Ólafsson opnuðu lykilinn að verkum Laxness.