Morgunblaðið - 24.04.2003, Page 10
FRÉTTIR
10 FIMMTUDAGUR 24. APRÍL 2003 MORGUNBLAÐIÐ
RÍKISENDURSKOÐUN hefur vís-
að máli Þorfinns Ómarssonar, fyrr-
um forstöðumanns Kvikmyndamið-
stöðvar Íslands, til ríkissaksóknara.
Sigurður Þórðarson ríkisendur-
skoðandi segir að í reynd hafi rík-
issaksóknaraembættið kallaði eftir
gögnum málsins í heild til þess að
skoða þau, líkt og það gerði í máli
Guðmundar Magnússonar á sínum
tíma.
Sigurður segir það vera ríkissak-
sóknara að taka síðan sjálfstæða
ákvörðun um það hvort hann telji til-
efni til frekari aðgerða að þeirri
skoðun lokinni.
Mál Þorfinns
til ríkis-
saksóknara
SAMTÖK 60 ára og eldri á vegum
Samfylkingarinnar verða stofnuð
um helgina undir nafninu Samtökin
60 plús. Markmið 60 plús er að
gæta hagsmuna fólks 60 ára og
eldra innan flokksins og í stefnu
hans.
„Innan systurflokka Samfylking-
arinnar í Svíþjóð og Þýskalandi eru
60 plús-félögin meðal virkustu sam-
takanna í flokkunum. Samtökin í
Þýskalandi hafa t.d. gott samstarf
við samtök eldri borgara utan
flokksins og eru félagarnir hvattir
til að láta til sín taka í hagsmuna-
baráttu eldri borgara sem víðast í
samfélaginu. Samfylkingarfélagið
sækir fyrirmynd sína þangað,“ seg-
ir í fréttatilkynningu frá Samfylk-
ingunni. Allir sem eru orðnir 60 ára
geta gengið í Samtökin 60 plús og
ekki þarf að ganga í Samfylkinguna
til að vera með í samtökunum.
Stofnfundur samtakanna verður
haldinn á Hótel Sögu, Súlnasal,
sunnudaginn 27. apríl kl. 15. Þar
verður boðið upp á kaffiveitingar,
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir flytur
ávarp ásamt þeim Össuri Skarphéð-
inssyni, Jóhönnu Sigurðardóttur,
Katrínu Júlíusdóttur og Ellerti
Schram. Fjölbreytt skemmtiatriði
verða á dagskrá, m.a. Raddbanda-
félag Reykjavíkur, Jóhannes Krist-
jánsson slær á létta strengi og
Þrjár systur leika og syngja.
Stofna samtök fyrir
60 ára og eldri
TVEIR fundarmanna á opnum
stjórnmálafundi með Davíð Odds-
syni, forsætisráðherra og formanni
Sjálfstæðisflokksins, á Ísafirði í
fyrrakvöld sögðu að ef Davíð ætlaði
að ræða um kvótakerfið á þann hátt
sem hann gerði á fundinum ætti
hann að tala sem minnst um kvóta-
kerfið í kosningabaráttunni.
„Hafir þú ekkert annað um kvóta-
kerfið að segja en þú sagðir hér áð-
an ráðlegg ég þér að tala sem
minnst um kvótakerfið í kosninga-
baráttunni,“ sagði Ágúst Gíslason,
en áður hafði hann m.a. sagt að
hann hefði ávallt haft megnustu
andúð á kvótakerfinu. Óðinn Gests-
son tók undir með Ágústi: „Ég er
sammála Ágústi í því að ef menn
ætla að ræða kvótakerfið við okkur
á þennan hátt er betra að tala ekk-
ert um það.“
Telur kvótakerfið
ekki fullkomið
Í framsöguræðu sinni sagði Davíð
m.a. að hann teldi kvótakerfið ekki
fullkomið, en reynt hefði verið að
sníða af því ýmsa vankanta þannig
að það yrði haldbetra. Síðar á fund-
inum sagði Davíð að þótt hann
heyrði að ákveðnir menn bönnuðu
honum að tala um kvótakerfið væri
það nú þannig að hann hefði sjaldan
heyrt gagnlegar hugmyndir um það
hvað ætti að koma í stað kvótakerf-
isins. „Ég veit að kerfið hefur sína
miklu ágalla en það hefur ekki kom-
ið annað og betra kerfi fram sem
allir aðrir gætu sætt sig við.“
Tali sem
minnst um
kvótakerfið
UM tuttugu fyrirlesarar halda
framsöguerindi á vetnisráðstefnu
sem hefst í dag kl. 14 á Nordica hót-
eli, Suðurlandsbraut 2, á vegum fyr-
irtækisins Íslenskrar nýorku. Til-
efnið er opnun vetnisstöðvar
Skeljungs og Íslenskrar nýorku við
Vesturlandsveg en um er að ræða
fyrstu vetnisstöðina í heiminum sem
opnuð er á almenningsbensínstöð.
Meðal fyrirlesara á ráðstefnunni,
sem ber yfirskriftina „Að gera vetni
aðgengilegt almenningi“ eru Jeron
van der Veer, varaformaður stjórn-
ar Shell-samsteypunnar, Tore Torv-
und, varaforstjóri Norsk Hydro,
Þorsteinn I. Sigfússon, stjórnarfor-
maður Íslenskrar nýorku, og Jón
Björn Skúlason, framkvæmdastjóri
sama fyrirtækis, Friðrik Sophusson,
forstjóri Landsvirkjunar, Margrét
Guðmundsdóttir, einn fram-
kvæmdastjóra hjá Skeljungi, og
fleiri.
Ráðstefnan stendur yfir í dag,
fimmtudag, og á lýkur á morgun,
föstudag, kl. 17.
Tuttugu
fyrirlesarar
á vetnis-
ráðstefnu
FERÐASKRIFSTOFAN Sumar-
ferðir ehf. fór í sína fyrstu ferð í
gær með 233 farþega til Alicante á
Spáni í Boeing leiguflugvél frá Atl-
anta. Sumarferðir hafa eingöngu
selt ferðir í gegnum netið og síma
en að sögn Helga Jóhannssonar,
framkvæmdastjóra Sumarferða,
hafa viðtökur verið framar björt-
ustu vonum.
„Það er fullbókað í þessa fyrstu
ferð þannig að við fljúgum með
sneisafulla vél til Spánar. Ferðir í
maí eru nánast uppseldar, allt er
uppselt í júní og einnig stærstan
hluta júlí. Fólk kann greinilega að
meta það sem við erum að bjóða
upp á enda sparar það sér bæði
tíma og peninga,“ segir Helgi.
Sumarferðir munu fljúga viku-
lega til Spánar í allt sumar og hefj-
ast fastar vikulegar ferðir síðari
hluta maímánaðar. Vefslóðin er
www.sumarferdir.is.
Ljósmynd/Hilmar Bragi Bárðarson
Sumarferðir fljúga
til Alicante á Spáni
„ÞETTA var gríðarlega góður fund-
ur og hingað komu 50–60 manns,“
sagði Steingrímur J. Sigfússon að
loknum opnum stjórnmálafundi
Vinstrihreyfinginnar – græns fram-
boð á Kaffi Ísafirði í gærkvöld.
Steingrímur sagði að fundarmenn
hefðu verið einhuga um að nú væri
kominn tími á breytingar í íslensk-
um stjórnmálum og menn létu
hræðsluáróður ekki fæla sig frá því
að kjósa breytingar í vor.
„Ég lagði áherslu á að menn ættu
að láta málefnin ráða í því og að at-
kvæði greitt stjórnarandstöðuflokk-
unum, hverjum þeirra sem væri,
teldust öll með. Það væri misskiln-
ingur hjá vinum okkar í Samfylking-
unni að eingöngu atkvæði greidd
þeim væru lóð á vogarskálar breyt-
inga og liður í að koma stjórninni
frá. Þvert á móti værum það við sem
hefðum lengst og skýrast barist
gegn ríkisstjórninni og sagt að það
væri okkar markmið að fella hana
og ef það myndi takast ætti stjórn-
arandstaðan að sjálfsögðu að taka
við.“
Steingrímur sagði að sjávarút-
vegsstefna Vinstrihreyfingarinnar
hefði verið rædd ýtarlega á fund-
inum og hún fallið í góðan jarðveg.
„Hann á ekki beint upp á pallborðið
hér fyrir vestan hræðsluáróður
þeirra Halldórs og Davíðs sem hafa
heldur betur sett í þann gírinn að
það sé stórhættulegt að gera nokkr-
ar breytingar á núverandi fiskveiði-
stjórnunarkerfi. Fundarmenn hér
gáfu lítið fyrir þann áróður. Hug-
myndir okkar og tillögur um breyt-
ingar í sjávarútvegsmálum og at-
vinnu- og byggðamálum fengu mjög
góðar undirtektir.“
Steingrímur J. Sigfússon formaður VG á stjórnmálafundi á Ísafirði
Segir mark-
miðið að fella
ríkisstjórnina
Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörns
Kvótamál og atvinnu- og byggðamál voru á meðal þess sem rætt var um á
stjórnmálafundi Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs á Kaffi Ísafirði.
FULLYRÐINGAR um að fjármála-
ráðuneytið hafi í vorskýrslu sinni
fellt niður tiltekna útreikninga á
hlutföllum tekna og gjalda ríkis og
sveitarfélaga af landsframleiðslu
vegna þess að þeir hafi sýnt að
skattbyrði hafi aukist á síðustu ár-
um eru á misskilningi byggðar, segir
í nýju Vefriti fjármálaráðuneytisins.
Þar er tekið fram að allar tölur
um tekjur og gjöld ríkis og sveitar-
félaga sem skipta máli séu sýndar í
töfluviðauka og leikur einn sé að
reikna hlutföll þeirra af landsfram-
leiðslu.
Hlutur ríkisins fer
aftur vaxandi
Í Vefritinu er áréttað að skatt-
hlutföllin hækki í uppsveiflu og
lækki í niðursveiflu. Þannig hafi
skatthlutföllin lækkað í niðursveifl-
unni 1991–1994, hækkað síðan í upp-
sveiflunni sem hófst árið 1995 og ná
hámarki árið 2000 þegar umsvif í
efnahagslífinu voru sem mest.
Hlutfall skatttekna hins opinbera
lækki á ný árin 2001–2002 en þau
virðist nú vera á uppleið samhliða
auknum hagvexti samkvæmt spá
ráðuneytisins. „Þessi þróun endur-
speglar vel sveiflujöfnunaráhrif
skattkerfis hins opinbera sem eru
ekki einskorðuð við Ísland heldur
fyrirfinnast í flestum nágrannalönd-
um okkar,“ segir í Vefriti fjármála-
ráðuneytisins.
Vegna umræðu um samanburð
skatthlutfalla milli landa á liðnu
hausti er áréttað að mælikvarði á
skattbyrði sem almennt sé notaður í
alþjóðasamanburði byggist á sam-
ræmdum tölum frá OECD sem séu
fengnar úr greiðsluuppgjörum hins
opinbera. Þær töflur um opinbera
búskapinn sem birtar eru í vor-
skýrslu fjármálaráðuneytisins séu
hins vegar byggðar á svokölluðu
þjóðhagsreikningauppgjöri sem er á
rekstrargrunni og er ekki notað í
samanburðarskýrslum OECD um
skattamál.Mikilvægt sé að þessum
tveimur aðferðum sé ekki ruglað
saman þó ekki sé umtalsverður
munur á aðferðunum hvað varðar
þróun stærðanna yfir tíma.
Fjármálaráðuneyti segir
skatthlutföll ekki í felum
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦
ÖNNUR skemmd er komin á aðra af
tveimur vatnsleiðslum sem liggja
milli lands og Vestmannaeyja en ný-
lega tókst að gera við skemmd sem
lengi var leitað að. Friðrik Friðriks-
son, veitustjóri í Vestmannaeyjum,
sagði í gær að eftir að gert var við
fyrri skemmdina hefði þrýstingur á
leiðsluna aukist að nýju og því hefði
hún gefið eftir á öðrum stað. Friðrik
sagði leiðsluna illa farna á um 40
metra kafla norður af Elliðaey og til
stæði að fara í allsherjar viðgerð á
henni.
„Gatið er rétt hjá hinu. Það er búið
að finna það og mynda það. Við erum
að undirbúa töluverða viðgerð á
leiðslunni. Í heildina er farið að sjá á
henni. Öll stálvörn er farin utan af
henni – hefur skrapast af henni og
þolir ekki þrýstinginn sem við höfum
sett á hana,“ sagði Friðrik.
Vatnsleiðslan biluð aftur