Morgunblaðið - 24.04.2003, Side 11
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. APRÍL 2003 11
KRINGLUNNI, S. 568 9017LAUGAVEGI 91, S. 511 1717
gleðilegt sumar
opið í dag 13-17
10% sumarafsláttur
af öllum vörum í dag
10%
sumarafsláttur
af öllum vörum
eva
Laugavegi 91, 2. hæð
sími 562 0625
DKNY - Gerard Darel - Virmani - Seller - Custo - Paul et Joe - IKKS - Nicole Farhi
GLEÐILEGT
SUMAR
OPIÐ Í DAG
13-17
nýjar vörur
frítt kaffi í Cafe 17
FORELDRAR barna á einkarekn-
um leikskólum segja leikskólum í
Reykjavík mismunað, en leikskólar
sem borgin rekur fá hærri rekstr-
arstyrki. Þorlákur Björnsson, for-
maður leikskólaráðs, segir öllum
einkareknum leikskólum boðið að
gera þjónustusamning við borgina
sem tryggi þeim jafnháa rekstrar-
styrki og þeim skólum sem borgin
rekur. Hins vegar sé sett það skil-
yrði að gjaldskráin sé sú sama og
Leikskólar Reykjavíkur fara eftir
og því hafni margir einkareknir
leikskólar. Aðeins tveir einkareknir
leikskólar eru samkvæmt heima-
síðu Leikskóla Reykjavíkur með
þjónustusamning við borgina.
Leikskólagjöld eru
75 þúsund fyrir tvö börn
„Við erum ósátt við það að verið
sé að grafa undan einkareknum
leikskólum með þessum hætti, þar
sem fæstir foreldrar hafa efni á að
borga hátt í 40 þúsund á mánuði í
dagvist,“ segir Hildur Björk Leifs-
dóttir, foreldri stúlku á leikskólan-
um Regnboganum, sem er einka-
rekinn.
Hildur og eiginmaður hennar
eiga sjö mánaða dreng sem kemst
inn á Regnbogann í september.
Fari hann í heilsdagsvist líkt og
systir hans þurfa hjónin að borga
um 75 þúsund krónur á mánuði í
leikskólagjöld og er þá innifalinn
systkinaafsláttur.
„Dóttir mín hefur verið á biðlista
eftir plássi hjá Leikskólum Reykja-
víkur síðan hún var níu mánaða.
Hún varð tveggja ára í mars og ég
fékk nýlega bréf um að hún kæmist
í fimm klukkustunda vist í septem-
ber. Í bréfinu var tekið fram að hún
fengi aðeins inni ef ekki yrði mann-
ekla á leikskólanum. Það er því
mjög ótryggt.“
Þorlákur Björnsson, formaður
leikskólaráðs Reykavíkur, segist
hafna alfarið þeim rökum að for-
eldrar þurfi að setja börnin á einka-
rekna leikskóla því biðlistar eftir
plássi á leikskólum borgarinnar séu
of langir. „Öll börn tveggja ára og
eldri geta fengið leikskólapláss.
Einu skiptin sem til verða biðlistar
er þegar foreldrar eru að óska eftir
plássi á ákveðnum leikskóla. Ef for-
eldrar eru ekki tilbúnir að fara með
börnin á annan leikskóla, sem öllum
er skilyrðislaust boðið, þá getur
hugsanlega myndast biðlisti.“
Foreldrar eiga
að fá að velja
Hildur segist vera í hópi margra
foreldra sem eru ánægðir með
einkareknu skólanna og þá starf-
semi sem þar fer fram, „en það er
spurning um hvort allir hafi efni á
að borga um 75 þúsund á mánuði
fyrir dagvistun“.
Hún segist þeirrar skoðunar að
það eigi að vera val foreldranna á
hvaða leikskóla þeir setji börnin
sín. „Er það ekki einokun að borgin
standi vel undir sínu fyrirtæki
[Leikskólum Reykjavíkur] en veiki
þar með stöðu annarra?“
Sjálfstæðismenn lögðu fram þá
tillögu í leikskólaráði 21. mars að
sama framlag yrði greitt með öllum
börnum og unglingum í leikskólum
og grunnskólum óháð því hvort þau
gengju í einkaskóla eða opinbera
skóla. Tillagan var felld.
„Við viljum ekki sjá einkaleik-
skóla og einkaskóla þar sem fram-
lögin eru algjörlega jöfn nema við-
komandi skólar láti um leið foreldra
greiða sömu gjöld, þ.e. að gjald-
skráin sé sú sama,“ segir Þorlákur
um þá ákvörðun meirihluta ráðsins
að hafna tillögunni. Hann segir
meirihlutann ekki vilja tvískipt
þjóðfélag þar sem eingöngu efna-
meiri foreldrar geti haft börnin sín í
einkareknum leikskólum.
„Aftur á móti bjóðum við öllum
einkareknum leikskólum að gera
við okkur þjónustusamning. Þá fá
þeir sömu rekstrarstyrki og okkar
eigin leikskólar en verða að setja
sömu gjaldskrá.“ Hann segir að
einkareknir leikskólar hafni þjón-
ustusamningum við borgina vegna
þess að þeir séu ekki tilbúnir að
gefa eftir að fá að ráða eigin gjald-
skrá.
38 þúsund króna mismunur
Samkvæmt heimasíðu Leikskóla
Reykjavíkur eru sextán einkarekn-
ir leikskólar í borginni. Meðal-
rekstrarstyrkur með hverju barni
sem dvelur
á einkareknum leikskóla í átta
klukkustundir daglega er sam-
kvæmt upplýsingum frá Leikskól-
um Reykjavíkur 385 þúsund á ári
en á leikskólum sem borgin rekur
er þessi greiðsla 423.375 krónur.
Munurinn er því rúmlega 38 þús-
und krónur á ári fyrir hvert barn.
Ekki er tekið tillit til húsnæðis-
kostnaðar í þessum tölum en borgin
greiðir einkareknum leikskólum
stofnstyrki og húsnæðisstyrki og
eru þeir miðaðir við fermetra hús-
næðisins.
Foreldrar barna á einkareknum
leikskólum hafa nú tekið höndum
saman og safna undirskriftum og
mótmæla mismunun styrkja til
einkarekinna og borgarrekinna
leikskóla. Í gær voru undirskrift-
irnar orðnar tæplega 350 talsins að
sögn Hildar en listinn verður af-
hentur leikskólaráði á næstunni.
Foreldrar barna á einkareknum
leikskólum vilja hærri rekstrarstyrki
Skólarnir hafna
þjónustusamning-
um við borgina
ÁLFYRIRTÆKIÐ Alcoa, sem
hyggst reisa álver í Reyðarfirði,
hefur sent frá sér skýrslu þar
sem gerð er ítarleg grein fyrir
því hvernig fyrirtækið hefur
stuðlað að sjálfbærri þróun í
þeim 50 löndum sem það starfar.
Í fréttatilkynningu er haft eft-
ir Alain Belda, forstjóra Alcoa,
að staðreyndir í skýrslunni tali
sínu máli um góðan árangur, sem
mun vera sá besti í sögu fyrir-
tækisins. Meðal niðurstaðna í
skýrslunni er að meira en 99%
starfsmanna, sem alls eru um
127 þúsund, þurftu aldrei að vera
frá vinnu vegna starfstengdra
meiðsla. Losun gróðurhúsaloft-
tegunda vegna starfsemi Alcoa
er nú 22,5% minni en hún var ár-
ið 1990, sem sagt er mun betri
árangur en Kyoto-bókun Sam-
einuðu þjóðanna gerði ráð fyrir.
Á síðustu þremur árum hefur
náðst að minnka vatnsnotkun í
tengslum við starfsemi fyrirtæk-
isins um 13%, minnka losun
brennisteinsdíoxíðs einnig um
13% og losun nituroxíðs um 23%.
Í tilkynningu Alcoa segir að fyr-
irtækið hafi á síðasta ári varið
meira en 34 milljónum Banda-
ríkjadala til ýmissa samfélags-
legra verkefna.
Góður árangur Alcoa
í umhverfismálum