Morgunblaðið - 24.04.2003, Síða 18
!"
#$
%&'
!
%(
)
*#
%#+
,$+$
-!$
.
/
0 +$
1
2$3
4
4
4+ 5 $+ +$ 3"6 76 7/ 806 5 7 96 :(3+$6 &+ & &00+ 1
%(+(+
!
"
#
$
%
$
%
%/+(+ &
'$
(! % %
) *
$
+
*
$
!
,
(*
$
".!
#
'
%+
*%*$
%
.
/
+
*
&
%
*$
00!
1
%
*
*$!
!"#!$% &! '
( )**+$ ! % )**)$ ! ' ,'- ./)**0
42-;,< = 4 4> '))$0 12
:/? 3$0 /0+ +(+
+/#0+
.( (
.
@ "23 + #
3
"
4
5
6
)*
*+
! (+(+ @ "- + #
! /+(+ @ "2 + #
4
@ "5 6
"
#
@ "- Í SUMUM hverfum Bagdadborgar
og í Basra, næststærstu borgar í
Írak, flykktust sjía-múslímar út á
götur til að fagna komu breskra og
bandarískra hermanna þegar ljóst
varð að stjórn Saddams Husseins
heyrði sögunni til.
Sjía-múslimar eða sjítar eins og
þeir eru einnig nefndir eru um 55 til
60% þjóðarinnar en í meira en 30 ára
hafa þeir verið undirokaður meiri-
hluti í sínu eigin landi.
Sjítar eru langflestir í suðaust-
urhluta Íraks, þar á meðal í Basra og
í borgunum Najaf og Karbala en þar
er að finna mestu helgidóma þess-
arar greinar innan íslams. Þeir eru
einnig nokkuð stór minnihluti í Bagd-
ad þar sem þeir búa í fátækrahverf-
unum í útjaðri borgarinnar. Eitt af
þeim er Saddam-borg, sem svo hefur
verið kölluð, en þar búa ein til tvær
milljónir manna sem voru undir mjög
ströngu eftirliti stjórnvalda. Leiddi
kúgunin til svo mikillar ólgu þar seint
á síðasta áratug, að hrikti í sjálfri
stjórninni. Greinir meðal annars frá
þessu á fréttavef BBC, breska rík-
isútvarpsins.
Mikil tengsl við Íran
Sjítar, jafnt í Írak sem í útlegð,
hafa beðið þess í áratugi, að Saddam
Hussein forseta yrði steypt af stóli en
hann og Baath-flokkurinn hafa ofsótt
þá á alla lund og látið myrða marga
leiðtoga þeirra. Hafa þeir lengi litið
vonaraugum til Írans eftir hjálp en
þar í landi er sjíta-átrúnaðurinn
ríkjandi. Vegna þessara tengsla voru
þúsundir sjíta reknar frá Írak til Ír-
ans á áttunda áratug síðustu aldar.
Við lok Persaflóastríðsins 1991
hvatti George Bush, forseti Banda-
ríkjanna, sjíta til að rísa upp gegn
Saddam og Baath-flokknum og það
gerðu þeir í þeirri trú, að Bandaríkja-
menn myndu veita þeim lið. Af því
varð þó ekkert og Ali-Hassan al-
Majid, frændi Saddams og betur
þekktur sem Efnavopna-Ali, bældi
niður uppreisnina af mikilli grimmd.
Blóðbaðið við Karbala
Í árdaga íslamskrar trúar voru
sjítar stjórnmálaafl, sem studdi Ali,
tengdason Múhameðs spámanns og
fjórða kalífa múslíma. Ali var myrtur
661 og þá varð Muawiya, helsti and-
stæðingur hans, kalífi. Voru þessi
átök undirrótin að aðskilnaði músl-
íma í súnnía og sjíta.
Yazid, sonur Muawiya, tók við af
föður sínum sem kalífi en Hussein,
sonur Alis, neitaði að viðurkenna
hann sem réttan kalífa. Kom þá enn á
ný til átaka, sem lauk með því, að
Hussein og fylgjendur hans voru
stráfelldir í orrustu við Karbala árið
680.
Píslarvættisdauði og sviksemi ann-
arra hafa alla tíð síðan mótað mjög
hugarheim sjía-múslíma. Þeir eru
gjarnan fátækasti hluti hinna músl-
ímsku samfélaga og lifa í voninni um
komu hins „leynda ímams“, frels-
arans, sem muni færa þeim guðlegt
réttlæti. Sjítar eru nú um 15% músl-
íma.
AP
Sjítar biðjast fyrir í Kademiya-helgidóminum í Bagdad við lok Ashura,
fyrsta mánaðarins í tímatali múslíma. Þetta er í fyrsta sinn síðan Saddam
tók völd í Írak sem þeir geta haldið þennan dag hátíðlegan.
Undirokaður
meirihluti í
eigin landi
Sjítar eru yfirleitt fátækasti hluti
hinna múslímsku samfélaga og lifa í
von um komu hins „leynda ímams“
ERLENT
18 FIMMTUDAGUR 24. APRÍL 2003 MORGUNBLAÐIÐ
YFIRMAÐUR bráðbirgðastjórnar
bandamanna í Írak, Jay Garner, full-
yrti í gær að flestir Írakar væru
hlynntir bandaríska herliðinu í land-
inu, þótt sums staðar hefði verið efnt
til mótmæla. Á fréttamannafundi í
Kúrdaborginni Arbil í norðurhluta
landsins sagðist Garner hafa rætt við
fjölmarga Íraka í Bagdad og suður-
héruðunum sem látið hefðu í ljós vel-
vild í garð bandamanna.
„Ég held þess vegna að það sem
við erum vitni að núna sé sviðsett
mótmæli en að öðru leyti sé meiri-
hluti almennings ánægður með að
við séum hér,“ sagði hann. „Fyrir
mánuði hefðu þeir ekki mátt mót-
mæla. Mótmæli eru einkenni frels-
isins. Þeir hafa leyfi til að mótmæla.
Við reynum ekki að hindra þá í því.“
Garner sagði flesta Íraka vita að
Bandaríkjamenn myndu aðeins
verða nógu lengi í landinu til að
tryggja að lýðræðisstjórn tæki við
völdum og efnahagslífinu yrði komið
af stað.
Talið er að allt að tvær milljónir
manna hafi tekið þátt í lokadegi
trúarsamkomu sjía-múslíma í borg-
inni Karbala í gær. Nokkrir háttsett-
ir sjía-klerkar hvöttu pílagrímana
sem margir komu frá fjarlægum
héruðum, til að taka þátt í útifundum
þar sem krafist yrði brottfarar inn-
rásarliðsins. En aðeins um 3.000
herskáir liðsmenn öflugustu sjía-
fylkingarinnar, Íslömsku byltingar-
innar í Írak (SAIRI), mættu á fund-
inn og hrópuðu slagorð gegn Banda-
ríkjamönnum og Ísraelum. „Ekki
Bandaríkin, ekki Saddam en við vilj-
um íslam,“ hrópuðu mennirnir.
SAIRI hefur aðalbækistöðvar sín-
ar í Íran og nýtur stuðnings harð-
línuklerkanna þar í landi en Saddam
Hussein kúgaði mjög sjíta í stjórn-
artíð sinni í Írak. Þátttaka í mótmæl-
um gegn innrásarliðinu var álíka
mikil í Karbala á þriðjudag þrátt fyr-
ir ákafan áróður margra klerka úr
röðum SAIRI.
Aðrir pílagrímar í Karbala kusu
fremur að sinna helgisiðum sam-
komunnar þar sem minnst er písl-
arvættis Husseins imams í Karbala
árið 680. Fréttamaður AFP-frétta-
stofunnar ræddi við um tug þátttak-
enda sem hann valdi af handahófi og
lýstu þeir allir fögnuði sínum yfir því
að Saddam skyldi hafa verið steypt
af stóli. Þeir sögðust vilja að banda-
ríska herliðið yfirgæfi Írak en ekki
varð vart við mikla óvild í garð her-
mannanna.
„Mér líkar ekki við þá og mér líkar
ekki illa við þá,“ sagði Ahmed Sart-
eem, atvinnulaus maður um fertugt
frá Samawa-héraði í sunnanverðu
Írak. „Það er gott að þeir fjarlægðu
Saddam, hann var martröð.“ Aðrir
lýstu reiði í garð stjórna annarra
arabalanda fyrir að hafa verið á móti
stríðinu gegn Saddam. „Þeir studdu
Saddam, þeir voru alveg eins og
hann,“ sagði Radiya Allawi, kona um
þrítugt og fimm barna móðir.
Margir af trúarleiðtogum sjíta
hafa lýst áhyggjum af því að Banda-
ríkjamenn hyggist gera Írak að
stökkpalli fyrir áætlanir um að gæta
hagsmuna Bandaríkjanna og Ísraels
og í tengslum við þau áform vinna
gegn múslímaríkjum eins og Íran
þar sem þorri landsmanna er úr röð-
um sjíta. En talsmenn tveggja öfl-
ugustu fylkinga íraskra sjíta, næst á
eftir SAIRI, sögðu á mánudag að
beita ætti friðsamlegum aðferðum til
að fá bandamenn til að yfirgefa land-
ið. Rösklega helmingur Íraka er úr
röðum sjíta, hinir eru flestir súnn-
ítar.
Garner segir mótmæli
sjíta vera „sviðsett“
Lítil merki um óvild pílagríma í garð Bandaríkjamanna
Arbil, Karbala. AFP.
Reuters
Jay Garner veifar til mannfjölda
sem fagnaði honum í borginni Arbil
í Norður-Írak í gær.
HINN kjarnyrti fyrrverandi ráð-
herra upplýsingamála í Írak, Mo-
hammad Said al-Sahhaf, hefur
skyndilega skotið upp kollinum að
nýju: í auglýsingaherferð írska lág-
gjaldaflugfélagsins Ryanair sem
beint er gegn helsta keppinauti
þess, easyJet-flugfélaginu.
Í einni auglýsinganna frá Ryan-
air hefur ummælum al-Sahhafs
verið breytt þannig að hann segir
nú: „Við erum að vinna stríðið. Við
erum að bera sigurorð af Banda-
ríkjamönnunum. EasyJet býður
lægstu fargjöldin.“
Er með þessu verið að vísa til
þess að fréttamannafundir al-
Sahhafs þóttu verða æ undarlegri
eftir því sem leið á hernaðarátökin
í Írak og úr munni ráðherrans féllu
ummæli, sem augljóslega voru úr
takti við allan raunveruleika. Þann-
ig neitaði hann því að Bandaríkja-
her væri kominn
til Bagdad þó að
sjá mætti banda-
ríska skriðdreka
í nágrenninu.
Al-Sahhaf
hvarf hins vegar
9. apríl sl., dag-
inn sem Banda-
ríkjamenn náðu
Bagdad á sitt
vald, og óstaðfestar fregnir herma
að hann hafi svipt sig lífi.
Toby Nicholl, talsmaður easyJet,
fordæmdi auglýsingaherferð
Ryanair. „Þetta er frekar ósmekk-
legt,“ sagði hann. „Stríð er ekkert
grín.“ Tók hann fram að easyJet
hefði aldrei sagst bjóða lægri far-
gjöld en Ryanair; aðeins að flug-
félagið notaði lendingarstaði sem
betur væru staðsettir en þeir, sem
Ryanair notaði.
Al-Sahhaf skýtur
upp kollinum á ný
London. AFP.
Al-Sahhaf
GEOFF Hoon, varnarmálaráð-
herra Bretlands, telur að Saddam
Hussein, fyrrverandi Íraksforseti,
leynist að öllum líkindum enn í
Írak.
Hoon kom í gærmorgun til
suðurhluta Íraks og er fyrsti
ráðherra Breta eða Banda-
ríkjamanna sem heimsækir landið
frá því að herför Breta og
Bandaríkjamanna gegn stjórn
Saddams Hussein hófst.
„Það vitum við ekki en sam-
kvæmt okkar bestu vitund er
hann enn í landinu,“ sagði Hoon
við blaðamenn í borginni Umm
Qasr í Írak er hann var spurður
hvort hann teldi að fallni leiðtog-
inn væri enn í Írak.
Frá Umm Qasr hélt Hoon til
Basra að hitta bresku hersveitirn-
ar sem náðu borginni á sitt vald.
Telur Saddam
enn vera í Írak
Umm Qasr. AFP.