Morgunblaðið - 24.04.2003, Side 24
AKUREYRI
24 FIMMTUDAGUR 24. APRÍL 2003 MORGUNBLAÐIÐ
FARFUGLARNIR hafa verið að koma til
landsins í stórum hópum, enda hefur vorað
óvenju snemma þetta árið. Fuglarnir fljúga
um langan veg og töluvert er um að þeir taki
sér hvíld á fiskiskipum á Íslandsmiðum. Kald-
bakur EA, ísfisktogari ÚA, var við veiðar fyr-
ir suðaustan land síðustu daga og sagði Víðir
Benediktsson stýrimaður, að óvenju mikið af
smáfugli hefði tekið sér hvíld um borð í skip-
inu og einnig í nálægum skipum. Hins vegar
hefði mætt þeim hópur smyrla, „sem hefði
hakkað smáfuglana í sig“ eins og Víðir orðaði
það. Hann sagði að einn og tveir smyrlar
hefðu verið um hvert skip, setið þar um bráð
sína og hefði oft verið mikill hamagangur um
borð í skipunum.
Víðir sagði að góð veiði hefði verið á mið-
unum fyrir suðaustan land, bæði í þorski og
ufsa en Kaldbakur kom til hafnar á Akureyri í
gærmorgun með rúmlega 200 tonn af blönd-
uðum afla, eftir vikutúr.
Morgunblaðið/Víðir Benediktsson
Lóan er á meðal þeirra fugla sem taka sér hvíld um borð í fiskiskipum á Ís-
landsmiðum en þessi lóa gerði sig heimakomin í brú Kaldbaks.
Morgunblaðið/Víðir Benediktsson
Þessi smyrill hafði komið sér vel fyrir um borð í Kaldbak EA á miðunum
fyrir suðaustan land og beið þess að geta „hakkað“ í sig smáfugla.
Ránfuglar sækja í smáfugla
OLÍUFÉLAGIÐ ehf. tekur við
rekstri þriggja ESSO-bensínstöðva
á Akureyri um næstu mánaðamót af
Höldi, svo og rekstri Veganestis við
Hörgárbraut. Umræddar benín-
stöðvar eru við Hörgárbraut,
Tryggabraut og við Leiruveg. Höld-
ur mun hins vegar áfram reka Litlu
kaffistofuna við Tryggabraut og
Lindina við Leiruveg.
Að sögn Steingríms Birgissonar,
framkvæmdastjóra Hölds, er ekki
gert ráð fyrir uppsögnum vegna
þessara breytinga en um 30 starfs-
menn fyrirtækisins munu hins vegar
skipta um vinnuveitanda og starfa
hjá Olíufélaginu eftir næstu mánaða-
mót. Eftir breytinguna verða starfs-
menn Hölds um 140 talsins, á Ak-
ureyri og í Reykjavík.
Höldur er með fjölbreyttan rekst-
ur, bílaleigu, bílasölu fyrir nýja og
notaða bíla, bílaverkstæði, vara-
hlutaverslun og veitingarekstur. Í
gær skrifuðu Olíufélagið og Höldur
undir samning um áframhaldandi
rekstur Hölds á Litlu kaffistofunni
og Lindinni, auk viðskiptasamnings
vegna Bílaleigu Akureyrar.
Steingrímur sagði að fyrirtækin
hefðu átt gott og farsælt samstarf í
áratugi og að á því yrði engin breyt-
ing. Þarna færu hagsmunir beggja
fyrirtækjanna vel saman. Þessi
breyting væri í samræmi við stefnu
beggja fyrirtækja, Olíufélagsins, að
taka við rekstri sinna bensínstöðva á
þessum stærri stöðum og Hölds að
einbeita sér að rekstri sinna grunn-
eininga.
Olíufélagið ESSO tekur við rekstri þriggja bensínstöðva af Höldi
Um 30 starfsmenn Hölds
skipta um vinnuveitanda
ÁRLEGA stendur Landbúnaðar-
háskólinn á Hvanneyri fyrir fjöl-
mörgum námskeiðum fyrir bændur
víðs vegar um landið. Nýlega hélt
skólinn námskeið fyrir fjárbændur
og hunda þeirra að Melum í Hörg-
árdal.
Námskeiðið stóð í þrjá daga og
var bæði bóklegt og verklegt.
Hundarnir voru allir af border
collie-kyni og flestir hreinræktaðir.
Aðstaðan á Melum var mjög góð,
bæði innandyra og utan. Félags-
heimilið er nýuppgert og er orðið
hið glæsilegasta. Fjárrétt er þar
mjög skammt frá og var hún nýtt
við þjálfun hundanna. Þar var einn-
ig afgirt hólf til æfinga. Gunnar
Einarsson hundaræktandi á Daða-
stöðum í N-Þingeyjarsýslu var
kennari á námskeiðinu en hann
hafði tvo hunda með sér sem sýndu
mikil tilþrif og hlýddu húsbónda
sínum fljótt og vel. Gunnar benti
réttilega á að engum dytti í hug að
fara í göngur á ótömdum hesti en
það þykir nánast sjálfsagt að fara
með ótamda hunda í smalamennsku
og ætlast til að þeir standi sig eða
þá að loka þá inni, vegna þess að
þeir geri meira ógagn en gagn.
Morgunblaðið/Benjamín Baldursson
Enginn færi í göngur á ótömdum hesti
Eyjafjarðarsveit
Með perlur í augum
Ævintýra-
leikhús fyr-
ir börn og
fullorðna
ANNA Richardsdóttir og Arna Vals-
dóttir hafa starfrækt barnatilrauna/
dansleikhús á Akureyri frá því í nóv-
ember á síðasta ári. Meðlimir hóps-
ins eru núna 10 börn á aldrinum 7–10
ára og svo listakonurnar tvær. Þær
flytja verkið einnig með barnadöns-
urunum.
Anna er gjörningakona og kennir
spunadans á ýmsum stöðum á Ak-
ureyri og nágrenni. Arna er söng-
kona og gjörningakona með mynd-
listarmenntun að baki og er lektor í
Háskólanum á Akureyri, við mynd-
listarkennslu. Börnin höfðu verið í
spunadansi hjá Önnu í ár áður en
Arna gekk til liðs við hópinn.
Þær stöllur fengu styrk frá menn-
ingarmálanefnd KEA til að setja upp
sýningu með börnunum, segir í
fréttatilkynningu þeirra. Það gaf
þeim tækifæri til að fá til liðs við sig
Þórarin Blöndal sem starfar með
Leikfélagi Akureyrar.
Sýningin er frumsamin og heitir
„Með perlur í augunum“. Hún fer
fram laugardaginn 26. apríl kl. 17.00
í Ketilhúsinu. Allir eru velkomnir
en aðgangseyrir er 500 krónur fyrir
alla. Aðstandendur sýningarinnar
vilja hvetja Akureyringa og nær-
sveitarmenn til að koma í Ketilhúsið
og njóta þessarar sérstæðu upp-
færslu. Aðeins er gert ráð fyrir þess-
ari einu sýningu í bili en ráðgert er
að koma fram á Listasumri.
Skotfélag Akureyrar stendur fyr-
ir sýningu um næstu helgi, þar
sem veiðivöruverslanir á Norður-
landi sýna vörur sínar. Enn frem-
ur verða hátt í 100 skotvopn í eigu
félagsmanna til sýnis og ýmislegt
fleira. Sýningin verður í vest-
urenda Bónusshússins við Lang-
holt og er opin á laugardag og
sunnudag frá kl. 10–18. Aðgangs-
eyrir er 500 krónur.
Á NÆSTUNNI
Menningar-
veisla á
Glerártorgi
KAUPFÉLAG Eyfirðinga býður
til menningarveislu í verslunarmið-
stöðinni Glerártorgi á Akureyri
laugardaginn 26. apríl kl. 14, auk
þess sem starfsemi félagsins verð-
ur þar kynnt.
Þeir sem gerast félagsmenn í
KEA fyrir lok apríl fara í pott og
úr honum verður dregið eitt nafn
sem fær að launum ferð fyrir tvo
til Kaupmannahafnar. Einnig verð-
ur eitt nafn eldri félagsmanns í
KEA dregið út og hann fær einnig
að launum ferð fyrir tvo til Kaup-
mannahafnar.
Dagskrá menningarveislunnar
er fjölbreytt: Chicago – atriði úr
sýningu Leikfélag Menntaskólans
á Akureyri á söngleiknum Chicago.
Káinn – atriði úr uppfærslu
Freyvangsleikhússins á leikritinu
um Káinn.
Hljómsveitin Douglas Wilson
ásamt Stefáni Jakobssyni, nem-
anda í VMA, sem sló í gegn í söng-
keppni framhaldsskólanna í vetur.
Djasshljómsveit Karls Petersen.
Búkolla – atriði úr uppfærslu
leikhópsins „Hálfur hrekkur í dós“
á Búkollu. Dansfélag MA – félagar
í Dansfélagi MA – Prima bregða á
leik. Grease – söngatriði úr upp-
færslu VMA á söngleiknum
Grease.
Atvinnuleysi á Akureyri
Körlum fækk-
ar á skrá en
konum fjölgar
ATVINNULEYSI hefur minnkað
meðal karla á Akureyri en aftur hef-
ur konum fjölgað á atvinnuleysis-
skrá, samkvæmt yfirliti frá Vinnu-
málastofnun. Í lok síðasta mánaðar
voru 329 manns á atvinnuleysisskrá í
bænum, 186 karlar og 143 konur og
hafði körlum fækkað um 30 á skrá
frá mánuðinum á undan en konum
fjölgað um 6.
Um síðustu mánaðamót voru þó
tæplega 70 fleiri á atvinnuleysisskrá
á Akureyri en á sama tíma í fyrra. Í
Dalvíkurbyggð hafði bæði körlum og
konum fjölgað á atvinnuleysisskrá á
milli mánaða. Í lok síðasta mánaðar
var þar 51 á skrá, 27 karlar og 24
konur og hafði fjölgað um 20 á skrá
frá mánuðinum á undan og um 38
miðað við sama tíma í fyrra.
Í Hrísey voru 13 á skrá, 6 karlar
og 7 konur og hafði fjölgað um tvo á
skrá frá því í lok febrúar en fækkað
um þrjá frá sama tíma í fyrra. Í
Ólafsfirði voru 33 á skrá, 13 karlar
og 20 konur og er þetta sami fjöldi og
í lok febrúar sl. en 18 færri en á sama
tíma í fyrra.
Alls voru 564 á atvinnuleysisskrá á
Norðurlandi eystra í lok síðasta
mánaðar, 286 karlar og 278 konur,
sem svipaður fjöldi og í mánuðinum
á undan en 156 fleiri en á sama tíma í
fyrra. Á Húsavík voru 65 á skrá, 23
karlar og 42 konur og hafði fjölgað
um 5 á skrá frá mánuðinum á undan
og um 38 frá sama tíma í fyrra.
♦ ♦ ♦