Morgunblaðið - 24.04.2003, Side 35
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. APRÍL 2003 35
PIA Rakel Sverrisdóttir opnar sýn-
ingu á glerlistaverkum í Baksaln-
um í Galleríi Fold, Rauðarárstíg
14–16, í dag kl. 14. Sýninguna nefn-
ir listakonan Tíminn og vatnið og
helgar hana minningu móður sinn-
ar, Kaino Annikki Hjálmarsson sem
lést 23. mars sl.
Pia Rakel hefur starfað við list
sína í Danmörku undanfarin 25 ár.
Hún er finnsk-íslensk að uppruna.
Hún fór til Kaupmannahafnar í
arkitektanám en fékk fljótlega
áhuga á glerlist. Hún byrjaði sem
gestanemandi á Danmarks Design-
skole og hélt áfram námi í Dan-
mörku, Svíþjóð og Bandaríkjunum.
Hún hefur unnið sem hönnuður hjá
Holmegårds Glasværker og kennt á
ýmsum hönnunarskólum og lýðhá-
skólum þar í landi. Pia Rakel hefur
sýnt víða um lönd, þar á meðal Ís-
landi. Nú síðast tók hún þátt í sýn-
ingunni Spor í Sívala turninum í
Kaupmannahöfn, þar sem sýnd var
íslensk nútímahönnun og hand-
verk. Verk hennar er að finna á
virtum söfnum og opinberum bygg-
ingum í Danmörku, Noregi, Sví-
þjóð, Þýskalandi og Íslandi. Gler-
listaverk Piu Rakelar eru ýmist
nytjahlutir eða listgripir. Margir
þekkja sandblásin glös hennar,
skálar, föt og glermyndir sem
skreyttar eru ýmsum undrum ís-
lenskrar náttúru. Norræna goða-
fræðin er henni einnig hugleikin.
Fyrir tveimur árum veitti umhverf-
issjóður Kaupmannahafnarborgar
Piu Rakel styrk til að hrinda af stað
verkefni sem fólst í að endurnýta
rúðugler. Piu blöskraði að sjá hve
miklu gleri var hent í ruslið. Gler
fuðrar ekki upp þegar það er
brennt, heldur verður það að
óþægilegum sorphaugi. Hún fékk
þá hugmynd að endurnýta gler sem
glerskerar höfðu hent og búa til úr
því veggflísar og gluggaskreyt-
ingar.
Aðaláhugamál Piu Rakelar er þó
að tengja gler- og byggingarlist.
Hún vill samræma glerverkin og
byggingarnar með því að hanna
glerverkin samhliða teiknivinnunni
hjá arkitektunum. Dæmi um slík
verk er að finna hjá Pharmaco í
Garðabæ og hjá Dagfinni dýra-
lækni á Skólavörðustíg. Í fyrra
vann Pia Rakel glerverk fyrir fyr-
irtækið Velux á Ítalíu, Belgíu og
Þýskalandi.
Ljósmyndasýning
Inger Helene Bóasson opnar ljós-
myndasýningu í Galleríi Fold í dag.
Inger Helene er fædd árið 1954 í
Noregi, en ættuð frá Stuðlum í
Reyðarfirði.
Myndirnar sem hún sýnir eru af
Esjunni, teknar frá sama stað, af
sama „mótífi“, klukkan 11 alla daga
febrúarmánaðar og sýna breyting-
ar á birtunni frá degi til dags.
Sýningarnar standa til 11. maí.
Pia Rakel Sverrisdóttir sýnir verk sín í Galleríi Fold á næstunni.
Tíminn
og vatnið
Vortón-
leikar Karla-
kórs Selfoss
VORTÓNLEIKAR Karlakórs Sel-
foss eru nú framundan. Fyrstu tón-
leikarnir verða haldnir í dag í Sel-
fosskirkju kl. 20.30. Föstudaginn 25.
apríl syngur Karlakórinn ásamt
Jórukórnum í Tónleikahúsinu Ými í
Reykjavík kl. 20.00. Fimmtudaginn
1. maí, verkalýðsdaginn, verður kór-
inn með aðra tónleika í Selfosskirkju
kl. 20.30 og laugardaginn 3. maí
verða tónleikar og ball á Flúðum kl.
21.00.
Efnisskráin er fjölbreytt að
vanda. Stjórnandi Karlakórs Selfoss
er Loftur Erlingsson og undirleikari
Julian Edward Isaacs. Einsöngvarar
með kórnum eru tveir kórfélagar,
Gunnar Þórðarson og Jónas Lillien-
dahl, og einnig syngur Helga Kol-
beinsdóttir einsöng með kórnum.
♦ ♦ ♦ Sumargla›ningur
Afskorin
blóm
Garðskálaplöntur
20%
fimmtudag til sunnudags
í tilefni sumarkomu.
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
U
RV
2
09
34
04
/2
00
3
Potta-
plöntur
20%
afsláttur
afsláttur af öllum blómum
Hlíðasmári 1-3 – TIL LEIGU
Stórglæsilegt verslunar- og skrifstofuhúsnæði á besta stað í Smár-
anum í Kópavogi. Um er að ræða allt að 8.000 fm. Hvort hús um
sig ca 4.000 fm. Möguleiki á að skipta í minni einingar. Næg bíla-
stæði. Frábært útsýni. Sérlega vönduð og fullbúin sameign.
Allar nánari upplýsingar gefur Andres Pétur eða Ellert Bragi á
skrifstofu.