Morgunblaðið - 24.04.2003, Page 55
FERMINGAR í Tjarnaprestakalli
verða í Hafnarfjarðarkirkju sumar-
daginn fyrsta, 24. apríl, kl. 14. Prest-
ur sr. Carlos A. Ferrer. Fermd verða:
Aldís Guðrún Ársælsdóttir,
Lóuási 24, Hf.
Andri Már Enoksson,
Þrastarási 21, Hf.
Anna Birna Þorvarðardóttir,
Þrastarási 10, Hf.
Arnar Hólm Kristjánsson,
Erluási 5, Hf.
Björgvin Brynjarsson,
Blikaási 27, Hf.
Björgvin Ingi Pétursson,
Blikaási 21, Hf.
Einar Bragi Rögnvaldsson,
Gauksási 53, Hf.
Gunnar Ragnarsson,
Gauksási 29, Hf.
Sigrún Ýr Hjörleifsdóttir,
Svöluási 12, Hf.
Þorsteinn Árni Steindórsson,
Spóaási 3, Hf.
Örn Erlendsson,
Erluási 12, Hf.
Ferming í Kálfatjarnarkirkju
sumardaginn fyrsta, 24. apríl, kl.
10:30. Prestur sr. Carlos A. Ferrer.
Fermd verða:
Brynhildur Guðmundsdóttir,
Fagradal 6, Vogum.
Frans Guðmundsson,
Leirdal 18, Vogum.
Hrönn Guðmundsdóttir,
Ægisgötu 33, Vogum.
Karen Herjólfsdóttir,
Hvammsgötu 7, Vogum.
Kristín Lind Magnúsdóttir,
Leirdal 6, Vogum.
Leifur Þráinsson,
Brekkugötu 14, Vogum.
Linda Ösp Sigurjónsdóttir,
Leirdal 16, Vogum.
Þorvaldur Aðalsteinn Hauksson,
Heiðargerði 18, Vogum.
Tónleikar í
Grafarvogskirkju
TÓNLEIKAR verða í Grafarvogs-
kirkju í kvöld kl. 20. Kórar Breið-
holtskirkju og Grafarvogskirkju
flytja Gloria eftir Antonio Vivaldi.
Unglingakór Grafarvogskirkju flyt-
ur Misse bréve nr. 4 í C-dúr eftir
Charles Gounod. Einsöngur: Arn-
þrúður Ösp Karlsdóttir, alt, Hulda
Björk Víðisdóttir, mezzosópran,
Lovísa Sigfúsdóttir, sópran, Margrét
Grétarsdóttir, sópran, Þórunn Elín
Pétursdóttir, sópran. Stjórnendur
Hörður Bragason, Oddný Jóna Þor-
steinsdóttir og Sigrún Magna Þór-
steinsdóttir.
Miðaverð 1.000 kr., frítt fyrir börn
yngri en 12 ára.
Krossinn í
Vestmannaeyjum
KROSSINN ætlar að sækja Hvíta-
sunnusöfnuðinn Betel í Vest-
mannaeyjum heim á sumardaginn
fyrsta. Boðað er til samkomu í hinu
glæsilega safnaðarheimili Hvíta-
sunnusafnaðarins kl. 16. Sönghóp-
urinn G.I.G. mun flytja gospeltónlist
og Gunnar Þorsteinsson predikar.
Kirkjustarf
Fermingar
Morgunblaðið/Sverrir
Hafnarfjarðarkirkja og Tónlistarskóli Hafnarfjarðar.
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. APRÍL 2003 55
Laugarneskirkja. Fermingarmessur
sumardaginn fyrsta kl. 11 og 13.30.
Sr. Bjarni Karlsson og Sigurbjörn Þor-
kelsson þjóna ásamt fermingarfærður-
unum Sigurvini Jónssyni og Sólveigu
Höllu Kristjánsdóttur. Kór Laugarnes-
kirkju syngur undir stjórn Gunnars
Gunnarssonar.
Neskirkja. Félagsstarf aldraðra laugar-
daginn 26. apríl kl. 14. Farið verður í
heimsókn til Kefas við Elliðarvatn. Þátt-
taka tilkynnist í síma 511-1560 milli kl.
10-13 á föstudag. Allir velkomnir. Sr.
Frank M. Halldórsson.
AD-KFUM. Enginn fundur í kvöld en
minnt á kaffisölu Skógarmanna frá kl.
14-18. Allir velkomnir.
Akureyrarkirkja. Kyrrðar- og fyrirbæna-
stund kl. 12. Léttur hádegisverður á
vægu verði í Safnaðarheimili eftir
stundina.
Glerárkirkja. Skátaguðsþjónusta sum-
ardaginn fyrsta kl. 11.
Hjálpræðisherinn á Akureyri. Kl. 20.
Sumargleði í umsjá unglinga. Kaffihlað-
borð. Happdrætti.
Safnaðarstarf
Elsku pabbi minn.
Loks ertu búinn að fá
hvíldina eftir erfið veik-
indi. Nú ertu í paradís á
sjálfum páskum með
elsku mömmu. Margs er að minnast
og þakka þér fyrir að kenna mér að
meta lífið – tónlistina – fuglasönginn –
snyrtimennskuna – morgunstundina
– fjölskylduna – umhyggjuna –
traustið – trúmennskuna – stundvís-
ina – fegurðina – listina – íþróttirnar –
sönginn og bænirnar.
Það voru forréttindi að eiga þig fyr-
ir pabba. Þakka þér fyrir allt og allt.
Guð geymi þig á nýjum stað, elsku
pabbi minn.
Þín dóttir,
Sigfríður (Sísí).
Elsku afi minn, nú ertu loksins
kominn til hennar ömmu og veit ég að
þér líður núna vel að vera búinn að sjá
hana aftur. Þið voruð alltaf svo sam-
rýnd í öllu sem þið tókuð ykkur fyrir
hendur. Það kom líka vel í ljós þegar
amma dó núna í desember. Þá var
eins og að það hefði eitthvað vantað
hjá þér, afi minn, þú saknaðir hennar
svo mikið. En núna eruð þið búin að
hittast aftur.
Það verður skrítið að geta ekki far-
ið í heimsókn upp á Hjallabraut leng-
ur, enginn afi og engin amma. Nú er-
uð þið komin á betri stað og verðið
alltaf saman.
Ég kveð þig núna, afi minn, með
söknuði en ég hugga mig við það að
þið tvö eru saman á ný. Elsku afi,
takk fyrir allt og þá sérstaklega fyrir
að vera svona einstakur og góður
maður.
Guð geymi þig, afi minn, sofðu rótt.
Þín
Tinna Rut.
SIGURGEIR
GÍSLASON
✝ Sigurgeir Gísla-son fæddist í
Reykjavík 17.6.
1925. Hann lést á St.
Jósefsspítalanum í
Hafnarfirði 9. apríl
síðastliðinn og var
útför hans gerð frá
Fríkirkjunni í Hafn-
arfirði 15. apríl.
Hann var fjölfróður
um menn og málefni.
Hógvær og ljúfur í við-
móti. Leysti öll þau við-
fangsefni, sem honum
voru falin, með mikilli
nákvæmni og natni.
Vissi allt um ensku
knattspyrnuna, fyrr og
nú. Hvass og öflugur við
skákborðið og gaf ekk-
ert eftir. Heill og góður
maður.
Þetta eru aðeins örfá
minningarbrot, sem upp
í hugann koma, þegar
komið er að kveðjustund og minnst er
Sigurgeirs Gíslasonar, eða Geira
Gísla, eins og hann var gjarnan nefnd-
ur manna á meðal, sem til hans
þekktu og voru honum samferða á
lífsins vegi. Og þeir voru ófáir sveit-
ungar hans sem áttu góð samskipti við
þennan góða dreng.
Við sem þessar línur ritum, fyrrum
bæjarstjórar í Hafnarfirði á árunum
1986–1998, áttum þess kost að starfa
með Sigurgeir hjá Hafnarfjarðarbæ
um árabil. Það voru lærdómsrík og
ánægjuleg samskipti í alla staði.
Sigurgeir sinnti ýmsum störfu þau
36 ár, sem hann starfaði hjá Hafnar-
fjarðarbæ. En manntalið, íbúaskráin,
voru hvað helst á hans ábyrgðarsviði.
Og þar stóð allt eins og stafur á bók.
Það var gjarnan nokkur spenna hjá
okkur bæjarstjórunum í lok hvers árs
að fá tölu um íbúafjölgun milli ár og
var Geiri gjarnan spurður, þegar við-
miðunartíminn rann upp. Þetta voru
mikil uppgangsár í Hafnarfirði og um-
talsverð fólksfjölgun. Það gekk hins
vegar oft erfiðlega að fá nýjustu tölur
frá Sigurgeir. Ekki vegna þess að
hann vissi ekki upp á hár hver aukn-
ingin hefði verið; hann kunni á því skil
upp á punkt og prik. Nei, það var í eðli
hans að veita ekki upplýsingar, sem
væru ekki 100% og svaraði því gjarn-
an spurningum okkar bæjarstjóranna
um fólksfjölgun í bænum á milli ára á
þann veg, að það væru eftir ýmsar
leiðréttingarfærslur í samstarfi við
Hagstofuna og allt kæmi þetta í ljós.
Þó kom fyrir að hann laumaði að okk-
ur miða með nýjustu tölum, en hafði
þó gjarnan mikinn fyrirvara á. Æv-
inlega reyndust þær tölur standast
fullkomlega, þegar endanlegar íbúa-
tölur voru gefnar út af Hagstofunni.
Sigurgeir Gíslason þekkti þúsundir
Hafnfirðinga með nafni. Ekki var það
eingöngu vegna þess að hann skráði
alla nýja íbúa, heldur ekki síður að
hann átti traustar rætur í Hafnarfirði
og þekkti vel til sveitunga sinna. Var
og enda vinamargur.
Fyrir kom þegar fólk mætti á skrif-
stofu manntalsfulltrúa, til nýskrán-
ingar, eða vegna þess að það hefði
flutt milli hverfa í Hafnarfirði, að
enska heyrðist töluð í bakgrunni
kringum Sigurgeir. Kom þá í ljós að
kveikt var á útvarpstæki, þar sem
BBC hljómaði. Sigurgeir fylgdist
nefnilega mjög vel með öllum tíðind-
um af ensku knattspyrnunni og vildi
sínar fréttir frá fyrstu hendi; frá hinu
rómaða BBC. Enda voru þeir ekki
margir jafnokar hans, þegar kom að
þekkingu á ensku knattspyrnunni í
núinu og ekki síður í fortíðinni.
Sigurgeir sleppti aldrei tækifærinu
á því að taka eina skák, ef færi gafst.
Þær voru ófáar skákirnar sem teknar
voru eftir að vinnutíma lauk milli Sig-
urgeirs og Guðmundar Benedikts-
sonar bæjarlögmanns á kaffistofunni
á bæjarskrifstofunum. Þá var líf í
tuskum og hinn prúði og hógværi Sig-
urgeir færðist allur í aukana. Þá var
sókndirfskan í fyrirrúmi og nánast
árásargirni, þegar taflmennirnir
skutust um borðið miskunnarlausir
og áleitnir. Þá var Sigurgeir í essinu
sínu. Hann var einfaldlega meistari á
þessum vettvangi, enda hafði hann
keppt fyrir hönd lands síns á Ólymp-
íuskákmótum. Aldrei hældist hann þó
um vegna færni sinnar við skákborð-
ið. Það var ekki hans eðli.
Sigurgeir var alla tíð mikill og
dyggur stuðningsmaður FH og lét
sér mjög annt um framgang félagsins
enda börnin hans flest ef ekki öll
keppendur fyrir hönd félagsins á sín-
um yngri árum.
Góður vinur er fallinn í valinn.
Ljúfar minningar fylla hugann. Við
þökkum fyrir samfylgdina, sem var í
senn lærdómsrík og mannbætandi.
Stórri fjölskyldu Sigurgeirs send-
um við okkar innilegustu samúðar-
kveðjur. Guð gefi að góðar minningar
mildi sára sorg og eftirsjá. Guð blessi
minningu Sigurgeirs Gíslasonar.
Guðmundur Árni Stefánsson,
Ingvar Viktorsson.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma,
systir og mágkona,
SIGRÍÐUR HELGADÓTTIR,
Safamýri 48,
Reykjavík,
verður jarðsungin frá Dómkirkjunni föstudaginn
25. apríl kl. 10.30.
Sigurður Pálsson, Sigrún L. Sigurjónsdóttir,
Kara Pálsdóttir, Valur Árnason,
Sigrún Pálsdóttir, Bragi Ólafsson,
Ragnhildur Ásta Valsdóttir,
Þórdís Kara Valsdóttir,
Hrafnhildur Bragadóttir,
Konráð Bragason,
Hákon Bragason,
Sigurður Helgason, Artie Helgason,
Sigríður A. Helgadóttir.
Innilegar þakkir sendum við öllum þeim sem
sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og
útför ástkærrar móður okkar, tengdamóður og
ömmu,
GUÐLAUGAR HULDAR NIELSEN,
Hátúni 12,
Reykjavík.
Alfreð Guðmundsson, Birgit Beining,
Guðrún B. Guðmundsdóttir, Ingvi Þór Ragnarsson,
Guðmundur Guðmundsson, Inga Lilja Lárusdóttir,
Guðmundur Bjarnason
og barnabörn.
Innilegar þakkir fyrir samúð og vinarhug við
andlát og útför móður okkar, tengdamóður,
ömmu og langömmu,
ÖLDU PÉTURSDÓTTUR,
Holtsgötu 37,
Reykjavík.
Ragnar Guðmundsson, Dagný Björnsdóttir,
Úlfar Guðmundsson, Gyða Hansen,
Pétur Ingi Guðmundsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegt þakklæti til allra er sýndu okkur samúð
vegna andláts föður okkar og vinar,
ÞORGEIRS JÓNSSONAR
læknis,
Sunnubraut 29,
Kópavogi.
Fyrir hönd ættingja og vina,
María Þorgeirsdóttir,
Guðrún Þorgeirsdóttir,
Jón Aðalsteinn Þorgeirsson,
Margrét Sigurðardóttir.
Innilegar þakkir sendum við öllum þeim, sem
sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og
útför ástkærrar eiginkonu minnar, móður okk-
ar, tengdamóður, ömmu og langömmu,
VALGERÐAR ALBÍNU
SAMSONARDÓTTUR,
Bölum 6,
Patreksfirði.
Guð blessi ykkur öll.
Hafliði Ottósson,
Ragnar Hafliðason, Áslaug Sveinbjörnsdóttir,
Rafn Hafliðason, Anna Gestsdóttir,
Torfey Hafliðadóttir,
Ottó Hafliðason, Hrafnhildur Björgvinsdóttir,
Guðrún Hafliðadóttir, Árný Sigurjónsdóttir,
Ari Hafliðason, Guðrún Leifsdóttir,
Róbert Hafliðason, Sigurósk Erlingsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.