Morgunblaðið - 24.04.2003, Qupperneq 59
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. APRÍL 2003 59
www.xb.is – www.hrifla.is
við opnun hverfaskrifstofa
Gleðilegt
sumar!
Við opnum hverfaskrifstofur okkar í Mjódd og
Spönginni á Sumardaginn fyrsta, 24. apríl. Af því
tilefni höldum við fjölskylduhátíð og bjóðum þér að
taka þátt, þiggja veitingar og njóta þeirrar
skemmtunar sem boðið verður upp á.
Kosningamiðstöð
ungra framsóknarmanna
Suma
rkaffi
í
allan
dag
Kosningamiðstöðin
Suðurlandsbraut 34
Ungir framsóknarmenn reka
kosningamiðstöð að Laugavegi 3. Þar er
opið frá kl. 14-18 alla daga vikunnar auk
þess sem ýmsar uppákomur eru á kvöldin.
Líttu inn í kosningamiðstöðnni að
Suðurlandsbraut 34. Þér er boðið í
sumarkaffi í dag og ilmandi vöfflur
með rjóma.
Opið
alla daga
vikunnar
Hverfaskrifstofurnar í Mjódd og Spöng eru opnar virka daga milli
kl. 17:00 og 20:00 en milli kl. 11:30 og 17:00 um helgar. S: 533 4343.
FRAMSÓKNARFLOKKURINN
Fjölskylduhátíð
VÖFFLUR
MEÐ RJÓMA
SÖNGUR
OG
GAMAN
HINN FRÁBÆRI
FRUMSKÓGAR-
HOPPUKASTALI
HANDA
ÖLLUM BÖRNUM
ÍS
FRÍMIÐA
Í SUND
100 FYRSTU BÖRNIN FÁ
PYLSUR Á
Í MJÓDD MILLI KL. 14:00 OG 14:30
Í SPÖNGINNI MILLI KL. 16:30 OG 17:00
GRILLINU
TÓTA
TRÚÐUR
Skemmtir börnunum
Verið velkominMjódd
Breiðholti
frá kl. 13:00-15:00
Spöngin
Grafarvogi
frá kl. 15:30-17:30
KÓR Grafarvogskirkju og Breiðholts-
kirkjukór munu halda tónleika í Graf-
arvogskirkju í kvöld ásamt 15 manna
hljómsveit. Tónleikarnir eru haldnir í
tilefni sumardagsins fyrsta og eru þeir
stærsta verkefni sem kórarnir hafa
ráðist í til þessa.
Flutt verður verkið Gloria eftir Ant-
onio Vivaldi auk þess sem unglingakór
Grafarvogskirkju flytur verkið Messa
breve nr. 4 eftir Gounod. Tónleikarnir
hefjast klukkan 20 og aðgangseyrir er
1.000 krónur en aðgangur er ókeypis
fyrir 12 ára og yngri.
Tónleikar í
Grafarvogs-
kirkju í kvöldRÓLEGHEITIN svífa enn yfir vötn-unum á Þingvöllum, en víða eru menn
byrjaðir að bleyta þar færi þótt veiðin
hefjist þar ekki formlega fyrr en um
komandi mánaðamót. Hafa menn bæði
reynt fyrir sér í þjóðgarðslandinu og
víðar, en fiskur verið tregur enn sem
komið er.
Einn og einn hefur þó slitið upp einn
til tvo fiska, í nokkrum tilvikum hafa
menn verið með þriggja punda bleikj-
ur í háfnum og sú stærsta sem enn hef-
ur frést af þetta vorið var 4,5 punda
hlunkur sem tók leggjalanga Watson
Fancy kúlupúpu. Var það tilþrifamikil
fimmtán mínútna viðureign á
„Fjarka“, þ.e.a.s. stöng með línu núm-
er fjögur sem þykja afar nettar græj-
ur.
Verið líf í Brúará
Menn hafa fengið þokkalega veiði í
Brúará að undanförnu, bæði frá Seli og
Spóastöðum. Hafa menn komist upp í
sex fiska, bæði með andstreymisveiði
og hefðbundinni straumfluguveiði.
Mest er um eins til þriggja punda, en
fiskar upp í rúm 4 pund hafa einnig
sést.
Selir í Skaftá
Selir hafa verið á ferð í Skaftá sem
bendir eindregið til að enn sé sjóbirt-
ingur ekki genginn að fullu til sjávar
þetta vorið. Selur var skotinn þar
eystra um helgina og fleirum stuggað
frá. Vart er þó hægt að kalla veiðiskap-
inn í ám þar um slóðir meiri en „reyt-
ing“ sem stendur, en það er mál manna
að birtingurinn gangi fyrr til sjávar í
vor en venjulega vegna hlýinda.
ERU
ÞEIR AÐ
FÁ’ANN?
Morgunblaðið/Einar Falur
Rúmlega tveggja kílóa bleikja, 48 cm löng. Hún tók langan Watson Fancy í
Þingvallavatni á skírdag en þar hafa veiðst fáir en stórir að undanförnu.
Fáir og stórir í
Þingvallavatni
NÝVERIÐ hélt Rótarýklúbburinn
Reykjavík-Austurbær upp á 40 ára
afmæli sitt með hátíðarfundi. Í til-
efni afmælisins veitti klúbburinn
fimm rótarýfélögum æðstu við-
urkenningu Rotary International,
sem er Paul Harris-orðan. Paul
Harris-félagararnir eru Erling
Aspelund, Jón Stefánsson, Ólafur
B. Thors, Óskar H. Gunnarsson og
Pétur Guðfinnsson.
Rótarýklúbbar sem leggja fé í al-
þjóðlega Rótarýsjóðinn, sem ráð-
stafar árlega 110–120 milljón doll-
urum til fræðslu-, menningar- og
mannúðarmála í heiminum, fá
heimild til að útnefna Paul Harris-
félaga í hlutfalli við framlag sitt.
Stærsta verkefni sjóðsins undanfar-
inn aldarfjórðung hefur verið að
stemma stigu við útbreiðslu barna-
lömunarveiki, eða svonefnt Pólíó-
Plús verkefni, sem hófst 1985 og er
unnið í nánu samstarfi við WHO –
Alþjóða heilbrigðismálastofnunina.
Rótarýfélagar hafa afhent hátt í
500 milljónir dala í baráttuna gegn
útrýmingu lömunarveikinnar.
Rótarýklúbburinn Reykjavík-
Austurbær er með elstu og fjöl-
mennustu klúbbum landsins og eru
rótarýfélagar 76. Forseti klúbbsins
er Jóhann Már Maríusson.
Hér má sjá Sigríði Ólafsdóttur klúbbfélaga á afmælisfundi Rótarýklúbbs
Reykjavíkur-Austurbæjar afhenda Ólafi B. Thors, Óskari H. Gunnarssyni,
Jóni Stefánssyni og Erling Aspelund Paul Harris viðurkenninguna, en
lengst til hægri er Jóhann Már Maríusson, forseti klúbbsins.
40 ára
afmæli
Rótarý-
klúbbs
GUNNAR B. Sigurgeirsson, mark-
aðsstjóri Nóa-Síríusar, og Theodóra
Þorsteinsdóttir, þjónustustjóri
Smáralindar, afhenda hér Önnu Eð-
valdsdóttur „Flugeggið“ sem var
risapáskaegg frá Nóa-Síríusi og inni-
hélt flugmiða með Iceland Express
fyrir fjóra til Kaupmannahafnar eða
London ásamt gjafakorti í Smáralind
að upphæð kr. 10.000.
Í páskaleik Smáralindar voru tvö
flugegg í vinning ásamt fleiri smærri
vinningum. Hulda Guðný Valsdóttir
vann fyrra Flugeggið, en Hulda er
búsett erlendis og gat því ekki verið
viðstödd myndatökuna.
Vinningshafar í páska-
eggjaleik Smáralindar