Morgunblaðið - 24.04.2003, Síða 63
BRÉF TIL BLAÐSINS
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. APRÍL 2003 63
HERDÍS Þorvaldsdóttir hefur verið
dugleg við skriftir að undanförnu, um
uppblástur, ofbeit og þátttöku okkar
landsmanna í ferlinu, með bein-
greiðslum til bænda.
Ég er henni innilega sammála og
þakka henni þessi skrif. Hér með
skora ég á alla landsmenn að lesa
þessar greinar og einnig vil ég taka
undir með lokaorðum Herdísar í
Morgunblaðsgreininni frá því á
sunnudaginn var, og auglýsi hér með
líka eftir stjórnmálaflokki sem vill
taka þessi ótrúlegu mál inn í kosn-
ingabaráttuna, með því að upplýsa
okkur um hvað þeir ætlast fyrir á
næstu árum. Á að halda áfram á þess-
ari braut, að borga með ofbeit og um-
framframleiðslu og fórna þar með enn
frekar viðkvæmum gróðri landsins?
Svo eru það líka hrossin. Hvað með
þau? Ætlum við að halda áfram að
láta þau naga gróðurinn niður í rót
um leið og þau hola jarðveginn? Er
ekki kominn tími á beitarhólf fyrir öll
húsdýr? Er ekki tími hjarðbúskapar
liðinn undir lok hjá flestum menning-
arþjóðum?
MARGRÉT JÓNSDÓTTIR,
Melteigi 4, Akranesi.
Lýst eftir
stjórnmála-
flokki
Frá Margréti JónsdótturÍ MORGUNBLAÐINU þann 17.
apríl sl. var að mörgu leyti ágætis
grein eftir Kristin H. Gunnarsson
framsóknarmann. Svar Kristins við
dylgjum Þorsteins Más sem oft er
kenndur við Samherja.
Ekki ætla ég að dæma hvort Þor-
steinn Már sé hrokagikkur eða ekki,
hans aðgerðir og ummæli um Vest-
firðinga og aðra dæma sig sjálf. Það
er leiðinlegt þegar framámenn bæði
í stjórnmálum og atvinnulífi eru að
etja landsfjórðungunum saman, ég
er viss um að meirihluti fólks kærir
sig ekki um það og það er ekki
landsbyggðinni til framdráttar.
En eitt veit ég að Þorsteinn og
hans félagar hafa skilað þeim
ábyrgðum margfalt til baka sem
þeir fengu hjá sínu bæjarfélagi, það
er meira en hægt er að segja um
marga aðra, eflaust á kostnað ann-
arra bæjarfélaga, en svona er nú
kvótakerfið einu sinni byggt upp.
Þetta eru menn sem dansa eftir
músíkinni sem spiluð er af stjórn-
völdum í hvert sinn, og þeir dansa í
takt eftir henni.
Aðalatriðið er það að Samherji
hefur alloft verið á undan öðrum að
sjá glufur í kvótakerfinu, aðallega
frálsa framsalinu (löglegt en sið-
laust), sem er því miður að ganga að
kerfinu dauðu, því við verðum að
hafa stjórn á okkar fiskveiðum.
Varðandi Vestfirðinga þá tel ég að
við höfum ekki unnið okkar heima-
vinnu þegar kvótakerfið byrjaði.
Það er kannski gott að vera vitur
eftir á, en hér á Ísafirði voru mörg
mjög stöndug fyrirtæki í sjávarút-
vegi, en nú er einungis eitt eftir sem
eitthvað kveður að. Þeir menn sem
stjórnuðu þessum fyrirtækjum voru
komnir vel yfir miðjan aldur og voru
hreinlega ekki tilbúnir í þennan
óþverraslag sem kvótakerfið bauð
upp á og þar af leiðandi fjöruðu okk-
ar aflaheimildir út, til annarra bæj-
arfélaga, vegna sinnuleysis fyrrver-
andi stórútgerðarmanna og bæjar-
yfirvalda. Og eflaust hafa banka-
stofnanir spilað stóran leik í þessu
líka og gera enn með alvarlegum af-
leiðingum.
Mörg þúsund tonn af aflaheimild-
um hafa farið úr fjórðungnum, ég tel
að þessir menn, hvorki fyrrverandi
bæjarstjórnir með Kristján Þór Júl-
íusson í broddi fylkingar né fyrrver-
andi stórútgerðarmenn, hafi staðið
sína plikt gagnvart okkar annars fal-
lega bæ og fjórðungi.
Við þig vil ég segja, Kristinn, að
mér finnst þú vera röggsamur
stjórnmálamaður, en bara í röngum
flokki; fórst úr öskunni í eldinn þeg-
ar þú söðlaðir um. Finnst að þú ætt-
ir að eyða púðrinu í að brjóta niður
þetta óréttlæti sem kvótakerfið býð-
ur upp á, það er illa farið með tím-
ann að vera að hnýtast út í Þorstein
Má sem hefur unnið eftir kvótakerfi
ykkar framsóknarmanna.
Kristinn, ég er viss um að þú
myndir sóma þér vel við hlið Adda
Kitta Gauj við að koma einhverju
lagi á þetta rangláta kerfi.
Nú er lag að stokka spilin upp á
nýtt og gefa aftur, því hinum smáu
byggðum allt í kringum landið er að
blæða út.
Með bestu kveðju.
MAGNÚS H. JÓNSSON,
fv. 2. stýrimaður
á Guðbjörgu ÍS 46,
núverandi húsasmiður.
Góð og þörf grein hjá
Kristni H. Gunnarssyni?
Frá Magnúsi H. Jónssyni
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111
Skólavörðustíg 8
Sími/fax 511 3555
Myndlistarsýning
Bjarni Ragnar
Doktor Willys
er til sölu
Þessi nær 44 ára gamli læknisbíll er allur eins og nýr, ryðlaus og allur yfirfarinn.
Tegund Willys Overland Station Wagon 4x4. Vél er 4 cyl Hurricane. Skráður fornbíll,
tryggingagjöld ca 11 þús. Þungaskattur 0. Uppl. í síma 898 8577.
FASTEIGNA
MARKAÐURINN
ÓÐINSGÖTU 4. SÍMI 570 4500, FAX 570 4505. OPIÐ VIRKA DAGA KL. 9–17.
Netfang: fastmark@fastmark.is - Heimasíða: http://www.fastmark.is/
Jón Guðmundsson, sölustjóri, lögg. fasteigna- og skipasali.
Mjög gott og mikið endurnýjað
121 fm tvílyft einbýlishús auk 27
fm bílskúrs. Á neðri hæð er flísal.
forst., eldhús m. nýrri innréttingu
og nýjum tækum, parketl. stofa, 1
herb. og flísal. baðherbergi, rúm-
gott þvottaherb. Uppi eru 3 svefn-
herb. og flísal. baðherb. Stór og fallegur garður með hellulagðri verönd
og skjólvegg. Áhv. húsbr. 4,8 millj. Verð 22,3 millj. Húsið verður til sýn-
is í dag, fimmtudag, frá kl. 14-16.
Verið velkomin.
Hvammsgerði 14 - Opið hús frá kl. 14-16