Morgunblaðið - 24.04.2003, Page 65
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. APRÍL 2003 65
DAGBÓK
STJÖRNUSPÁ
Frances Drake
NAUT
Afmælisbörn dagsins:
Þér er annt um hvað fólki
finnst um þig, metur fjöl-
skyldu þína og ert sagður
góður uppalandi.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Þú leiðir hugann að því
hverju þú hefur áorkað að
undanförnu, einkum sam-
skiptum þínum við fjöl-
skylduna.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Undanfarin tvö ár hefur þú
leitt hugann að því hvað
skiptir þig máli í lífinu.
Sömu hugsanir leita enn á
þig.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Miklar breytingar hafa átt
sér stað hjá þér hvað vinnu
varðar á liðnum árum. Nú
ríður á að komast í öruggt
starf.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Þetta ár mun að öllum lík-
indum verða þér hagstætt,
einkum í ljósi þess að þú
hefur þurft að fórna mörg-
um hlutum á liðnum árum.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Það getur tekið tímann sinn
að finna svör við sumum
spurningum og svörin fara
eftir því hversu vel þeirra
er leitað.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Þú hefur lengi reynt að ná
athygli vinnufélaga þinna.
Nú er komið að því að þér
takist það og þá er brýnt að
kynna málin af festu.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Miklar annir eru framundan
hjá þér og nú skiptir máli
að gefa ekki eftir. Þú munt
uppskera þótt síðar verði.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Gerðu breytingar á vinnu-
staðnum og reyndu að miðla
málum þegar samstarfs-
félagar þínir eru annars
vegar.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Góður vinur leitar stuðnings
hjá þér og þú verður að
gefa þér tíma til þess að
sinna honum. Erfið verkefni
krefjast oft nýrra leiða.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Margir telja sig þurfa á
aukinni ábyrgð að halda,
einkum hvað varðar ábyrgð
í tengslum við börn.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Þú hefur fengið starf sem
krefst mikillar ábyrgðar og
elju af þinni hálfu. Nú
skiptir máli að halda út því
betra starf er hugsanlega í
boði.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Spennandi tímar eru fram-
undan. Sumir fá tækifæri til
þess að kynnast börnum
sínum betur. Aðrir sjá fram
á rómantíska tíma með
maka sínum.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
SUMARKVEÐJA
Sjá! nú er liðin sumartíð,
hverrar ljómi
blíðu blómi
hruman áður hressti lýð.
Nú sjáum vér hve fastan fót
allt það hefur
gæfan gefur.
Gráts eru hér og gleði mót.
Óðfluga á tímans vagni vær
öllum stundum
áfram skundum;
enginn honum aftrað fær.
Þannig smám saman líður leið,
sem bát siglandi
ber að landi
bára hver, sem yfir skreið.
Hver mæðustund, sem fram hjá fer,
ei að hendi
aftur vendi,
styttir svo það eftir er.
Jón Þorláksson
LJÓÐABROT
ÁRNAÐ HEILLA
40 ÁRA afmæli. Í dag,24. apríl, sumardag-
inn fyrsta, er fertug María
Þórðardóttir, húsmóðir,
Heiðarbrún 41, Hvera-
gerði. Eiginmaður hennar
er Hörður Vignir Vil-
hjálmsson. María og Hörð-
ur taka á móti gestum á
heimili sínu laugardaginn
26. apríl frá kl. 15.
70 ÁRA afmæli. Í dag,24. apríl, er sjötugur
Þorvaldur Sigurðsson, elli-
lífeyrisþegi og fyrrverandi
meðferðarfulltrúi, til heim-
ilis að Einigrund 2 á Akra-
nesi. Hann og eiginkona
hans, Guðrún Magnús-
dóttir, verða að heiman á af-
mælisdaginn en óska öllum
vinum og vandamömum
gleðilegs sumars með þakk-
læti fyrir allt gott á liðnum
árum.
SAGNHARKA er vöru-
merki íslenskra spilara og
því kom ekki á óvart að
nokkur pör skyldu reyna
fjóra spaða í þessu spili Ís-
landsmótsins:
Vestur gefur; allir á
hættu.
Norður
♠ ÁG64
♥ K1072
♦ K102
♣105
Vestur Austur
♠ K5 ♠ 98
♥ DG3 ♥ 964
♦ 9853 ♦ ÁDG64
♣ÁK84 ♣G63
Suður
♠ D10732
♥ Á85
♦ 7
♣D972
NS eiga aðeins 19 há-
punkta sín á milli, en ef
norður doblar opnun vest-
urs á laufi eða tígli gæti
suður látið vaða í geim.
Þetta var ein sagnröðin:
Vestur Norður Austur Suður
1 tígull Dobl 2 tíglar 4 spaðar
Pass Pass Pass
Tveir spilarar sögðu og
unnu fjóra spaða, aðrir
tveir fór niður, en þeir
sem voru í bút fengu allir
tíu slagi. Oftast var það
vörnin sem brást. Á einu
borði kom út laufás og
austur vísaði frá með gosa.
Sem var of dýrt spil. Á
öðru borði lét austur duga
að vísa frá með sexu og
vestur skipti yfir í tígul í
öðrum slag. Austur tók
slaginn og spilaði laufgosa
– drottning og kóngur.
Vestur ákvað að spila
makker upp á G6 tvíspil
og spilaði enn laufi frá 84
upp í 97. Það gaf líka tíu
slagi.
En hvað gerist ef vörnin
stendur sig vel? Segjum að
vestur spili út laufás,
skipti yfir í tígul, austur
spili laufgosa og vestur
aftur tígli. Sagnhafi virðist
þá hljóta að gefa slag á
hjarta, en svo er ekki.
Hann svínar í trompinu og
stingur þriðja tígulinn.
Hendir svo hjarta í laufníu
og klárar trompin:
Norður
♠ 6
♥ K107
♦ --
♣ --
Vestur Austur
♠ -- ♠ --
♥ DG3 ♥ 964
♦ -- ♦ 6
♣8 ♣ --
Suður
♠ --
♥ Á85
♦ --
♣7
Blindur á út í þessari
stöðu. Síðasta trompinu er
spilað og hjarta hent
heima. Það þarf ekki að
hafa mörg orð um það –
vestur er „bullandi skvís“.
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson
1. e4 c5 2. Rf3 d6 3. d4 cxd4
4. Rxd4 Rf6 5. Rc3 a6 6. Be3
e5 7. Rb3 Be6 8. f3 Rbd7 9.
Dd2 b5 10. O-O-O Be7 11.
Df2 Db8 12. g4 b4
13. Re2 a5 14. Kb1
a4 15. Rbc1 b3 16.
cxb3 axb3 17. a3 d5
18. g5
Staðan kom upp
á ofurmóti sem
lauk fyrir
skemmstu í Búda-
pest. Christopher
Lutz (2640) hafði
svart gegn Sergei
Movsesjan (2659).
18...Bxa3! 19. gxf6
Bxb2 20. Kxb2
Db4 21. Ba7 O-O
22. Bh3? 22. Rd3
hefði verið betra og
væri þá óljóst hvort svartur
hefði næg færi fyrir menn-
ina tvo. 22...Bxh3 23. Rxb3
d4 24. Dg3 g6 25. Rexd4
Hxa7 26. Rc2 Dc4 27. Df2
Hb7 28. Rca1 Rc5 29. De3
Be6 30. Hc1 Rd3+ og hvítur
gafst upp.
SKÁK
Helgi Áss
Grétarsson
Svartur á leik.
Pabbi veit nú töluvert um kynlíf,
svona miðað við aldur!
SMS FRÉTTIR mbl.is
Aðalfundur
Samtaka um tónlistarhús verður haldinn
miðvikudaginn 14. maí nk. kl. 17.15
í fundarsal FÍH, Rauðagerði 27.
Dagskrá samkvæmt félagslögum.
Stjórn Samtaka um tónlistarhús.