Morgunblaðið - 24.04.2003, Síða 67
ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. APRÍL 2003 67
Hinn 1. maí 2003 verður Knattspyrnufélagið FRAM 95 ára og í tilefni af afmælinu
verður afmælisfagnaður í Íþróttahúsi FRAM, Safamýri 26.
Afmælishátíðin verður haldin
miðvikudaginn 30. apríl 2003
og hefst kl. 19:30
Borðhald.
Afhending heiðursmerkja.
Skemmtiatriði.
Dansleikur, Snillingarnir spila undir dansi.
Miðar eru seldir í Íþróttahúsi FRAM, Safamýri og eru nánari upplýsingar veittar
í síma 568 0344 og á heimasíðu félagsins, Fram.is.
Aðalstjórn Knattspyrnufélagsins FRAM
95 ára afmæli FRAM
OpnaGrolsch-mótið
laugardaginn 26. apríl
Punktamót - Hámarksforgj. karlar 24, konur 28
Spilað á sumarflötum
Verðlaun:
Sæti 1-5 m. forgj.
Sæti 1 án forgj.
Nándarverðl. á 3. og 16.
Ræst út kl. 8:00-14:00
Skráning fer fram á www.golf.is
og í síma 421 4100.
Keppnisgjald kr. 2.500
HELGA Magnúsdóttir verður eft-
irlitsmaður Handknattleiks-
sambands Evrópu, EHF, á einum af
úrslitaleikjum Evrópumóta fé-
lagsliða í næsta mánuði. Hún verð-
ur í þessu mikilvæga hlutverki þeg-
ar danska liðið Slagelse fær
Dunaferr frá Ungverjalandi í heim-
sókn en það er síðari viðureign lið-
anna í úrslitum EHF-keppninnar í
kvennaflokki og fer fram 17. eða
18. maí. Danska liðið, þar sem hin
fræga Anja Andersen er við stjórn-
völinn, þykir sigurstranglegt en
það vann mótherja sína frá Úkraínu
með 21 marks mun í heimaleik sín-
um í undanúrslitunum.
HAUKAR og Valur höfðu betur í
báðum leikjunum á móti KA og ÍR í
deildarkeppninni í vetur.
Deildarmeistarar Hauka unnu
báða leikina á móti Íslandsmeist-
urum KA nokkuð sannfærandi. Í
september á Akureyri í miklum
markaleik, 37:27, og að Ásvöllum í
febrúar, 31:26. Liðin mættust einn-
ig í undanúrslitunum í fyrra og þar
fögnuðu KA-menn sigri í báðum
leikjunum.
Valur hafði betur á móti ÍR í
fyrri leiknum að Hlíðarenda í sept-
ember, 25:23, og Valsmenn burst-
uðu svo ÍR-inga í Austurbergi í nóv-
ember, 31:19.
Haukar og
Valur höfðu
betur
Haukar
Robertas Pauzuolis er allur að
koma til eftir ökklameiðsl og að
öðru leyti eru allir við góða heilsu
og klárir í slaginn að sögn Viggó
Sigurðssonar, þjálfara Hauka,
sem var eina liðið sem þurfti odda-
leik til að komast í undanúrslitin.
KA
Íslandsmeistarar KA mæta til
leiks á Ásvelli með allt sitt sterk-
asta lið. „Menn eru með einhverja
smápústra en það háir þeim ekki
neitt og við erum tilbúnir í hörku-
leik,“ sagði Jóhannes Bjarnason,
þjálfari KA.
ÍR
Hreiðar Guðmundsson mark-
vörður leikur ekki þar sem hann
er með slitið krossband. „Það eru
engin önnur meiðsl hjá okkur. Við
höfum æft vel og mætum vel und-
irbúnir til leiks,“ sagði Júlíus Jón-
asson, þjálfari ÍR.
Valur
Sigurður Eggertsson og Frið-
rik Brendan Þorvaldsson hafa
verið með smá magakveisu eftir
ferð 20 ára landsliðsins til Búlg-
aríu, þar sem það keppti á heims-
meistaramóti um páskana, en eru
að hressast. „Það eru engin meiðsl
að angra okkur, smápústrar
kannski, en ekkert alvarlegt,“
sagði Geir Sveinsson, þjálfari
Vals.
Gott
ástand
leikmanna
liðanna
í því einvígi afar illa, en náðu sér síð-
an virkilega vel á strik. Þeir eru með
sterkara lið en KA og heimavöllur-
inn mun gera útslagið þegar og ef til
oddaleiks kemur.
KA á hrós skilið
KA-menn eiga hrós skilið fyrir
frammistöðu sína gegn HK í átta liða
úrslitunum og þó lið þeirra sé mikið
breytt frá því í fyrra, er hefðin hjá
þeim geysilega sterk og þeir eru
aldrei betri en þegar í svona úrslita-
keppni er komið. Það má því búast
við hörkurimmu milli þessarra liða,
bæði hafa spilað með framliggjandi
varnir í síðustu leikjum og gert það
Deildarmeistarar Hauka taka ámóti Íslandsmeisturum KA á
Ásvöllum í kvöld kl. 19.15. Þetta er
hrein endurtekning
á viðureign liðanna í
fyrra en þá var stað-
an svipuð - Haukar
voru deildarmeistar-
ar en KA hafði hafnað í 5. sæti, 14
stigum á eftir þeim. Samt vann KA
einvígið, 2:0, og varð síðan meistari.
Guðmundur býst ekki við því að
Akureyrarliðið endurtaki leikinn.
„Haukarnir eru með sterkasta liðið á
landinu um þessar mundir. Þeir
lentu heldur betur í ógöngum gegn
Fram og léku þrjá fyrstu hálfleikina
vel, og þó ég spái Haukum sigri er ég
viss um að KA-menn gefa sig ekki
fyrr en í fulla hnefana,“ sagði Guð-
mundur.
Valsstrákarnir hafa gengið
í gegnum þetta áður
Valsmenn taka á móti ÍR-ingum
að Hlíðarenda klukkan 19.15 og þar
eigast við gömlu félagarnir úr Val og
landsliðinu, Geir Sveinsson og Júlíus
Jónasson, sem stýra þessum tveimur
efnilegu liðum. Valur hafnaði í öðru
sæti 1. deildar í vetur, tveimur stig-
um og einu sæti á undan ÍR, en bæði
liðin lögðu andstæðinga sína, FH og
Þór, í tveimur leikjum í 8 liða úrslit-
unum.
„Ég held að bæði heimaleikjarétt-
urinn og hefðin vinni með Valsmönn-
um í þessum slag. Liðin eru áþekk að
styrkleika og bæði skipuð ungum og
bráðefnilegum leikmönnum. Vals-
strákarnir hafa það framyfir að þeir
hafa gengið í gegnum þetta áður en
það er nýtt fyrir ÍR-inga að vera
komnir svona langt og þeir eiga eftir
að stíga ákveðin skref áður en þeir
ná að fara alla leið.
Valsmenn afgreiddu FH á afger-
andi hátt og virðast vera komnir með
réttan takt í sinn leik eftir slaka
frammistöðu í lok deildakeppninnar
og ef markvarslan og vörnin verða í
lagi verða þeir of sterkir fyrir ÍR-
inga. Hjá ÍR er skarð fyrir skildi þar
sem Hreiðar Guðmundsson er ekki í
markinu en Hallgrímur Jónasson
hefur reyndar leyst hann vel af
hólmi. En Valsstrákarnir eru ein-
faldlega komnir lengra á þroska-
brautinni og því tel ég þá sigur-
stranglegri,“ sagði Guðmundur Þ.
Guðmundsson.
Liðin mætast að nýju á sunnudag-
inn kl. 16.15 á Akureyri og í Selja-
skóla. Ef til oddaleikja kemur verða
þeir miðvikudaginn 30. apríl.
Morgunblaðið/Golli
ÍR-ingurinn Kristinn
Björgólfsson reynir að
koma knettinum framhjá
„múr“ Valsmanna – Ás-
björn Stefánsson, Snorri
Steinn Guðjónsson, Ragn-
ar Ægisson, Friðrik B. Þor-
valdsson, Markús Máni
Michaelsson og Þröstur
Helgason eru til varnar.
Guðmundur Þ. Guðmundsson spáir Haukum og Val sigri gegn KA og ÍR
Heimavöllurinn
hefur mikið að segja
GUÐMUNDUR Þ. Guðmundsson, landsliðsþjálfari í handknattleik,
spáir því að Haukar og Valur leiki til úrslita um Íslandsmeistaratitil
karla í handknattleik. Guðmundur reyndist sannspár þegar Morgun-
blaðið fékk hann til að meta einvígin fjögur í átta liða úrslitum Ís-
landsmótsins og nú telur hann að Haukar og Valur hafi betur gegn KA
og ÍR en þó þurfi í báðum tilvikum oddaleiki til að knýja fram úrslit.
Eftir
Víði
Sigurðsson
Helga í
eftirliti á
úrslitaleik