Morgunblaðið - 24.04.2003, Side 68
ÍÞRÓTTIR
68 FIMMTUDAGUR 24. APRÍL 2003 MORGUNBLAÐIÐ
ÚRSLIT
KNATTSPYRNA
Meistaradeild Evrópu
8 liða úrslit, seinni leikir:
Manchester United – Real Madrid .........4:3
Ruud van Nistelrooy 43., Ivan Helguera
(sjálfsmark) 52., David Beckham 71., 84. –
Luiz Ronaldo 12., 50., 59. – 66.708.
Man. Utd: Fabien Barthez – Wes Brown,
Rio Ferdinand, John O’Shea, Mikael Silv-
estre (Phil Neville 79.) – Nicky Butt, Ryan
Giggs, Roy Keane (Quinton Fortune 82.),
Juan Veron (David Beckham 63.) – Ole
Gunnar Solskjær, Ruud van Nistelrooy.
Real Madrid: Iker Casillas – Roberto Carl-
os, Fernando Hierro, Michel Salgado, Luis
Figo (Francisco Pavon 88.), Jose Maria
Guti, Ivan Helguera, Claude Makelele,
Steve McManaman (Javier Portillo 69.),
Zinedine Zidane, Luiz Ronaldo (Santiago
Solari 67.).
Real Madrid vann samtals 6:4 og mætir
Juventus í undanúrslitum 6./7. og 13./14.
maí.
AC Milan – Ajax........................................3:2
Filippo Inzaghi 30., Andrei Shevchenko
65., Jon Dahl Tomasson 90. – Jari Litman-
en 63., Steven Pienaar 78. – 76.709.
AC Milan: Nelson Dida – Alessandro Cost-
acurta, Kakha Kaladze (Vitor Borba Riv-
aldo 80.), Paolo Maldini, Alessandro Nesta,
Dario Simic (Jon Dahl Tomasson 83.),
Massimo Ambrosini, Cristian Brocchi,
Manuel Rui Costa (Fernando Redondo
85.), Filippo Inzaghi, Andriy Shevchenko.
Ajax: Bogdan Lobont – Christian Chivu,
John O’Brien, Petri Pasanen, Hatem Trab-
elsi, Steven Pienaar (Nigel De Jong 83.),
Wesley Sneijder, Jelle van Damme (Jari
Litmanen 46.), Abubakari Yakubu, Zlatan
Ibrahimovic. Andy van der Meyde (Andre
Bergdolmo 88.).
AC Milan vann samtals 3:2 og mætir Int-
er Mílanó í undanúrslitum.
England
2. deild:
Swindon – Plymouth .................................2:0
Austurríki
Rapid Vín – Grazer AK.............................0:0
Admira/Mödling – Kärnten......................4:0
Bregenz – Pasching ..................................2:1
Ried – Salzburg .........................................1:2
Staðan:
Austria Vín 30 21 5 4 57:21 65
Grazer AK 30 12 11 7 44:29 47
Pasching 30 13 7 10 38:29 46
Salzburg 30 12 8 10 39:41 44
Sturm Graz 30 13 3 14 42:52 42
Rapid Vín 30 9 10 11 32:34 37
Ried 30 10 7 13 37:41 37
Kärnten 30 9 7 14 35:48 34
Admira 30 7 10 13 29:44 31
Bregenz 30 6 10 14 40:54 28
Deildabikar kvenna
Neðri deild:
FH – Þróttur/Haukar ...............................2:5
Staðan:
Þróttur/Haukar 2 2 0 0 10:4 6
FH 2 1 0 1 7:5 3
Fjölnir 2 1 0 1 5:3 3
RKV 2 1 0 1 3:5 3
HK/Víkingur 2 1 0 1 4:7 3
Tindastóll 2 0 0 2 4:9 0
KÖRFUKNATTLEIKUR
NBA-deildin
Úrslitakeppnin, 16 liða úrslit:
Austurdeild:
New Jersey – Milwaukee .....................85:88
Staðan er 1:1.
Vesturdeild:
Minnesota – LA Lakers......................119:91
Staðan er 1:1.
HANDKNATTLEIKUR
Þýskaland
Lemgo – N-Lübbecke...........................39:27
Staða efstu liða:
Lemgo 29 27 0 2 991:802 54
Flensburg 28 23 0 5 892:731 46
Magdeburg 28 21 1 6 894:779 43
Essen 28 19 3 6 806:743 41
Nordhorn 28 17 1 10 845:801 35
Gummersb. 28 14 3 11 834:793 31
HANDKNATTLEIKUR
Úrslitakeppni karla, Essodeild, undanúr-
slit, fyrstu leikir:
Ásvellir: Haukar - KA...........................19.15
Hlíðarendi: Valur - ÍR...........................19.15
KNATTSPYRNA
Deildabikarkeppni karla, efri deild:
Fífan: Stjarnan - KR..................................14
Ásvellir: FH - Haukar................................14
Egilshöll: Fram - ÍA...................................14
Laugardalur: Þróttur R. - ÍBV .................14
Reykjaneshöll: Keflavík - Þór...................14
Tungubakkar: Afturelding - KA...............15
Reykjaneshöll: Grindavík - Valur.............16
Egilshöll: Víkingur R. - Fylkir..................16
Deildabikarkeppni kvenna:
Fífan: KR - Breiðablik ...............................20
VÍÐAVANGSHLAUP
ÍR-ingar halda sitt 88. Víðavangshlaup kl.
13. Hlaupið verður 5 km leið um göturnar
kringum Reykjavíkurtjörn og í Hljóm-
skálagarðinum.
Í DAG
KR-INGAR hafa tekið endanlega
ákvörðun um að taka á móti fær-
eysku meisturunum HB frá Þórs-
höfn á heimavelli sínum á sunnu-
daginn en félögin mætast þá í
árlegri meistarakeppni Íslands og
Færeyja í knattspyrnu. Upphaflega
átti að leika í Egilshöll en vegna
einmunatíðar að undanförnu telja
KR-ingar grasvöll sinn leikhæfan
og hefst viðureign liðanna þar kl.
17. „Við tökum ákveðna áhættu
með því að spila á vellinum á þess-
um tíma en hann fær góðan tíma til
að jafna sig aftur áður en Íslands-
mótið hefst,“ sagði Sigurður Helga-
son, framkvæmdastjóri KR-Sport,
við Morgunblaðið.
ÞÝSKA stórliðið Lemgo hefur boð-
ið FH-ingnum Loga Geirssyni að
koma út og líta á aðstæður hjá fé-
laginu og æfa með því í eina viku.
Logi heldur út á mánudaginn og
takist honum vel upp á æfingum má
alveg eins búast við því að honum
verði boðinn samningur við liðið.
Forráðamenn Lemgo hafa fylgst
með Loga um hríð og óskuðu eftir
því að fá myndbandsspólur af Loga
í leik með FH-ingum og eins sáu
þeir hann leika með íslenska lands-
liðinu á móti Þjóðverjum í síðasta
mánuði. Lemgo hefur verið á hött-
unum eftir hornamanni og það er
ein ástæða fyrir því að Loga var
boðið að koma til félagsins.
Logi, sem er sonur Geirs Hall-
steinssonar ein albesta handknatt-
leiksmanns þjóðarinnar fyrr og síð-
ar, er 20 ára gamall og þrátt fyrir
ungan aldur er hann kominn í hóp
bestu leikmanna landsins. Hann var
í lykilhlutverki hjá FH-liðinu í vet-
ur og varð næstmarkahæsti leik-
maður deildarinnar með 171 mark.
Logi lék sinn fyrsta A-landsleik í
desember á síðasta ári í sigri á Slóv-
enum í Kaplakrika og annan lands-
leikinn lék hann gegn Þjóðverjum í
Berlín í síðasta mánuði. „Ég er auð-
vitað gríðarlega spenntur enda
ekkert smálið sem er að bjóða mér
að koma, líklega besta liðið í heim-
inum. Það verður bara að koma í
ljós hvort mér verður boðinn samn-
ingur en ég tel mig tilbúinn að fara
út í atvinnumennsku ef slíkt kemur
upp á borðið,“ sagði Logi við Morg-
unblaðið.
Lemgo er komið með aðra hönd-
ina á þýska meistaratitilinn – hefur
átta stiga forskot á Flensburg.
GUÐFINNUR Kristmannsson
skoraði 3 mörk fyrir lið sitt, Wasa-
iterna, sem tapaði fyrir Malmö,
27:26, í fyrsta leik liðanna um sæti í
sænsku úrvalsdeildinni á næstu leik-
tíð. Leikurinn fór fram á heimavelli
Malmö en í kvöld eigast liðin við á
heimavelli Wasaiterna í Gautaborg.
MOMIR Mileta, júgóslavneski
knattspyrnumaðurinn sem lék með
ÍBV fyrir þremur árum, gengur ekki
til liðs við ÍA. Morgunblaðið greindi
frá því fyrir skömmu að Skagamenn
hefðu sett sig í samband við Mileta
en þegar á hólminn kom reyndist
hann of dýru verði keyptur og slitn-
aði þar með upp úr samningum.
ALLAN Borgvardt og Tommy
Nielsen, nýju Danirnir í knatt-
spyrnuliði FH, eru komnir með leik-
heimild með félaginu. Þeir eru því
gjaldgengir í Hafnarfjarðarslaginn í
dag en FH mætir þá Haukum í
deildabikarnum á Ásvöllum kl. 14.
SÖREN Byskov, danski mark-
vörðurinn sem leikur með KA í sum-
ar, spilaði með Akureyrarliðinu gegn
Stjörnunni í deildabikarnum á dög-
unum án þess að vera með leikheim-
ild. Það breytti þó engu, Stjarnan
vann leikinn 3:0, eða með sömu töl-
um og skráðar eru þegar lið eru ólög-
lega skipuð.
ESPEN Johnsen, sem er orðinn
aðalmarkvörður norska meistara-
liðsins Rosenborg á kostnað Árna
Gauts Arasonar, hefur verið valinn í
norska landsliðið sem mætir Írum í
vináttuleik í Dublin í næstu viku.
NILS Johan Semb, landsliðsþjálf-
ari Norðmanna, segir að Johnsen
hafi staðið sérlega vel á milli stang-
anna í fyrstu leikjum Rosenborgar í
deildinni og verðskuldi sæti í lands-
liðinu.
CHRISTOPH Dugarry, Frakkinn
sem er í láni hjá Birmingham frá
Bordeaux, er mjög ánægður með
vistina hjá Birmingham og vill ólmur
leika áfram með liðinu á næstu leik-
tíð. Dugarry hefur fundið sig æ bet-
ur með enska liðinu og í undanförn-
um þremur leikjum hefur hann
skorað fjögur mörk og verið einn al-
besti leikmaður liðsins.
HOLLENDINGURINN Luis Van
Gaal, fyrrum þjálfari Barcelona,
hefur átt viðræður við forráðamenn
enska úrvalsdeildarliðsins Fulham
um að taka við stjórn liðsins á næstu
leiktíð en Frakkanum Jean Tigana
var sagt upp störfum hjá félaginu í
síðustu viku.
BERTI Vogts, landsliðsþjálfari
Skota, hefur valið Craig Burley,
Derby, í landsliðshóp sinn fyrir vin-
áttuleik á móti Austurríkismönnum
sem fram fer á Hampden Park í
Glasgow í næstu viku. Burley hefur
ekki leikið með skoska landsliðinu í
eitt og hálft ár vegna meiðsla.
FÓLK
Á UNDANFÖRNUM árum hafa
oft farið fram umræður um hvern-
ig best væri að auka áhugann á
innanhússíþróttum – handknatt-
leik og körfuknattleik, til að fá
fleiri áhorfendur til að koma á
leiki. Flestir hafa verið á þeirri
skoðun að til að auka áhugann
verði að fækka leikjum og þá sér-
staklega leikjum, þar sem mun-
urinn er mikill á liðum og fáir hafa
áhuga á að horfa á. Til þess að
fækka leiðinlegum leikjum liggur
beint við að fækka liðum í deildum.
Þvert á skoðanir manna að best
væri að fækka liðum í efstu deild,
þá fjölgaði handknattleiksforustan
liðum í efstu deild í fjórtán. Leikið
var í einni deild. Þegar það var
gert fyrir tveimur árum, sagði
einn þjálfari og fyrrverandi lands-
liðsþjálfari að fjölgun liða og leikja
kallaði á meiri umfjöllun í fjölmiðl-
um: „Það er af hinu góða,“ segir
þjálfarinn.
Undirritaður skrifaði þá eina af
fjölmörgum greinum sínum um
mótafyrirkomulag og benti á að
það kæmi niður á handknattleikn-
um – forkeppni yrði lengri og
áhuginn myndi minnka, en hann
var þá á hraðri niðurleið.
Hér er niðurlag greinar minnar
um fjölgun liða í efstu deild 20.
mars 2002: „Ég er ekki viss um að
umfjöllun um handknattleik í fjöl-
Manchester United átti stöðugt ábrattann að sækja gegn Real
því spænska liðið komst þrisvar yfir.
Í öll skiptin var hinn brasilíski Ron-
aldo að verki og þegar hann kom
Real í 3:2 snemma í síðari hálfleik
með glæsilegu skoti var ljóst að dag-
ar Englendinganna í keppninni væru
taldir. Þeir lögðu þó ekki árar í bát,
David Beckham kom inn á sem vara-
maður um miðjan síðari hálfleik og
skoraði tvö síðustu mörk leiksins,
það fyrra með mögnuðu skoti beint
úr aukaspyrnu, í þverslána og inn, og
sigurmarkið skoraði hann þegar enn
voru sex mínútur eftir. Þá þurfti
United hins vegar tvö mörk til við-
bótar til að komast áfram.
„Þvílíkur leikur – þetta var fót-
boltakvöld. Við fórum illa með góð
marktækifæri en spiluðum oft stór-
kostlega knattspyrnu. Ég er reglu-
lega stoltur af mínu liði,“ sagði Alex
Ferguson, knattspyrnustjóri Man-
chester United. „Ég sagði að við
myndum alltaf skora mörk en þyrft-
um að koma í veg fyrir að Real skor-
aði, og það tókst okkur ekki, en það
er ekki hægt að stöðva mann á borð
við Ronaldo. Þriðja markið hans var
gullfallegt,“ sagði Ferguson.
„Ronaldo átti þetta kvöld. Hann
fékk þrjú marktækifæri og tókst að
nýta þau öll. Þrátt fyrir góða stöðu
okkar var ég ekki rólegur fyrr en
flautað var til leiksloka, þetta var
frábær leikur tveggja frábærra liða
sem spiluðu geysilega hraða knatt-
spyrnu,“ sagði Vicente del Bosque,
þjálfari Real Madrid.
Gífurleg spenna í Mílanó
Spennan var mun meiri í Mílanó
þar sem hið unga lið Ajax jafnaði
metin í tvígang, en bæði 1:1 og 2:2
hefðu dugað því til að komast áfram
þar sem fyrri leikurinn í Amsterdam
endaði 0:0. Finninn snjalli, Jari
Litmanen, kom inn á sem varamaður
og jafnaði um miðjan síðari hálfleik.
Andrei Shevchenko svaraði strax
fyrir AC Milan en Steven Pienaar
jafnaði, 2:2. Ajax varðist vel á loka-
sprettinum og virtist með pálmann í
höndunum þegar Jon Dahl Tomas-
son, nýkominn inn sem varamaður,
skoraði, 3:2, eftir að 90 mínúturnar
voru liðnar. Filippo Inzaghi, sem
skoraði fyrsta mark ítalska liðsins,
lyfti boltanum yfir Lobont, mark-
vörð Ajax, og Tomasson fylgdi á eftir
og kom boltanum yfir marklínuna.
„Sem betur fór, hafnaði boltinn í
markinu, annars hefði ég hnigið nið-
ur örendur á staðnum! Við ætluðum
að komast í undanúrslitin, hvað sem
það kostaði. Liðið býr yfir miklum
styrk og með sama hugarfari náum
við enn lengra,“ sagði Filippo Inz-
aghi, sem kom við sögu í öllum mörk-
um AC Milan.
„Ronaldo átti
þetta kvöld“
REAL Madrid og AC Milan komust í gærkvöld í undanúrslit Meist-
aradeildar Evrópu í knattspyrnu, á ólíkan hátt. Real tapaði fyrir
Manchester United, 4:3, í stórskemmtilegum leik á Old Trafford en
sigraði samanlagt, 6:5. Jon Dahl Tomasson, Daninn íslenskættaði,
skoraði sigurmark AC Milan gegn Ajax, 3:2, á síðustu stundu en
Ajax hefði að öðrum kosti komist áfram á mörkum á útivelli. Það
verða því þrjú ítölsk félög í undanúrslitum og AC Milan mætir ná-
grönnum sínum í Inter á meðan Real Madrid tekur á móti Juventus.
KR og HB
leika á KR-
vellinum
Logi til Lemgo
Morgunblaðið/Sverrir
Logi Geirsson
Það er frábært að fá Jari aftur íliðið, við eigum engan hans líka
og þegar við leikum án hans neyð-
umst við til að breyta um leikstíl,“
sagði Antti Muurinen, landsliðsþjálf-
ari Finna, þegar hann tilkynnti liðið í
gær.
Finnar verða hins vegar án fjög-
urra leikmanna sem léku á Ítalíu.
Antti Niemi, markvörður Southamp-
ton, Teemu Tainio frá Auxerre í
Frakklandi og Aki Riihilahti frá
Crystal Palace í Englandi eru
meiddir og varnarmaðurinn Hannu
Tihinen frá Anderlecht er í barns-
burðarleyfi.
Sjö leikmenn enskra félaga eru í
finnska hópnum. Markverðirnir Pet-
er Enckelman frá Aston Villa og
Jussi Jääskeläinen frá Bolton, Sami
Hyypiä, fyrirliði Liverpool, Mikael
Forssell frá Chelsea (í láni hjá
Mönchengladbach), Jonatan Johans-
son frá Charlton, Simo Valakari frá
Derby og Markus Heikkinen frá
Portsmouth. Aðeins einn leikmaður í
18 manna hópnum leikur með
finnsku liði.
Finnar eru í 47. sæti á heimslista
FIFA, 21 sæti ofar en Íslendingar,
en þeir féllu um fimm sæti þegar
apríllistinn var birtur í gær.
Litmanen verður
með gegn Íslandi
JARI Litmanen, leikmaður Ajax í Hollandi, verður með finnska
landsliðinu þegar það tekur á móti því íslenska í vináttulandsleik í
Vantaa næsta miðvikudag. Litmanen, sem er fyrirliði Finna og
þeirra frægasti knattspyrnumaður frá upphafi, missti af síðasta leik
liðsins vegna meiðsla, þegar Finnar töpuðu, 2:0, fyrir Ítölum í und-
ankeppni EM í síðasta mánuði.