Morgunblaðið - 24.04.2003, Blaðsíða 71
orískum tökum í Bekkjarboð-
inu.
Magnus er 36 ára og hon-
um leiðist. Þegar hann fær
bréf um að 9. bekkurinn hans
ætli að hittast, hefur hann
litla löngun til að mæta, ekki
fyrr en hann man eftir æsku-
ástinni sinn Hillevi, sem
hann var næstum búinn að
strjúka með til Amsterdam.
Líkt og í þeirri fínu mynd
Romy and Michelle’s High
School Reunion, eru flestir í
bekknum enn í sömu hlut-
verkunum, Magnusi til mik-
illa hrellinga. Mér fannst
þessar persónur fullýktar, og
hefði mátt gera ráð fyrir
að þær hefðu þroskast
eitthvað örlítið á 20 árum,
en svo virtist ekki vera. Sá
hluti myndarinnar var því
svona einum of.
Annars er myndin bæði
nokkuð fyndin og ósköp
dramatísk á víxl. Maður
skilur vel tilfinningar og
örvæntingu Magnusar og
Björn Kjellman er mjög
fínn í hlutverki hans.
Framan af er myndin þó-
nokkuð fyrirsjánleg, en
undir lokin tekur hún
óvænta og ánægjulega
sveigju, og endar með
bravúr þrátt fyrir örlitla
væmni.
ÞAÐ er ósjaldan að kvikmynda-
gerðarmenn og aðrir listamenn tjá
sig um þá krísu, sem fólk lendir í á
fertugsaldri þegar allt í lífinu orðið
settlegt, staðlað og leiðilegt. Þeir
ósundurstíanlegu félagar Hern-
gren og Holm taka það efni húm-
Karl í krísu
KVIKMYNDIR
Regnboginn –
101 kvikmyndahátíð
Leikstjórn og handrit: Måns Herngren og
Hannes Holm. Kvikmyndataka: Göran
Hallberg. Aðalhlutverk: Mikael Almqvist,
Inday Ba, Urban Bergsten, Oscar Taxén,
Björn Kjellman og Ingrid Luterkort. 103
mín. Svíþjóð. Buena Vista Int. 2002.
Bekkjarboðið er fyndið og dramatískt á víxl. Hildur Loftsdóttir
BEKKJARBOÐIÐ/KLASSFESTEN FÓLK Í FRÉTTUM
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. APRÍL 2003 71
Í skugganum
(In the Shadow)
Spennumynd
Bandaríkin 2001. Myndform VHS/DVD.
Bönnuð innan 16 ára. (95 mín.) Leik-
stjórn Ric Roman Waugh. Aðalhlutverk
Matthew Modine, James Caan, Cuba
Gooding yngri.
EINA sem mér dettur í hug er,
mikið óskaplega hljóta þeir að vera
góðhjartaðir Modine, Caan og Good-
ing, að hafa fengist til að leika í þess-
ari mynd. Þannig er að sá sem gerir
hana er frægur
áhættuleikari í
Hollywood og vel
liðinn sem slíkur.
Eflaust hefur hon-
um tekist vegna
þeirra tengsla sinna
að fá þekktari leik-
ara en ella til að
leika í fyrstu mynd
sinni – mynd sem
sýnir ískalt að góðir leikarar geta ekki
bætt upp ömurleg vinnubrögð allra
annarra er að kvikmynd koma, allra
síst lélegt handrit og lamaða leik-
stjórn. Þó er leikstjórinn á heimavelli,
því sögusviðið er áhættuleikara í bíó-
borginni. Modine er harðsvírað hand-
bendi mafíunnar sem sendur er þang-
að til að komast inn undir hjá gömlum
jaxli í faginu (Caan) og ráða hann af
dögum. En auðvitað tekur hann ást-
fóstri við karlinn, sér í honum föður-
inn sem hann aldrei átti að, gömul og
margtuggin flétta það.
Ég segi það ekki, það er ein ástæða
fyrir bíógrúskara að leigja hana
þessa. Handritið er nefnilega skóla-
bókardæmi um hvernig á ekki að
skrifa handrit og má vel gamna sér
yfir því hversu yfirgengilega leiðandi
það er, hvernig hver setning er þving-
uð til að þjóna framvindunni, fléttunni
um leið og þráðurinn fer út og suð-
ur. ½
Skarphéðinn Guðmundsson
Áhættulítið
Í þokunni
(Fogbound)
Drama
Holland/Bretland 2001. Sam myndbönd.
VHS (97 mín.) Bönnuð innan 12 ára.
Leikstjóri: Ate de Jong. Aðalleikendur:
Luke Perry, Ben Daniels, Orla Brady,
Jeroen Krabbé
EITTHVAÐ mikilfenglegra en
blasir við áhorfandanum hefur sjálf-
sagt vakað fyrir Ate de Jong, hand-
ritshöfundi og leikstjóra myndarinn-
ar – sem stendur óvænt undir nafni.
Það er nánast allt strandað í þokunni
sem er yfir og allt um kring. Frá-
sögn, leikur, hug-
myndir og niður-
staða. Þrír vinir,
Leo (Daniels), Bob
(Perry) og Anna
(Brady), halda upp
hlíðar Alpanna en
verða að leggja
bílaleigubílnum
þegar á skellur nið-
dimm þoka. Þau stytta sér stundirn-
ar við að segja hvert öðru sínar
leyndustu hugsanir og lífsreynslu.
Til að byrja með reynist þetta sæmi-
legasta dægrastytting en hún verður
smám saman æ nærgöngulli og skil-
ur að lokum eftir sig ógræðandi sár.
Hér er í gangi gamli ástarþríhyrn-
ingurinn, milli hjónanna Leós og
Önnu og Bob, sem er besti vinur
þeirra. Þau Bob og Anna virðast
dragast hvort að öðru og Leo grunar
þau um samdrátt sem hefur ekki enn
átt sér stað. Inní þríhyrninginn er
blandað áhugaverðari sögu af fyrra
lífi Leos á 18. öld. Hún verður aðeins
til að teygja lopann og eftir stendur
nokkuð frábrugðin og metnaðarfull
mynd, óglögg og áttavillt einsog per-
sónurnar og bakgrunnurinn.
P.S. Lýst er eftir hollenska stór-
leikaranum Jeroen Krabbé. Grunur
leikur á að hann hafi villst af töku-
stað í dimmviðrinu. Sæbjörn Valdimarsson
Myndbönd
Þrjú í þoku