Morgunblaðið - 04.05.2003, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 119 . TBL. 91. ÁRG. SUNNUDAGUR 4. MAÍ 2003 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is
Kjósum
stöðugleika
Sjötíu ár í
myndum
Ljósmyndaferill Hjálmars R.
Bárðarsonar á bók B12
Einn kunnasti plötusnúður heims
á leið til Íslands Fólk 60
Borðað í
briminu
Veitingasalur hússins minnir á
skip á hvolfi Ferðalög
Sasha
á Nasa
DAVÍÐ Oddsson forsætisráðherra varar í viðtali
við Morgunblaðið í dag við því að farið verði út í
gagngerar breytingar í sjávarútvegi, meginat-
vinnugrein þjóðarinnar, eins og stjórnarandstöðu-
flokkarnir leggi til. „Nú eru 92% kvótans úti á
landi,“ segir hann. „Þessar breytingar myndu setja
það allt í uppnám með stórkostlegum tilflutningi
kvótans, væntanlega þangað sem fjármagnið er
mest. Það yrði meiri samþjöppun því þeir minnstu
ættu ekki möguleika á að kaupa kvóta á uppboði.“
Davíð segir að ekki sé bjart framundan ef sjáv-
arútvegurinn yrði settur „í uppnám, eins og til-
lögur eru nú um hjá Samfylkingunni og vinstri
grænum, að ég tali nú ekki um tillögur Frjálslynda
flokksins sem ekki er heil brú í“. Hann segir að
slíkt myndi einnig leiða til fækkunar í sjómanna-
stétt auk þess sem laun myndu hríðfalla vegna þess
að útgerðin yrði að setja mikið fé í að endurnýja
eigin kvóta: „Sjávarútvegurinn heldur niðri í sér
andanum vegna þessara tillagna. Menn eru ótta-
slegnir víða um land. Þetta er mikið alvörumál.“
Davíð kveðst í viðtalinu hafa gert sitt til að skapa
sátt um sjávarútveginn. Þar hafi umræða um auð-
lindagjald verið fyrirferðarmest og í því máli hafi
hann og fleiri, sem voru sömu skoðunar, gefið eftir
til að ná sátt.
Vilja ganga lengra í fyrningu
en rætt var í auðlindanefnd
„Þegar sáttir náðust í auðlindanefndinni voru
þar ræddar tvær leiðir,“ segir hann. „Annars vegar
fyrningarleið í mjög smáum stíl, kannski 1-2% á ári
en ekki 10-20% eins og nú er rætt um og hins vegar
hóflegt auðlindagjald.“
Hann bendir á að sátt hafi náðst um auðlinda-
gjaldið í nefndinni, en tveir nefndarmanna hafi
bókað harðorð mótmæli gegn fyrningarleiðinni og
sagst aldrei geta samþykkt hana.
„Þess vegna fóru menn þá leið með samþykki
stjórnarandstöðuflokkanna í raun,“ segir Davíð.
„Nú hlaupa þeir frá þessu og taka upp báðar leið-
irnar. Líka þá sem ekki var sátt um í nefndinni. Og
ekki 1-2% heldur 10-20% eftir því hvort þú átt við
frjálslynda eða Samfylkingu. Það sjá nú allir í
hendi sér að ef 10% af kvótanum eru boðin upp á
Siglufirði, til að mynda, þá er engin trygging fyrir
því að þeir geti keypt aftur. Þá hverfa 10% kvótans
í burtu. Síðan er boðið upp árið eftir. Þá eru útgerð-
irnar á staðnum orðnar miklu veikari eftir að hafa
misst 10%. Þeir eiga enga möguleika á að kaupa
næst. Það blasir við eyðimörk á þessum stöðum.“
Davíð Oddsson varar við afleiðingum breytinga á kvótakerfi á landsbyggðinni
92% kvóta úti á landi og yrðu
í uppnámi við breytingar
Skattar/10
FRÁSÖGN af „náttúruundri“
er tengdist heimsókn Kim
Jong-Il, leiðtoga Norður-Kór-
eu, í múr-
steinaverk-
smiðju fer nú
eins og eldur í
sinu um landið,
að því er
fréttastofan
þar greindi frá
í gær.
„Undrið“
varð í borginni
Hamhung í norðausturhluta
landsins. Þar rigndi er leiðtog-
inn var væntanlegur, en um leið
og hann kom fór að stytta upp.
Þetta hefði ef til vill mátt segja
tilviljun, en þegar leiðtoginn
lauk heimsókn sinni og ók á
brott byrjaði að rigna aftur.
Svipað „undur“ varð fyrir
nokkrum árum þegar Kim
heimsótti Hamhung-deild
n-kóresku vísindaakademíunn-
ar. Á þeirri stundu sem hann
birtist þar dró ský frá sólu, að
því er fréttastofan greindi frá.
„Himinninn yfir Hamhung-
borg var alskýjaður, en ekki
var skýhnoðri yfir akadem-
íunni. Þeir sem urðu vitni að
þessum undrum sögðu fullir
aðdáunar að Kim Jong-Il væri
svo sannarlega mikilmenni af
himnum,“ sagði fréttastofan.
Kim og
náttúru-
undrin
Seoul. AFP.
Kim Jong-Il
BANDARÍKIN og bandamenn
þeirra hyggjast mynda fjölþjóðlegt
lið til að koma á stöðugleika í Írak í
kjölfar stríðsins í landinu og munu
hvorki leita stuðnings Sameinuðu
þjóðanna né þátttöku ríkja sem
voru andvíg herförinni, að því er
haft er eftir háttsettum, bandarísk-
um embættismanni.
Írak verður skipt í þrjú svæði
sem stjórnað verður af Bandaríkja-
mönnum, Bretum og Pólverjum,
sem munu leita til annarra ríkja eft-
ir mannskap í friðargæslulið, að því
er embættismaðurinn, sem ekki
vildi láta nafns síns getið, sagði.
„Hugmyndin er sú, að bandalag
hinna viljugu myndi gæsluliðið,“
sagði embættismaðurinn ennfrem-
ur. Það þýðir, að ekki verður leitað
stuðnings og þátttöku Sameinuðu
þjóðanna.
Sagði embættismaðurinn að ráða-
menn í Washington væru á einu
máli um að hlutverk Sameinuðu
þjóðanna yrði takmarkað við „það
sem þær gera best“, þ.e., neyðarað-
stoð, flóttamannahjálp, aðstoð við
þá sem flosnað hafa upp, og endur-
uppbyggingu.
Eftirmál Íraksstríðsins
Ekki leit-
að stuðn-
ings SÞ
Washington. AFP.
AP
SOFFÍA Spánardrottning og Jóhann
Karl konungur taka á móti Jóhannesi
Páli páfa á flugvellinum í Madrid í
gærmorgun er páfi kom í tveggja
daga opinbera heimsókn til landsins.
Er þetta fyrsta utanlandsför páfa á
þessu ári og sú 99. sem hann fer í
páfatíð sinni.
Í dag mun páfi halda messu í
Madrid og er þess vænst að allt að ein
milljón manna sæki hana. Einnig
mun páfi í heimsókn sinni veita José
Maria Aznar, forsætisráðherra Spán-
ar, áheyrn. Þetta er fimmta heim-
sókn páfa til Spánar.Ung stúlka í Madrid bíður komu páfans.
Páfinn til Spánar