Morgunblaðið - 04.05.2003, Síða 6

Morgunblaðið - 04.05.2003, Síða 6
FRÉTTIR 6 SUNNUDAGUR 4. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ H ITINN er aðeins þrjár gráður og mörgum verður kalt í rokinu. Þeir sem hafa gengið áður mæta vel búnir, því 1. maí er aldrei orðið almennilega heitt á Íslandi. Ef til vill er það þess vegna sem engin ganga er í verkalýðsbænum Neskaupstað. Þar vilja menn ekki ganga af verkalýðnum dauðum. Einn kappklæddur göngumaður er rauður á nefinu. Hann er með rauðan og hvítan trefil með áletruninni: „You’ll Never Walk Alone“. Þessi stuðningsmaður fótboltaliðs verkalýðsins virðist vita upp á hár um hvað baráttudagurinn snýst. Eins og eldri hjón, sem bíða eftir að gangan hefjist. – Farið þið oft í kröfugönguna? – Alltaf þegar við komumst; ætli það séu ekki yfir sextíu ár síðan ég tók fyrst þátt, segir maðurinn og konan bætir við: – Það er lengra síðan ég byrjaði. – Af hverju mætið þið? – Af gömlum vana, segir hún og hlær. – Hvað um hugsjónirnar? – Jújú, þær eru til staðar, segir hann og bætir við: Félagshyggja og bætt lífskjör. Hún lætur sér nægja að lesa á merkið sem hann er með í barminum: – Velferð fyrir alla. Svo brosir hún elskulega. Lúðrasveitin hefur spilamennskuna og hersingin heldur af stað. Í þvögunni segir lítill drengur: – Pabbi, mig langar í íslenskan fána. Enginn hörgull er á íslenskum fánum eða fánum yfir höfuð. Flestir hafa eignað sér einhvern lit úr litrófinu og þannig er regnboginn fluttur í pörtum niður á Ing- ólfstorg. Það tekur í stóru fánana í rokinu og fánaberarnir eru útbúnir eins og píanóflutningamenn. Það ægir líka saman ólíkum baráttumálum á þessum alþjóðlega baráttudegi verkalýðsins. „Útrýmum launamun kynjanna“ stendur á einu spjaldi. Tveir skóladrengir halda á öðru með áletruninni „Lengjum sumarfríið um tvær vikur“. Lítil kotroskin stúlka heldur á priki með útskorinni rjúpu. Ekki er gott að segja til um af hverju. Það er langt til jólanna. Öðrum er mikið niðri fyrir, veifar spjaldinu „USA úr Írak“. Hann þrammar þungum skrefum framhjá styttunni af Leifi Eiríkssyni, manninum sem fann Ameríku. – Hvað dregur þig í gönguna? spyr blaðamaður unga móður. – Samfélagsleg ábyrgð, svarar hún. Mér fyndist ég vera að svíkjast um ef ég mætti ekki. Ég er ekki bara að styðja verkalýðshreyfinguna. Ég á í miklum vandræðum með að velja undir hvaða fána ég geng. Mig langar til að veita svo mörgum málefnum stuðning, – Palestínu, kynja- jafnrétti, helv … Hún nær ekki að klára setninguna, því hún er að missa af göngunni. – Jæja, veldu þér fána, elskan mín, segir maðurinn hennar. – Bleikan, segir hún og þau smeygja sér inn í hóp femínista. Alvörugefinn maður gengur undir yfirskriftinni: „Burt með húsa- leiguokrið“ og aftan á spjaldinu er útprentun með sýnishorni af verði á leigumarkaðnum. – Er þetta góður vettvangur fyrir mótmæli? – Ég veit það ekki, svarar hann og bætir við: En þetta er allavega vettvangur. Það er alltaf gaman að ganga í takt við tónlist lúðrasveita. Og áhrifa- mátturinn er slíkur að enginn getur verið kyrr. Skankarnir hreyfast af sjálfu sér. Ef ekki væru lúðrasveitir, þá væru engar göngur. Fólk stæði bara. Gamall maður berst niður Njarðargötuna með hljómfallinu. – Ég hef tekið þátt í göngunni síðan ég var sjö ára polli í Vest- mannaeyjum, segir hann. – Af hverju? – Ég er kommúnisti. Nær bænum hefur ungur maður klætt sjálfan sig með „Herinn burt“. – Mig hefur alltaf langað til að hafa spjöld bæði að aftan og framan, segir hann. Ég þarf bara að passa mig á því að binda þau saman næst, svo ég takist ekki á loft. Hann hugsar upphátt um þátttöku Framsóknarflokksins í kröfu- göngunni, sem gengur þar undir grænum fána. Svo flýgur hann burt á kröfuspjöldunum. Tjörnin er úfin. Vaggandi mávar og gæsir horfa á skrýtna fugla ganga eftir Tjarnargötunni. Þeir vilja líka brauðbita. Morgunblaðið/Jim Smart Á baráttudegi verkalýðsins SKISSA Pétur Blöndal fór í kröfu- göngu 1. maí AÐ venju var hvert sæti skipað í Íþróttahúsinu þegar Kvenfélag Sauðárkróks hélt árlega dægur- lagakeppni sína í tíunda sinn í fyrrakvöld. Lagið Æskustöðvarnar sigraði, höfundur þess er Björn Sigurðsson, en höfundur texta Sig- ríður María Bragadóttir. Ingólfur Jóhannsson flutti lagið. Fjölmörg lög bárust í keppnina en dómnefnd hafði valið tíu bestu lögin sem kepptu til úrslita, en sér- stök dómnefnd var skipuð vegna úrslitanna og gilti mat hennar 40% en atkvæði gesta 60%. Formaður kvenfélagsins, Lovísa Símonardóttir, bauð gesti vel- komna og kynnti keppnina, en síð- an tók við stjórninni sr. Fjölnir Ás- björnsson en hann kynnti lögin og þau skemmtiatriði sem fram fóru á meðan dómnefnd sat að störfum. Það var hljómsveitin Von undir styrkri stjórn Kristjáns Kristjáns- sonar sem annaðist allan undirleik laganna. Að loknum flutningi laganna sýndi dansparið Íris Ösp Svein- björnsdóttir og Logi Vígþórsson samkvæmisdansa en síðan kom Ólafía Hrönn leikkona ásamt Ing- unni, kvenfélagskonu að sunnan og fluttu þær gamanmál. Í öðru sæti var lagið Oft er leið og er það lag eftir Snorra Everts- son við texta Stefáns Guðmunds- sonar og í þriðja sæti Eins og nú, og er höfundur lags og texta Grét- ar Sigurbergsson. Hann er þeim sem með dægurlagakeppninni fylgjast ekki ókunnur því að hann átti líka lag í þriðja sæti árið 1999. Björn Sigurðsson, sem átti sig- urlagið, sem er ættaður frá Hauga- nesi, og rútubílstjóri hjá Teiti Jón- assyni, sagði að þetta væri í annað sinn sem hann tæki þátt í keppn- inni, en hann hefði alltaf fylgst með henni og núna væru lögin miklu mun jafnari en oft áður og þessvegna hefði hann ekki átt von á því að lag sitt næði svo langt. Textahöfundurinn, Sigríður María Bragadóttir átti svo, auk textans við lag Björns, annað lag og texta sem komst í úrslitin þó það næði ekki verðlaunasæti að þessu sinni. Sigríður sagði þau Björn gamla vini og auk tónlistar- innar ynnu þau á svipuðum slóðum þar sem hún er leigubílstjóri. Björn sagði að lokum að hann væri nú að vinna að útgáfu hljóm- disks þar sem sigurlagið væri með- al annarra laga sinna. Að hefðbundinni dagskrá lokinni lék hljómsveitin Von fyrir dansi. Rútubílstjóri sigraði í dægurlagakeppni Morgunblaðið/Björn Sigurvegarnir voru ánægðir í lok keppninnar. Frá vinstri Ingólfur Jó- hannsson söngvari, Sigríður María Bragadóttir textahöfundur og Björn Sigurðsson sem samdi sigurlagið, „Æskustöðvarnar“. FORMAÐUR Kvenréttindafélags Íslands, Þorbjörg Inga Jónsdóttir, hefur verið kjörin í stjórn IAW, Al- þjóðasamtaka kvenréttindafélaga. Fór kosningin fram á þingi samtak- anna í Sri Lanka fyrir nokkru. Aðild- arfélög eru 104 talsins en Þorbjörg er fimmta konan frá Kvenréttindafélagi Íslands sem er kjörin í stjórn sam- takanna. Ragnhildur Guðmundsdótt- ir, framkvæmdastjóri Kvenréttinda- félags Íslands, fór í stað Þorbjargar á þingið þar sem hún var með barni. Á þinginu var samþykkt aðgerða- áætlun 2002-2004 sem byggð er á reynslu samtakanna, sem sambands alþjóða landsfélaga sem vinnur í nán- um tengslum við Sameinuðu þjóðirn- ar og aðrar alþjóðlegar stofnanir. „Um þessar mundir blasa við stór- kostleg viðfangsefni sem gætu styrkt baráttuna fyrir jafnrétti kynjanna, jöfnum réttindum og jöfnum skyld- um,“ segir Ragnhildur. „Af þeim sök- um staðfesta samtökin tvö meginætl- unarverk sem IAW og aðildarfélögin munu einbeita sér að en þau snúast um það að kvenréttindi séu mann- réttindi og þau verði viðurkennd og virk í öllum heimshornum. Til að ná þessum markmiðum og jafnframt að hvetja konur til að taka afdráttar- lausa afstöðu er nauðsynlegt að hefja raunhæfar aðgerðir til að auðvelda IAW að fylgja kröfunum eftir á þess- um fyrrnefndu sviðum.“ Ragnhildur ítrekar að kvenrétt- indi séu mannréttindi. „Réttur konu til að lifa sem sjálfstæður einstak- lingur er mikilvægari öðrum kröfum. Á síðustu tímum hafa konur orðið varar við vaxandi áreiti þegar þær hafa verið að fylgja eftir kröfum sín- um um grundvallarmannréttindi. Sú andspyrna á vissulega rætur að rekja til hagrænna þátta, en þó sérstaklega til ólíkra menningarsvæða og trúar- hópa sem neita konum um þennan sjálfsagða rétt.“ Þorbjörg segir að með margvísleg- um hætti geti íslenskar konur og al- þjóðasamtökin í heild aðstoðað í bar- áttunni fyrir auknum kvenréttindum í heiminum. „Það er t.d. gert með stefnuyfirlýsingum sem samþykktar eru á þingum Alþjóðasamtaka kvenna en með þeim er reynt að hafa áhrif á stofnanir Sameinuðu þjóð- anna og ríkisstjórnir,“ segir Þor- björg. Samþykktir alþjóðaþingsins lúta að grundvallaratriðum varðandi jöfn tækifæri karla og kvenna og því hafa þær ekki verið lagðar fyrir rík- isstjórn Íslands undanfarin ár, þar sem þau réttindi eru þegar tryggð með lögum, að sögn Þorbjargar. „Það segir þó aðeins hálfa söguna, þau eru staðfest í orði en ekki á borði,“ segir Ragnhildur og Þorbjörg tekur í sama streng. „Já, það sem nú vantar hér enn þrátt fyrir þetta er vitundarvakning meðal almennings og stjórnvalda.“ En hvað græða þá íslenskar konur, sem standa mörgum öðrum konum framar í jafnréttismál- um, á því að sækja alþjóðleg þing sem þessi? „Þingin eru ekki síður haldin til að efla samstöðu kvenna víða um heim,“ segir Þorbjörg. „Þeim er einnig valinn staður með það í huga að vekja athygli á rétt- indum kvenna í viðkomandi landi.“ Ragnhildur segir samtökin hafa mik- ið vægi og sá styrkur sé notaður til að koma fram með ályktanir. „Á þinginu fáum við nýjar hugmyndir og nýtum reynslu frá öðrum löndum auk þess sem við komum okkar reynslu á framfæri.“ Hún segir að öll Norður- löndin eigi fulltrúa í stjórn samtak- anna að þessu sinni. Á þinginu í Sri Lanka var mikið rætt um vatn og hreinlæti, að sögn Ragnhildar. Hún segir að í því sambandi geti íslenskar konur sem og aðrar Norðurlanda- þjóðir komið fram með þekkingu til að nýta vatnið. Þá hafi einnig verið lögð áhersla á atvinnuþátttöku kvenna. „Rætt var um hvernig raun- veruleg markmið geta náðst,“ segir hún og bendir á að margar konur í Asíu og Suður-Evrópu séu illa settar hvað þetta varðar þar sem mikil stéttaskipting er við lýði í löndunum. Þorbjörg segir samstarf kvenrétt- indafélaga mjög mikilvægt starfsemi þeirra. „Þarna geta íslenskar konur lagt á vogarskálarnar allt sem hefur áunnist í jafnréttismálum á Íslandi á síðustu árum.“ Formaður KRFÍ í stjórn Alþjóðasamtaka kvenréttindafélaga Reynsla okkar nýtist öðrum konum vel Morgunblaðið/Jón Svavarsson Þorbjörg Inga Jónsdóttir, formaður Kvenréttindafélags Íslands og stjórn- armaður í Alþjóðasamtökum kvenréttindafélaga, t.h. á myndinni, en t.v. er Ragnhildur Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri Kvenréttindafélagsins.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.