Morgunblaðið - 04.05.2003, Qupperneq 30
LISTIR
30 SUNNUDAGUR 4. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Styrkur til
tónlistarnáms
Minningarsjóður um Jean Pierre
Jacquillat mun á þessu ári veita
tónlistarfólki styrk til framhaldsnáms
erlendis á næsta skólaári 2003-2004
Veittur er styrkur að upphæð kr. 600.000.
Umsóknir, með upplýsingum um
námsferil og framtíðaráform, sendist
fyrir 31. maí nk. til formanns sjóðsins:
Arnar Jóhannssonar,
pósthólf 8620,
128 Reykjavík.
Umsóknum fylgi hljóðritanir, raddskrár
frumsaminna verka og/eða önnur gögn
sem sýna hæfni umsækjenda.
Stórkostlegur fengur fyrir þá sem þekkja til slíkrar gæðavöru
EINSTÖK PERSNESK TEPPI
og önnur fyrirtaks austurlensk teppi af hæsta alþjóðlega
gæðastaðli ásamt persneskum og austurlenskum skrautteppum í
ýmsum stærðum
UPPBOÐ
á persneskum teppum í hæsta gæðaflokki.
Að þessu sinni bjóðum við úrval handofinna austurlenskra
teppa í hæsta gæðaflokki:
Gullfallegt skrautofið persneskt silkinain 295 x 197 cm
Fínofið isfahan úr silki að hluta 173 x 112 cm
Fínofið satínsrinagar 430 x 304 cm
Sígilt persneskt kashan teppi 400 x 292 cm
Persneskt ghom úr hreinu silki 196 x 135 cm
Skrautofið persneskt heriz teppi 370 x 290 cm
Persneskt sarouk af hæsta gæðaflokki 203 x 130 cm
Persneskur zandjan dregill 297 x 100 cm
Agra satínteppi 313 x 241 cm
Persneskt senneh teppi 313 x 197 cm
Auk þess bjóðum við margar aðrar persneskar og
austurlenskar hágæða gólfmottur, dregla og teppi
sem verða boðin upp og seld á uppboðinu.
Við ábyrgjumst að hvert teppi sé ósvikið, handunnið og ekki hvíli á því
neinar útistandandi skuldir eða gjöld.
SUNNUDAGUR 4. MAÍ
UPPBOÐ KL. 19:00,
HÆGT ER AÐ SKOÐA VÖRUNA FRÁ KL. 17:00
í Sunnusal á
RADISSON SAS Hótel Sögu
Greiðslumáti: Reiðufé, ávísanir með bankaábyrgð, öll helstu greiðslukort
FREKARI UPPLÝSINGAR FÁST VIÐ SKOÐUN OG Á UPPBOÐINU
sem haldið er í samvinnu við Bickenstaff and Knowles, alþjóðlegra uppboðshaldara í Lundúnum.
Uppboð þetta er haldið samkvæmt tilskipun alþjóðlegs stórbanka til að nýta haldsrétt vegna
umtalsverðra vanskila og gjaldþrots leiðandi heildsala á persneskum teppum. S
TÓLFTA apríl sl. var útgáfudag-
ur tveggja geisladiska með göml-
um upptökum á söng kvartettsins,
en þann dag voru 40 ár liðin frá
stofnun hans. Tónakvartettinn
vakti, á sínum allt of stutta starfs-
tíma, á árunum 1963–1969, athygli
söngelskra Íslendinga. Bæði barst
söngur þeirra eyrum gesta á
skemmtunum víðsvegar um landið
og einnig á öldum ljósvakans í
þáttum ríkisútvarpsins og ekki síst
urðu þær plötur sem gefnar voru
út leiknar á mörgum heimilum og
oft alveg upp til agna. En það var
Svavar Gests sem var í forsvari
fyrir plötuútgáfu á söng kvart-
ettsins. Alls voru gefin út 27 lög á
fjórum plötum, en það var aðeins 1⁄4
þeirra laga sem kvartettinn flutti
um dagana. Söngmennirnir voru
fjórir, bræðurnir Ingvar og Stefán
Þórarinssynir, ásamt Eysteini Sig-
urjónssyni og Stefáni Sörenssyni,
að meðtalinni Björgu Friðriksdótt-
ur, sem var þá og alltaf síðar við pí-
anóið, sem „fimmti meðlimur
kvartettsins“. Tveir félaganna, þeir
Ingvar og Eysteinn, eru látnir.
Þessi fyrsta æfing fór fram á heim-
ili þeirra heiðurshjóna, Bjargar og
Ingvars, og mun það hús búa yfir
mestri reynslu í að enduróma söng
þessa 4+1-söngflokks upp frá því.
Ég get ekki stillt mig um að nefna
að einmitt þetta heimili, með Ingv-
ar Þórarinsson bóksala í forystu,
varð aufúsustaður ótölulegs fjölda
tónlistarmanna, jafnt innlendra og
erlendra, sem Ingvar heitinn hafði
forystu um að héldu tónleika á
Húsavík og veit ég af eigin reynslu
að þar var oft af æðruleysi reitt
meira fram en tekjur af tónleikum
leyfðu. Á áðurnefndri stofnæfingu
var einnig mættur séra Friðrik A.
Friðriksson, sem mun hafa verið
ákafur hvatamaður þessa tiltækis.
Séra Friðrik reyndist Tónakvart-
ettinum betri en enginn sem þýð-
andi erlendra texta og tillögugóður
um val á söngvum.
Þessi söngur átti fyrst og fremst
að verða flytjendum dægradvöl til
viðbótar fullu starfi, þatttöku í kór-
starfi og ýmsum öðrum önnum,
enda æfingatími valinn á síðkvöldi
að loknu öllu öðru. En friðurinn til
að halda þessu tónaföndri fyrir sig
var rofinn um leið og hópurinn gaf
fyrsta færi á opinberum flutningi
að áeggjan séra Friðriks á
aðventuhátíð í Húsavíkurkirkju
1963. Slíkan kvartettsöng gátu
söngunnendur ekki látið felast í
heimahúsi. Fiskisagan flaug og sú
saga ásamt ólygnum almannarómi
varð til þess að á sex ára ferli sín-
um heimsótti Tónakvartettinn
meira en 50 staði og kom fram
margsinnis á sumum. Þessari
glæstu lotu lauk með því, að þeirra
stórfíni bassasöngvari, Stefán Sör-
ensson, flutti til Reykjavíkur og er
það ekki í fyrsta skipti sem atgerv-
isflótti góðs fólks í þessa veru veld-
ur lista- og menningarstarfi lands-
byggðar búsifjum. Sumir segja
eflaust að annan bassa hefði mátt
finna, en eftir að hafa hlýtt á þessa
nýju geisladiska láir maður þeim
félögum ekki það mat að telja
skarð Stefáns ófyllanlegt. Tóna-
kvartettinn náði þó að koma fram
opinberlega tvisvar eftir þetta á
árinu 1970. Eitt er glæsilegt orð-
spor sem minningin gyllir, og ann-
að er rykið sem oft fellur á gullinn
flöt og máir út mynd. Þessi endur-
útgáfa Tónakvartettsins gerir
hvort tveggja í senn; hún staðfestir
að orðsporið var á rökum reist og
hitt að silfur hefur verið fægt sem
farið var að falla á. Þarna má heyra
46 söngva, sem eru flestar tiltækar
upptökur Tónakvartettsins að frá-
töldum sjómannasöngvum, sem
kvartettinn söng inn á SG-hljóm-
plötu með Gretti Björnssyni harm-
onikuleikara, en að mati aðstand-
enda voru þau lög of frábrugðin
heildarlagavali flokksins til að vera
með. Ég get ekki gert söngvum og
flutningi þeirra þau skil sem
skyldi. Ég staldra þó við meginat-
riði að mínu mati. Það vekur að-
dáun mína hve allar raddirnar fjór-
ar eru blæfagrar og falla saman í
eitt ómþýtt hljóðfæri. Ég get ekki
ímyndað mér að sá dagur yrði ann-
að en góður, ef ég yrði vakinn með
dúnmjúkum og næmum söng Tóna-
kvartettsins á söngnum Góðan dag,
lagi Berners, á diski 2 nr. 3. Fram-
burði söngmanna á textum er við
brugðið og hverju einasta orði
haldið til skila, sem gildir um fram-
burð erlendra texta einnig. Sveita-
brúðkaupið, fjögurra ljóða sagna-
bálkur eftir August Søderman í
þýðingu Benedikts Þ. Gröndal, síð-
astur á sömu plötu, er einnig vitn-
isburður um þennan skýra fram-
burð og smekkvísi í litskrúðugri
túlkun. Fallegur tenórblær Ing-
vars, áhrifamikil raddsóló Eysteins
og hinn mjúki, djúpi og angurværi
bassasöngur Stefáns Sörenssonar
láta mann ekki ósnortinn. Þessi
kvartett hefði svo sannarlega getað
náð langt í „barbershop“-söngvum
þar sem laglína liggur oftast í
fyrsta bassa og tenórar með yf-
irraddir. Þessu til stuðnings bendi
ég á flutning þeirra á laginu All
Through the Night eftir David
Owen. Oflof getur snúist í höndum
manns og fengið öfuga merkingu,
en ég held að tónlistarafrek Tóna-
kvartettsins séu með þessum
geisladiskum hverjum sem hlýða
vill augljós. Hverjum söngmanni
getur hreinn og tær söngur kvart-
ettsins orðið fyrirmynd. Hófstilltur
og þó tjáningarríkur píanóleikur
Bjargar er píanóleikurum til eft-
irbreytni. Fjölskyldutengslin eru
heillandi í flutningi tveggja gull-
fallegra laga eftir bróður Bjargar,
séra Örn, oft kenndan við Skútu-
staði, við ljóð föður þeirra Friðriks
A. Friðrikssonar. Þessi sönglög
mættu gjarnan fara víðar. Svo er
að lokum ástæða til að óska vensla-
fólki Tónakvartettsins, með Sverri
Guðmundsson tónlistarmann í fylk-
ingarbrjósti, til hamingju með
þetta tímabæra og góða framtak.
„Mér varð (verður) allt að yndi,
að óði og söng hvert spor …“ við að
hlýða á plöturnar, svo vitnað sé í
ljóð séra Friðriks við lag sonar síns
nr. 1 á fyrri diski.
Geislandi söngur Tóna-
kvartetts frá Húsavík
TÓNLIST
Geislaplötur
Tveir nýir safngeisladiskar með flutningi
Tónakvartettsins frá Húsavík með upp-
tökum frá sjöunda áratug tuttugustu ald-
ar. Stafræn úrvinnsla og yfirfærsla: Staf-
ræna hljóðupptökufélagið ehf. Hönnun
og umbrot: Ragnheiður Kristjánsdóttir.
Útgáfuhópur: Kristján Eysteinsson, Perla
Kolka, Ragnar Sigurjónsson. Sigríður
Oddný Stefánsdóttir, Sigríður Ingv-
arsdóttir, Sverrir Guðmundsson og eft-
irlifandi meðlimir Tónakvartettsins.
TÓNAKVARTETTINN FRÁ HÚSAVÍK
Jón Hlöðver Áskelsson
Salurinn kl. 20 Árlegir vor-
tónleikar Tónvers Tónlistarskóla
Kópavogs. Aðgangur er ókeypis.
Að þessu sinni eru tónleikarnir í
samvinnu við Tónlistarskólann í
Reykjavík og verða flutt þaðan
verk eftir nemendur Tón-
smíðadeildar.
Á dagskrá verða glæný verk eftir
nemendur. Að tónleikunum loknum
verður áheyrendum boðið að fræð-
ast um tilurð verkanna og starf-
semi tónversins. Hægt verður að
bera fram fyrirspurnir til höfunda
og forstöðumanna tónversins sem
munu gera sitt besta til að svala
forvitni spyrjenda.
Í DAG
Sjá einnig Staður og stund á mbl.is
JAZZPÍANÓLEIKARINN Mark
Levine heldur tónleika í Sal Félags
íslenskra hljómlistarmanna á mánu-
daginn kl. 20. Með honum leika Tóm-
as R. Einarsson á kontrabassa og
Matthías Hemstock á trommur.
Mark Levine býr í San Francisco
og þykir vera fremsti píanóleikari
þar um slóðir. Hann hefur á löngum
ferli leikið með ótrúlegum fjölda
þekktra hljóðfæraleikara s.s. Joe
Henderson, Freddie Hubbard,
Dizzy Gillespie, Woody Shaw, Chet
Baker, Mongo Santamaria og Tito
Puente, auk þess að vera mjög virk-
ur í Latin Jazz hreyfingunni með
eigin hljómsveitum og annarra.
Mark Levine er einnig leiðandi afl
í jazzkennsluheiminum í dag. Hann
er m.a. höfundur þekktra kennslu-
bóka um jazzpíanóleik sem njóta
mikillar hylli víða um lönd. Tónleik-
arnir, sem eru öllum opnir, verða í
framhaldi af námskeiði Mark Levine
fyrir Tónlistarskóla F.Í.H., fyrr um
daginn.
Aðgangseyrir á tónleikana er kr.
1.000.
Mark Levine
á tónleikum
í FÍH salnum
GESTABÆKUR Ferðafélags Ís-
lands voru nýlega afhentar hand-
ritadeild Landsbókasafns Íslands
– háskólabókasafns til varðveislu.
Ferðafélag Íslands var stofnað
27. nóvember árið 1927 og er því
nýorðið 75 ára. Árið 1928 kom út
fyrsta árbók félagsins, um Þjórs-
árdal, eftir Jón Ófeigsson, og
hafa árbækurnar komið út óslitið
á hverju ári síðan.
Bækurnar eru misvel á sig
komnar, allt frá því að vera alveg
heilar og óspjallaðar til þess að
vera slitrur, jafnvel aðeins nöfn
skrifuð á rifrildi af umbúðapappír
utan af einhverri matvöru, tekið
úr vörðu á Hengli. Langflestar
eru bækurnar frá húsum félags-
ins í Þórsmörk, Landmannalaug-
um, Hveravöllum og Nýjadal,
enda fjölsóttustu húsin.
Einnig er varðveitt gestabók úr
húsi sem ekki er lengur til, en
stóð á hálsinum undir Snæfells-
jökli. Í bókunum kennir margra
grasa. Auk nafna gestanna eru
þar oft lengri og styttri ferðasög-
ur, þar sem ýmist segir af hrakn-
ingum og miklum mannraunum
eða þægilegu rölti í sól og blíðu.
Mikið er af kveðskap og víða
prýða bækurnar myndir og teikn-
ingar.
Haukur Jóhannesson, forseti Ferðafélags Íslands, afhendir dr. Sigrúnu
Klöru Hannesdóttur landsbókaverði gestabækur félagsins. Með þeim á
myndinni er Ögmundur Helgason, forstöðumaður handritadeildar.
Gestabækur FÍ afhentar
í Þjóðarbókhlöðunni
♦ ♦ ♦