Morgunblaðið - 04.05.2003, Page 31
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4. MAÍ 2003 31
www.lyfja.is
Fáðu frábæran lit
Kynntu þér einstakar nýjungar til þess að fá frábæran lit með
eða án sólar. Þessi glæsilega taska ásamt nýja sólarpúðrinu
frá Estée Lauder og púðurbursta fylgir ef keyptur er einn
hlutur úr sólvarnar- eða brúnkulínunni frá Estée Lauder
dagana 5.-10. maí.
Ráðgjafi frá Estée Lauder verður í
Lyfju Lágmúla - mánudag kl. 13-18
Lyfju Smáratorgi - þriðjudag kl. 13-18
Lyfju Setbergi - miðvikudag kl. 13-18
Lyfju Garðatorgi - fimmtudag kl. 13-18
Lyfju Laugavegi - föstudag kl. 13-18
Skógarhlíð 18, sími 595 1000.
www.heimsferdir.is
Heimsferðir bjóða glæsilegar sérferðir um fegurstu staði Evrópu í
sumar, með þjóðþekktum fararstjórum sem kynna þér land, þjóð og
menningu í heillandi ferðum. Hér finnur þú yfirlit yfir helstu ferðir í
sumar og við bendum þér á nánari
upplýsingar í sérferðabækling
okkar.
Tryggðu þér sæti meðan enn er laust
Munið Mastercard
ferðaávísunina
Fáðu
bæklinginn
sendann
Glæsilegar
Sérferðir
Heimsferða í sumar
Verona - 21. maí / 4. júní
Verð frá kr. 62.590
5 nætur.
Bled – Portoroz –
Ítalía – 16. júlí
Verð kr. 99.900
12 nætur.
Prag - 23. maí
Verð frá kr. 49.950
6 nætur.
Perlur Ítalíu - 6. ágúst
Verð kr. 153.550
14 nætur.
Ítalía - Króatía - 24. júní
Verð frá kr. 139.900
14 nætur.
Sumar í Tíról - 2. júlí
Uppseld.
Fátækt á Íslandi við upphaf nýrrar
aldar. Hin dulda félagsgerð borg-
arsamfélagsins er eftir Hörpu Njáls.
og er byggð á rannsóknum hennar.
Í bókinni er fjallað um einkenni og
aðstæður fátækra í íslensku nútíma-
þjóðfélagi. Höfundur nálgast við-
fangsefnið frá mörgum sjón-
arhornum, með lýsingum á
opinberum talnagögnum, lögum,
kenningum um velferð og fátækt og
með viðtölum við fólk sem býr í fá-
tækt. Þá útfærir höfundur mat á lág-
marks framfærslukostnaði sem sýnir
hvað þarf til að komast af í íslensku
borgarumhverfi. „Niðurstaða þess
mats er borin saman við þær lág-
marksupphæðir sem almannatrygg-
ingar og félagsþjónusta sveitarfélaga
veita og láglaunafólk á vinnumarkaði
aflar og er sýnt að talsvert vantar
uppá til að fólk geti lifað því lífi sem
stjórnvöld þó telja æskilegt lágmark.
Fólk í sumum þjóðfélagshópum er
oft dæmt til að lifa við fátækt án auð-
veldra útgönguleiða. Niðurstöður
leiða í ljós að íslensk velferðarstefna
hefur einkennst af hugmyndafræði
skilyrtrar velferðar sem er í samræmi
við kenningu frjálshyggjunnar (libert-
arian model) á þróun velferðarríkis-
ins,“ segir m.a. í fréttatilkynningu.
Útgefandi er Borgarfræðasetur og
Háskólaútgáfan. Bókin er 400 bls. að
lengd.
Fátækt
Harpa Njáls með bókina um
fátækt á Íslandi.
Bach og
Mozart í
Áskirkju
KÓR Áskirkju ásamt kammersveit-
inni Aldavinum og einsöngvurum
halda tónleika í dag kl. 17. Tónleik-
arnir eru hluti af æfmælisdagskrá
Áskirkju en söfnuðurinn er 40 ára
um þessar mundir. Flutt verða
Missa Brevis Kv 275 eftir W.A. Moz-
art og sólókantatan Jauchzet Gott in
allen Landen Bwv 51 eftir J.S. Bach.
Einsöngvarar eru þau Elma Atla-
dóttir, Hallveig Rúnarsdóttir, Hall-
dóra Friðjónsdóttir, Jóhanna Ósk
Valsdóttir, Skarphéðinn Hjartarson
og Ingólfur Helgason. Stjórnandi er
Kári Þormar.
Kór Áskirkju er að formi til
kammerkór, en hann gekk í endur-
nýjun lífdaga fyrir tveimur árum er
nýr kórstjóri og organisti réðst til
Áskirkju.
Kórinn er að miklu leyti skipaður
fólki sem er í tónlistarnámi eða hefur
starfa af tónlist og söng og má í því
sambandi nefna að flestir einsöngv-
arar á tónleikunum koma úr röðum
kórfélaga.
„Með okkur á tónleikunum leika
Aldavinir, en þeir eru barokk kamm-
ersveit sem hefur sérhæft sig í flutn-
ingi þeirra tíma tónlistar. Þau ætla
að einnig að spila fyrir okkur nokkra
kanóna eftir Bach, til að brúa bilið
milli Mozarts og hins fyrrnefnda,
ásamt sígildum perlum Mozarts,
eins og Ave verum corpus og Laud-
ate Dominum, svona til að ramma
inn tónleikana,“ segir Kári Þormar.
„Kanónar þessir eru 14 talsins og
allir mjög stuttir. Þeir eru einskonar
minimalískar hugleiðingar sem
samdar eru á síðustu árum Bachs og
gæti svo sem hugsast að þær hafi
verið æfingar eða nokkurs konar
skissur fyrir Tónafórn hans.
Það sem við ætlum að flytja eru
Missa brevis í B dúr þar sem mæðir
mest á kórnum og Sópran-sólókant-
ata nr. 51 eftir Bach, Jauchzet Gott
in allen Landen.
Þessi sólókantata er mikil virtúós-
tónsmíð og er vinsæl sem tungu-
brjótur bæði hjá kóleratúrsóprönum
og trompetleikurum. Missa brevis
kv 275 eftir Mozart er ein af Salz-
burgarmessum hans og er samin ár-
ið 1777. Hana átti upphaflega að
frumflytja í Dómkirkjunni í Salz-
burg en þó varð ekki af því.“