Morgunblaðið - 04.05.2003, Page 40

Morgunblaðið - 04.05.2003, Page 40
SKOÐUN 40 SUNNUDAGUR 4. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ ræðu. Sú ákvörðun að gefa Lands- virkjun víðernin var tekin í krafti yf- irburða – einbers þingmeirihluta – ekki eftir lýðræðislega umræðu. Hvaða kostir standa opnir? Ekki ætti að taka ákvörðun um jafn afdrifaríka framkvæmd og Kárahnjúkavirkjun án þess að setja hana í samhengi við aðra virkjana- kosti. Það liggur fyrir að nóg er af virkjanlegri vatsnorku í landinu. Talið er hagkvæmt að virkja um 37 terawattstundir á ári. Þegar hafa verið virkjaðar um 7 terawattstund- ir á ári, Kárahnjúkavirkjun er um 0,5 terawattstundir á ári. Það eru því aðrir kostir í stöðunni. Hvers vegna er málinu þá stillt þannig upp að annaðhvort verði virkjað við Kárahnjúka og byggt álver í Reyð- arfirði eða það verði ekkert álver og engin virkjun? Er málið einfaldlega það að engin önnur virkjun er tilbú- in á teikniborðum Landsvirkjunar? Landsvirkjun er að vísu nokkur vorkunn þar sem rammaáætlun er ekki tilbúin. Á síðasta ári var sett fram tilraunamat á nokkrum virkj- anakostum. Þar kemur fram að um- hverfisspjöll af völdum Kárahnjúka- virkjunar eru meiri en við aðrar virkjanir. Á móti kemur að Kára- hnjúkavirkjun er langstærst. Beinn samanburður er því erfiður. Í mat- inu kemur einnig fram að stofn- kostnaður á hverja orkueiningu við ýmsar aðrar virkjanir er svipaður og í Kárahnjúkavirkjun og því ættu þessar virkjanir ekki síður að koma til greina. En forsenda vitrænnar virkjanaumræðu, rammaáætlun, er ekki tilbúin og því stöndum við frammi fyrir afarkostum sem virð- ast ráðast fyrst og fremst af hug- myndum og gildismati verkfræðinga Landsvirkjunar. Hvaða kostur er Kárahnjúkavirkjun? Umhverfismat er tilraun til að leiða í ljós hvaða afleiðingar fram- kvæmdir hafa. Hversu vel þjónaði það umhverfismat sem lagt var fram fyrir Kárahnjúkavirkjun þessu hlut- verki? Skipulagsstofnun komst að þeirri niðurstöðu (i) að matið væri ekki fullnægjandi frá vísindalegum sjónarhóli og (ii) að svo miklu leyti sem umhverfismatið leiddi í ljós hvaða náttúruspjöll framkvæmdin hefði í för með sér væru þau of mikil. Landsvirkjun kærði niðurstöðuna, umhverfisráðherra féllst á þá kæru og framkvæmdin var leyfð með litlum breytingum. Bæði fyrir og eftir dóm ráðherra komu fram alvar- legar athugasemdir við matsskýrsl- una. Vísindamenn töldu að áhættu- þættir væru vanmetnir og að rannsóknir væru ónógar. Sem dæmi um hið síðarnefnda byggjast tölur um rofhættu einungis á tveggja ára veðurgögnum. Sú niðurstaða mats- skýrslunnar að fokhætta sé innan viðunandi marka getur út af fyrir sig verið rétt, en fullnægjandi rökstuðn- ing skortir. Þeir vísindamenn sem höfðu bent á annmarka matsskýrslunnar sættu persónulegum aðdróttunum af hálfu opinberra aðila. Slíkt fælir þá sem síst skyldi frá þeirri umræðu sem er nauðsynleg forsenda þess að ákvörðun geti á endanum talist lýð- ræðisleg. Hvers vegna skiptir það máli frá sjónarhóli lýðræðisins hvort um- hverfismatið hafi verið fullnægj- andi? Lýðræðið krefst þess að um- hverfismatið gefi rétta mynd af þeim hagsmunum sem eru í húfi. Ef það mistekst er ógerningur að taka lýðræðislega ákvörðun því hún krefst þess að ljóst sé á milli hvaða hagsmuna sé verið að velja. Niðurstaða Ákvörðun Alþingis um að virkja var ekki tekin á vísindalegum for- sendum, umræðan var lokuð því þeir sem málið varðar gátu ekki haft áhrif á það hvaða valkostir voru í boði, ekki var til umræðu hvernig skyldi meta verðmæti þeirrar ósnortnu náttúru sem yrði fórnað, og loks var umræðan lokuð í þeim skilningi að allir gátu ekki óhindrað lagt sitt til málanna. Stjórnvöld hafa því brugðist lýð- ræðinu þar sem þau hafa ekki sinnt því sem þeim bar og misbeitt því valdi sem þeim hafði verið trúað fyr- ir. Höfundur er heimspekingur. upphafi málsins komu Einar Svein- björnsson og Halldór Hróarr að mál- inu frá þessu endurskoðendafyrir- tæki. Við fyrstu dómsmeðferð var settur dómari Jón Finnbjörnsson, sem tengdist KPMG í gegnum eig- inkonu sína. Saksóknarinn Bogi Nils- son, sem lagði fram ákæru í málinu, er að eigin sögn bróðir eins fyrir- svarsmanna KPMG, Ólafs Nilssonar, og reyndar vinna tveir synir Boga hjá KPMG. Nefndur Bogi hafnaði beiðni minni um opinbera rannsókn hinn 11. des- ember 2001 en 12. desember 2001 eða daginn eftir lýsir hann sig vanhæfan vegna venslatengsla til að fjalla um endurupptökubeiðni mína til Hæsta- réttar. Mér var þó meiri þörf á að fá upplýst hvernig fyrirtæki bróður hans kom á mig sökum en saksóknari notaði aðstöðu sína til að bjarga fjöl- skyldu sinni frá álitshnekki, fyrir miðnætti vel að merkja. Hvað breytt- ist á einni nóttu hjá saksóknara rík- isins? Var hann ekki jafn vanhæfur að eiga við mín málefni og KPMG fyrir og eftir miðnætti? Til málamynda var fenginn nýr saksóknari, Ólafur Þ. Hauksson, til að fást við endurupptökubeiðni mína fyrir Hæstarétti. Sú gjörð var til lítils enda studdist sá alfarið við álit Einars Sveinbjörnssonar þrátt fyrir að ég hefði bent á að Einar hefði sagt ósatt fyrir dómi og væri tvísaga í málinu. Hef ég verið sýknaður af megin- ákæruatriðunum sem Einar hefur reynt að troða upp á mig, en orð hans voru þrátt fyrir það tekin góð og gild og tilgangurinn helgaði meðalið. Um skilning Ólafs á málsatvikum er best að hafa sem fæst orð því þar yrði mér að óreyndu í engu trúað. Um sama leyti og mál mitt kom upp glímdi saksóknari ríkisins við svokallað Lindarmál þar sem misfór- ust samkvæmt blaðafregnum sjö til níu hundruð milljónir króna. Enginn var ákærður í því máli. Það hefði trú- lega sætt nokkrum tíðindum ef um- rædd hundruð milljóna hefðu verið færð óskipt á viðskiptareikning hugs- anlegs brotamanns. Dráttarvaxta- reikningur ofan á þá fjárhæð hefði kaffært hvern venjulegan mann. Ákæra ríkissaksóknara á mig var hins vegar 2.212.360 krónur en er ég þó saklaus af öllum þessum ákærum þótt enn standi eftir dómur fyrir 500.000 krónur. Hverjar eru skýring- ar ríkissaksóknara í báðum þessum málum? Málsmeðferð félagsmálaráðuneytisins Það hefur umtalsverður fjöldi lög- manna komið að málinu og fróðlegt að skoða málsatvik í ljósi athuga- semda félagsmálaráðuneytisins í máli Þróunarfélags Vestmannaeyja. Með því að neyta forkaupsréttar á jörðinni Eystra-Fíflholti gekkst Vestur- Landeyjahreppur í fjárhagslegar ábyrgðir sem ekki reyndist unnt að losa hreppinn undan. Ákvörðun um þessar ábyrgðir var með vitund og/ eða vilja allra hreppsnefndarmanna. Í upphafi ekki ýkja stórar fjárhæðir en voru í lokin orðnar margfaldar að krónutölu með áföllnum dráttarvöxt- um og lögfræðikostnaði. Það er nokk- uð skondið að sjá hvernig félagsmála- ráðuneytið bregst við vandræðum í bæjarstjórn Vestmannaeyja en þar virðist ekki gerð krafa um að ábyrgð- arkröfur verði færðar á viðskipta- mannareikning einstakra bæjarfull- trúa eins og mér var gert. Niðurlag Ég hef skrifað mörgum aðilum eft- ir sýknudóm yfir mér 6.2. og 17.5. 2001, en fátt er um svör. Þar hafa fall- ið þung orð en enginn af þeim sem nefndir eru til sögunnar hefur gert tilraun til að bera af sér sakir, trúlega vonast menn til að málið hverfi af sjálfu sér. Það er þó óskhyggja þar sem ég er hvergi hættur að leita rétt- ar. Höfundur er fyrrverandi alþingismaður. UMRÆÐAN Vegna gífurlegs aðstreymis aðsendra greina í aðdraganda alþingiskosninganna verður formi þeirra greina, sem lúta að kosningunum, breytt. Er þetta gert til þess að gera efnið aðgengilegra fyrir lesendur og auka möguleika Morgunblaðsins á að koma greinunum á framfæri fyrir kosningar. Alþingiskosningar AÐ undanförnu hefur komið í ljós að mikillar óþreyju gætir á Íslandi hjá áhugafólki um jafnréttismál. Ekki hvað síst vegna þess að þegar íslenskt samfélag er skoðað með kynjagleraugum og staða karla og kvenna er skoðuð birtist raunveruleiki sem ekki er í nokkru samræmi við gildandi jafnréttislög númer 96/2000. Þetta er því dap- urlegra þegar haft er í huga að þrátt fyrir starfsemi rauð- sokkahreyfingarinnar, kvennaframboðsins og Samtaka um kvennalista, tilkomu Jafnréttisstofu og dugnað kvenfélaga- samtakanna og kvenréttindafélagsins svo fátt eitt sé nefnt, hefur karlaveldinu ekki mikið verið hnikað til. Jafnvel sú staðreynd að konur brugðust í alvöru við áskoruninni um að með aukinni menntun kæmust þær upp að hlið karla og að fram við þær yrði komið og við þær talað sem jafningja dugði ekki til. Það er nefnilega svo – því miður – að langt er í land með jafnréttið og nefni ég þá sérstaklega staðfestan launamun kynjanna og endalausan vinnutíma kvenna því alltof litlar breytingar hafa orðið á verkaskiptingu á heimilum, þrátt fyrir eina mestu atvinnuþátttöku ís- lenskra kvenna ef tekið er mið af öllum OECD-ríkjunum. En ekki skal ótalið það sem vel hefur verið gert en þar stendur árangur Reykjavíkurborgar upp úr hafsjónum hvað jafnréttismál varðar. Undir stjórn Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur hafa verið stigin eftirtektarverð skref sem sýna að misrétti kynjanna er ekki náttúrulögmál heldur fyr- irkomulag sem má breyta með vel ígrunduðum áætlunum og markvissum aðgerðum. Samfylkingin, sem framsækið afl í íslenskum stjórnmálaum, bregst við þessum staðreyndum með því að boða til átaks í jafnréttismálum á öllum sviðum þjóðlífsins. Þetta átak er byggt á áætlun sem framkvæmdastjórn flokksins vann sl. vetur og hefur nú verið sett fram í bæklingi. Þar kemur m.a. fram að Samfylkingin einsetur sér að vera í fremstu röð í jafnrétt- ismálum og að hún skuli í umboði kjósenda setja jafnréttissjónarmið á odd- inn í íslensku samfélagi og hafa þau samofin allri starfsemi. Í því felst enn fremur að þó að horft sé sérstaklega til jafnréttis kynjanna þá sé jafnrétti allra einstaklinga (óháð kyni, litarhætti, kynhvöt, trúarbrögðum eða at- gervi) haft í huga við alla stefnumótun og ákvarðanatöku. Jafnrétti til bóta fyrir samfélagið! Eftir Hólmfríði Garðarsdóttur Höfundur er háskólakennari, situr í framkvæmdastjórn Samfylkingarinnar og skipar 9. sæti í Reykjavík suður. ÞÚSUNDIR Íslendinga hafa flosnað upp úr námi í framhalds- skóla og eiga undir högg að sækja í samfélagi þar sem skólaganga og starfsmenntun eru lykill að störfum og góðum tekjum. Hið mikla brottfall úr framhaldsskólum, um þriðjungur af hverjum árgangi, er þjóðarvandi. Við honum verður að bregðast með þjóðarsátt um kaup fyrir nýtt tækifæri til náms eins og gert hefur verið t.d. á Bretlandi, Ír- landi og annars staðar á Norð- urlöndum. Því miður ber talsvert á því að konur gefist upp á erfiðum lág- launastörfum og láti skrá sig sem öryrkja. Þær eru fastar í gildru heilsuleysis og bágra félagslegra aðstæðna og sjá ekki leið til þess að vinna sig út úr vandanum. Í sí- auknum mæli leita þær til Hjálp- arstarfs kirkjunnar og Mæðra- styrksnefndar Reykjavíkur vegna þess að bætur almannatrygginga duga ekki til lífsviðurværis eins og alkunna er. Reyndir framhaldsskólakenn- arar segjast geta greint það án mikilla skekkjumarka strax á fyrsta ári hvaða nemendur eru byrjaðir að láta reka í sinnuleysi. Eftir mislangt basl falla þeir úr skóla og halda óþjálfaðir og óag- aðir út í atvinnulíf sem gerir kröf- ur um kunnáttu og verkþekkingu. Í þjóðfélagi þar sem þekkingin hefur tekið sess fjármagnsins sem hreyfiafls í atvinnulífi eru þeir sem falla út úr skólum í slæmri upphafsstöðu. Í samkeppni þjóð- anna höfum við ekki efni á því sem ríki að glata þessum nem- endum. Snertum þá alla Við þurfum að snerta alla þá einstaklinga sem velja bætur í stað vinnu eða falla út úr skólum og bjóða þeim nýtt tækifæri til náms. Við eigum að greiða þeim kaup vilji þeir hefja starfsþjálfun eða starfsnám, eða ljúka fram- haldsskóla. Þannig kemur framlag og virkjun einstaklinga á móti greiðslum frá ríkinu. Til þess að svo megi verða þarf að hrinda í framkvæmd fjölda hugmynda sem Samfylkingin hefur sett fram und- ir samheitinu Nýi framhaldsskól- inn. Í framhaldsskólum landsins er hugmyndafræðin í þróun og gerðar hafa verið margar áhuga- verðar tilraunir, en það vantar fjármagn, uppbyggingu og teng- ingar við atvinnulífið og há- skólana. Ríkið hefur vanrækt framhaldsskólana meðan grunn- skólarnir hafa gengið í endurnýj- un lífdaganna undir stjórn sveitar- félaganna. Það kostar átak að opna leiðir fyrir nýtt tækifæri til náms. Fjöl- smiðjan er ágætt dæmi um að hægt er að ná árangri sem færir fólki sjálfstraust og áræði til þess að nýta tækifæri til náms og starfsþjálfunar. Hættum að sóa mannauði og lífsgæðum með brottfalli nemenda! Mikilvægasta jöfnunartæki framtíðarinnar er menntakerfið og menntun er hluti af lífsgæðum einstaklinga. Rök hafa verið færð fyrir því að 1% hækkun á almennu mennt- unarstigi þjóðar skili 3% aukningu í landsframleiðslu. Það er til mik- ils að vinna. Menntun í stað bóta Eftir Einar Karl Haraldsson Höfundur er frambjóðandi Sam- fylkingarinnar í Reykjavík suður. Á HVERS valdi var að skipuleggja fiskveiðikerfi sem lamaði atvinnulíf fjölmargra íslenskra sjávarþorpa og renndi stoðum undir auðsöfnun ör- fárra svo sem kunnugt er? Ekki var það fólkið sem bað um slíkar hremmingar. Flestir viðurkenna þörfina á takmörkun veiða í samræmi við þekkt ástand fiskistofna en síðan er svo mjög deilt um aðferðir. Greinarhöfundur var búsettur á Vestfjörðum árin 1977 til 1982 sem framkvæmdastjóri útgerðar- og fiskvinnslu- fyrirtækis sem rak frystihús og fiskimjölsverksmiðju og gerði út togara og línubát. Á þessum árum voru skuttog- arar gerðir út frá öllum kaupstöðum og sjávarþorpum frá Patreksfirði til Súðavíkur. Þessi skip sköpuðu mikið ör- yggi í sjósókninni og jafna og trausta atvinnu í landi. Nú er öldin önnur. Menn banka varlega á dyr kerfisins í því augnamiði að fá að veiða nokkra fiska á smábáta og fá helst að hafa þær veiðar ut- an kvóta þannig að fjármagnsryksugan nái ekki að hremma þessar veiði- heimildir. Stærri skipin eru flest horfin á braut og fólkið í verulegum mæli horfið líka og væri fleira farið ef kæmist frá verðlitlum eigum sín- um. Hér er ekkert annað sagt en aðrir hafa fjallað um í ræðu og riti á síð- ari árum. En ekki er ólíklegt að sú staða að hafa lifað meðal þessa fólks og kynnst dugnaði þess og verkmenningu og séð samsvarandi árangur og framfarir gefi mér sem fleirum eitthvað næmari tilfinningu fyrir þeim hlutum sem hér hafa gerst. Í stuttu máli er útilokað að gefa þá hugsun upp á bátinn að hér verði að gefa spilin upp á nýtt. Stjórnvöld hafa brugðist því lágmarkshlutverki sínu að lagfæra stór- fellda annmarka á kvótakerfinu svo sem frjálsa framsalið, brottkastið og óaðgengilega aðkomu fyrir nýliða í útgerð. Verð á kvóta hefur verið himinhátt og skapað þeim sem keypt hafa vonlausa rekstrarstöðu en öðrum sem selt hafa möguleika á braski jafnvel um allan heim. Það er nokkuð ljóst að engin sátt er í þjóðfélaginu um málamynda- veiðigjald. Það er líka nokkuð ljóst að handhafar aflakvóta vilja ekkert láta laust af því sem þeir hafa öðlast og láta sig litlu skipa þótt aðrir hafi ekkert. Fyrningarleið telja þeir að myndi rústa landsbyggðina sem er reyndar lýsingin á því ástandi sem kvótakerfið í núverandi mynd er að skapa. Ennþá athyglisverðari er t.d. sú fullyrðing forsætisráðherra að 10% fyrning aflaheimilda myndi grafa undan veðhæfni sjávarútvegsins þannig að fyrstu skref fyrningarleiðar myndu þegar leiða til mikils ófarnaðar. Með slíkri fullyrðingu er því einfaldlega haldið fram að undirstaðan fyrir sjávarútvegi á Íslandi sé sú að nokkur fyrirtæki eigi fiskimiðin og til óskilgreindrar framtíðar. Ef svo illa er komið fyrir atvinnugreininni er líklega tímabært að endurskoða lög og reglur og þótt fyrr hefði verið. Á hvers valdi er að breyta? Á valdi Alþingis. Til að slíkt geti gerst verða kjósendur að sýna frambjóðendum stjórnarflokkanna rauða spjaldið og kjósa sér nýja fulltrúa. Ný stjórnmálasamtök, Nýtt afl, bjóða m.a. upp á þverpólitíska samstöðu til breytinga á fiskveiðistjórnuninni. Er ekki full ástæða til þess að nýta þessa leið þegar nýleg skoðanakönnun Frétta- blaðsins sýndi andstöðu 80% þjóðarinnar við kvótakerfið? Á valdi hvers? Eftir Sigurð Kristjánsson Höfundur er í 3. sæti á lista Nýs afls í Suðvesturkjördæmi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.