Morgunblaðið - 04.05.2003, Side 42
UMRÆÐAN
42 SUNNUDAGUR 4. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Hrafnhildur Bridde - sími 899 1806
hrafnhildur@remax.is Hrafnhildur Bridde lögg. fastsali
Heimilisfang: Jakasel 18
Stærð eignar: 298,9 fm
Byggingarár: 1984
Brunabótamat: 29,960 millj.
Áhvílandi: 15 millj.
Verð: 27,8 millj.
Fallegt einbýlishús með innbyggðum
bílskúr á frábærum stað efst í Selja-
hverfi. Húsið stendur við VATNS-
ENDAHÆÐINA og er óbyggt svæði
sunnan við það. Herb. m. snyrtingu,
3-4 svefnherb., stofa, borðstofa, sól-
stofa, rúmgott eldhús, tvö baðherb.
og þvottahús. Möguleg skipti á 4-5
herbergja íbúð!
Hrafnhildur Bridde, löggiltur fast-
eignasali RE/MAX, Suðurlandsbraut,
tekur á móti gestum milli kl. 15 og 17
OPIÐ HÚS - JAKASEL 18
Halldór Meyer - sími 864 0108
halldor@remax.is Hrafnhildur Bridde lögg. fastsali
Heimilisfang: Ægisíða 121a
Stærð eignar: 109 fm
Byggingarár: 1995
Brunabótamat: 14,2 millj.
Áhvílandi: 5 millj.
Verð: 17,2 millj.
Eign í sérflokki í nýlegu húsi við Ægi-
síðu. Íbúðin skiptist í 3 svefnherbergi
og stóran sal sem deilist niður í
stofu, sjónvarshol, borðstofu og eld-
hús. Allar innréttingar, hurðir, gólf-
efni, tæki og flísar af vönduðustu
gerð. Ný verönd í suðurgarði. Eign
sem stoppar stutt við.
Halldór G. Meyer, fasteignamiðl-
ari RE/MAX, tekur á móti gest-
um frá kl. 14-16
OPIÐ HÚS - Ægisíða 121a
Sighvatur Lárusson - s. 864 4615
sighvatur@remax.is Viggó Jörgensson lögg. fastsali
Heimilisfang: Kirkjustétt 32
113 Grafarholt
Stærð eignar: 172 fm
Bílskúr: 30 fm
Byggingarár: 2001
Verð: 15,7 millj.
Mjög vel staðs. miðjuraðhús á
tveimur hæðum með innb. bíls.
Eignin skilast fullbúin að utan með
grófj. lóð, fokh. innan. Álklædd og
álk. gluggar. Neðri h. 3 herb. og
bað, efri h. stofa, eldh., búr, sjón-
varpshol, snyrting, stórar suður-
svalir, gott útsýni, hús í botnlanga.
Góð eign!
Sighvatur Lárusson, fasteigna-
miðlari RE/MAX, tekur á móti
gestum frá kl. 14-16
OPIÐ HÚS - Kirkjustétt 32
FRJÁLSLYNDI flokkurinn hef-
ur heitið því að starfa heiðarlega
og fyrir opnum tjöldum. Með
þetta að leiðarljósi
upplýsir flokkurinn
um nöfn allra ein-
staklinga og fyr-
irtækja sem styrkja
flokkinn um fjár-
hæð hærri en kr.
500.000. Flokkurinn
upplýsir einnig um nöfn þeirra að-
ila sem styrkja flokkinn með lægri
fjárhæð sé vilji til þess hjá styrkt-
araðila. Auk þessa mun flokkurinn
birta fjölda þeirra aðila (ekki
nöfn) sem styrkja flokkinn um
lægri fjárhæðir.
Fjárframlög til stjórnmálaflokka
eru frádráttarbær frá tekjum af
atvinnurekstri. Frá tekjum lög-
aðila og þeim tekjum manna sem
stafa af atvinnurekstri eða sjálf-
stæðri starfsemi eða eru tengdar
slíkum rekstri má draga einstakar
gjafir og framlög til stjórn-
málaflokka, þó ekki yfir 0,5% af
tekjum á því ári sem gjöf er af-
hent.
Það er réttlætismál að almenn-
ingur sé upplýstur um það hvern-
ig þeir sem sækjast eftir völdum
og áhrifum á opinberum vettvangi
íslensks samfélags fjármagna
starfsemi sína. Einn af grundvall-
arþáttum í starfsemi stjórn-
málaflokks er hvernig hann aflar
fjár enda er fjármagn ein forsenda
þess að stjórnmálaflokkur geti
með virkum hætti kynnt stefnu-
mál sín og frambjóðendur. Í aug-
lýsingaflóði kosningabaráttunnar
ættu kjósendur að spyrja hvaðan
það fjármagn komi sem notað er
til að greiða fyrir auglýsingar
stjórnmálaflokkanna. Það er mik-
ilvægt fyrir hinn almenna kjós-
anda að fá að vita hverjir eru fjár-
hagslegir bakhjarlar stjórn-
málaflokkana. Ekki er síður
mikilvægt að almenningur fái upp-
lýsingar um fjárhagslega bak-
hjarla frambjóðenda í prófkjörum
flokkanna en þátttaka í þeim mun
geta hlaupið á milljónum króna.
Þau rök að kosningar séu leyni-
legar og því verði fjárframlög ein-
staklinga og fyrirtækja til stjórn-
málaflokka einnig að vera leynileg
fá ekki á nokkurn hátt staðist og
nálgast það að vera útúrsnúningur
og er nánast vanvirðing við þá
kjósendur sem ekki styðja stjórn-
málaflokka fjárhagslega. Það er
kosningin sjálf sem er leynileg og
þar er hver einstaklingur jafn
þeim næsta, ein manneskja eitt at-
kvæði. Fjárhagslegur stuðningur
við stjórnmálaflokk er ekki kosn-
ing í kjörklefanum. Atkvæði fá-
tæku konunnar hefur jafnmikið
vægi og eina atkvæði ríka manns-
ins. Skuldir fátæku konunnar og
peningar ríka mannsins hafa það
hins vegar ekki þegar kemur að
því að greiða fyrir kosningabar-
áttu stjórnmálaflokkanna. Meðal
annars þess vegna ber að upplýsa
um fjárstuðning til þeirra. Kosn-
ingaáróður kostar en spurning
hlýtur að vera hver borgar? Vissu-
lega má halda því fram að upplýsa
eigi um öll fjárframlög, sama
hversu lágar fjárhæðir er um að
ræða. Það er hins vegar ekki
skynsamlegt, hvorki í framkvæmd
né útfrá tilgangi reglna um opið
bókhald stjórnmálaflokka. Þær
reglur hljóta að verða að miðast
við að upplýsa um þær fjárhæðir
sem ætla má að skipti rekstur
stjórnmálaflokks verulegu máli og
geti því haft áhrif á stefnumál
hans og áhrif á ákvarðanatöku
hans í málum sem varða hagsmuni
gefandans komist flokkurinn til
valda. Engan veginn nægir að ein-
göngu sé sagt við almenning að
fjármagn til stjórnmálaflokka og
-manna hafi enginn áhrif. Með
upplýsingum í opnu bókhaldi fær
almenningur tækifæri til þess að
komast að hinu sanna. Þetta er
eins og með réttlætið, það er ekki
nóg að framkvæma það heldur
verður það einnig að sjást í fram-
kvæmd. Fátt á betur við um gjafir
og fjárframlög til stjórnmálaflokka
og íslenska máltækið æ sér gjöf til
gjalda.
Frjálslyndi flokkurinn leggur
mikla áherslu á að stjórn-
málaflokkar landsins opni bókhald
sitt fyrir almenningi. Það er
stefna Frjálslynda flokksins að
settar verði reglur sem skyldi alla
stjórnmálaflokka að opna bókhald
sitt og að upplýst sé um styrkt-
araðila stjórnmálaflokks yfir
ákveðinni fjárhæð. Það verður að
teljast eðlileg krafa í opnu og lýð-
ræðislegu samfélagi. Reglur um
opið bókhald og upplýsingar um
styrktaraðila stjórnmálaflokka eru
taldar sjálfsagður hlutur í hinum
vestræna heimi.
Þeim einstaklingum og fyr-
irtækjum sem hafa hug á að
styðja Frjálslynda flokkinn með
fjárframlagi er vinsamlega bent á
bankanúmer Frjálslynda flokksins
137-26-123456, kennitala 480998-
2359. Rekstrar- og efnahagsreikn-
ing Frjálslynda flokksins frá síð-
asta ári er að finna í opnu bók-
haldi flokksins á heimasíðu hans
www.xf.is. Þar eru m.a. upplýs-
ingar um fjármögnun og kostnað
flokksins vegna sveitarstjórn-
arkosninganna í fyrra.
Kosningaáróður
kostar – Hver
borgar?
Eftir Eyjólf Ármannsson
Höfundur er lögfræðingur og skip-
ar 2. sæti á lista Frjálslynda
flokksins í Reykjavík norður –
eyjolfur@xf.is.
FJÁRMÁLARÁÐHERRA upplýsti í sjónvarpsumræðum nýlega að
svo fremi sem erlendar eftirlitsstofnanir í Brussel hefðu ekki vit fyrir
honum ætlaði hann að skrifa upp á Decode-ríkisábyrgð upp á 200
milljónir dollara eða um 20 milljarða króna þegar krón-
an kemst í eðlilegra gengi. Þetta ætla forustumenn
Sjálfstæðisflokksins að gera þótt sú forsenda sem gefin
var fyrir ríkisábyrgðinni sé ekki lengur fyrir hendi.
Þegar frumvarp ríkisstjórnarinnar um ríkisábyrgð fyrir
Decode var samþykkt var meginforsendan að þá yrðu til
mörg ný störf. Frá samþykkt ríkisábyrgðarinnar hefur
starfsmönnum Íslenskrar erfðagreiningar, dótturfyr-
irtækis Decode, verið fækkað um rúmlega þriðjung.
Reynslan af ábyrgðum hins opinbera
Áratugum saman hafa ríki og sveitarfélög gengið í ábyrgð fyrir
margvíslegum atvinnurekstri, afsökunin hefur verið sú að stuðlað sé
að atvinnuppbyggingu. Reynslan er að ábyrgðin hefur fallið á ríkið
eða sveitarfélögin og skatt- og útsvarsgreiðendur hafa þurft að borga
fyrir áhættufjárfestingar einstaklinga. Með breyttum viðhorfum og
biturri reynslu af ríkisábyrgðum hafa ríki og sveitarfélög að mestu af-
lagt þann ósið að gangast í ábyrgð fyrir áhættufjárfestingum einka-
aðila. Þannig á það líka að vera. Skattgreiðendum koma áhættu-
fjárfestingar einstaklinga eða fyrirtækja þeirra ekki við, markaðurinn
verður að leysa slík mál. Sé markaðurinn ekki tilbúinn að leggja fé í
slíkar fjárfestingar er það skýr vísbending um að fjárfestingin sé vafa-
söm. Af hverju eiga skattgreiðendur að taka ábyrgð á slíku? Sjálfstæð-
isflokkurinn er tilbúinn að kokgleypa hugmyndafræði aflagðrar rík-
ishyggju og standa að ríkisábyrgð fyrir bandarískt fyrirtæki sem
þegar hefur tekið meira en 20 milljarða frá þjóðinni. Þegar Decode-
víxillinn fellur hafa Íslendingar lagt jafnmikið í þetta fyrirtæki og
nemur söluandvirði einkavæddra ríkisfyrirtækja síðustu tíu árin. Sölu-
andvirði Landsbanka, Búnaðarbanka, SR-mjöls, Áburðarverksmiðju og
margra fleiri fyrirtækja væri þannig eytt í þetta glórulausa gæluverk-
efni forsætisráðherra.
Seld norðurljós
Það þarf sérstaka snillinga til að selja norðurljós. Enn meiri snill-
ingar eru þeir sem geta selt einsleit norðurljós mörgum sinnum. For-
svarsmönnum Decode, þ.e. Íslenskrar erfðagreiningar, tókst að fá sett
lög á Íslandi sem gengu á svig við þau sjónarmið sem gilda um per-
sónuvernd í okkar heimshluta. Setja átti upp miðlægan gagnagrunn á
heilbrigðissviði. Nú mörgum árum síðar er miðlægi gagnagrunnurinn
ekki til og verður ekki í bráð ef þá nokkurn tímann. Fyrirtækið sem
ætlaði að finna meingen við flestum sjúkdómum ætlar nú að þróa og
framleiða lyf í samræmi við meintar uppgötvanir fyrirtækisins. Er lík-
legt að fyrirtæki sem hefur tapað hundruðum milljóna dollara eða tug-
um milljarða króna og ekki skilað árangri sé líklegt til stórra átaka?
Formaður þingflokks Framsóknarflokksins sagði að stjórnvöld hefðu
beitt sér fyrir að íslensku bankarnir keyptu hlutabréf af stofn-
fjárfestum í Decode á margföldu verði. Þetta börðu menn niður og
sögðu nei nei. En var það ekki? Voru þeir sem stjórnuðu íslensku fjár-
málafyrirtækjunum á þessum tíma svo heillum horfnir að þeir hafi án
hvatningar stjórnvalda farið út í svo vafasama fjárfestingu? Væru
stjórnendur íslenskra fjármálafyrirtækja svo glámskyggnir á vænlegar
fjárfestingar gengi þeim ekki jafn vel og raun ber vitni á öðrum svið-
um fjármálalífsins. Það verður að koma í veg fyrir að þessi rík-
isábyrgð verði veitt og þess vegna verður Sjálfstæðisflokkurinn að fá
ráðningu í næstu kosningum. Sjálfstæðisflokkurinn selur hug-
myndafræði frelsisins en beitir sér fyrir ríkisafskiptum og sértækum
aðgerðum með veitingu ríkisábyrgðar sem nemur helmingi hærri fjár-
hæð en markaðurinn metur fyrirtækið Decode Genetics.
Skrifa upp á Decode-
víxilinn eftir kosningar
Eftir Jón Magnússon
Höfundur er hrl. og 1. maður á
lista Nýs afls í Reykjavík suður.
ÞESSA dagana bíða stúdentar í
ofvæni eftir niðurstöðum endurskoð-
unar úthlutnarreglna Lánasjóðs ís-
lenskra námsmanna.
Sú endurskoðun nær
ekki til nema hluta
þeirra þátta sem
varða LÍN. Til að ná
öðrum breytingum
fram þarf lagasetn-
ingu til. Frambjóð-
endum til Alþingiskosninga ber að
kynna stefnu sína hvað varðar LÍN
og það hefur Framsóknarflokkurinn
svo sannarlega gert. Mig langar þó
að skerpa enn betur á tveimur atrið-
um.
Lækkum endurgreiðslubyrðina
Framsóknarmenn vilja lækka end-
urgreiðslubyrði námslánanna. Árið
1992 voru gerðar þær breytingar á
sjóðnum að endurgreiðslan var
hækkuð allverulega auk þess sem há-
marksárafjöldi sem fólk borgar lán
til baka var felldur niður. Þegar við
framsóknarmenn komumst í rík-
isstjórn 1995 var það eitt af okkar
fyrstu verkum að lækka endur-
greiðslubyrðina úr allt að 7% í 4,75%
tekna og nú viljum við ganga enn
lengra og lækka hana niður í 3,75%
til samræmis við eldri lánaflokka. Í
málflutningi BHM og SÍNE hefur
m.a. komið fram að háskólamenntað
fólk er að borga allt að ein mán-
aðarlaun á ári í afborganir af náms-
lánum sínum. Sú byrði er þung þegar
fólk sem nýlokið hefur námi er að
koma þaki yfir höfuð sér, eignast
börn og hasla sér völl á vinnumarkaði
svo eitthvað sé nefnt. Mikil endur-
greiðslubyrði má ekki verða til þess
að fólk fari ekki í nám þar sem það er
hrætt við að steypa sér í skuldir.
Lánasjóður íslenskra námsmanna er
öflugasta tækið til að tryggja jafnan
aðgang allra að námi og við fram-
sóknarmenn viljum treysta enn frek-
ar það hlutverk hans.
Breytum hluta
námslánanna í styrk
Við í Framsóknarflokknum viljum
einnig að hluta námslánanna verði
breytt í styrk, ljúki fólk námi á til-
skildum tíma. Þetta fyrirkomulag
þekkist á hinum Norðurlöndunum.
Ísland er eina Norðurlandaþjóðin
sem greiðir ekki út beina styrki til
námslána en slíkir styrkir nema frá
34% til 66% í löndunum í kringum
okkur. Í Noregi er styrkurinn t.d.
40%. Til þess að hljóta styrkinn þar
þarf svo að sýna fram á ákveðinn
námsárangur. Samkvæmt þeim nið-
urstöðum sem Orri Freyr Oddsson
komst að í BS-ritgerð sinni um LÍN
hefur dreifing óbeinna styrkja verið
mjög ójöfn og hafa þeir nemendur
sem farið hafa í dýrasta og lengsta
námið hlotið megnið af styrkjunum.
Þetta er vegna þess að þeim hefur
ekki tekist að greiða lánin upp. Þar
með má kalla lán þeirra námsmanna
óbeina styrki. Þeir sem tekið hafa lán
eftir 1992 þurfa að greiða upp lán sín
þar til þau eru fullgreidd eða svo
lengi sem aldur endist. Eldri lán voru
með 20 eða 40 ára endurgreiðslu-
tíma. Eftirstöðvar af þeim hafa því
fallið niður. Dreifing óbeinu styrkj-
anna er sú að innan við 15% náms-
manna hafa notið 80–90% þeirra.
Þessu viljum við breyta og gera öll-
um kleift að stunda nám með því að
breyta hluta námslánanna í styrk
ljúki þeir námi sínu á tilskildum tíma.
Öflug menntastefna
Við framsóknarmenn höfum kynnt
skýrar tillögur í menntamálum og í
málefnum Lánasjóðs íslenskra
námsmanna. Ég hvet þig lesandi
góður til að kynna þér þær vel því
það er ljóst að það skiptir máli hver
fer með menntamál okkar. Fram-
sóknarflokkurinn er tilbúinn að axla
þá ábyrgð sem menntamálunum
fylgir.
Við viljum lægri
endurgreiðslur
námslána
Eftir Sæunni Stefánsdóttur
Höfundur er viðskiptafræðinemi
við Háskóla Íslands og skipar 4.
sæti á lista framsóknarmanna í
Reykjavík norður.