Morgunblaðið - 04.05.2003, Side 44

Morgunblaðið - 04.05.2003, Side 44
UMRÆÐAN 44 SUNNUDAGUR 4. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ Bæjarhrauni 10 • Hafnarfirði   Magnús Emilsson löggiltur fasteignasala BOLLAGARÐAR - ENDARAÐHÚS SELTJARNARNESI Nýkomið í einkas. sérl. fallegt 240 fm endaraðh. á þessum fráb. stað. Mikið endurn. eign í toppstandi. Nýstandsett baðherb. 100 fm timburverönd í garði. Toppeign. 95437 STARARIMI - RVÍK - EINB. Nýkomið í sölu á þessum góða stað fallegt pall- byggt einb. ásamt bílskúr, samtals um 197 fm. Fal- legar innréttingar og gólfefni. Nuddpottur á baði. Útsýni. Getur verið laust fljótlega. Verð 26,9 millj. ÁLFHEIMAR - RVÍK Nýkomin í einkasölu sérlega falleg 106 fm íbúð á efstu hæð í góðu fjöl- býli auk herbergis í kjallara, samtals 120 fm. Nýtt eldhús, gott skipulag, suðursvalir, frábær staðsetn- ing við Laugardalinn. Ákv. sala. Verðtilboð. GRANASKJÓL - RVÍK - SÉRH. Nýkom- in í einkasölu glæsileg 100 fm efri sérhæð í góðu nýstandsettu þríbýli á þessum frábæra stað í vestur- bænum. Nýtt eldhús, rúmgóð herbergi, glæsileg stofa með mikilli lofthæð, merbó-parket, flísalagt baðherb. Sérinngangur. Áhv. mjög hagstæð lán. Verð 15,3 millj. HÁALEITISBRAUT - RVÍK Nýkomin í einkasölu á þessum fráb. stað mjög góð vel skipulögð 103 fm íb. á 3. hæð í góðu vel stað- settu fjölb. 3 herb. Góðar suðursvalir. Útsýni. Þvottahús í íb. Ákv. sala. Eign sem vert er að skoða. Verð 13,6 millj. 95864 HJÁLMHOLT - RVÍK Nýkomin í einkasölu sérlega skemmtileg ca 80 fm lítið niðurgrafin 3-4 herbergja íbúð í fjórbýli, sérinn- gangur, frábær staðsetning. Verð 11,5. EFSTASUND - RVÍK Nýkomin í einkasölu björt og rúmgóð 92 fm neðri hæð (lítið niðurgrafin) í góðu viðhaldslitlu tvíbýli (klætt að utan). Sérinn- gangur, góð staðsetning. Verð 10,8 millj. LAUGARNESVEGUR - RVÍK Í sölu á þessum góða stað mjög góð ca 60 fm risíbúð í góðu húsi. 2 svefnherbergi, góðar svalir, snyrtileg mikið endurnýjuð eign. Verð 9,9 millj. 97388 ÍRABAKKI - RVÍK Nýkomin skemmtileg 86 fm íbúð á 3. hæð í fjölb. Tvennar svalir. Sér- þv.herb. Sérlega góð staðsetn. Útsýni. Ákv. hús- bréf. Verð 11,2 millj. DUNHAGI - RVÍK - M. BÍLSKÚR Í einkas. mjög falleg ca 90 fm íb. á 3. hæð (efstu) í 4ra íbúða stigagangi, í klæddu fjölb., auk 24 fm flísalagðs bílskúrs. S-svalir. Nýlegt eldhús og ný- legt baðherb. Parket. Útsýni. Góð staðsetn. Hagst. lán. Verð 13,5 millj. HOLTAGERÐI - KÓPV. - SÉRH. Ný- komin í einkasölu sérlega falleg 127 fm efri sérh. auk 22 fm bílskúrs, samtals 150 fm. Hús klætt að utan, glæsilegur garðskáli, frábær staðsetning. Laus fljótlega. Verð 16,7 millj. 97296 LINDASMÁRI - KÓPAV. Nýkomin í sölu sérlega björt og falleg íbúð á efstu h. í góðu fjölbýli á þessum vinsæla stað, flísal. baðh., s-svalir, útsýni, góð staðsetning. Verð 12,9 millj. HRAUNBÆR - RVÍK Nýkomin í einkas. rúmgóð og falleg 96 fm íb. á efstu (þriðju) h. í góðu fjölb. Parket. Flísal. bað. Mjög gott skipulag. Áhv. húsbr. Verð 11,6 millj. 97661 RAUÐÁS - RVÍK Nýkomin í einkasölu glæsileg 85 fm íbúð á annarri hæð í góðu fjölbýli á þessum frábæra stað. Eign í toppstandi, vandaðar innréttingar, parket, mjög gott skipulag. Áhv. byggingasj. 2 millj. Verð 11,7 millj. 60066 NJÁLSGATA - RVÍK Nýkomin í sölu snotur 44,1 fm íbúð á fyrstu hæð í notalegu þríbýli með sérinngangi, vel staðsett í 101 Reykjavík. Íbúðin er laus strax. Verð 5,9 millj. 94891 KAMBASEL - RVÍK Nýkomin í einkasölu björt og falleg 57 fm íbúð á fyrstu hæð (jarðhæð) í góðu fjölbýli auk sérþvottaherbergis og geymslu (ekki í fermetratölu). Stór sérgarður, óvenju stórt herbergi, frábær staðsetning. Verð 8,6 millj. 96296 VESTURBERG - RVÍK - LAUS Í einka- sölu skemmtileg ca 65 fm íb. á 3ju hæð í lyftuhúsi, gott útsýni, húsvörður, laus strax. Verð 8,2 millj. LAUGARNESVEGUR - RVÍK Nýkomin mjög falleg ca 60 fm íbúð á jarðhæð, nýtt parket, nýlegt eldhús o.fl., góð staðsetning. Laus strax. Áhv. hagstæð lán ca 5 millj. Verð 7,9 millj. HOLTSGATA - RVÍK Nýkomin í einkas. á þessum góða stað í vesturbæ Reykjavíkur snyrtileg 70 fm íb. á 3. hæð í góðu litlu fjölb. Eignin er að mestu með upphaflegum innrétt- ingum (orginal). Laus strax. Verð 9,3 millj. 97668 ENGIHJALLI - KÓP. Nýkomin í einkas. 62 fm íb. á 5. hæð í góðu lyftu- húsi. Góðar svalir. Húsvörður. Eignin er laus strax. Verð 8,9 millj. 97665 SALAHVERFI - KÓPAVOGI - GOTT VERÐ Lómasalir 10-12. Gott verð. Glæsilegar 3ja og 4ra herb. íbúðir með sérinngangi í 4ra hæða lyftuhúsi á frábærum útsýnisstað ásamt stæði í bílageymslu. Íbúðirnar afhendast fullbúnar án gólfefna, en með flísalögðu baðherb. og þvottaherb. Vandaðar Mod- ulia-innréttingar og góð tæki. Til afhendingar í maí/júní 2003. Glæsilegar, vandaðar útsýnisíbúðir. Upplýsingar og sölubæklingar á skrifstofu Hraun- hamars, einnig á hraunhamar.is. Traustur verktaki. VESTURFOLD - RVÍK - EINB. Nýkomið í einkas. mjög fallegt 126 fm einbýli á einni h. auk 51 fm bílskúrs. Stórar verandir með skjólgirðingu. Frábær staðsetn. og útsýni. Áhv. m.a. byggingasj. og húsbr. ca 6 millj. Verð 22,5 millj. KRINGLUNNI 4-12, s. 800 6000 s. 585 0600 OPIN HÚS Í DAG milli kl. 15 og 18 REYRENGI 4 - GRAFARVOGUR Falleg og björt 103,2 fm endaíbúð á 3ju hæð til vinstri með sér- inngangi af svölum, ásamt sérbíl- skýli. Gólfefni eru Linolineum dúk- ur og flísar. Þvottaherbergi innan íbúðar. Áróra tekur vel á móti ykkur á milli kl. 15 og 18. Áhv. 8,8 m. Verð 12.9 m. BARÐASTAÐIR 23 - GRAFARVOGI Virkilega falleg 4ra herbergja íbúð sem er 113,4 fm á 2. hæð til vinstri í fallegu 3ja hæða fjölbýli. Allar innréttingar eru úr kirsuberjavið. Gólfefni eru parket og flísar. Þvottaherbergi innan íbúðar. Sjávarútsýni. Suð-vestur svalir. Bergljót tekur vel á móti ykkur á milli kl. 15 og 18. Áhv 9.2 m. Verð 14,9 m. MENNTUNARLEYSI er ein af helstu ástæðum þess að fólk lendir í fá- tæktargildru. Skólakerfið okkar er þannig uppbyggt að próf úr fram- haldsskóla er lykill að hvers konar sérmenntun hvort sem nemendur leggja áherslu á iðn- og starfsnám eða bóknám. Við búum að mörgu leyti við gott skólakerfi þar sem nemendur geta tvinnað saman áhugasvið sín og eru ekki fastir við ákveðna stefnu allt sitt skólanám. Það er til dæmis al- gengt að fólk kjósi að þætta saman bóklega og verklega menntun og skólakerfið býður sem betur fer upp á ýmsa möguleika þar að lútandi. Sömuleiðis hafa nemendur tækifæri til að prófa sig áfram á framhaldsskólastigi þar sem fjölbreytileiki einkennir námsframboð og uppbygg- ingu framhaldsskólanáms. Það er hins vegar einkenni á íslenskum menntamálum að við búum við lægra menntunarstig og hærra brottfall úr framhaldsskólum en ná- grannalönd okkar. Að breyta þessu er í höndum stjórnvalda. Það eru allir sammála um mikilvægi menntunar til að skapa gott samfélag og ef við ætlum okkur raunverulega að efla nýsköpun í atvinnulífinu er menntun lykillinn. Að koma á fót mengandi stóriðju sem kostar þjóðina einstakar náttúruperlur er skammsýni í atvinnumálum. Það er skylda stjórnmálafólks að hugsa til lengri tíma og hlúa að fjölbreytni í atvinnu- lífinu. Það gerum við með því að efla menntun og fjármagna rannsóknir og nýsköpun sem skila hagvexti til framtíðar. Þetta er stefna Vinstri- hreyfingarinnar – græns framboðs í atvinnumálum. Menntamál eru jafnréttismál En hvernig förum við að því að minnka brottfall úr framhaldsskólum og hækka menntunarstigið? Við gerum það meðal annars með því að gefa fólki sem hættir í framhaldsskóla einhverra hluta vegna kost á því að ljúka framhaldsskólanámi seinna. Konur eru í sérstökum áhættuhópi að falla í þá fátæktargildru menntunarskorts vegna barneigna á fram- haldsskólaaldri. Að hvetja til aukinnar menntunar er því ekki einungis menntamál heldur einnig jafnréttismál. Grettistaki var lyft í menntamálum þjóðarinnar með tilkomu öld- ungadeildanna. Þar fékk fólk sem ekki hafði lokið við framhalds- skólanám innan við tvítugt tækifæri til að auka við menntun sína með- fram fullri vinnu. Það er hins vegar undantekning að fólk hafi tíma og orku til að sinna fullu námi með fullri vinnu. Að ná sér í framhaldsskóla- próf í kvöldskóla getur þannig tekið langan tíma og margir hafa ekki tækifæri til að stunda slíkt nám vegna fjölskylduaðstæðna, það á sér- staklega við um einstæða foreldra sem ekki eiga heimangengt á kvöld- in. Úr fátæktargildru menntunarskorts Tillögur Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs um að auka menntunarstigið fela meðal annars í sér að veita fólki sem ekki er á framfærslu foreldra tækifæri til að stunda fullt framhaldsskólanám í gegnum námslánakerfið. Þetta væri ein skynsamlegasta leiðin til að losa fólk úr fátæktargildru menntunarskorts og jafnframt að hækka mennt- unarstig þjóðarinnar til hagsbóta fyrir samfélagið í heild. Þetta er hægt að gera með því að aldurstengja námslán í stað þess að tengja þau við námsleiðir eins og nú er. Einnig er hægt að hugsa sér að nemendur sýni fram á að þeir eru ekki á framfæri foreldra og fái þannig námslán. Þetta myndi sporna við brottfalli úr framhaldsskóla hjá þeim hópi sem þarf einhverra hluta vegna að sjá um sig sjálfur á framhaldsskólaaldri. Það er fátt sem skilar sér jafn vel til baka í ríkiskassann og útgjöld til menntamála. Ef við ætlum að hugsa lengra en eitt kjörtímabil í senn þarf að gera átak í menntamálum þjóðarinnar. Hugmyndir Vinstri- hreyfingarinnar – græns framboðs um útvíkkun námslánakerfisins til framhaldsskólanema varða veginn til að lyfta grettistaki í mennta- málum til hagsbóta fyrir þjóðina og samfélagið. Námslán til framhalds- skólanema Eftir Drífu Snædal Höfundur er í þriðja sæti á lista Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs í Reykjavíkurkjördæmi norður. ÞEGAR allsherjar gripdeild og ofbeldi ríkti í Bagdad eftir að herir Bandaríkjamanna og Breta höfðu lagt undir sig borg- ina, hafði Donald Rumsfeld, her- málaráðherra Bush, sendimanns Guðs, þetta að segja um ástandið: „Frjálsu fólki er frjálst að gera mistök og fremja glæpi og framkvæma vonda gerninga.“ [„Free people are free to make mistakes and commit crimes and do bad things.“] Slíkt er viðhorf stríðsæsinga- mannsins nýja, sem dátarnir ís- lenzku, Davíð og Halldór, hafa bundið trúss sitt við. Í Washington virðist ný fjór- menningaklíka hafa öll ráð í hendi sér. Forsetinn, varaforsetinn, varn- armálaráðherrann og örygg- isráðgjafi, kona að nafni Rice. Eiga öll sammerkt í því að vera auðkýf- ingar og auður þeirra runninn úr jörðu sem olía. Öll berjast þau enda fyrir alveldi auðsins í höndum hinna fáu útvöldu. Í þeim efnum eiga Davíð og Dóri líka samleið með þeim. Bandarískar heimildir draga enga dul á að Bush forseti telji sig vera Guðs útvalinn og sérstakan umboðsmann hans hér á jörðu. Allt sem hann hugsi og framkvæmi sé runnið beint undan rifjum Guðs. Að öðru jöfnu myndu volaðir aumingjar þakka Almættinu sér- staklega fyrir að hafa gert að stað- gengli sínum hér á jörðu voldugasta mann í heimi, sem gæti séð um að frelsa menn frá öllu illu, og létt þar með undir með Guði önnum köfn- um. Það má ganga að því sem vísu að góðu dátarnir íslenzku séu þegar búnir að senda sérstakar þakkir yf- ir um þessa vegna. Sá sem hér heldur á penna var á sínum tíma að sér í mannkynssögu. Þótt ryðgaður sé orðinn man hann ekki betur en flest mannvíg frá aldaöðli hafi verið framin af þeim, sem töldu sig starfa að þeim sam- kvæmt sérstöku umboði frá Guði. Einstöku framkvæmdu þetta um- boðslausir ef í boði voru auðæfi, gimsteinar eða olía, en langflestir lýstu yfir að þeir hefðu löggildingu frá Guði til þess arna. A.m.k. voru það ekki guðleysingjar sem öldum saman stjórnuðu katólsku kirkj- unni, enda þótti hún löngum og löngum ekki smátæk á mannslífin í umboði Almættisins. Ef að einhverjum flökrar, að hér séu gamanmál uppi höfð er það á misskilningi byggt. Það er ógnvæn- legt að voldugasta ríki heims skuli ráða menn af því tagi sem raun ber vitni. Sagan endurtekur sig sífellt og spor hennar í þessum efnum hljóta að fylla menn skelfingu. Samherjar fjórmenninganna í Washington hafa formenn ríkis- stjórnarflokkanna gerzt. Án þess að tala við kóng eða prest köstuðu þeir á glæ eiðsvarinni afstöðu Íslend- inga frá öndverðu: Að íslenzk þjóð myndi aldrei bera vopn á aðrar þjóðir eða eiga þátt í slíku athæfi. Það hlýtur að koma sterklega til álita að þessir tveir ráðherrar verði dregnir fyrir landsdóm fyrir ótrú- leg afglöp sín. Samherjarnir Eftir Sverri Hermannsson Höfundur er alþingismaður Frjálslynda flokksins. Moggabúðin Stuttermabolir, aðeins 1.000 kr. FASTEIGNIR mbl.is AUGLÝSINGADEILD netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.