Morgunblaðið - 04.05.2003, Qupperneq 50

Morgunblaðið - 04.05.2003, Qupperneq 50
50 SUNNUDAGUR 4. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ BRÉF TIL BLAÐSINS Kringlunni 1 103 Reykjavík  Sími 569 1100  Símbréf 569 1329  Netfang bref@mbl.is Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi. EKKI alls fyrir löngu var framlag Íslands til Evróvisjón-söngkeppn- innar valið fyrir fullu Háskólabíói og fékk lagið „Segðu mér allt“ yfir- burðakosningu. Hef ég lítið um það val að segja, en öðru gildir um þá ákvörðun aðstandenda keppninnar hér á landi að senda lagið til leiks með enskum texta. Nú kann margur að telja að ég sé einhver eldgamall kall, sem misst hafi af nútímanum einhvern tíma á 6. eða 7. áratugnum, en það er nú öðru nær. Ég botna ein- faldlega ekkert í þeirri þröngsýni þeirra sem halda að lagið eigi enga möguleika á stigum, sé það sungið á hinu ástkæra ylhýra. Ein helstu mót- rök þeirra sem aðhyllast enskuna (sem annars er ágætt mál þannig séð) eru að enskan sé móðurmál poppsins og að því sé auðveldara að markaðssetja hana sem slíka. Fólki geti ekki dottið í hug að gefa ein- hverju landi stig, sem dirfist að brjóta hefðina. En þarf að eltast við það sem markaðurinn krefst? Áður fyrr var þessi ágæta keppni haldin algerlega á eigin forsendum þar sem hámark voru flutt tvö til þrjú lög á sama tungumáli og ekki var ensku- leysið að há henni þá. Má kannski fyrst og fremst þakka þeirri stað- reynd þann sjarma sem keppnin státaði af lengi vel. Hafa Sigur Rós- liðar ekki verið að standa sig með ágætum á erlendri grundu, syngj- andi á íslensku, og er einhver að spá í textana þeirra yfirleitt? Hefur auk þess ekki alltaf verið í tísku að vera öðruvísi? Væri þá ekki upplagt að grípa tækifærið og syngja á móður- málinu á meðan allir aðrir jarma á ensku? Alveg er ég sannfærður um að það myndi frekar afla stiga heldur en hitt. Auk þess þykir mér einkennilegt að fólk með jafn uppblásna sjálfs- ímynd og Íslendingar skuli þurfa að apa ósómann upp eftir þeim, sem eru að farast úr ímyndaðri minnimáttar- kennd gagnvart enskunni, sem öðru fremur á offramleiðslu ensks og bandarísks sjónvarpsefnis og tónlist- ar stöðu sína að þakka heldur en því, að málið sé á einhvern hátt æðra og betra en önnur tungumál álfunnar sem um ræðir. Íslenskan er að mínu mati ekkert verra söngmál en enska, ítalska, franska og spænska, sem alla jafna heyrast í þessari keppni. Þarf maður virkilega að skilja hinn innihaldsrýra texta íslenska lagsins til að kunna að meta það? Ekki kann ég orð í ítölsku, en fannst „Gente di mare“ bara fjandi gott hér um árið. Ég hef auk þess oft heyrt það frá út- lendingum, að þeim finnist íslenskan ómþýtt og fallegt mál. Því skyldum við þá skipta því út fyrir tungumál, sem popp tíví-kynslóðin þykist skilja betur en eigið móðurmál og telur koma Íslandi til góða þegar á hólm- inn verði komið? Hvar er „Há dú jú læk Æsland“-stemmningin þegar á reynir? Í stað þess að brjóta upp hina nýtilkomnu „enskuhefð“ söng- keppninnar höfum við hins vegar ákveðið að lulla í meðalmennskunni, sem lítið mun skilja eftir sig þegar upp er staðið. Því er nú verr og mið- ur. EIRÍKUR STURLA ÓLAFSSON, nemi, Hringbraut 24, 101 Reykjavík. Ísland á ensku – hvers vegna í ósköpunum? Frá Eiríki Sturlu Ólafssyni ÓÖLD í beinni útsendingu. Austan hafs og vestan heyrist, sést og finnst fnykur vargaldar, allan sólarhringinn ef vill. Óhollt? Hollt finnst mér. Það sem sést og heyrist, það sem ekki sést en leiða má líkum að, gerir kleift að álykta. Hjákátlegur verður áróður sem slæva á siðvit og egna til stríðs. Bull valdamanna – „Glorí hallelúja – ámátlegt! Aldrei hefur sýndarveruleiki stang- ast jafn sýnilega á við veruleika; aldr- ei hefur skrum, hjóm og hismi verið jafnljóst – í beinni. Aldrei hefur kjarni málsins, vos fórnarlambanna, verið jafnmörgum jafnaugljós og nú. Bein útsending raunveruleikans gæti hindrað stríð framtíðar – stuðlað að friði. Fjarskiptatæknin er nærgöngul, afhjúpar sýndarveruleikann. Búklykt hermanna, nálykt fallinna, vein særðra, hræðsla, varnarleysi og ang- ist fórnarlamba verður öllum áþreif- anleg. Nándin gerir kröfur til áhorf- enda að hugsa rökrétt og draga eigin ályktanir. Nándin gerir kröfur til stríðsrekenda að draga úr bulli, hræsni, hálfsannleika eða hreinum lygum. Sýnileikinn, í beinni, gerir kröfur um dómgreind og siðvit frétta- fólks og skýrenda. Að þegja sannleik- ann í hel er ekki kostur í beinni út- sendingu. Bein útsending krefst siðvits og greindar fréttafólks, að það geti dæmt á stað og stund hvað skal segja, hvernig og hvenær; að það sé óháð öllu nema eigin samvisku og dirfsku til að segja satt frá, til lofs og lasts. Að þegja staðreyndir í hel er ekki í boði ef almenningur fylgist með og sér í gegnum blöffið og það í beinni. Það sem hér er sagt gildir ekki ein- asta um stríð heldur öll mannanna verk, sér í lagi þeirra sem vinna trún- aðarstörf á almannavegum. Vita skulu þeir að almenningur nennir ekki bulli – sér í gegnum bullið – veit betur og vísar því á bug. ELÍN G. ÓLAFSDÓTTIR, fv. borgarfulltrúi. „Bull og bágindi – í beinni“ Frá Elínu G. Ólafsdóttur
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.