Morgunblaðið - 04.05.2003, Page 51
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4. MAÍ 2003 51
VÍKVERJI Morgunblaðsins hefur
nokkrum sinnum fjallað um hið
hvimleiða veggjakrot sem nánast
veður uppi um alla borgina. Í öðrum
fjölmiðlum hefur og verið fundið að
þessum ófögnuði og nefna má um-
ræður tveggja málsmetandi einstak-
linga í sjónvarpi rétt fyrir síðustu
borgarstjórnarkosningar um þennan
hvimleiða sið einhverra vansælla ein-
staklinga. Þau ræddu þetta Ingi-
björg Sólrún, varaþingmannsefni
Samfylkingarinnar, og Björn
Bjarnason, þá fráfarandi mennta-
málaráðherra.
Núna er nýkominn út vorhreins-
unarmiði frá Gatnamálastjóra
Reykjavíkur þar sem sérstaklega er
tekið á þessu og með þeirri skrýtnu
fullyrðingu að veggjakrot sé ávallt
unnið í óleyfi eigenda og umsjónar-
manna fasteigna og annarra mann-
virkja. Rétt áður segir á miðanum,
að slíkt megi ekki nema með leyfi
eigenda eða umráðamanna. Fer þá
að verða erfitt að skilja hvað er rétt
og hvað rangt.
Yfirstjórn
menntamála
Borgarstjóri og menntamálaráð-
herra eru fremstir meðal ráðamanna
menntamála í landinu. Þess vegna
var vanþekking og skilningsleysi
Björns og Ingibjargar á veggja-
krotinu undarleg svo ekki sé meira
sagt. Í fjölmiðlum hefur ítrekað ver-
ið sýnt og frá því sagt að kennarar
stunda kennslu í veggjakroti og er
gjarnan sýnt þegar þeir fara með
hópa nemenda út í borg og bæ til að
krota. Fyrst kemur í hugann krot
nemenda í Réttarholtsskóla á bíl-
skúrsgafla við Réttarholtsveg og á
skólann. Þá var sagt frá kennara á
Egilsstöðum sem fór um þorpið með
nemendur í sömu erindagjörðum.
Loks má nefna að skólakrakkar
krotuðu undir leiðsögn kennara stór-
an vegg í Hafnarfirði. Með öðrum
orðum: Veggjakrotið er kennt í skól-
um landsins og því grundvallarorsök
þess að umhverfi landsmanna er orð-
ið útbíað í þessum ófögnuði. Auglýs-
ingasmiðir nota líka þennan sóða-
skap og jafnvel sendibílar eru
svínaðir út með þessu að vilja eig-
anda. Það læra börnin sem fyrir
þeim er haft. Það er vissulega svo
sem betur fer að einungis lítill hluti
krotar til skemmdarverka. Sá hluti
er þó of stór og rétt að leggja á það
áherslu að þar eru ekki börn að
verki.
Veggjakrotskeppni
Versti hluti veggjakrotsins er sá
sem stundaður er sem eins konar
keppni. Einkenni þeirrar keppni er
að viðkomandi krotarar keppast um
hver komi mynd sinni sem víðast.
Myndverkið er oftast tiltölulega ein-
falt, stórt og fljótlegt að krota það
upp. Þessir krotarar virðast líka hafa
komið sér upp eins konar undirskrift
sem er þá minna tákn til hliðar eða
neðan við myndina.
Þessi hópur krotara er nokkuð
fjölmennur og vegna samkeppninnar
er líklegt að hver krotari hafi þörf
fyrir að þekkjast innan hópsins og
þar til kemur hin táknræna undir-
skrift. Líkur eru til að á netinu megi
finna þessa þrjóta og gera þá þar
með ábyrga fyrir svínaríinu.
Hvað skal gera
Krotið er væntanlega upprunnið
sem eftirlíking frumstæðra verka í
verustöðum frummanna. Óskandi
væri að veggjakrotarar tækju að
klæðast að sið villimannanna svo
þeir þekktust úr fjöldanum og hægt
væri að koma þeim inn í nútímann.
Auk þess væri ef til vill rétt að kenn-
arar hættu að hafa forgöngu um að
útbía umhverfi sitt með myndverk-
um barnanna þótt þau séu reyndar
alls ekki öll ljót.
KRISTINN SNÆLAND,
Engjaseli 65, 109 Rvk.
Hvers
vegna
veggjakrot?
Frá Kristni Snæland
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111
Fyrirtæki til sölu:
Höfum til sölu nokkrar stórar sérverslanir, heildverslanir og iðnfyrirtæki í
ýmsum greinum fyrir rétta kaupendur. Ársvelta 100—1000 m. kr.
Vörubílaverkstæði með föst viðskipti.
Heildverslun með pípulagningavörur. Góð umboð.
Innflutnings- og þjónustufyrirtæki með kælitæki o.fl. Góður rekstur og
miklir möguleikar. Tilvalið fyrir vélstjóra.
Gott þjónustufyrirtæki í Keflavík.
Viðgerðarverkstæði fyrir vélar og rafmagnstæki. Ábyrgðarviðgerðir fyrir
stórt verslunarfyrirtæki. Þægilegur og öruggur rekstur fyrir 1—2 starfs-
menn.
Bónstöð í atvinnuhverfi. Upplagt fyrir hörkuduglega. Gott verð.
Stórt samkomuhús í nágrenni Reykjavíkur með góðri aðstöðu fyrir
dansleiki, veislur og fundi. Ársvelta 40—50 m. kr. Gott tækifæri fyrir
fagmenn. Rekstrarleiga möguleg.
Ein besta sólbaðsstofa borgarinnar. Góður hagnaður. Skipti möguleg á
góðu atvinnuhúsnæði.
Snyrtilegur og fallegur söluturn með videó, gott tækifæri fyrir samhenta
fjölskyldu. Verð 8 m. kr.
Hjólbarðaverkstæði sem sinnir einnig viðgerðum, vel tækjum búið.
Stórt arðbært þjónustufyrirtæki í byggingariðnaði.
Dagsöluturn við Laugaveg. Fallegur og snyrtilegur staður.
Rótgróið framleiðslufyrirtæki með ljósabúnað, upplagt sem sameining-
ardæmi.
Höfum ýmis góð sameiningartækifæri fyrir stærri fyrirtæki.
Stór sérhæfð trésmiðja með góðan hagnað. 10 starfsmenn. Gott tæki-
færi fyrir fyrirtæki í svipaðri starfsemi.
Þekkt sérverslun með 100 m. kr. ársveltu. Rekstrarhagnaður 14 m. kr.
Atvinnutækifæri. Rótgróinn pylsuvagn í atvinnuhverfi. Opnunartími virka
daga kl. 10—17. Ágætar tekjur, auðveld kaup.
Matvöruverslun, bensínsala og veitingarekstur í Búðardal. Eigið hús-
næði. Ársvelta er nú tæpar 200 m. kr. og hefur farið vaxandi með hverju
ári. Góður hagnaður um margra ára skeið og mjög heilbrigður rekstur.
Sérstaklega hentugt fyrir stóra fjölskyldu eða tvenn hjón.
Heildverslun með iðnaðarvélar. Mikil tækifæri framundan.
Teygjustökk. Allur búnaður, þjálfun og viðskiptasambönd. Mikill hagnaður.
Meðeigandi óskast að veitingahúsi í miðbænum. Æskilegur kokkur,
þjónn eða maður vanur veitingarekstri.
Blómabúð í nýju hverfi í Kópavogi.
Kaffihús með vínveitingaleyfi við Laugaveg. Verð 6 m. kr.
Rótgróin ritfangaverslun í verslunarmiðstöð, góður rekstur og skemmti-
legt tækifæri.
Lítil rótgróin prentsmiðja sem er ágætlega tækjum búin og hefur verið í
eigu sama aðila í um 10 ár. Prentsmiðjan er í eigin húsnæði sem einnig
er fáanlegt. Stór hluti tekna kemur frá föstum verkefnum og kemur eig-
andi til með að starfa náið með nýjum eiganda ef þess er óskað. Hér er
gott tækifæri til að bæta við reksturinn.
Deild úr fyrirtæki. Mjög þekkt umboð fyrir ferðatöskur. Ársvelta 8 m. kr.
Veitingahúsið Dinerinn í Ármúla. Velta 1.200 þús. kr. á mánuði. 49 sæti
+ bakkamatur. Stuttur opnunartími.
Ein af stærstu og þekktustu húsgagnaverslunum landsins.
Stór og vinsæll bar í miðbænum. Mikil velta.
Flutningaþjónusta á Suðurnesjum sem vinnur mikið fyrir sömu aðila er
nú fáanleg. Þægilegt dæmi sem augljóslega gæti fallið vel við annan
akstur.
Framköllunarþjónusta í miðbænum. Góð tæki, frábær staðsetning.
Stór austurlenskur veitingastaður í miðbænum. Mikil velta, góður
hagnaður. Eigið húsnæði.
Lítið sandblástursfyrirtæki með miklum tækjabúnaði. Hentugt fyrir tvo
samhenta menn eða viðbót t.d. fyrir málningarfyrirtæki.
Deild úr fyrirtæki með útstillingarvörur.
Heildsala/smásala í snyrtivörugeiranum. Miklir vaxtarmöguleikar.
Deildir úr fyrirtækjum með snyrtivörur o.fl. Góðar til sameiningar eða
sem grunnur að nýjum rekstri.
Skoðið nýja heimasíðu fyrirtækjadeildar
með ítarlegri söluskrá og gagnlegum fróðleik:
www.husid.is
Suðurlandsbraut 50 (Bláu húsin v/Faxafen)
Sími 533 4300, GSM 820 8658
Suðurlandsbraut 4a • 108 Rvk. • Fax 533 4811 • midborg@midborg.is
533 4800
145,9 fm íbúð á 1. hæð í Bryggjuhverfi. Íbúðin
skiptist í hol, baðherbergi, 2 svefnherbergi, eld-
hús, þvottahús, stofu, tómstundaherbergi og sér-
geymslu. Innihurðir og skápar eru úr hlyn. Gott
skápapláss og góð tæki. Tvennar svalir.
GOTT VERÐ. 3507
Kristján sölumaður ætlar að sýna í dag milli
kl. 13.00 og 15.00.
OPIN HÚS
78,4 fm mjög falleg 3ja herbergja endaíbúð á
fyrstu hæð. Eldhús og baðherbergi er mikið end-
urnýjað. Tvær góðar stofur, hægt er að nýta aðra
stofuna sem svefnherbergi. Svefnherbergi rúm-
gott með stórum skáp. Mikil lofthæð er í íbúðinni.
Parket og flísar á gólfum. Sérgeymsla. 4015
Magnús sölumaður ætlar að sýna í dag milli
kl. 13.00 og 15.00.
122,4 fm mjög góð 5 herbergja íbúð á 4. hæð í
fallegu fjölbýlishúsi auk bílskúrs. Glæsilegt útsýni.
4 herbergi með rúmgóðum skápum, rúmgott hol
með stórum klæðaskáp, 2 stórar samliggjandi
stofur, eldhús rúmgott og flísalagt baðherbergi
með nýlegum tækjum. Aukarými í risi. Húsið hefur
allt verið tekið í gegn að utan. 3947
Erna ætlar að taka á móti gestum í dag milli kl.
14.00 og 16.00.
Naustabryggja 55, íb. 101
Eskihlíð 8
Höfum til leigu fullkomna og glæsilega skrifstofu- eða
þjónustuaðstöðu með öllum þeim tækjabúnaði og þjónustu sem
viðkomandi óskar eftir. Hægt er að fá einingar frá 20-900 fm.
SKEIFAN
Björn Þorri hdl. lögg. fastsali, Karl Georg hrl. lögg. fastsali.
Skipasund 88
Lovísa Kristjánsdóttir, löggiltur fasteignasali.
Þorsteinn Thorlacius, viðskiptafræðingur.
Helgi Hákon Jónsson, viðskiptafræðingur.
Fasteignaþjónustan
Skúlagötu 30, 3. h.,
101 Reykjavík,
sími 552 6600 – fax 552 6666
BÚSTAÐAVEGUR 61
Mjög falleg 125,6 fm 6 herb.
íbúð á 2 hæðum. Skiptist í 5
rúmgóð herb. og stofu. Gott
eldhús, borðkrókur. Stofa og
sjónvarpshol. Parket á gólfum.
Gott flísal. baðherb. Þvhús á
hæð. Fallegir kvistgluggar á
efri hæð. Björt og vel skipu-
lögð íbúð. Góð staðsetning.
Stutt í alla þjónustu. Gott leiksvæði í næsta nágrenni. Hús, lóð og
sameign í góðu viðhaldi. Eign sem vert er að skoða.
Jóhannes Ásgeirsson hdl., lögg. fasteignasali
F A S T E I G N A S A L A
SUÐURLANDSBRAUT 10, 2. HÆÐ F/OFAN BLÓMASTOFU FRIÐFINNS, 108 REYKJAVÍK
SÍMI 533 1616 FAX 533 1617
Rauðagerði 52 - hæð m. 40 fm jeppaskúr
OPIÐ HÚS FRÁ KL. 14-17
Í dag sunnudag frá kl. 14-17 sýna
Kristín og Guðbrandur fallega neðri
hæð ásamt 19 fm herbergi í kjallara
ásamt 40 fm bílskúr með góðri loft-
hæð. Mikið endurnýjuð eign. Íbúðin er
laus við kaupsamning. Áhvílandi eru
hagstæð langtímalán. V. 15,9 m. 3086
Blöndubakki 6 - 3. hæð t. vinstri
OPIÐ HÚS FRÁ KL 13-17
Sigríður sýnir í dag frá kl. 13-17,
ágæta 4ra herbergja endaíbúð á 3ju
hæð (ca 90 fm) ásamt ca 14 fm her-
bergi í kjallara samt. ca 104 fm.
Þvottahús í íbúðinni. Útsýni. V. 12,1
m. 3539
Raðhús - Tjarnarmýri 23 - Seltjarnarnesi
OPIÐ HÚS Í DAG FRÁ KL 13-18
Í dag sunnudag sýnum við glæsilegt, vandað og sérlega fallega innréttað
endaraðhús, innst í botnlanga. Kjallari og 2 hæðir samtals um 270 fm
ásamt 60 fm útgröfnu rými sem nýtist sem geymslur (samtals ca 330 fm).
Á miðhæð eru forstofa, gestasnyrting, eldhús, búr, 2 stofur og borðstofa.
Á efri hæð eru 4 rúmgóð herbergi og baðherbergi. Í kjallara eru sjónvarps-
herbergi, eitt stórt svefnherbergi, þvottahús og geymslur. Innbyggður ca
30 fm bílskúr er á miðhæð, góð lofthæð og milliloft. Lóðin er stór, öll afgirt,
fallegur garður í mikilli rækt og garðhús. V. 35,0 m. 3638
OPIÐ Á LUNDI Í DAG Á MILLI KL. 12 OG 14