Morgunblaðið - 04.05.2003, Qupperneq 53

Morgunblaðið - 04.05.2003, Qupperneq 53
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4. MAÍ 2003 53 DAGBÓK HUGARFARSÞJÁLFUN TIL BETRA LÍFS EINKATÍMAR - NÁMSKEIÐ Þú lærir að koma skilaboðum og jákvæðum huglægum hugmyndum og viðhorfum inn í undirmeðvitundina. Þú lærir að upplifa tilfinningar þínar á jákvæðan og uppbyggilegan hátt og að hafa betri stjórn á streitu og kvíða, auka einbeitinguna og taka betri ákvarðanir. Þú byggir upp sjálfsöryggi og sterka sjálfsmynd. Leiðbeinandi Viðar Aðalsteinsson dáleiðslufræðingur. Upplýsingar í síma 694 54 94 Fræðslufundur Landlæknisembættisins með starfsfólki í heilbrigðisþjónustu verður haldinn 9. maí 2003, kl. 8.30-16.00, í Félagsheimili Seltjarnarness við Suðurströnd Dagskrá Fyrir hádegi: Setning: Sigurður Guðmundsson, landlæknir. Eftirlit með lyfjaávísunum lækna: Haukur Valdimarsson, aðstoðarlandlæknir. Lýðheilsumál: Sigurður Guðmundsson, landlæknir. Skráning í heilbrigðisþjónustu - Hvað er efst á baugi?: Sigríður Haraldsdóttir, sviðsstjóri. Klínískar leiðbeiningar: Sigurður Helgason, ritstjóri klínískra leiðbeininga. Ungbarnavernd: Anna Björg Aradóttir, verkefnisstjóri. Geðheilbrigðismál barna: Salbjörg Bjarnadóttir, verkefnisstjóri. Heimafæðingar: Vilborg Ingólfsdóttir, yfirhjúkrunarfræðingur. Eftir hádegi: Bólusetning gegn meningókokkum C; Næstu skref í barnabólusetningum: Þórólfur Guðnason, yfirlæknir. Heilkenni bráðrar langvinnrar lungnabólgu - HABL: Guðrún Sigmundsdóttir, læknir. Hugleiðingar um lögleiðingu fíkniefna: Sigurður Guðmundsson, landlæknir. Sjálfsvígsforvarnaverkefni: Salbjörg Bjarnadóttir, verkefnisstjóri. Ofbeldi: Sigurður Guðmundsson, landlæknir. Eftirlit með heilbrigðisstofnunum: Vilborg Ingólfsdóttir, yfirhjúkrunarfræðingur. Ábyrgð heilbrigðisstarfsmanna: Sigurður Guðmundsson, landlæknir. Þátttaka tilkynnist í síðasta lagi 6. maí nk., í tölvupósti: mottaka@landlaeknir.is eða í síma 510 1900. Þátttökugjald er kr. 2.500. Í hádegishléi gefst fundargestum kostur á að kaupa hádegisverð á staðnum. Landlæknisembættið Opið mánudaga-föstudaga frá kl. 12-18 og laugardaga frá kl. 11-14 Skólavörðustíg 2 – sími 544 8880. ÚTSALA Nú er tækifærið... glæsilegt úrval minkapelsa á frábæru verði STJÖRNUSPÁ Frances Drake NAUT Afmælisbörn dagsins: Þú ert hjartahlý manneskja. Þú nálgast aðra af yfirvegun og það vekur virðingu ann- arra og hrifningu. Þú vinnur ötullega að því sem þú trúir á. Þú mátt bú- ast við því að verja meiri tíma í einrúmi á komandi ári þar sem þú stundar einhvers konar nám. Hrútur (21. mars - 19. apríl)  Dagurinn í dag verður góður en sumir kunna að verða pirraðir í eftirmiðdaginn. Þú nýtur þess að versla, fara í stutt ferðalag og ræða við systkin þín. Naut (20. apríl - 20. maí)  Þú getur slakað á á ný þó svo að þú fáir það á heilann að þú verðir að kaupa eitthvað ákveðið. Hafðu ekki áhyggj- ur, þú kannt öðrum betur að eyða peningum á skynsaman máta. Tvíburar (21. maí - 20. júní)  Hafðu það skemmtilegt í dag en slakaðu líka á. Krabbi (21. júní - 22. júlí)  Þú nýtur þess að hitta vini þína og að fara á alls kyns samkomur. Aðrir eru afbrýð- issamir út í þig, líklega vegna vinsælda þinna. Ljón (23. júlí - 22. ágúst)  Reyndu að lenda ekki úti- stöðum við fólk í dag. Njóttu þess frekar að hitta vini þína. Þú sópar að þér athygli og aðrir gætu öfundað þig. Meyja (23. ágúst - 22. sept.)  Einhver þér eldri og reyndari gæti hjálpað þér til að skipu- leggja þig í dag. Eða kannski færir einhver þér eitthvað sem hjálpar þér til að skipu- leggja þig betur. Vog (23. sept. - 22. okt.)  Það kann að verða tekið und- ir daður þitt í dag. Þú þarft því að gera upp við þig hvort þér sé alvara eður ei. Sporðdreki (23. okt. - 21. nóv.)  Reyndu ekki að fá þínu fram- gengt varðandi nána vini og maka í dag. Þú skapar bara meiri spennu með því. Sumir óttast þig dálítið. Bogmaður (22. nóv. - 21. des.) Haltu áfram að skipuleggja þig betur. Skv. austrænni speki eykst velgengni um leið og óreiðan minnkar. Steingeit (22. des. - 19. janúar) Dagurinn er kjörinn til að bregða á leik. Stundaðu íþróttir, daðraðu, farðu í bíó, veislu eða á einhverja skemmtun. Það er líka gam- an að leika við börn. Vatnsberi (20. jan. - 18. febr.) Þú þarft að sinna fjölskyld- unni í dag, annaðhvort gömlu máli eða ættarmóti. Núna er gott að jafna gamlan ágrein- ing. Fiskar (19. feb. - 20. mars) Gættu þess að viðhaldið á bílnum sé í lagi. Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum grunni vísindalegra staðreynda. ERLA Erla, góða Erla! Ég á að vagga þér. Svíf þú inn í svefninn í söng frá vörum mér. Kvæðið mitt er kveldljóð því kveldsett löngu er. Úti þeysa álfar um ísi lagða slóð. Bjarma slær á bæinn hið bleika tunglskinsflóð. Erla, hjartans Erla, nú ertu þæg og góð! Æskan geymir elda og ævintýraþrótt. Tekur mig með töfrum hin tunglskinsbjarta nótt. Ertu sofnuð, Erla? Þú andar létt og rótt. - - - Stefán frá Hvítadal LJÓÐABROT ÁRNAÐ HEILLA 50 ÁRA afmæli. Mánu-daginn 5. maí nk. verður 50 ára Guðrún Ragnars barnahjúkrunar- fræðingur, Beykihlíð 15, Reykjavík. Maki hennar er Jens Björgvin Helgason. GRANDSAMNINGAR þróast oft upp í kapphlaup varnar og sóknar um að fríspila lengstu liti. Í slík- um spilum skiptir frum- kvæðið öllu máli. Þriðja dæmið sem við skoðum frá leik landsliðsins og Suð- urnesjamanna snýst um sí- gilda „tempótækni“ í þrem- ur gröndum. Settu þig í spor suðurs: Austur gefur; allir á hættu. Norður ♠ Á6 ♥ K2 ♦ Á104 ♣ÁD9832 Suður ♠ K3 ♥ G1094 ♦ G9875 ♣G10 Vestur Norður Austur Suður -- -- 2 hjörtu Pass Pass 3 lauf Pass 3 grönd Pass Pass Pass Það er í sjálfu sér afrek að komast í geim eftir opn- un austurs á veikum tveim- ur, því suður á lítið fyrir þriggja granda sögninni. En það er mikið í húfi, og auk þess er ekki sjálfgefið að þrjú lauf sé betra spil en þrjú grönd – stunga í hjarta er alla vega út úr myndinni! En víkjum að spila- mennskunni. Útspil í hjarta myndi henta sagn- hafa vel, en hann fær út spaða. Hver er frumáætl- unin? Svíning í laufi, auðvitað. Spaðinn er tekinn heima og laufgosa svínað. Hann á slaginn og líka tían sem kemur næst, en nú hendir austur hjarta. Hvað er til ráða? Þú hefur vonandi ekki yfirdrepið tíuna með drottningu, því á þessum tímapunkti er mikilvægt að vera heima til að spila tígli: Norður ♠ Á6 ♥ K2 ♦ Á104 ♣ÁD9832 Vestur Austur ♠ G87542 ♠ D109 ♥ D ♥ Á87653 ♦ K2 ♦ D63 ♣K754 ♣6 Suður ♠ K3 ♥ G1094 ♦ G9875 ♣G10 Ekki gengur að fría lauf- ið strax. Vörnin brýtur þá spaðann og tryggir sér fimm slagi. Því verður að skipta um áætlun og spila upp á fjóra tígulslagi. Spila til dæmis tígli á tíuna. Ef austur drepur, kemur kóngurinn í ásinn og það dugir sagnhafa í níu slagi. Austur gæti tekið upp á því að dúkka, en þá má skipta aftur yfir í lauf. Keppendur þurftu ekki að leysa þetta verkefni í leiknum. Þrjú grönd voru spiluð á öðru borðinu og þar kom út hjarta, en á hinu borðinu spilaði norður þrjú lauf. BRIDS Umsjón Guðmundur Páll Arnarson 1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bb5 a6 4. Ba4 Rf6 5. O-O b5 6. Bb3 Bb7 7. c3 Rxe4 8. d4 Be7 9. He1 d5 10. dxe5 Bc5 11. Be3 Bxe3 12. Hxe3 Ra5 13. Rbd2 O-O 14. Bc2 Rxd2 15. Rxd2 Dg5 16. Hh3 g6 17. Rf3 De7 18. Dd2 f6 19. exf6 Dxf6 20. Dh6 Hf7 21. He1 Dg7 22. Rg5 Dxh6 23. Hxh6 Hd7 24. h4 Rc4 25. h5 d4 26. cxd4 Hd5 Staðan kom upp á alþjóðlegu móti sem lauk fyrir skömmu í New York. Larry Christansen (2544) SKÁK Umsjón Helgi Áss Grétarsson Hvítur á leik. hafði hvítt gegn Stephan Muhammad (2397). 27. Rxh7! Kg7 28. Hxg6+ Kxh7 29. He7+ Kh8 30. Hh6+ Kg8 31. Hxc7 Hb8 32. Bh7+ og svartur gafst upp enda fátt til varnar eftir 32...Kf8 33. Hg6. MEÐ MORGUNKAFFINU Fyrirgefiði, ég var að fá skilaboð í heyrnartækið.              FRÉTTIR Afgreiðsla flugvöru á Héðinsgötu heldur áfram ÞAR sem Flugleiðir Fragt hafa ákveðið að breyta þjónustu við við- skiptavini sína og loka vöru- og skjalaafgreiðslu sinni á Héðins- götu 1–3 frá 1. maí, hefur orðið samkomulag um að TVG-Zimsen haldi þessari þjónustu áfram fyrir hönd Flugleiða Fragtar tímabund- ið. Frá og með 1. maí 2003 mun TVG-Zimsen sjá um flugafgreiðslu Flugleiða Fragtar að Héðinsgötu 1–3. Viðskiptavinum í flugfrakt er bent á að snúa sér til afgreiðslu TVG-Zimsen vegna farmskjala fyrir flugfrakt á vegum Flugleiða Fragtar. Starfsmenn TVG-Zimsen munu afhenda farmbréf, taka við greiðslu og sjá um tollafgreiðslu og heimakstur ef með þarf. Ekki verður um neina breytingu að ræða á ferli sendinga á vegum TVG-Zimsen og óverulega breyt- ingu á þjónustu við viðskiptavini Flugleiða Fragtar. TVG-Zimsen býður upp á alhliða flutningaþjónustu, þ.e. flug, sjó, hraðflutninga, vörugeymslu, toll- skýrslugerð og heimkeyrslu, segir í fréttatilkynningu.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.