Morgunblaðið - 04.05.2003, Side 61
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4. MAÍ 2003 61
Mögnuð hrollvekja frá
Stephen King sem
engin má missa af!
Sýnd kl. 2, 4, 6, 8 og 10.10 / Sýnd kl. 4, 6 og 8 / Sýnd kl. 4, 6 og 8.
Sýnd kl. 4.Sýnd kl. 2, 4 og 6. Tilboð 500 kr. Sýnd kl. 8. B.i. 12. kl. 2 og 4. ísl. tal / kl. 6. ísl. tal
Tilboðkr. 500
X-97,7
Kvikmyndir.is
Heims frumsýning
kl. 8 og 10.10. B.i. 14. / kl. 5.20, 8 og 10.30. B.i. 14. / kl. 8. B.i. 14.
Sýnd kl. 2. ísl. tal
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.10. B.i. 14.
Sýnd kl. 6. B.i. 16.
Almenn forsýning kl. 8.
ÁLFABAKKIKRINGLAN
Almenn forsýning kl. 8.
ÁLFABAKKI KRINGLANÁLFABAKKI ÁLFABAKKI / KRINGLAN ÁLFABAKKI
ÁLFABAKKI / KRINGLAN / AKUREYRIÁLFABAKKI / AKUREYRI / KEFLAVÍK
Tvöfaldur
Óskarsverðlaunahafi,
Michael Caine í
stórbrotinni kvikmynd sem
byggð er á sígildri
skáldsögu Graham Greene.
Michael Caine var m.a.
tilnefndur til
Óskarsverðlauna fyrir
hlutverk sitt í myndinni.
Hann stal peningum og ætlar ekki að
skila þeim aftur
SÉRSTÆÐ og manneskjuleg
mynd um fórnarlamb sem fyrirgefur
böðli sínum. Höfundurinn, Yulie
Gerstel, var flugfreyja hjá ísraelska
flugfélaginu El Al þegar hópur
hryðjuverkamanna með Írakann
Fahad Mihyi innanborðs, gerði árás á
vélina hennar á Heathrow árið 1978.
Ein freyjanna dó af skotsárum, Yulie
og tvær aðrar særðust. Fahad og fé-
lagar hans náðust og voru dæmdir í
margfalt lífstíðarfangelsi í Bretlandi.
Atburðurinn ásækir Yulie með sí-
auknum þunga þar sem hún býr í
miðju haturs og tortryggni milli Ísr-
aelsmanna og araba. Hún sér tárin og
blóðið sameinast á hverjum degi í
stríða strauma sem leiða af sér síauk-
ið og óbætanlegt tjón fyrir þessara
andstæðu nágrannaþjóðir. Enn
versnaði ástandið er róttækir Palest-
ínumenn hófu sitt „heilaga stríð“ –
Intifada, og hinar miskunnarlausu
hefndaraðgerðir Ísraela fylgdu í kjöl-
farið.
Yulie var mikill þjóðernissinni og
liðsforingi í ísraelska hernum, en
sagði sig úr honum eftir árásir Ísr-
aelsa á flóttamannabúðir í Líbanon
1982. Hún er innfæddur Ísraeli, þar
sem fólkið hennar hefur búið á þess-
um slóðum í hálfa aðra öld. Yulie er al-
in upp í róttæku umhverfi herskárra
og pólitískra gyðinga sem gerir hug-
arfarsbreytingu hennar enn athyglis-
verðari. Myndin lýsir þessum sinna-
skiptum, bréfaskiptum hennar og
hryðjuverkamannsins, en hún fær þá
hugmynd að kynnast honum, lífi hans
og sögu til að segja öðrum og reyna
þannig að auka skilning manna á
þessum grimmdartímum. Vonandi
verður mynd hennar til að slæva
hefndarþorstann og sársaukann sem
er svo snar þáttur í hversdagslífinu á
þessum slóðum að fjarlægir áhorf-
endur botna takmarkað í atburða-
rásinni í þeim harmleik. Mynd einsog
Hryðjuverkarmaðurinn minn full-
vissar okkur um það sem við höfum
vitað að það er fjöldi fólks á meðal
þessara hatursþjóða sem þráir ekkert
heitara en frið, en því miður virðist
hann fjarlægur draumur. Myndin er
flest annað en það sem hún er kynnt:
„…hraðnámskeið í blóði drifinni sögu
Ísraels…“ osfrv. Það má mistúlka allt
ef menn sjá ekki hlutina öðruvísi en í
gegnum sín rykugu skammsýnisgler-
augu.
Blóð og tár
KVIKMYNDIR
Háskólabíó, Stutt- og
heimildamyndahátíð
My Terrorist/Hryðjuverkamaðurinn
minn Höfundur: Yulie Gerstel Cohen.
58 mínútur. Cohen Gerstel Productions.
Ísrael 2002.
Sæbjörn Valdimarsson
Yulie Gerstel tekst á við fortíðina.
!
"
#
$ %& '
((() *
(! +, * *
-
. /
$0 1 2 */ *
3 3
Djasssöngkonan
Diana Krall og
söngvarinn og laga-
höfundurinn Elvis
Costello eru búin að
trúlofa sig. Faðir
brúðarinnar tilvon-
andi tilkynnti dag-
blöðum í Kanada,
heimalandi söng-
konunnar, um trúlofunina, en sagðist ekki vita hvar
eða hvenær brúðkaupið færi fram.
Orðrómur um samband hinnar 38 ára Krall og
Costello, sem er tíu árum eldri, fór hátt eftir að par-
ið sást snæða saman á veitingastað í New York í jan-
úar.
Krall hefur notið vinsælda að undanförnu og
hreppti m.a. Grammy-verðlaun á árinu. Umboðs-
maður söngkonunnar hefur staðfest trúlofunina án
þess að láta neitt meira uppi.
Diana KrallElvis Costello
Krall og Cost-
ello trúlofuð Skipuleggjendur Óskarsverðlaunahátíðarinnar
áforma nú að breyta fyrirkomulagi og reglum hátíð-
arinnar sem gætu miðað að því að sporna við yfir-
gengilegum kynningarherferðum stóru kvikmynda-
fyrirtækjanna. Frank Pierson, forseti
akademíunnar, sagði á fimmtudag að birtar yrðu
nýjar viðmiðunarreglur sem tækju strax gildi fyrir
hátíðina 2004 í þeirri von að komið verði í veg fyrir
ósanngjarnar herferðir í kringum þær myndir sem
tilnefndar eru.
„Þessi áróður hefur rýrt skemmtanagildi Óskarsins,
þessarar hátíðar sem fyrst og fremst á að snúast í
kringum gleði og fögnuð yfir góðum árangri í kvik-
myndabransanum. Þegar hatrömm samkeppni tekur
völdin kárnar gamanið hinsvegar.“ Með nýju regl-
unum verður ekki einasta óheimilt að leysa meðlimi
akademíunnar út með gjöfum og öðrum veglegum
kynningarpökkum, ekki má heldur senda þeim til-
nefndar myndir á myndbandi, eins og tíðkast hefur
hingað til. Ennfremur verður hér eftir tekið harðar
á ef framleiðendur gerast sekir um að brjóta settar
reglur; jafnvel með því að dæma myndir úr
keppni …
FÓLK Ífréttum