Morgunblaðið - 13.05.2003, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 13.05.2003, Blaðsíða 32
MINNINGAR 32 ÞRIÐJUDAGUR 13. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ E f eitthvað eitt um- fram annað ein- kenndi þessar kosn- ingar var það að miðjumenn – eða þessir hefðbundnu frjálslyndu og skynsömu kratar – gátu kosið alla flokkana, nema einna helst vinstri-græna. Ef einhverjum hefði dottið í hug að stofna slíkan flokk (og ef það væri yfirleitt hægt) hefði hann gjörsigrað í kosningunum og getað sest einn að völdum. Í stjórnarandstöðu hefðu þá verið vinstri-grænir og frjálshyggjuarmur Sjálfstæð- isflokksins. Og pólitískar línur væru skýrar og einfaldar. Miðað við umræður síðustu mánuði virðist hið pólitíska svið því hafa skroppið sam- an hér á landi eins og víða annars staðar í hinum vest- ræna heimi. Það virðist ríkja nokkuð víðtækt samþykki um að allir eigi að hafa jöfn tækifæri til þess að geta spjarað sig á opnum markaði, að allir hafi jafnan aðgang að menntakerfi og heilbrigðiskerfi án tillits til efnahags og að vel sé búið að þeim sem ekki eru færir um að spjara sig. Minni hópar boða aukna ríkisforsjá annars vegar og ákveðnari stefnu í átt að hinum frjálsa markaði hins veg- ar. Það virðist sem þetta sé eins konar niðurstaða af tuttugustu öldinni sem kennd hefur verið við öfgar, hugmyndafræðileg nið- urstaða sem fáir virðast vefengja. Að minnsta kosti varð ekki vart við mikla umræðu um hug- myndafræðilegar undirstöður ís- lenskra stjórnmála í kosninga- baráttunni. Á endanum var ekki kosið um lífssýn heldur tvö eða þrjú svokölluð kosningamál eða málefni eins og þau eru líka nefnd. Það var fyrst og fremst kosið um skattastefnu og kvóta- kerfið. En það var ekki kosið um hvort það ætti að lækka skatta á almenning heldur hversu mikið og hvernig. Og það var heldur ekki kosið um hvort það ætti að breyta kvótakerfinu heldur hvernig. Það virðist því sem hinn stóri meirihluti landsmanna sem til- heyrir hinni skynsömu miðju í ís- lenskri pólitík ætti að geta verið nokkuð ánægður með nið- urstöður kosninganna því að ljóst má vera að það verður mynduð öflug miðjustjórn sem leggja mun áherslu á að engum verði ýtt út á jaðarinn í þessu samfélagi. Eða hvað? Eru íslensk stjórnmál svona í raun og veru? Er engum grundvallarspurn- ingum ósvarað í íslenskum stjórnmálum? Eru þau tómt miðjumoð eins og margir virðast hafa á tilfinn- ingunni? Eða var það bara kosningabar- áttan sem snerist um eitthvað annað en grundvallarmál? Nú skal enginn segja að kvóta- málið sé ekki grundvallarmál en hugmyndafræðilegum deilum um það er lokið fyrir nokkru og nú er aðeins rætt um aðferðafræðina sem á að nota við að laga það. Skattamál eru líka grundvallar- mál en þar var líka deilt um út- færslu. En hvað með önnur mál? Hvað með umhverfismál? Hvað með Evrópumál? Hvað með utanríkismál yfir- leitt, til dæmis stuðning Íslands við stríðsrekstur í Írak? Hvað með jafnréttismál? Jú, þessi mál eiga þrennt sam- eiginlegt. Ekkert þeirra var á dagskrá í hinni eiginlegu kosn- ingabaráttu en öll hafa þau verið mjög umdeild í íslensku sam- félagi og öll þarfnast þau auk- innar umræðu hið fyrsta sem mun verða flókin og viðkvæm og að endingu kalla á skýra pólitíska afstöðu. Raunar mætti hér einnig nefna heilbrigðismál og menntamál sem undarlega lítið voru rædd í að- draganda kosninga þrátt fyrir að þar sé augljóslega við talsverðan vanda að stríða. Auðvitað er fjölmargt í íslensk- um stjórnmálum sem enn á eftir að útkljá. Auðvitað eru mismun- andi viðhorf uppi í íslenskum stjórnmálum. Auðvitað hafa ís- lenskir stjórnmálamenn mismun- andi lífssýn, mismunandi hug- myndafræði – auðvitað eru þeir ekki meira og minna búnir að koma sér niður á einhverja alls- herjarlausn, altæka hugmynd um það hvernig þetta samfélag á að vera. Það bar bara ekkert sér- staklega mikið á því í þessari kosningabaráttu. Og kannski vildu stjórn- málaflokkarnir og frambjóðendur þeirra ekki endilega þurfa að tak- ast á um slíka hluti í kosninga- baráttunni sjálfri vegna þess að of mikið var í húfi. Kannski voru fjölmiðlar ekki nægilega duglegir við að krefja frambjóðendur um svör við erf- iðum spurningum. Kannski eru fjölmiðlar – og þá einkum ljós- vakamiðlar – ekki góður vett- vangur fyrir lýðræðislega og hug- myndafræðilega umræðu. Í þeim gefst lítill tími fyrir vangaveltur, þar gildir fyrst og fremst að koma vel út burtséð frá því hvaða skilaboð er verið að flytja. Hugsanlega er kosningabar- áttan ekki rétti tíminn fyrir slíkar umræður. Hugsanlega eru stjórnmálamenn ekki réttu mennirnir til að ræða um þessi grundvallarmál. Markmið í póli- tískum umræðum virðast jú oft vera að komast ekki að nið- urstöðu – þátttakendur stefna orðum sínum iðulega hver gegn öðrum án þess að hugsa um rök- legan framgang. Þessi kosningabarátta var satt að segja fremur daufleg og hún var fremur innihaldsrýr. Til merkis um það voru ógurlega langar umræður um kosninga- baráttuna sjálfa og auglýsingar flokkanna á algerri ögurstundu í sjónvarpsþætti kvöldið fyrir kosningadag. Þessar umræður tóku hátt í fimmtung þess tíma sem frambjóðendur höfðu í þætt- inum. Hefði ekki verið nær að verja tímanum í eitthvað sem kjósendur hefðu ekki getað sagt sér sjálfir? Altæk miðja? Markmið í pólitískum umræðum virð- ast jú oft vera að komast ekki að nið- urstöðu – þátttakendur stefna orðum sínum iðulega hver gegn öðrum án þess að hugsa um röklegan framgang. VIÐHORF Eftir Þröst Helgason throstur@mbl.is ✝ Haukur Clausenfæddist í Reykja- vík 8. nóvember 1928. Hann andaðist á Landspítalanum í Reykjavík 1. maí síð- astliðinn. Foreldrar hans voru hjónin Sesselja Þorsteins- dóttir Clausen, f. 28. desember 1904, d. 6. desember 1995, og Arreboe Clausen, kaupmaður og síðar bifreiðarstjóri í Reykjavík, f. 5. nóv- ember 1892, d. 8. des- ember 1956. Foreldrar Sesselju voru hjónin Arnheiður Magnús- dóttir og Þorsteinn Jónsson, bóndi í Eyvindartungu og í Úthlíð í Bisk- upstungnahreppi í Árnessýslu. Arnheiður var dóttir Arnheiðar Böðvarsdóttur og Magnúsar Magn- ússonar hreppstjóra, sem bjuggu um skeið í Úthlíð og síðar á Laug- arvatni, og Þorsteinn var sonur Kristínar Árnadóttur og Jóns Coll- ins Þorsteinssonar, bónda í Úthlíð. Foreldrar Arreboes voru Holger Peter Clausen, kaupsýslumaður í Liverpool, Kaupmannahöfn og í Haukur Arreboe tölvufræðingur, f. 9. október 1959. Haukur varð stúdent frá Mennta- skólanum í Reykjavík 1948 og cand. odont. frá Háskóla Íslands 1952. Hann stundaði framhaldsnám í tannlækningum við University of Minnesota í Minneapolis í Banda- ríkjunum 1952–1953. Er heim var komið stofnaði hann sína eigin tannlæknastofu, sem hann rak til júlí 1994, er hann lét af störfum. Haukur lagði stund á málaralist og hélt tvær málverkasýningar á Kjar- valsstöðum, 1981 og 1987. Haukur gegndi margvíslegum trúnaðar- störfum fyrir tannlækna, var meðal annars formaður stjórnar Tann- læknafélags Íslands 1974–1976 og í samninganefnd félagsins við Tryggingastofnun ríkisins 1974– 1986. Hann var gerður að heiðurs- félaga Tannlæknafélags Íslands ár- ið 1999. Haukur tók virkan þátt í frjálsum íþróttum á árunum 1946– 1951 og keppti á Ólympíuleikunum í London 1948 og á Evrópumeist- aramóti í Brussel 1950. Hann varð Norðurlandameistari í 200 m hlaupi 1947 og átti bezta tíma (21,3 sek.) í Evrópu í 200 m hlaupi 1950, sem var Norðurlandamet í 7 ár og Íslandsmet í 27 ár, auk þess sem hann setti fjölda annarra Íslands- meta í frjálsum íþróttum. Útför Hauks verður gerð frá Dómkirkjunni í Reykjavík í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. Melbourne í Ástralíu, síðar kaupmaður og alþingismaður í Ólafs- vík, á Búðum, í Stykk- ishólmi og Reykjavík, og seinni kona hans, Guðrún Þorkelsdóttir Clausen. Haukur átti einn albróður, Örn, sem var tvíburabróðir hans, og Alfreð Clau- sen, hálfbróður sam- feðra, f. 1918 og látinn fyrir allmörgum árum. Eftirlifandi kona Hauks er Elín Hrefna Thorarensen, f. 17. febrúar 1944, og gengu þau í hjú- skap 11. marz 1967. Foreldrar Elín- ar voru Ragnheiður Hannesdóttir Hafstein, f. 4. janúar 1903, d. 22. ágúst 1981, og Stefán Oddsson Thorarensen, apótekari í Lauga- vegs Apóteki í Reykjavík, f. 31. júlí 1891, d. 31. október 1975. Dætur þeirra eru Ragnheiður Elín, f. 16. maí 1968, og Þórunn Erna, leik- kona, f. 12. september 1975. Börn Hauks af fyrri hjónaböndum eru Örn Friðrik sölufulltrúi, f. 13. júlí 1951, Anna Marie tannfræðingur í Kanada, f. 25. nóvember 1954, og Haukur Clausen, mágur minn, andaðist á 75. aldursári 1. maí sl. eftir löng og ströng veikindi síðastliðin fjögur og hálft ár. Andlegri reisn hélt hann til hinzta dags, þótt líkamlega væri hann farinn að heilsu. Það er erfitt að skrifa um Hauk án þess að Örn, bróðir hans, komi einnig við sögu, svo nátengdir voru þeir. Ef nafn annars var nefnt, fylgdi nafn hins venjulega á eftir. Það tók mig nokkuð langan tíma að venjast því, að þegar Örn sagði „við“, þá átti hann ekki við sig og mig, konu sína, heldur sig og bróður sinn. Hann talar í raun alltaf um sig í fleirtölu. Lýsandi dæmi um þetta er atvik, sem gerðist fyrir mörgum árum, er eldri dóttir mín var 4–5 ára gömul. Þá vorum við einu sinni sem oftar staddar í hádeginu hjá systur minni, og voru háfleygar sam- ræður í gangi við borðið. Einhver sagði þá: „Eitt er þó víst. Maðurinn fæðist nú einu sinni einn og deyr einn.“ Eftir drykklanga stund sagði sú stutta: „En, sumir fæðast tveir.“ Og þannig var það. Eins ólíkir og Örn og Haukur voru að skapferli voru þeir sem einn maður. Haukur og tvíburabróðir hans, Örn, fæddust í Kirkjuhvoli í Reykja- vík, synir hjónanna Sesselju Þor- steinsdóttur Clausen og Arreboe Clausen. Þeir voru bráðgerir og segir sagan, að þeim hafi verið gefið salt- kjöt og baunir að borða þriggja vikna gömlum. Sagan segir einnig, að þeir hafi velt barnavagninum, þegar þeir voru átta mánaða gamlir, og skriðið út í Templarasund, þar sem þeim var bjargað úr bráðri hættu af hjálpsöm- um vegfaranda. Þeir voru ungir, er þeir byrjuðu að æfa fótbolta, og sögðu foreldrar þeirra, að oft hefðu það ver- ið 10 tíma hálfleikir. Haukur var miklu blíðari en Örn en jafnframt lat- ari. Haukur gat frá upphafi sjarmer- að allar konur, og þá einnig móður sína. Hún trúði því statt og stöðugt, að hann kynni ekki að bursta skó og gæti ekki gert hitt og þetta, sem lenti þá á Erni, sem ekki er sporlatur mað- ur, og var það ekki heldur sem barn. Það lenti því stundum í rimmu milli bræðranna, en Haukur var alltaf fljótari að hlaupa en Örn, sem náði honum aldrei fyrr en á kvöldin, en þá var líka allt fallið í ljúfa löð, og aldrei fóru þeir ósáttir að sofa. Um 15 ára aldur byrjuðu þeir að stunda frjálsar íþróttir og höfðu afburða hæfileika á því sviði og gerðu garðinn frægan bæði hér á landi og erlendis. Þeir hættu keppni í frjálsum íþróttum 22 ára gamlir. Að loknu tannlæknanámi frá Há- skóla Íslands 1952 stundaði Haukur framhaldsnám við University of Minnesota í Minneapolis í Bandaríkj- unum, og hóf störf sem tannlæknir í Reykjavík 1953. Tannlæknastofu rak hann síðan allt til 1994. Haukur var skemmtilegur maður, sem gaman var að umgangast. Það er ekki algengt, að fólk hlakki til að fara til tannlæknis. En það var ekki laust við, að svo væri, þegar farið var í stól- inn hjá Hauka. Fyrir utan að spila fal- lega músík, sem hann söng gjarnan með hástöfum, Vínarmúsík, Okla- homa og Show Boat, þá notaði hann tækifærið, er hann hafði fyllt munn- inn á sjúklingnum, svo að hann gat ekki komið hljóði frá sér. Þá byrjaði hann að prédika, og það er rétt að taka fram, að hann hafði mjög ákveðnar skoðanir á mönnum og mál- efnum. Ég fékk oft að heyra það óþvegið frá honum, ef hann var ekki sammála mér í því, sem ég var að gera, og ég gat auðvitað enga björg mér veitt, múlbundin í stólnum. Ekki er unnt að minnast Hauks, án þess að geta um tómstundastarf hans, sem var málaralist. Haukur byrjaði snemma að mála undir handarjaðri föður síns. Það var sjálfur Jóhannes Sveinsson Kjarval, sem gaf honum fyrsta vatnslitakassann eftir að hafa fylgzt með honum sem ungum dreng við að mála. Haukur málaði fyrst og fremst landslags- og kyrralífsmyndir og náði ótrúlegri leikni í meðferð vatnslita og krítarlita. Hann var af- kastamikill málari og stundirnar, sem hann sat við málaratrönurnar, voru honum hugleiknar. Samband Hauks og Arnar við móð- ur sína var mjög sérstakt. Hún var reyndar sérstök kona. Hún var ekki allra og sagði meiningu sína hispurs- laust og dró ekkert undan. Hún tók alltaf málstað lítilmagnans og þoldi ekki flærð og óhreinlyndi. Samband hennar og sona hennar var einstakt. Það leið aldrei sá dagur, að þeir kæmu ekki til hennar, og hringdu oft á dag. Þeir fóru alltaf í hádegismat til hennar á laugardögum og hún fór með þeim í ferðalög innanlands sem utan. Engin veizla var haldin á heim- ilum þeirra, án þess að hún væri þar. Hún lifði fyrir syni sína, gagnrýndi þá aldrei fyrir neitt, sem þeir gerðu, heldur elskaði þá skilyrðislaust og alla þá, sem þeim voru kærir. Ég held, að ég hafi aldrei þekkt fallegra samband milli mæðgina en milli Sess- elju, tengdamóður minnar, og sona hennar. Ég sagði fyrr, að Haukur hefði ver- ið skemmtilegur maður. Þegar hann kom inn í herbergi, þá lýstist það upp. Hann var þeirri gáfu gæddur að kunna að segja frá, svo að allir hlustuðu. Hann sagði frá á þann hátt, að allir heilluðust og vildu heyra meira. Í gleðskap var hann hrókur alls fagnaðar. Hann var vanur að syngja með sinni fallegu röddu sín uppáhaldslög, sem voru mörg og góð. Enn í dag finnst mér mikið vanta í gleðskapinn, að Haukur skuli ekki standa við píanóið að syngja: „Wien, Wien, nur du allein“. Ég sagði fyrr, að Haukur hefði ver- ið blíður maður. Hann var það, en hann var fastur á sínum skoðunum, og sjálfstæðisstefnan var honum í blóð borin. Hann hafði ákaflega sterkar skoðanir á mönnum og mál- efnum og hélt þeim fram hvar og hve- nær sem var. Hann lét víða gott af sér leiða, þótt það kæmi hvergi fram, og ekkert aumt mátti hann sjá. Ég vil nefna sem dæmi, að fyrir rúmum 30 árum var ég með hund á mínu heimili, sem Hauki var kannski ekkert of vel við, enda fór hann oft inn í hans garð og skildi eftir sig sinn úrgang. Um það bil 10 árum eftir að ég eignaðist hundinn varð hann fyrir bíl að kvöldi til og dó. Það var mikil sorg á mínu heimili. Haukur hafði ekki verið hrif- inn af því, að ég væri með hund, og hafði margoft látið þá skoðun í ljós. En hver var fyrsti maður, sem kom til mín morguninn eftir að hundurinn dó? Auðvitað Haukur, sem kom með stóran blómvönd og tár í augum. Við Haukur höfum búið hlið við hlið frá árinu 1967. Þá var hann nýgiftur Ellí, sem hefur verið hans stoð og stytta síðan. Börnin okkar hafa verið næstum eins og systkini. Ég held, að þeir bræður hafi alltaf litið á börnin hvor annars sem sín eigin og eitt er víst, að börnin mín hafa alltaf litið á Hauk eins og annan pabba. Haukur kom gjarnan yfir til okkar í morgun- kaffi, áður en hann fór í vinnuna, hér áður fyrr. Ég er þekkt fyrir annað en að vera skrafhreifin á morgnana, en Haukur lét það ekki á sig fá, og kom inn syngjandi á hverjum morgni, kannski ekki við mikla gleði af minni hálfu, en í endurminningunni var hann góður gestur. Og það er einmitt það, sem hann var. Aldrei hefur borið skugga á 36 ára sambúð tvíburanna Hauks og Arnar hér í Arnarnesinu. Það má að miklu leyti þakka konu Hauks, henni Ellí. Hún hefur staðið við hlið manns síns sem klettur. Það var örugglega ekki auðvelt fyrir hana, kornunga konu, er hún giftist Hauki, sem hafði verið út og suður í margvíslegum skilningi. En Ellí kunni á sinn mann. Þeirra hjónaband hefur verið farsælt, enda er hún gædd sömu kímnigáfu og Haukur. Ellí, og dætur þeirra, Ragn- heiður og Þórunn, hafa ekki vikið frá Hauki undanfarin ár, eftir að hann veiktist, og verið hans stoð og stytta. Það er erfitt að kveðja mann, sem hefur verið stór hluti af lífi manns í meira en 40 ár. Minningarnar sækja á, en upp úr stendur, að lífið hefði ver- ið svo miklu tómlegra án hans. Ég þakka samfylgdina og allar góðu minningarnar. Guðrún Erlendsdóttir. „Oh, What a Beautiful Morning, Oh, What a Beautiful Day …“ Hvern einasta sólbjartan morgun, frá fyrstu HAUKUR CLAUSEN
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.