Morgunblaðið - 13.05.2003, Blaðsíða 50

Morgunblaðið - 13.05.2003, Blaðsíða 50
50 ÞRIÐJUDAGUR 13. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ HUGSAÐU STÓRT EINI THX LÚXUSSALUR LANDSINS Sýnd kl. 3.45, 5.50, 8 og 10.10. Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. B.i. 14. Miðasala opnar kl. 15.30 kl. 6 og 9. Sýnd kl. 5, 8 og 10.40. B.i. 12 Kvikmyndir.is Þetta var hin fullkomna brúðkaupsferð... þangað til hún byrjaði! Sýnd kl. 4 B.i. 12 Ertu nokkuð myrkfælinn? Búðu þig undir að öskra. Mögnuð hrollvekja sem fór beint á toppinn í Bandaríkjunum. Sýnd kl. 6, 8 og 10. B.i. 16.  HK DV SV MBL  Kvikmyndir.com "Tvöfalt húrra" Fréttablaðið X-ið 977 400 kr Sýnd kl. 8 og 10.10. Sýnd kl. 5.50. 400 kr.Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.20. B.i. 12 SV MBL  HK DV  Kvikmyndir.com Kvikmyndir.is "Tvöfalt húrra" Frétta- blaðið ALLS koma 32 nýjar myndir á myndbandaleigurnar í maímánuði og þar af einar átta í þessari viku. Sífellt fleiri koma einnig út á mynddisk, eða nærri helmingur allra myndbanda. Af nýjum myndböndum vikunnar ber helst að nefna rómantísku gamanmyndina Heimasætuna (Sweet Home Alabama) með hinni sætu Reese Witherspoon. Hún leikur Alabama-stúlkuna Melanie Car- michael, sem söðlar um og flyst til New York í leit að frægð og frama sem fatahönnuður. Hún nýtur vel- gengni í starfi og er á föstu með auð- ugum syni borgarstjórans en babb kemur í bátinn þegar hann biður hana um að giftast sér. Leikstjóri myndarinnar, sem er komin á leigurnar, er Andy Tennant en með önnur helstu hlutverk fara Josh Lucas, Patrick Dempsey og Candice Bergen. Önnur stílleg og ung bandarísk stjarna er í aðalhlutverki í Fortíð- arþrá (Possession), annarri mynd er kemur út á myndbandi í vikunni. Gwyneth Paltrow fer með hlutverk listfræðingsins Maud Bailey, sem hjálpar Roland Mitchell (Aaron Eck- hart) að rannsaka líf og störf ljóð- skáldsins Randolphs Henrys Ashs (Jeremy Northam). Myndin sem hef- ur hlotið góða dóma er fjórða mynd leikstjórans Neils LaButes. Fortíð- arþrá er væntanleg á fimmtudaginn. Einnig má vekja athygli á mynd- inni May, sem kemur út í dag. Þetta er spennutryllir, sem að hluta sækir efnivið sinn í hina frægu sögu um Frankenstein. Aðalsöguhetjan May á enga vini, hvað þá heldur kærasta, svo hún ákveður að búa hann til. Í helstu hlutverkum í þessari fyrstu mynd leikstjórans Lucky McKee eru Angela Bettis, Jeremy Sisto, Anna Faris og James Duvall. Þess má geta að myndin hefur hlotið góða dóma. Myndin Glæpagengin (Gang Tap- es) kemur einnig út í dag. Hún gerist að miklu leyti í hinu alræmda South Central-hverfi í Los Angeles. Mynd- in er að sumu leyti gerð eins og heim- ildarmynd enda byggist hún á raun- verulegum frásögnum fólks, sem þekkir hverfið. Aðrar myndir, sem koma út í vik- unni eru Vaknað í Reno (Waking up in Reno), Hrekkjavaka: Endurkom- an (Halloween: Resurrection), End- urfundirnir (The Reunion) og Bang, þú ert dauður (Bang, Bang You’re Dead). Af lista vikunnar má helst nefna að stórspæjarinn Bond heldur toppsæt- inu með íslenska ævintýrinu sínu og Lilja að eilífu eftir hinn umdeilda sænska kvikmyndagerðarmann Luk- as Moodysson er í 15. sætinu.                                                             !  "#"$% !  "#"$% "#"$% !  & ! "#"$% !  !  "#"$% "#"$% !  !  "#"$% "#"$%  ' " !  "#"$%  ' " ( ( ) "  ( ) "  ( ) "  ( ) "  ( ) "  ) "  ( ) "  * " ( + " , ( ) "  (                                     ! " #   $ %  &!  '( )*!  + !, !  "   - -   &&& ."  !$     Það eru tveir menn í lífi Reese With- erspoon í myndinni Heimasætan sem er komin á leigurnar. Á hún að velja ríka gaurinn eða æskuástina? Heimasæta, Frank- enstein og fleira Handan sólar / Abril Despedaç- ado/ Behind the Sun Þessi hæggenga en einkar ljóðræna mynd tekur verulega á áhorfandann, er glæsilega úr garði gerð, kröftug, sjóðheit og ögrandi. Alls ekki auðveld á að horfa en afskaplega gefandi. (S.G.) Litíl leyndarmál / Little Secrets  Fínasta fjölskyldumynd, bæði upp- byggjandi og skemmtileg, sem hefur að geyma þann boðskap að leynd- armál leiði sjaldan gott af sér. (S.G.) Bagdad í beinni / Live from Baghdad Trúverðug og óvenju fagmannleg mynd sem gerist í Persaflóastríðinu 1990 og fjallar um álagið á frétta- mönnum sem voru í borginni. Góður leikur gerir myndina með eft- irminnilegri myndum af þessum toga. (S.V.) Hringurinn / Ringu Japanska frumútgáfan af Hringnum er einfaldlega frábær hrollvekja. Leigðu hana – ef þú þorir! (S.G.) Sólskinsríkið / Sunshine State  John Sayles er með vandaðri kvik- myndagerðarmönnum sem um getur í dag og það sýnir hann með þessari síðustu mynd sinni. Ekkert meist- araverk en samt betra en flest annað á leigunni í dag. (S.G.) Sakleysi / Innocence Fyrst og fremst fyrir fólk sem er far- ið að velta fyrir sér lífsgátunni miklu en höfðar í raunsæi sínu og vitrænni umfjöllun um mannlífsins flókna eðli til allra aldurshópa. Leikin, skrifuð og gerð langt yfir meðallagi. (S.V.) Hundalíf 2: Depill í Lundúnum / 101 Dalmatians II  Dásamleg Disney-teiknimynd, sem búið er að sannreyna að gagntektur yngstu áhorfendurna. Er það ekki líka tilgangurinn? (S.G.) Talaðu við hana / Habla con ella Frábær leikur og yndislegt meló- drama í mjög sérstakri ástarsögu Almodóvars. (H.L.) Tilraunin / Das Experiment  Kraftmikil og áhugaverð þýsk kvik- mynd sem gerist á hálfum mánuði í fangelsi. Fínir leikarar skapa trú- verðugar persónur en hegðan þeirra varpar fram krefjandi spurningum um dýrseðlið í manninum. (H.L.) Svefnleysi / Insomnia Grípandi frá upphafi til enda og leik- hópurinn unun, með vansvefta Al Pacino í fararbroddi. (S.V.) Tákn / Signs  Væntingar til leikstjórans M. Night Shyamalan eru miklar, en hér fatast honum flugið. Umgjörðin er vönduð en fyrirsjáanleiki og ósamræmi setja mark sitt á sálfræðina í sögunni. (H.J.) Lilo og Stitch  Skemmtileg Disney-mynd þar sem kveður við nýjan tón úr smiðju þeirri; hvað varðar teikningu, litanotkun og efnistök. (H.L.) Leiðin til Perdition / The Road to Perdition  Sláandi glæpasaga frá kreppuár- unum, jafnframt einstætt augnakon- fekt. Óskarsverðlaunatilnefningar á færibandi en útlitið innihaldinu yf- irsterkara. (S.V.) Maður eins og ég  Róbert Douglas nálgast raunveru- leikann (miðað við Drauminn) í grá- glettinni mynd um brösuglegt ástalíf ráðvillts svartsýnismanns. Dálítið glompótt en góð afþreying með Þor- stein Guðmundsson fremstan í fínum leikhópi. (S.V.) Kaffivagninn / Halbe treppe / Grill Point  Vel leikin og raunsæ þýsk mynd um tvenn hjón sem neyðast til að endur- skoða líf sitt þegar framhjáhald kem- ur upp. Skemmtileg, áhrifarík og kemur á óvart. (H.L.) Skyndimyndir / One Hour Photo  Áhugaverð kvikmynd með Robin Williams í aðalhlutverki. Þar er fjallað um áhugaverð efni, einsemd, mannúð og hið ómanneskjulega í nú- tímanum. (H.J.) Harry Potter og leynifklefinn Harry og félagar eru komnir aftur í mynd fullri af frábærum karakterum, ótrúlegum aðstæðum, spennu og hryllingi. Gaman, gaman! (H.L.) Skipt um akrein / Changing Lanes  Vel leikin mynd um afdrifaríkan dag í lífi tveggja manna. Óvanaleg spennu- mynd því hún veltir fyrir sér siðferði, fjölskylduböndum, heiðri og skyld- um, á vitrænan hátt. (S.V.) Reglur aðdráttaraflsins / Rules of Attraction  Nýjasta myndin sem gerð er eftir sögu Brets Eastons Ellis er viðlíka óvægin og fyrri sögur hans og segja mætti að hún fjallaði um hvað gerðist eftir að John Hughes slökkti á myndavélunum. (S.G.) Svali spæjarinn / Undercover Brother  Góðir grínistar hæða svarta popp- menningu áttunda áratugarins. Mörgum aulabröndurum ofaukið en heilmikil hugsun í handritinu og metnaður til að gera góða grínmynd. (H.L.) Í skóm drekans Í skóm drekans er frábær heimild- armynd, djörf og merkileg tilraun, tvímælalaust í hópi þess áhugaverð- asta sem gert hefur verið á þessu sviði á Íslandi. (H.J.) Kynlíf er grín (Sex is Comedy)  Líkt og fyrri myndir leikstjórans Breillats forvitnileg, ástríðufull, heimspekileg og jafnvel enn persónu- legri. Mynd innan myndar þar sem verið er að fjalla um mannlegar til- finningar og eðli, einkum kynhvötina, frá nýstárlegu sjónarhorni. (S.V.) GÓÐ MYNDBÖND Heiða Jóhannsdóttir/Skarphéðinn Guðmundsson/Sæbjörn Valdimarsson  Meistaraverk  Ómissandi Miðjumoð  Tímasóun 0 Botninn
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.