Morgunblaðið - 13.05.2003, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 13.05.2003, Blaðsíða 4
FRÉTTIR 4 ÞRIÐJUDAGUR 13. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ ÍSLENSKAR heilbrigðisstofnanir gætu tekið við allt að 80 einstakling- um smituðum af HABL veikinni í einu ef faraldurinn kæmi hingað til lands. Á smitsjúkdómadeildum Landspítalans í Fossvogi eru ein- angrunarherbergi þar sem hægt er að taka á móti smituðum sjúklingum en þangað hafa verið keyptar 10 nýj- ar öndunarvélar í viðbúnaðarskyni. Þá fylgjast starfsmenn smitsjúk- dómadeildarinnar stöðugt með nýj- ustu upplýsingum um viðbrögð og hlífðarbúnaður er til taks. Þetta var meðal þess sem fram kom á opnum fundi hjúkrunarfræðinga sem hald- inn var á Grand hótel í tilefni af al- þjóðadegi hjúkrunarfræðinga í gær. „Íslenskir heilbrigðisstarfsmenn verða að horfast í augu við að sjúk- dómurinn er enn að breiðast út og gæti komið hingað,“ sagði Hugrún Ríkarðsdóttir, smitsjúkdómalæknir á Landspítala háskólasjúkrahúsi, í erindi sínu sem bar yfirskriftina HABL, birting, viðbrögð og horfur. Hún sagði nauðsynlegt að vera skynsöm, búa okkur undir hið versta, en þó ekki verða hrædd eða svartsýn. Ef heilbrigðisstarfsmenn brygðust rétt við myndu þeir sjálfir ekki smitast og um leið hindra að sjúkdómurinn bærist út. Hugrún rakti uppruna sjúkdóms- ins sem fyrst varð vart í Guandong héraði í Kína í nóvember 2002 þrátt fyrir að heimsbyggðin hafi ekki frétt um sjúkdóminn fyrr en fyrir nokkr- um vikum. „Stóru mistökin voru þau að kínversk yfirvöld ætluðu að þegja málið í hel. Hefði þetta komið fram fyrr væri mun meira vitað um sjúk- dóminn, hægt að bregðast við honum fyrr og hann ekki borist jafn mikið út og raunin varð.“ Hún sagði mistök einnig hafa átt sér stað í Kanada varnir hefðu ekki verið notaðar þeg- ar veikin kom upp þar og þess vegna ástandið þar orðið mun verra en á öðrum Vesturlöndum. Hún tók fram að þeir sem smituðust virtust vera af asísku bergi brotnir og þetta ætti einnig við á Vesturlöndum eins og í Kanada. Eitthvað í genamengi þeirra virtist gera það að verkum að þeir smituðust frekar en aðrir. Starfsmenn oft kvíðnir og hræddir „Líklega hefur aldrei verið jafn- mikill viðbúnaður í heiminum við sjúkdómi og nú við HABL veikinni,“ sagði Sigríður Antonsdótttir, hjúkr- unardeildarstjóri sýkingavarnar- deildar Landspítalans, en hún flutti erindi um smitleiðir og smitgát. Hún benti á að rannsóknir sýndu að HABL veiran smitaðist bæði við snertingu og í andrúmslofti. Hún gæti lifað á hreinu yfirborði í sólar- hring og virtist lifa betur af í kulda en hita Sigríður fór yfir þann búnað sem heilbrigðisstarfsmenn sem hjúkruðu smituðum einstaklingum yrðu að hafa. Þeir yrðu að klæðast lang- ermasloppum með stroffi, hönskum, hlífðarhúfum, gleraugum, skó og veiruheldum grímum. Sjúklingur sem grunur léki á að væri smitaður yrði strax settur í einangrun þar sem hann fengi hlífðarföt og grímu. Þá væru heimsóknir til hans takmark- aðar og stundum alveg bannaðar. Berglind Mikaelsdóttir hjúkrun- arfræðingur fjallaði í erindi sínu um hjúkrun sjúklinga með HABL, m.a. andlega þætti sem huga yrði að hjá starfsfólki og sjúklingum. Hún benti á nauðsyn þess að starfsmenn verðu sig sjálfa. „Ef við verjum okkur ekki sjálf þá er lítið gagn í okkur fyrir skjólstæðinginn, “ sagði Berglind. Hún benti á að starfsfólk sem þyrfti að hjúkra smituðum gæti fundið fyr- ir hræðslu og kvíða, haft áhyggjur af eigin velferð og aðstandenda auk þess sem því kynni að finnast það einangrað. Nauðsynlegt væri að bæði starfsfólk og sjúklingar fengju sem mesta fræðslu og stuðning. Hjúkrunarfræðingar fjölluðu um HABL-veikina á alþjóðadegi hjúkrunarfræðinga Aldrei verið jafnmikill viðbúnaður við sjúkdómiÍ GÆR hófst leit að 25 ára karlmannifrá Blönduósi, Viktori Guðbjarts-syni, sem ekkert hefur spurst til frá því á laugardag en þá mun hann hafa verið í nágrenni Húnavallaskóla. Samkvæmt upplýsingum frá lög- reglunni á Blönduósi, sem lýsir eftir Viktori, er síðast vitað um hann við Húnavelli í Austur-Húnavatnssýslu snemma á laugardagsmorgni, þann 10. maí sl. Viktor er grannvaxinn, um 187 cm á hæð og með stutt dökkskolleitt hár. Hann er 24 ára, klæddur í dökka íþróttaskó og ljósbláar gallabuxur. Þeir sem hafa orðið Viktors varir eða vita hvar hann er niður kominn eru vinsamlega beðnir um að láta lög- regluna á Blönduósi vita í síma 455 2666. Leitað að manni frá Blönduósi HALLDÓR Björnsson, varafor- seti ASÍ og formaður Starfs- greinasambands Íslands, segir að nýr úrskurður Kjaradóms frá sl. laugardegi um hækkanir á laun- um embættismanna sé eins og köld vatnsgusa framan í launa- fólk. Til þeirra hækkana sem úr- skurðurinn gaf, allt að 20%, verði horft við gerð komandi kjara- samninga og undir það tekur for- maður Bandalags háskólamanna. Halldór segir það sérkennilega aðferð að birta úrskurðinn tveim- ur dögum eftir að hann féll. Hann rifjar upp að í aðdraganda kosn- inga hafi stjórnarflokkarnir boð- að allt að 30 milljarða skatta- lækkanir og Samtök atvinnu- lífsins gefið í skyn að ekkert svigrúm væri fyrir frekari launa- hækkanir. „Þannig að þessi úrskurður kemur eins og köld vatnsgusa framan í okkur. Við erum að hefja undirbúning kjarasamninga og við hljótum auðvitað að horfa á svona tölur,“ segir Halldór og telur að þessi úrskurður komi til umfjöllunar á vinnufundi Starfs- greinasambandsins í Keflavík um næstu helgi. „Þó að þessir menn hafi fengið sæmilega launahækk- un, eða helmingi meira en hinn almenni launamaður miðað við þróun launavísitölunnar frá árinu 1999, reikna ég með að boðaðar skattalækkanir muni einnig koma þeim til góða. Þess vegna er snú- ið að horfa á þetta.“ Verður viðmiðun í næstu kjarasamningum Halldóra Friðjónsdóttir, for- maður BHM, telur það einsýnt að tekið verði mið af úrskurði Kjara- dóms í næstu kjarasamningum. ASÍ og aðildarfélög þess séu að vísu á undan BHM með lausa samninga og gefi tóninn um framhaldið eftir það. „Það hefur verið talað um að Kjaradómur og kjaranefnd eigi að hafa hliðsjón af því sem gerst hefur á launamarkaði. Ef þetta er það sem hefur verið að gerast hefur maður greinilega ekki fylgst alveg nógu vel með. Þetta er ekki reyndin hjá venjulegum opinberum starfsmanni.“ Davíð Oddsson forsætisráð- herra segir það næstum því óvið- eigandi að hann tjái sig um ákvörðun Kjaradóms sl. laugar- dag um launahækkanir til handa embættismönnum er undir dóm- inn falla. Er í höndum Kjaradóms „Ég er rétt farinn að glugga í dóminn, úrskurðurinn kom á kjördag. Reyndar hef ég reynt að hafa þá venju að láta Kjaradóm um það sem hann á að sjá um, ég tala aldrei við kjaradómsmenn, hvorki fyrir ákvörðun né eftir hana. Þetta er algjörlega í hönd- um þeirra. Allar svona ákvarðanir eru um- deildar eins og verða vill en ábyrgðin liggur hjá dómurun- um,“ sagði Davíð. Aðspurður hvernig veganesti hann héldi að þessi niðurstaða Kjaradóms yrði í komandi kjarasamningum sagði Davíð: „Ég skal ekkert um það segja. Það fer eftir því hver rökin hafa verið fyrir þessum ákvörð- unum.“ Varaforseti ASÍ um launahækkanir embættismanna Eins og köld vatns- gusa framan í okkur ELDUR kviknaði í íbúð á efri hæð húss í Þorlákshöfn síðdegis í gær. Skemmdust íbúð og innbú talsvert en íbúa sakaði ekki. Talið er að kviknað hafi í út frá eldavél. Eldurinn læsti sig í innrétt- ingu og olli miklu tjóni, en einkum urðu skemmdir vegna reyks sem lagði um húsið. Tilkynnt var um eldinn klukkan 17:33 og voru liðsmenn Brunavarna Árnessýslu snöggir á vettvang. Þeir reykræstu húsið eftir að hafa slökkt eldinn. Eldur í íbúð í Þorlákshöfn GAMALL sumarbústaður við Úlf- arsfell brann til grunna í gær og jafnfram breiddist eldur um sinu við húsið, að sögn lögreglunnar í Reykjavík. Enginn var í húsinu þeg- ar eldurinn kviknaði. Það tók Slökkvilið höfuðborgar- svæðisins dágóðan tíma að ráða nið- urlögum eldsins. Eldsupptök eru í rannsókn. Sumarbústaður brann til kaldra kola Vildu fræðast um veikina ALÞJÓÐADAGUR hjúkr- unarfræðinga er haldinn 12. maí ár hvert en þann dag árið 1820 fæddist hin breska Florence Nig- htingale sem lagði grundvöllinn að nútímahjúkrun. Í ljósi þeirrar miklu umræðu sem átt hefur sér stað um HABL sjúkdóminn eða heilkenni alvar- legrar bráðrar lugnabólgu var ákveðið að hún yrði umræðuefni dagsins, að sögn Herdísar Sveins- dóttur, formanns Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga. „Fjölmargir hjúkrunarfræðingar höfðu haft samband við okkur og óskað eftir upplýsingum um sjúkdóminn. Því ákváðum við að falla frá fyr- irfram undirbúnu efni sem var al- næmi og fjalla frekar um HABL,“ sagði Herdís en bætti við að al- næmi og fordómar gegn því yrði tekið upp síðar enda væri það efni sem brýnt væri að sinna. Fullt var út úr dyrum á fundinum auk þess sem fundurinn var sendur með fjarfundabúnaði til átta staða á landinu. Í ávarpi sínu minnti Her- dís á að samkvæmt siðareglum hjúkrunarfræðinga væri frum- skylda hvers hjúkrunarfræðings að virða mannhelgi sjúklings og virðingu. Hún sagði mikinn áhuga hjúkrunarfræðinga á þess- um nýja sjúkdómi endurspegla virðingu þeirra fyrir sjúklingum. ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ Morgunblaðið/Jim Smart Fullt var út úr dyrum er hjúkrunarfræðingar fræddust um HABL á Grand hótel í gær.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.