Morgunblaðið - 13.05.2003, Blaðsíða 53

Morgunblaðið - 13.05.2003, Blaðsíða 53
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. MAÍ 2003 53  X-97,7  Kvikmyndir.is kl. 6 og 10.10. B.i. 14. / kl. 5.20, 8 og 10.40. B.i. 14. ÁLFABAKKI / AKUREYRI / KEFLAVÍK ÁLFABAKKI / KRINGLAN ÁLFABAKKI Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.20. B.i. 14.  SG DV  Kvikmyndir.com kl. 5.50, 8 og 10.10. / kl. 5.50, 8 og 10.10. / kl. 10. Bi. 14. ÁLFABAKKI / KRINGLAN / AKUREYRI Sýnd kl. 4, 5.30, 8, 9.05 og 10.20. / Sýnd kl. 6, 8 og 10.15. / Sýnd kl. 8 og 10.15. EINNIG SÝND Í LÚXUS VIP Í ÁLFABAKKA KL. 5.30, 8 OG 10.20. B.I. 16. Frábær rómantísk gamanmynd sem hefur alls staðar slegið í gegn.  ÓHT Rás 2 LÍNUDANSINN, sem dansaður er við sveitatónlist, hefur notið fá- dæma vinsælda hérlendis í u.þ.b. tíu ár. Þar þykir Louis- iana-búinn Scooter Lee standa fremst í flokki þeirra listamanna sem leggja dansinum hljóma en Lee þessi ferðast þvers og kruss um veröldina ár hvert til að skemmta línudönsurum hina ýmsu landa. Lee hefur gefið út fjölda platna, sem sérstaklega eru stílaðar á þennan vinsæla dans, auk þess að hafa gert nokkur kennslu- myndbönd í fræðunum. Hún hefur þá sungið með Jerry Lee Lewis, Porter Wagoner, Fats Domino, Faith Hill, Alan Jackson og George Strait. Lee hefur í gegn- um feril sinn látið sig hina ýmsu góðgerðarstarfsemi varða og beitir hún sér m.a. af alefni fyrir kjörum og réttindum eldri borgara. Í tengslum við það verður hún að- alskemmtiatriðið á Ólympíuleikum eldri borgara sem haldnir verða í Virginíu í endaðann maí. Í sumar og fram á haust fer hún m.a. til Noregs, Íslands, Þýskalands, Spánar, Austurríkis, Malasíu, Finnlands, Englands og Singapore til að skemmta. Hingað kemur hún í júní til að halda þrenna tónleika. Föstudag- inn 13. verður hún í Broadway, daginn eftir fer hún á herstöðina í Keflavík en á sunnudaginn verður hún í Galtalæk. Félagsskapurinn „Komið og dansið“ með Gunnar Þorláksson í forsvari stendur fyrir hingaðkomu Scooter Lee. Drottning línudansins Scooter Lee til Íslands Scooter Lee Hveitiköku-súpan (Tortilla Soup) Gamanmynd Bandaríkin 2002. Skífan VHS. Öllum leyfð. (105 mín.) Leikstjórn María Ripoll. Aðalhlutverk Hector Elizondo, Elizabeth Pena, Tamara Mello, Raquel Welch. HÉR er ein af þessum matarmiklu rómantísku gamanmyndum, þar sem tvinnað er saman ástinni á mat og líf- inu sjálfu. Mætti reyndar færa hald- bær rök fyrir því að hér sé á ferð bandarískt-rómanskt tilbrigði við hina tævönsku Borða, drekka, maður, kona eftir Ang Lee, og það bara býsna vel heppnað. Það sem skilur þó á milli er að það vantar vissan brodd í hana þessa, sagan svolítið margtuggin og listrænt innsæi af skornari skammti. En hún er samt býsna dægileg. Hún er mannleg, einlæg, laus við til- gerð og heldur manni vel við efnið, sem er faðir – veitingahúsaeigandinn – og dætur hans þrjár sem ekki hef- ur gengið neitt allt of vel í samskipt- um sínum við hitt kynið. Leikurinn er líka fínn, hinn margreyndi Eliz- ondo kjölfesta myndarinnar, en gamla bomban hún Welch reyndar ekkert sérlega sannfærandi í farsa- kenndri rullu.  Skarphéðinn Guðmundsson Myndbönd Saðsöm súpa
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.