Morgunblaðið - 13.05.2003, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 13.05.2003, Blaðsíða 17
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. MAÍ 2003 17 ÓLJÓST er hvort takast muni að hindra lausagöngu búfjár á Kjal- arnesi á komandi sumarmánuðum þrátt fyrir að ný búfjársamþykkt Reykjavíkur banni slíka lausagöngu innan borgarmarkanna. Ástæðan er m.a. sú að landbúnaðarráðuneytið hefur ekki lagt blessun sína yfir samþykktina. Að sögn Guðna Indriðasonar, íbúa á Kjalarnesi, er talsverður ágangur búfjár úr Kjósinni inni á Kjalarnesi sem trufli íbúa þar. Seg- ir hann að þrátt fyrir ákvörðun Samtaka sveitarfélaga á höfuborg- arsvæðinu um að girða af höfuð- borgarsvæðið hafi gengið hægt að girða Kjalarnesið frá Kjósinni þar sem ekki hafi fengist staðfesting landbúnaðarráðuneytisins á nýrri búfjársamþykkt borgarinnar. „Mað- ur fær þau svör að ekkert gerist fyrr en ráðuneytið er búið að sam- þykkja þetta,“ segir hann. Þórólfur Jónsson, deildarstjóri garðyrkjudeildar Umhverfis- og heilbrigðisstofu Reykjavíkur, segir vanda vegna lausagöngu búfjár á Kjalarnesi vera tvíþættan því fyrir utan féð sem komi yfir bæjarmörk- in frá Kjós sé einnig um að ræða lausagöngu sauðfjárbænda á Kjal- arnesinu. Stefnt að því að girða af skógræktina Upphaflega hafi staðið til að bændur þaðan reki fé sitt í sérstakt beitarhólf á Mosfellsheiðinni en því hafi bændur og Bændasamtökin lagst gegn enda hafi bændur á Kjalarnesinu ekki upprekstrarleyfi þangað. Því þurfi að leysa það mál með öðrum hætti, t.d. með beit- arhólfum á Kjalarnesinu sjálfu. Að sögn Þórólfs hefur landbún- aðarráðuneytið ekki staðfest sam- þykktina þar sem Bændasamtökin hafa gert athugasemdir við hana. Þetta komi aftur niður á þeirri áætlun sveitarfélaganna að girða Kjósina frá Kjalarnesinu því Vega- gerðin, sem mun kosta hluta fram- kvæmdanna, geri það að skilyrði að fyrir liggi staðfest búfjársamþykkt áður en framkvæmdirnar hefjast. Mörgum er enn í fersku minni það uppistand sem varð síðastliðið haust vegna ágangs búfénaðar í skógræktina að Mógilsá. Þórólfur segir vonir standa til að hægt verði að girða skógræktina af á næstunni þannig að búfénaður valdi í það minnsta ekki usla þar. „En það sem situr fast er hvernig tekið verður á málum varðandi fénað úr Kjósinni. En vonandi náum við þessari bú- fjársamþykkt fljótlega í gegn þann- ig að þau mál leysist einnig,“ segir hann. Vandamál vegna lausa- göngu ekki leyst Landbúnaðar- ráðuneytið stað- festir ekki nýja búfjársamþykkt Morgunblaðið/Jim Smart Laust sauðfé á Kjalarnesi olli nokkrum usla hjá Skógræktarfélagi Reykjavíkur á Mógilsá síðastliðið haust. Það olli deilum milli skógræktarmanna og bænda á Nesinu sem skiptust á að reka féð í og úr Kollafjarðarrétt. Kjalarnes ÁKVEÐIÐ hefur verið að efna til hönnunarsamkeppni um þrjár göngubrýr í tengslum við færslu Hringbrautar suður fyrir Lækna- garð og Umferðarmiðstöðina á næsta ári. Tvær brúnna eru yfir Hringbrautina sjálfa en sú þriðja yfir Njarðargötu. Um er að ræða sameiginlegt verkefni Reykjavíkurborgar og Vegagerðarinnar. Að sögn Ólafs Bjarnasonar, forstöðumanns Verk- fræðistofu borgarinnar, er gert ráð fyrir að samkeppnin fari fram í sumar og að útboðsgögn vegna brúnna verði tilbúin í nóvember þegar útboð vegna færslu Hring- brautarinnar fer fram. Meginþungi framkvæmdanna við færsluna verð- ur síðan á næsta ári. Hann segir búið að ákveða í aðal- atriðum hvar brýrnar eigi að vera þannig að samkeppnin muni taka til útlits þeirra, aðlögunar að landi og umhverfi. „Við höfum gert þetta einu sinni áður, þegar göngubrúin yfir Miklubraut við Rauðagerði var hönnuð. Við reynum jafnvel að byggja svona brýr aftur og höfum endurtekið þá brú. Þannig er hugs- unin kannski einnig að finna góða lausn sem maður getur endur- tekið.“ Rétt til þátttöku í samkeppninni hafa verkfræðiráðgjafar í sam- vinnu við arkitekta og eftir atvik- um landslagsarkitekta og aðra hönnuði en um svokallaða tveggja þrepa samkeppni verður að ræða, þar sem fyrri hluti hennar er opinn öllum hönnuðum. Þrír þeirra verða svo valdir til þátttöku í seinni hluta keppninnar. Að lokum verður ein tillaga valin en þeim möguleika er þó haldið opnum að velja lausn á brú yfir Njarðargötu og Hringbraut við Tjörn frá einum keppanda og lausn á brú yfir Hringbraut við Landspít- ala frá öðrum keppanda. Efnt til hönnun- arsamkeppni um þrjár göngubrýr Hringbraut Séð austur yfir nýja Hringbraut þar sem greina má tvær göngubrýr. TILLAGA um að leggja af núver- andi starfsemi gæsluvalla borgar- innar á næstu tveimur árum liggur fyrir Leikskóla- ráði Reykjavík- ur. Tillagan nær til allra gæslu- valla í borginni. Sem stendur eru tólf gæslu- vellir í Reykja- vík. Að sögn Margrétar Val- lýjar Jóhanns- dóttur, deildar- stjóra hjá Leikskólum Reykjavíkur, samþykkti Leik- skólaráð seint á síðasta ári að loka völlunum á næstu tveimur til þremur árum en eftir hafi verið að útfæra með hvaða hætti það yrði gert. Þó hafi verið talað um að einn gæsluvöllur yrði starfræktur í hverju hverfi fram til ársins 2005. Nýlega birtist lesendabréf í Morgunblaðinu þar sem það var gagnrýnt að til stæði að loka gæslu- vellinum við Grandaskóla. Margrét segir að ákveðins misskilnings hafi gætt í bréfinu þar sem ekki hafi ver- ið tekin ákvörðun um málið. Til- lagan sem nú liggur fyrir gangi út á hvernig og hvenær skuli leggja af vellina en hún hafi ekki verið af- greidd. Ástæða lokananna er hversu að- sóknin að völlunum er orðin lítil að sögn Margrétar. „Það lítur út fyrir að 85% barna á aldrinum tveggja til fimm ára verði allan daginn á leik- skólum og það segir alla söguna,“ segir hún. Gæsluvellir verði aflagðir á næstu tveimur árum Reykjavík Morgunblaðið/Ásdís Aðsókn að gæsluvöllum fer stöðugt minnkandi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.