Morgunblaðið - 13.05.2003, Blaðsíða 52

Morgunblaðið - 13.05.2003, Blaðsíða 52
52 ÞRIÐJUDAGUR 13. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ VEGNA FJÖLDA ÁSKORANA! Sýnd kl. 5.40, 8 og 10. Sýnd kl. 5.50, 8, 10.10. B.i.14 ára.  SG DV  ÓHT Rás 2  Kvikmyndir.com Svona snilldarverk eru ekki á hverju strái.” Þ.B. Fréttablaðið Frábær rómantísk gamanmynd sem hefur allstaðar slegið í gegn. Sýnd kl. 9. Sýnd kl. 8.Sýnd kl. 6.Sýnd kl. 6. Bi. 14 Síðasta sýning ÓHT Rás 2  HK DV „Magnað verk“ Alt om min far Sýnd kl. 6 Ég er Arabi / Gamla Brýnið Sýnd kl. 8. Síðasta sýning Biggie & Tupac Sýnd kl. 10. Síðasta sýning   Kvikmyndir.is Sýnd kl. 6, 8 og 10.10. / Sýnd kl. 8. KRINGLAN / AKUREYRI KEFLAVÍK Tilboð 500 Sýnd kl. 8 og 10.20. B.i. Sýnd kl. 4. Tilboð 500 kr.Sýnd kl. 3.50. ísl. tal   ÁLFABAKKIÁLFABAKKI  VÁKORT Eftirlýst kort nr. 4741-5200-0002-4854 4548-9000-0059-0291 4539-8500-0008-6066 4507-4300-0029-4578 Afgreiðslufólk, vinsamlegast takið ofangreind kort úr umferð og sendið VISA Íslandi sundurklippt. VERÐLAUN kr. 5000 VISA ÍSLAND Álfabakka 16, 109 Reykjavík. Sími 525 2000. SÖNGLEIKURINN Hairspray, sem fjallar um mannlíf í bandarísku borginni Baltimore á sjöunda áratug síðustu aldar, fékk 13 tilnefningar til Tony-verðlaunanna bandarísku en þau verðlaun eru veitt þeim sem þykja skara fram úr í bandarísku leikhúslífi ár hvert. Hairspray hefur notið mikilla vinsælda á Broadway. Leikritið Take Me Out, eftir Rich- ard Greenberg, sem fjallar um sam- kynhneigðan hafnaboltaleik- mann, var tilnefnt til verðlauna í flokki leikrita. Þá voru leikararnir Paul Newman, Bernadette Pet- ers og Antonio Banderas tilnefnd til verðlauna fyrir sviðsleik. Dansverkið Movin’ Out, sem Twyla Tharp samdi við lög og texta Billys Joels, fékk 10 tilnefningar. Leikritið The revival of Nine, sem vann Tony- verðlaun árið 1982, fékk átta tilnefn- ingar en Antonio Banderas leikur aðalhlutverkið í nýju uppfærslunni. Uppfærsla á verkinu Long Day’s Journey Into Night eftir Eugene O’Neill fékk sjö tilnefningar, þar á meðal fengu leikararnir Brian Dennehy, Vanessa Redgrave, Philip Seymour Hoffman og Ro- bert Sean Leonard allir tilnefn- ingar sem bestu leikarar í aðal- og aukahlutverkum. Paul Newman var tilnefndur fyrir leik sinn í nýrri uppfærslu á sígilda verkinu Our Town eftir Thornton Wilder, en Bernadette Peters fékk tilnefningu fyrir leik í verkinu Gypsy … Rapparinn Eminem er sagður ætla að nota upptökur með skilaboðum sem söngkonan Mariah Carey skildi eftir á símsvara hans sem texta við nýtt lag. Með þessu er rapparinn sagður vera að svara söngkonunni í sömu mynt eftir að hún gerði lítið úr honum og sambandi þeirra í lag- inu „Clown“. Carey er sögð hafa skilið fjölmörg skilaboð eftir á símsvara rapparans eftir að stuttu ástarævintýri þeirra lauk, þar sem hún hljómar bæði brjóstumkennanlega og virkilega einkennilega …Madonna er sögð hafa móðgað fjöl- marga tónlist- armenn sem komu fram á tónleikum, sem haldnir voru í tilefni þess að tuttugu ár eru frá því hún vakti fyrst athygli, í París í síðustu viku. Söngkonan yfirgaf staðinn um leið og hún hafði flutt atriði sitt og skeytti í engu um að þakka flytj- endum á borð við Blue og Tina Arena, sem höfðu gefið sér tíma til að endurútsetja og æfa lög hennar af þessu tilefni. Þá er hún sögð hafa krafist þess að flytjendurnir héldu sig í búningsherbergjum sínum þar til hún var farin úr húsinu … Söng- konan Charlotte Church hefur hafnað tilboði um að fara með aðal- hlutverkið í söngvamyndinni Óp- erudraugurinn þar sem það skilyrði var sett fyrir því að hún fengi hlut- verkið að hún léttist um nokkur kíló. Hún segist staðráðin í að láta ekki undan þrýstingi um að fara í megr- un. „Hefði ég reynt að fara eftir öllu því sem mér hefur verið sagt að gera hefði ég endað í meðferð tólf ára,“ segir hún. „Já, rassinn á mér er stór en ég er ánægð með sjálfa mig. Á meðan ég get sungið skiptir frægðin mig engu máli. Ég tek ekki þátt í þessari vitleysu.“ FÓLK Ífréttum MIKIL ánægja var með hátíðartón- leikana sem fram fóru í Íþróttahöll- inni á Akureyri á sunnudaginn; þar sem Sálumessa Verdis var flutt af Sinfóníuhljómsveit Norðurlands ásamt Kór Akureyrarkirkju, Kór Langholtskirkju í Reykjavík og Kammerkór Norðurlands ásamt ein- söngvurunum Kristjáni Jóhannssyni, Kristni Sigmundssyni, Björgu Þór- hallsdóttur og Annamaria Chiuri undir stjórn Guðmundar Óla Gunn- arssonar. Mikið fjölmenni var á tón- leikunum og var listafólkinu fagnað með dynjandi lófataki í langan tíma. Ólafur Ragnar Grímsson forseti Ís- lands og unnusta hans, Dorrit Mouss- aieff, voru á meðal tónleikagesta. Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, og Dorritt Moussaieff, heitkona hans, voru meðal fjölmargra áheyrenda. Eftir að einsöngvurunum voru afhentir blómvendir kastaði Kristján Jóhannsson gulri rós til Dorrittar, sem sat á fremsta bekk. Frá vinstri: Sigrún Björk Björnsdóttir, formaður menningarmálanefndar Akureyrar, Jón Björnsson, eiginmaður hennar, Ólafur Ragnar Grímsson, Dorritt Moussaieff og Þóra Ákadóttir, forseti bæjarstjórnar. Kátt í Höllinni Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Sigurður Demetz Franzson, fyrsti lærifaðir Kristjáns, tekur mynd af honum og Kristni Sigmundssyni í bún- ingsklefanum eftir tónleikana. Við hlið Sigurðar er Ingvi Rafn Jóhannsson, vinur Kristjáns, sem lengi hef- ur starfað að tónlistarmálum á Akureyri. Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Kristján Jóhannsson heilsar upp á föðurömmu Bjargar Þórhallsdóttur, Björgu Steindórsdóttur, sem er á 91. aldursári, að tónleikunum loknum og óskar henni til hamingju með glæsilega frammistöðu ömmustelpunnar. Björg söngkona er á milli þeirra. TÓNLIST sænsku stórpoppsveitar- innar Abba er sannkallað bindiefni kynslóðanna ef marka má viðtökur við tónleikunum Thank you for the music, sem fara fram í Laugardals- höll um næstu helgi. „Miðarnir rjúka út og tónleikagestirnir eru unglingar, eldri borgarar og allt þar á milli,“ seg- ir í tilkynningu frá Sinfóníuhljómsveit Íslands. Æfingar hefjast í vikunni en und- irbúningur hefur staðið um langt skeið. „Það er West End Internation- al í London sem er samstarfsaðili SÍ á þessum tónleikum. Martin Yates heit- ir stofnandi West End og það er hann sem mun stýra Sinfóníuhljómsveit- inni á tónleikunum. Fjöldi þraut- reyndra söngvara frá West End mun syngja með hljómsveitinni, allt er þetta fólk sem hefur síðustu árin tekið þátt í fjölda söngleikja og tónleika á vegum West End,“ segir í tilkynning- unni. Nokkrir þekktir rokkarar og popparar ganga til liðs við Sinfónínu- hljómsveitina á tónleikunum. Sveitin, sem leikur með henni þetta kvöld, er skipuð einvalaliði. Jón Ólafsson er á píanó, Gunnlaugur Briem á tromm- um, Guðmundur Pétursson á gítar, Roland Hartwell er einnig á gítar og Richard Korn spilar á bassa. „Þeir eru fjölhæfir hljóðfæraleikar- ar Sinfóníuhljómsveitarinnar en eins og sjá má færa okkar menn, Roland og Richard, sig úr stað á þessum tón- leikum. Richard handleikur að öllu jöfnu kontrabassann en tekur upp rafmagnsbassann að þessu sinni og Roland sem leikur á fiðlu með Sinfón- íuhljómsveitinni sýnir að honum er fleira til lista lagt,“ segir í tilkynning- unni. Góðar viðtökur við poppuðum tónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands Tónlist Abba á eftir að hljóma í nýjum búningi Sinfóníuhljómsveitar Ís- lands og vina hennar úr Vesturbæ Lundúna næstu helgi. Abba fyrir alla Abba-tónleikar fös. 16. maí kl. 19.30 og lau. 17. maí kl. 17. Miðaverð er 3.500 kr. í sæti og 3.000 kr. í stúku.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.