Morgunblaðið - 16.05.2003, Qupperneq 21
AKUREYRI
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. MAÍ 2003 21
VORSÝNING á verkum nemenda
Myndlistaskólans á Akureyri verð-
ur á tveimur stöðum að þessu sinni,
í húsnæði skólans og Ketilhúsinu.
Sýningin verður opin um helgina,
dagana 17. og 18. maí, frá kl. 14 til
18.
Í Ketilhúsinu verða til sýnis út-
skriftarverk þeirra 13 nemenda
sem útskrifast úr sérnámsdeildum
skólans að loknu 90 eininga námi.
Nám í fagurlistadeild er fjölþætt,
þriggja ára sérhæft nám sem veitir
starfsmenntun í frjálsri myndlist. Í
Listhönnunardeild – grafískri
hönnun er lögð sérstök áhersla á
margvíslega tækni og miðla.
Í húsnæði skólans í Kaupvangs-
stræti 16 verður fjölbreytt sýning
að vanda. Sýnishorn af því helsta
sem nemendur á 1. og 2. ári í sér-
námsdeildum hafa verið að fást við
í myndlist og hönnun á þessu skóla-
ári. Nám í Fornámsdeild er skipu-
lagt með hliðsjón af aðalnámskrá
framhaldsskóla og í því felst list-
rænn og tæknilegur undirbúningur
fyrir framhaldsnám á sviði mynd-
listar og hönnunar. Sýningin gefur
greinargott yfirlit þeirrar vinnu
sem nemendur í fornámsdeild hafa
fengist við á skólaárinu. Að þessu
sinni útskrifast 16nemendur úr
Fornámsdeild skólans.
Auk þess sem að ofan er talið
verða sýnd verk eftir börn sem
hafa stundað nám í barnalistadeild
skólans um lengri eða skemmri
tíma.
Vorsýning
Myndlista-
skólans
SVEITARSTJÓRN Hörgárbyggðar
hefur hafnað erindi frá Sorpsamlagi
Eyjafjarðar þess efnis að nýr urð-
unarstaður fyrir sorp verði á Gásum,
m.a. vegna nálægðar við fornminjar
og gróðursælan reit í sveitarfé-
laginu. Guðmundur Guðlaugsson
framkvæmdastjóri Sorpeyðingar
Eyjafjarðar sagði að næsta skref
væri að leita eftir því við sveitar-
stjórn Arnarneshrepps að nýr urð-
unarstaður verði við Bjarnarhól.
Eins og fram hefur komið þóttu
tveir staðir koma helst til greina sem
nýir urðunarstaðir í Eyjafirði, Gásir
og Bjarnarhóll í Arnarneshreppi. Í
skýrslu um samanburð á þessum
tveimur stöðum þótti urðunarstaður
við Gásar betri kostur. Starfsleyfi
fyrir sorpuðun á Glerárdal rennur út
á þessu ári og hefur bæjarstjórn Ak-
ureyrar ákveðið að sorpurðun þar
verði hætt. Þeir aðilar sem að málinu
koma telja mjög brýnt að fá niður-
stöðu um nýjan urðunarstað sem
allra fyrst. Nú er hins vegar ljóst að
næsti urðunarstaður fyrir sorp verð-
ur ekki á Gásum.
Sorpurðun við
Gásar hafnað
Aftansöngur verður í Akureyrar-
kirkju í dag, föstudag, kl. 18 og er
hann liður í Kirkjulistaviku sem nú
stendur yfir í kirkjunni. Kammerkór
Akureyrar syngur undir stjórn Ey-
þórs Inga Jónsssonar og organisti er
Björn Steinar Sólbergsson.
Í DAG
„VETURINN var afspyrnulélegur
og trúlega sá versti hvað snjóleysi
varðar í sögu skíðasvæðisins,“ sagði
Guðmundur Karl Jónsson forstöðu-
maður Skíðastaða í Hlíðarfjalli.
„Veturinn var einhver sá hlýjasti
frá því mælingar hófust og það
hafði bein áhrif á skíðasvæðið.“
Samkvæmt bráðabirgðatölum Guð-
mundar Karls yfir reksturinn voru
aðeins seldir 5.200 lyftumiðar í vet-
ur á móti um 30.000 lyftumiðum ár-
ið áður. Tekjurnar voru tæpar 13
milljónir króna í ár en 44 milljónir
króna sl. vetur.
Í vetur var skíðasvæðið í Hlíð-
arfjalli opið í 51 dag, frá 23. janúar
og fram á laugardag fyrir páska-
dag, en í fyrravetur var opið í 88
daga. Guðmundur Karl sagði að
flestar helgar hefðu dottið út. Hann
sagði það lýsandi dæmi um hvað
veturinn var skrýtinn og kjánaleg-
ur, eins og hann orðaði það, að
fyrstu helgina sem opið var í vetur
hefðu selst tæplega 900 lyftumiðar,
þar af um 500 lyftumiðar á laug-
ardeginum eða um 10% af allri sölu
vetrarins. Eftir fyrstu helgina hefði
meðalsalan verið um 80 lyftumiðar
á dag, sem er svipuð sala og á
mánudögum í janúar í góðu árferði.
Um páska hafa verið seldir 1.300–
1.500 lyftumiðar á dag og páskarnir
hafa talið um 30% af sölu vetrarins.
Einnig hafa verið seldir rúmlega
1.000 lyftumiðar á dag í tengslum
við Andrésar andar-leikana. Pásk-
arnir duttu hins vegar út að þessu
sinni og aflýsa þurfti Andrésar and-
ar-leikunum vegna snjóleysis.
Guðmundur Karl sagði að barna-
lyftan í Hólabraut hefði aðeins ver-
ið opinn í 19 daga og það hefði einn-
ig haft sitt að segja. „Þegar
byrjendalyftan er opin getur öll
fjölskyldan farið saman á skíði en
þegar hún dettur út hefur það tölu-
verð áhrif á aðsókn. Meginstarf-
semin fer alla jafna fram í mars og
apríl en það snjóaði ekkert eftir 10.
mars.“
Ástandið hafði mikil áhrif hjá
ferðaþjónustuaðilum í bænum
Ástandið í Hlíðarfjalli hafði einn-
ig mjög mikil áhrif hjá öllum ferða-
þjónustuaðilum í bænum, enda mun
færra fólk á ferðinni. Íþrótta- og
tómstundaráð samþykkti á síðasta
fundi að fela deildarstjóra sínum að
skoða hvaða áhrif þessi snjólétti
vetur hafði á rekstur þeirra. For-
stöðumenn skíðasvæða landsins
hittust sameiginlegum fundi á
Siglufirði í gær og í dag og ræddu
m.a. ímynd skíðasvæða og erfiðleika
vetrarins en snjóleysi olli vandræð-
um á skíðasvæðum um allt land.
„Okkur tókst þó þrátt fyrir allt að
hafa opið í 50 daga í Hlíðarfjalli og
halda bæði Skíðamót Íslands og
unglingameistaramót við ágætar
aðstæður,“ sagði Guðmundur Karl.
Ástandið hefur ekki verið verra í sögu skíðasvæðisins í Hlíðarfjalli
Morgunblaðið/Kristján
Snjóleysið í Hlíðarfjalli í vetur olli miklum erfiðleikum í rekstrinum.
Aðeins var opið
í fjallinu í 51 dag
GÓÐ aðsókn hefur verið að sýningu
Freyvangsleikhússins á leikriti sr.
Hannesar Arnar Blandon um kímni-
skáldið Káin og verður því boðið upp
á 3 sýningar nú á næstunni sem eru
jafnframt síðustu sýningar á verkinu.
Leikritið verður sýnt í Freyvangi á
föstudags- og laugardagskvöld, 16. og
17. maí kl. 20.30 og loks föstudags-
kvöldið 23. maí. Alls hafa verið 18 sýn-
ingar á leikritinu og hefur það að sögn
hlotið góðar viðtökur áhorfenda.
Leikritið fjallar um uppvaxtarár
Káins í Eyjafirði, flutning vestur um
haf og líf hans þar en við sögu koma
vinir hans og samferðamenn. Ljóðum
hans og vísum eru gerð góð skil.
Áhorfendur sitja við borð úti í sal og
er boðið upp á kaffiveitingar. Leik-
stjóri er Saga Jónsdóttir og taka um
20 leikarar þátt í uppfærslunni.
Freyvangsleikhúsið
Þrjár sýn-
ingar eftir
Unglingakór Akureyrarkirkju held-
ur vortónleika á morgun 17. maí, kl.
17. Stjórnandi er Eyþór Ingi Jónsson
og á efnisskránni eru íslensk lög og
erlend, andleg og veraldleg, auk
þjóðlaga frá ýmsum löndum.
Sýning Elsu E. Guðjónsson á út-
saumuðum smámyndum úr Maríu
sögu er opin frá kl. 9–12 og 13–17 í
safnaðarheimili kirkjunnar, en sýn-
ingunni lýkur á sunnudag, 18. maí.
Á MORGUN
VOR 2003
Krónunni, 2. hæð, sími 462 3505,
Hafnarstræti 97, 600 Akureyri.
Verið velkomin
Rúskinnsjakkar
Stakir jakkar
Hörfatnaður
Kápur
Bolir
www.islandia.is/~heilsuhorn
Kelp
Fyrir húð, hár og neglur
SENDUM Í PÓSTKRÖFU
Glerártorgi, Akureyri, s. 462 1889
fæst m.a. í Lífsinslind í Hagkaupum,
Árnesaptóteki Selfossi og
Yggdrasil Kárastíg 1.