Morgunblaðið - 16.05.2003, Síða 35
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. MAÍ 2003 35
✝ Baldvin Árnasonfæddist 29. mars
1934. Hann lést á
Landspítalanum 7.
maí síðastliðinn. For-
eldrar hans voru
Guðmundía Elísabet
Pálsdóttir, f. 12.
mars 1910, d. 17. des-
ember 1994, og Árni
Pálsson kaupmaður,
f. 11. júlí 1907, d. 7.
janúar 1995. Baldvin
var næstelstur fimm
systkina en þau eru
Elín, f. 1933, Mar-
grét, f. 1936, Alex-
ander, f. 1944, og Ólafur, f. 1952.
Baldvin kvæntist 9. september
1991 Katrínu Árnason, f. 25. nóv.
1964. Börn þeirra eru Árni Alex-
ander, f. 23. september 1991, Er-
ik, f. 19. desember 1986 og Maida,
f. 27. apríl 1983. Fyrir átti Baldvin
dótturina Helgu Sædísi, f. 12. jan-
úar 1958.
Baldvin lauk prófi
frá Verslunarskóla
Íslands 1953, stund-
aði eftir það skrif-
stofustörf í nokkur
ár. Hann stundaði
listnám í Kaup-
mannahöfn og í
Barcelona á árunum
1958–1962 og starf-
aði eftir það um
skeið á Veðurstofu
Íslands við korta-
gerð.
Frá árinu 1979
starfaði Baldvin við
eigin rekstur við list-
iðn.
Baldvin var áhugasamur og
fjölhæfur frjálsíþróttamaður á
sínum yngri árum og átti m.a.
drengjamet í stangarstökki sem
stóð í mörg ár.
Útför Baldvins verður gerð frá
Fríkirkjunni í Reykjavík í dag og
hefst athöfnin klukkan 15.
Mér var brugðið, þegar ég frétti
lát vinar míns, Baldvins Árnsonar.
Ég hafði hitt hann tveim dögum áð-
ur, hressan og kátan að vanda, og
virtist þá ekkert ama að honum.
Við Baldvin, eða Balli eins og hann
var jafnan kallaður af vinum sínum
og skyldfólki, kynntumst upp úr
1950 þegar við hófum að stunda
frjálsar íþróttir hjá ÍR. Þá var ný-
hafið hið mikla blómaskeið í sögu
frjálsra íþrótta á Íslandi, þegar Clau-
senbræður, Finnbjörn Þorvaldsson,
Gunnar Huseby, Torfi Bryngeirs-
son, Óskar Jónsson, Guðmundur
Lárusson og fleiri afreksmenn gerðu
garðinn frægan bæði hér á landi og
erlendis. Við urðum báðir heillaðir af
afrekum þessara íþróttamanna og
ætluðum okkur mikið. Balli tók að
æfa stangarstökk, en ég lagði fyrir
mig hlaup, aðallega millivegalengdir.
Við Balli urðum strax góðir vinir í
gegnum íþróttaiðkun okkar og héld-
um vinskap síðan. Balli náði ágætum
árangri í stangarstökkinu meðan
hann æfði, en hætti alltof snemma og
var því keppnisferill hans stuttur. Til
gamans má geta þess, að Valbjörn
Þorláksson, sá frábæri stangar-
stökkvari, náði aldrei að sigra Balla í
keppni, en þetta var reyndar á byrj-
unartímabili Valbjarnar. Ég hygg að
Balli hefði getað náð langt í stöng-
inni, ef hann hefði lagt hart að sér við
æfingar.
Balli var mjög listhneigður og hóf
fljótlega að mála og teikna, en aldrei
lærði hann neitt í þessum efnum,
þetta var honum allt í blóð borið.
Hann hóf síðan að selja listaverk,
bæði sín eigin og annarra. Fyrir
þremur árum þurfti Balli að gangast
undir mikla hjartaaðgerð hér á landi
og náði góðum bata eftir þá aðgerð.
Hafði hann fundið fyrir brjóstverkj-
um og verið úthaldslaus nokkur ár á
undan.
Baldvin kynntist konu sinni, Katr-
ínu, árið 1988. Hún er ættuð frá Fil-
ippseyjum og þau eignuðust dreng,
Árna, sem er nú 11 ára gamall. Árni
var ætíð í miklu uppáhaldi hjá föður
sínum og það síðasta sem hann sagði
þegar hann var fluttur sárþjáður á
sjúkrahús daginn fyrir lát sitt var:
„Gætið vel að syni mínum.“ Katrín
kona hans var þá í heimsókn hjá ætt-
ingjum sínum á Filippseyjum og
fékk þar fréttirnar af láti manns síns.
Segja má að við Balli höfum verið
nær óaðskiljanlegir vinir í nær 50 ár
og naut ég þeirrar ánægju að fá að
fylgjast með uppvexti sonar þeirra
hjóna og passaði hann reyndar oft
þegar hann var lítill ef þau hjón voru
vant við látin.
Að leiðarlokum kveð ég vin minn,
Baldvin Árnason, og sendi Katrínu
eiginkonu hans og Árna syni þeirra,
svo og og öðrum ástvinum, innilegar
samúðarkveðjur.
Sigurður Guðnason.
BALDVIN
ÁRNASON
✝ Stefán JóhannÞorbjörnsson
skipstjóri fæddist á
Grund í Stöðvarfirði
30. ágúst 1914.
Hann lést á Hrafn-
istu í Hafnarfirði
10. maí síðastliðinn.
Foreldrar hans voru
hjónin Þorbjörn
Stefánsson, f. á
Stöðvarfirði 30.3.
1892, d. 1.9. 1973,
og Jórunn Jónsdótt-
ir, f. á Viðborði á
Mýrum í Austur-
Skaftafellssýslu 3.8.
1878, d. 6.4. 1961. Tvö systkina
Stefáns eru á lífi, þau Guðný
Jóna, f. 12.9. 1915, og Pétur
Arnleifur verslunarmaður, f.
6.10. 1922, en þrjú systkini eru
látin, tvö þeirra, Steinþór og
Pétur létust í æsku, tveggja og
sex ára, en bróðirinn Pálmi
drukknaði á sautjánda ári í Þor-
lákshöfn, 1937.
Stefán kvæntist 11. september
1937 Laufeyju Sigríði Kristjáns-
dóttur frá Heiðarbrún í Vest-
mannaeyjum, f. 30. desember
1913, d. 5. október 1994. Þau
fluttu 1936 til Hafnarfjarðar og
bjuggu lengst af á Vitastíg 4 þar
í bæ. Börn þeirra eru: 1) Ester,
f. 28.11. 1936, d. 4.7. 1937. 2)
Pálmi verkfræðingur, f. 24.6.
1938, maki Svan-
hildur Guðmunds-
dóttir deildarstjóri.
Hann á fjögur börn
og fjögur barna-
börn. 3) Kristján
tæknifræðingur, f.
14.12. 1945, maki
Soffía Arinbjarnar.
Hann á tvær dætur
og tvö barnabörn.
4) Ingibjörg, f. 21.8.
1948, maki Massimo
Scagliotti, doktor í
verkfræði. Hún á
þrjú börn og tvö
barnabörn. 5) Þor-
björn iðnfræðingur, f. 11.11.
1953, maki Inga Elísabet Kára-
dóttir einkaritari. Hann á tvö
börn.
Stefán stundaði sjómennsku
lengst af eða í 47 ár, fyrst með
föður sínum fyrir austan, þá sem
háseti á vélbátum og togurum.
Hann lauk hinu meira fiski-
mannaprófi frá Stýrimannaskól-
anum í Reykjavík 1950 og var
eftir það skipstjóri á ýmsum vél-
bátum. Um tíma var hann skip-
stjóri á eigin bát. Um sextugt
fór hann í land og starfaði
næstu 11 árin hjá Íslenska ál-
félaginu í Straumsvík.
Útför Stefáns verður gerð frá
Akureyrarkirkju í dag og hefst
athöfnin klukkan 13.30.
Ég kynntist Stefáni árið 1991 þeg-
ar Ingibjörg, núverandi eiginkona
mín, kynnti mig fyrir foreldrum sín-
um.
Hann kom mér fyrir sjónir sem
stór og stæðilegur maður þrátt fyrir
aldur sinn og með sterkan persónu-
leika.
Það sem snerti mig hvað mest voru
gáfur hans og óendanleg þörf fyrir að
fræðast og skiptast á skoðunum við
fólk eins og mig sem kemur frá allt
annarri menningu og hefð.
Það er mér mikill heiður að hafa
kynnst Stefáni. Það var hægt að
spjalla tímunum saman við hann um
heima og geima. Hann las mikið og
var fróður með eindæmum.
Hann lá ekki á þekkingu sinni, sem
kom af reynslu manns sem hefur
gengið í gegnum þúsund erfiðleika og
ávallt komið úr þeim sem sigurvegari,
en fyrst og fremst verið hann sjálfur.
Stefán var gjafmildur faðir og mjög
ástríkur afi, alltaf tilbúinn að hjálpa
þeim sem á þurfti að halda í sinni
stóru fjölskyldu, án þess að biðja um
neitt í staðinn.
Oft sagði sagði hann við mig að sér
fyndist dóttir sín í góðum höndum og
hann leit á mig sem einn af sonum sín-
um. Hann var einnig fyrir mér eins og
faðir, besti faðir sem hægt er að óska
sér.
Núna er hann farinn, en hans lífs-
máti og hans gildi geymast í hjörtum
okkar allra.
Massimo Scagliotti.
Þá hefur elsku afi okkar kvatt þetta
líf og kveðjum við systurnar hann
með söknuði í hjarta. Minningarnar
eru margar, góðar og fallegar og var
ávallt gott að koma í heimsókn á Vita-
stíginn til afa og ömmu og var vel tek-
ið á móti okkur. Alltaf hafði hann tíma
til að spjalla og leika við okkur og á
eftir fengum við kökur og góðgæti
sem amma hafði bakað sem ekki gerði
heimsóknina verri. Gaman var að
hlusta á sögurnar um hvernig þau
kynntust og var hann svo stoltur af
því að hafa náð sér í fallegustu stúlk-
una í Eyjum.
Við gátum hlustað á þessa sögu aft-
ur og aftur og aldrei leiddist okkur
hún.
Við systurnar erum sammála um
það að afi okkar var hörkukarl sem
keyrði bíl alveg þar til í fyrra. Einnig
hafði hann gaman af því að kaupa sér
föt og vildi vera snyrtilegur til fara og
fannst okkur hann bera af í klæða-
burði.
Hann var mjög fróður maður og
hafði mikinn áhuga á ættfræði og
voru eftirminnilegar frásagnir hans.
Aðdáunarvert var hvað hann var
minnugur miðað við að vera kominn
hátt á níræðisaldurinn. Það var sama
hvað gekk á hjá honum í lífinu, alltaf
hélt hann ótrauður áfram og erum við
stoltar að hafa átt hann fyrir afa.
Á síðustu árum vorum við svo
heppnar að fá að hafa hann hjá okkur
á aðfangadag og á eftir að verða tóm-
legt án hans en í huganum mun hann
ávallt vera hjá okkur.
Við erum lánsamar að hafa haft afa
svona lengi hjá okkur og trúum við
því að hann sé kominn í faðm hennar
elsku ömmu okkar.
Við kveðjum elsku afa með þessu
erindi:
Ég sendi þér kæra kveðju,
nú komin er lífsins nótt.
Þig umvefji blessun og bænir,
ég bið að þú sofir rótt.
Þó svíði sorg mitt hjarta
þá sælt er að vita af því
þú laus ert úr veikinda viðjum,
þín veröld er björt á ný.
(Þórunn Sigurðardóttir.)
Hildur Betty og Laufey Dögg.
STEFÁN JÓHANN
ÞORBJÖRNSSON
Fleiri minningargreinar um
Stefán Jóhann Þorbjörnsson bíða birt-
ingar og munu birtast í blaðinu næstu
daga.
Útför
ÞÓRÐAR ELÍASSONAR,
Hólshúsum,
Gaulverjabæjarhreppi,
fer fram frá Gaulverjabæjarkirkju laugardaginn
17. maí kl. 11.00.
Fyrir hönd aðstandenda,
Gunnar E. Þórðarson, Elísabet Zóphóníasdóttir,
Ævar Gunnarsson,
Guðrún Elísa Gunnarsdóttir,
Bjarney Ólöf Gunnarsdóttir,
Jósef Geir Gunnarsson,
Þórunn Gunnarsdóttir,
Sjöfn Gunnarsdóttir,
Brynja Gunnarsdóttir,
Linda Mjöll Gunnarsdóttir.
Elskuleg dóttir okkar, barnabarn, barnabarna-
barn og frænka,
HRAFNHILDUR LÍF BALDURSDÓTTIR,
Hátúni 6,
Reykjavík,
lést á Landspítalanum Fossvogi mánudaginn
12. maí.
Útför hennar fer fram frá Grafarvogskirkju
mánudaginn 19. maí kl. 10.30.
Fyrir okkar hönd og annarra aðstandenda,
Baldur Stefán Svavarsson, Sóley Sævarsdóttir,
Svavar Baldursson, Hrafnhildur Magnúsdóttir,
Sævar Hallgrímsson, Elísabet Guðfinna Jónsdóttir.
Elskuleg móðir okkar,
LILJA ÓLAFSDÓTTIR
frá Súgandafirði,
verður jarðsungin frá Suðureyrarkirkju laugar-
daginn 17. maí kl. 14.00.
Ingvar Bragason,
Lovisa R. Kristjánsdóttir,
Erna Kristjánsdóttir,
Hafþór Kristjánsson,
Kristján Víðir Kristjánsson
og fjölskyldur.
Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengda-
móðir og amma,
ERNA KARLSDÓTTIR,
Stekkjarhvammi 54,
Hafnarfirði,
lést á Landspítalanum Hringbraut að morgni
fimmtudagsins 15. maí.
Bjarni Jónsson,
Helgi Már Bjarnason, Klara Katrín Friðriksdóttir,
Brynja Sif Bjarnadóttir,
Arnar Freyr Helgason,
Mikael Adam Hafþórsson.
Okkar ástkæri unnusti, faðir, sonur, tengda-
sonur, bróðir, mágur og barnabarn,
MATTHÍAS KRISTJÁNSSON,
Hábrekku 6,
Ólafsvík,
sem lést af slysförum laugardaginn 10. maí,
verður jarðsunginn frá Ólafsvíkurkirkju laugar-
daginn 17. maí kl. 14.00.
Íris Ósk Jóhannsdóttir,
Kristján Steinn Matthíasson,
Jóhann Ás,
Thelma Rún Matthíasdóttir,
Viktor Ingi Matthíasson,
Arnheiður Matthíasdóttir, Kristján Jónsson,
Erla Hrönn Snorradóttir, Jóhann Steinsson,
Svanfríður Kristjánsdóttir,
Friðrik Kristjánsson, Ása Gunnarsdóttir,
Garðar Kristjánsson,
Rúnar Már Jóhannsson, Erla Kristín Sigurðardóttir,
Steinunn Ragna Jóhannsdóttir,
Margrét Árnadóttir,
Ragna Möller, Steinn Hansson.