Morgunblaðið - 16.05.2003, Page 43
BRÉF TIL BLAÐSINS
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. MAÍ 2003 43
Fæst í apótekum
og lyfjaverslunum
ER NEFIÐ STÍFLAÐ?
STERIMAR
Skemmir ekki slímhimnu
er náttúrulegur
nefúði sem losar stíflur
og léttir öndun.
Fyrir 0-99 ára.
NÚ FÆ ég ekki orða bundist þegar
að hátekjumenn hækka laun sín um
18,4-18,7% sama dag og kosningar
eru. Þá verður maður afskaplega
reiður. Er nema furða að Halldór og
Davíð brosi. Á almúginn síðan eftir
að sætta sig við 2-3% um næstu ára-
mót? Nei, nú er mál að verkalýðs-
hreyfingin í landinu taki höndum
saman og taki virkilega á málunum.
Og ef hún gerir það ekki verða laun-
þegarnir að gera það sjálfir og mót-
mæla vitleysunni. Þau okkar sem fá
ekki 20% launahækkun verða að
hvetja landann til að mæta á aðal-
fundi verkalýðsfélaganna, en þeir
eru flestir haldnir um þessar mund-
ir, og hafa þannig áhrif, því allir eru
gjaldgengir á slíka fundi. En ef ekki
er mætt þá er til lítils að vera að
kjökra úti í horni. Ég, eins og örugg-
lega fleiri, er búinn að fá nóg. Við
ættum ekki að sætta okkur við 2-3%
til þriggja ára eina ferðina enn. Sýn-
um samstöðu, við erum aflið.
Við krefjumst þess af okkar mönn-
um í verkalýðshreyfingunni að þeir
standi með fólkinu, annars geta þeir
tekið pokann sinn og það strax. For-
ystumenn verkalýðshreyfingarinar
eiga að vera að vinna fyrir fólkið,
sem ekki fær tæp 20% á silfurfati, en
ekki fyrir stjórn, sem segir að 2% sé
nóg því ekki sé svigrúm til frekari
hækkana. Ef þeir geta hækkað laun
æðstu manna um u.þ.b. 20% þá ætti
að vera svigrúm til a.m.k. 12% launa-
hækkana á almennum vinnumark-
aði. Ég vil ekki þurfa að heyra for-
ystusauðina tyggja upp aftur og
aftur „ekkert svigrúm“.
Ef þeir ætla að halda haus þá af-
þakka þeir þessar launahækkanir.
Svo og aðrir sem eru að fá silfurfats-
launahækkanir. Hver eru svo rökin
fyrir slíkum ofurlaunahækkunum?
Eru skattarnir kannski farnir að
íþyngja þessum mönnum um of eða
er arður stórfyrirtækjanna slíkur að
það þyrfti helst að reka fleiri
starfsmenn til að mynda meiri og
stærri arð í þeim? Er ekki kominn
tími fyrir launafólk að standa upp og
mótmæla einu sinni almennilega þó
svo að kosningar séu búnar?
Ég hvet fulltrúa launafólksins til
að láta heyra almennilega í sér núna
og vera þess minnugir að það eru fé-
lagsmenn í félögunum sem ráða því
hverjir það eru sem verma stólana.
STEINÞÓR MICHELSEN,
Strandgötu 38, Norðfirði.
Óeðlilegar
launahækkanir
Frá Steinþóri Michelsen:
Alltaf á
þriðjudögum
Sérblað alla
þriðjudaga
Kynning á nýju sumarlitunum
„Crazy Flower“ og öðrum spennandi nýjungum
í dag – föstudag kl. 13 – 17. Förðunarfræðingur veitir faglega ráðgjöf
S
ólris
ehf./
JB
B
Skrefi framar
Sokkar, sokkabuxur, undirföt
www.sokkar.is
Tískusýning
í Smáralind í dag kl. 16
fyrir framan Lyfju
Keppendur í Fegurðarsamkeppni
Íslands sýna undirfatnað ásamt nýju
baðfatalínunni frá
Ráðgjöf og kynning í Lyfju kl. 14-18.
Flottur kaupauki.
Greiðsluáskorun
Innheimtumenn ríkissjóðs skora hér með á gjaldendur eftirtalinna
gjalda að gera skil nú þegar eða í síðasta lagi innan 15 daga frá dag-
setningu áskorunar þessarar:
Gjöldin eru: Staðgreiðsla og tryggingagjald sem fallið hafa í eindaga til og með 15. maí 2003, virð-
isaukaskattur sem fallið hefur í eindaga til og með 5. maí 2003 og önnur gjaldfallin álögð gjöld og
ógreiddar hækkanir er fallið hafa í eindaga til og með 15. maí 2003 á staðgreiðslu, tryggingagjaldi
og virðisaukaskatti, virðisaukaskatti í tolli, áfengisgjaldi, launaskatti, bifreiðagjaldi, úrvinnslu-
gjaldi, slysatryggingagjaldi ökumanna, föstu árgjaldi þungaskatts, þungaskatti skv. ökumælum,
viðbótar- og aukaálagningu söluskatts vegna fyrri tímabila, skemmtanaskatti og miðagjaldi, virðis-
aukaskatti af skemmtunum, tryggingagjaldi af skipshöfnum ásamt skráningargjöldum, búnaðar-
gjaldi, iðgjaldi í Lífeyrissjóð bænda, vinnueftirlitsgjaldi, vörugjaldi af innlendri framleiðslu, vöru-
gjaldi af ökutækjum, eftirlitsgjöldum, aðflutningsgjöldum og útflutningsgjöldum, skilagjaldi á um-
búðir, verðbótum á ógreiddan tekjuskatt og verðbótum á ógreitt útsvar, fasteignagjöldum, skipu-
lagsgjaldi, skipagjaldi, fisksjúkdómagjaldi, jarðarafgjaldi og álögðum opinberum gjöldum, sem
eru:
Tekjuskattur, útsvar, aðstöðugjald, sérstakur tekjuskattur manna, eignarskattur, sérstakur eignar-
skattur, slysatryggingagjald vegna heimilisstarfa, tryggingagjald, iðnlánasjóðs- og iðnaðarmála-
gjald, þróunarsjóðsgjald, kirkjugarðsgjald, markaðsgjald, gjald í framkvæmdasjóð aldraðra og
skattur af verslunar- og skrifstofuhúsnæði, ofgreiddar barnabætur, ofgreiddur barnabótaauki og of-
greiddar vaxtabætur.
Fjárnáms verður krafist án frekari fyrirvara að þeim tíma liðnum fyrir vangoldnum eftirstöðvum
gjaldanna ásamt dráttarvöxtum og öllum kostnaði, sem af innheimtu skuldarinnar kann að leiða, á
kostnað gjaldenda.
Athygli skal vakin á því að auk óþæginda hefur fjárnám í för með sér verulegan kostnað fyrir gjald-
anda. Fjárnámsgjald í ríkissjóð er allt að 11.500 kr. fyrir hvert fjárnám. Þinglýsingargjald er 1.200
kr. og stimpilgjald 1,5% af heildarskuldinni, auk útlagðs kostnaðar eftir atvikum. Eru gjaldendur
hvattir til að gera full skil sem fyrst til að forðast óþægindi og kostnað.
Þá mega þeir gjaldendur, sem skulda staðgreiðslu, staðgreiðslu tryggingagjalds, vörugjald, afdreg-
inn fjármagnstekjuskatt og virðisaukaskatt, búast við því að starfsemi þeirra verði stöðvuð án frek-
ari fyrirvara. Loks mega þeir gjaldendur er skulda bifreiðagjöld og þungaskatt eiga von á að skrán-
ingarnúmer verði tekin af ökutækjum þeirra án frekari fyrirvara. Fyrrgreindur 15 daga frestur frá
dagsetningu áskorunar þessarar gildir ekki í þessum tilvikum.
Reykjavík, 16. maí 2003.
Tollstjórinn í Reykjavík
Sýslumaðurinn í Kópavogi
Sýslumaðurinn í Hafnarfirði
Sýslumaðurinn í Keflavík
Sýslumaðurinn á Keflavíkurflugvelli
Sýslumaðurinn á Akranesi
Sýslumaðurinn í Borgarnesi
Sýslumaðurinn í Stykkishólmi
Sýslumaðurinn í Búðardal
Sýslumaðurinn á Ísafirði
Sýslumaðurinn í Bolungarvík
Sýslumaðurinn á Patreksfirði
Sýslumaðurinn á Hólmavík
Sýslumaðurinn á Siglufirði
Sýslumaðurinn á Sauðárkróki
Sýslumaðurinn á Blönduósi
Sýslumaðurinn á Akureyri
Sýslumaðurinn á Húsavík
Sýslumaðurinn á Ólafsfirði
Sýslumaðurinn á Seyðisfirði
Sýslumaðurinn á Eskifirði
Sýslumaðurinn á Höfn
Sýslumaðurinn í Vestmannaeyjum
Sýslumaðurinn á Selfossi
Sýslumaðurinn í Vík
Sýslumaðurinn á Hvolsvelli
Gjaldheimta Vestfjarða
Gjaldheimta Austurlands
Gjaldheimta í Vestmannaeyjum