Morgunblaðið - 16.05.2003, Qupperneq 44
DAGBÓK
44 FÖSTUDAGUR 16. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍM-
AR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111.
Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329,
fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, aug-
lýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115.
NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100
kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið.
Skipin
Reykjavíkurhöfn:
Mánafoss fer í dag.
Hafnarfjarðarhöfn:
Almac kom í gær og
fer í dag Sissimut fór
í gær. Arna kom og
fór í gær. Svanur
kemur í dag.
Mannamót
Aflagrandi 40. Bingó
í dag kl. 14.
Árskógar 4. Kl. 13–
16.30 opin smíða- og
handavinnustofan.
Bólstaðarhlíð 43. Kl.
8–16 hárgreiðsla, kl.
8.30–12.30 bað, kl. 9–
16 handavinna, kl. 9–
17 fótaaðgerð, kl. 13–
16 spilað í sal.
Félagsstarfið, Dal-
braut 18–20. Kl. 9
bað, og opin handa-
vinnustofa.
Félagsstarfið Dal-
braut 27. Kl. 8–16 op-
in handavinnustofan,
kl. 9–12 applikering,
kl. 10–13 opin versl-
unin.
Félagsstarfið Hæðar-
garði 31. Kl. 9–12
bað, kl. 9–16.30 opin
vinnustofa, myndlist,
gifs o.fl., kl. 9.30
gönguhópurinn Gönu-
hlaup leggur af stað,
kaffi á eftir göngunni,
kl. 14 brids og almenn
spilamennska.
Korpúlfar, Graf-
arvogi, samtök eldri
borgara. Vatns-
leikfimi er í Graf-
arvogslaug á föstu-
dögum kl. 14.
Félagsstarfið, Löngu-
hlíð 3. Kl. 8. bað, kl.
10 hárgreiðsla, kl. 10–
12 verslunin opin, kl.
11 leikfimi, kl. 13 „op-
ið hús“, spilað á spil.
Félagsstarf aldraðra,
Garðabæ. Handa-
vinnuhornið hefur
opnað sýningu í
Garðabergi. Opið
virka daga 13–17 og
um helgina
laugard. og sunnud.
kl. 14–16.
Félag eldri borgara í
Kópavogi. Félagsvist
spiluð í Fannborg 8
(Gjábakka) kl. 20.30.
Félag eldri borgara,
Hafnarfirði, Hraun-
seli, Flatahrauni 3.
Tréútskurður og
brids kl. 13, biljard
13.30. Púttæfing á
Hrafnistuvelli kl. 14–
16.
Gjábakki, Fannborg
8. Kl. 9.30 málm- og
silfursmíði, kl. 13 bók-
band.
Félag eldri borgara,
Reykjavík, Ásgarði,
Glæsibæ. Dagsferð
22. maí, brottför kl. 9
Rangárþing – Fljóts-
hlíð – Landsveit.
Söguferð á slóðir Þor-
steins Erlingssonar
og Guðmundar skóla-
skálds. Komið að
Odda o.fl. stöðum.
Kaffi og meðlæti í
Hestheimum. S.
588 2111.
Gerðuberg, félags-
starf, Kl. 9–16.30
vinnustofur opnar,
m.a. kortagerð og
servíettumyndir. Frá
hádegi spilasalur op-
inn, kl. 13.30 kóræf-
ing, veitingar í Kaffi
Bergi. S. 575 7720.
Hraunbær 105. Kl. 9
bað, handavinna, út-
skurður, fótaaðgerð
og hárgreiðsla, kl. 11
spurt og spjallað.
Bingó. Miðvikud. 28.
maí kl. 10 verður far-
ið í Stykkishólm. Sigl-
ing um Breiðafjörðinn
og fuglalífið skoðað,
fyrir þá sem fara ekki
í siglinguna verður
keyrt um nesið. Farið
verður á Hótel
Stykkishólm, þar
verður boðið upp á
súpu, brauð og kaffi.
Skráning á skrifstofu
eða í s. 587 2888
fyrir 23. maí.
Norðurbrún 1. Kl. 9–
13 tréskurður, kl. 9–
17, hárgreiðsla, kl.
10–11 boccia.
Vesturgata 7. Kl. 9–
16 fótaaðgerð og hár-
greiðsla, kl. 9.15–
14.30 handavinna, kl.
10–11 kántrýdans, kl.
11–12 stepp, kl.
13.30–14.30 Sungið
við flygilinn, kl.
14.30–16 dansað í að-
alsal.
Vitatorg. Handverks-
sýning veður í dag
föstudag kl. 9–16.30, á
morgun laugardag 17.
maí kl. 11–16.30,
sunnudag 18. maí og
mánudag 19. maí, kl.
9–16, allir velkomnir.
Vinnustofur félags-
miðstöðvarinnar eru
lokaðar í dag föstu-
dag og á mánudag
vegna handverkssýn-
ingarinnar, opnaðar
aftur þriðjudaginn 20.
maí.
Bridsdeild FEBK,
Gjábakka. Brids kl.
13.15 í dag.
Hana-nú, Kópavogi.
Laugardagsgangan á
morgun. Lagt af stað
frá Gjábakka kl. 10.
Gott fólk, gott rölt.
Gengið frá Gullsmára
13 kl. 10 á laugar-
dögum.
Félag einhleypra.
Fundur á morgun kl.
21 í Konnakoti,
Hverfisgötu 105, Nýir
félagar velkomnir.
Munið gönguna
mánu- og fimmtu-
daga.
Minningarkort
Minningarspjöld
Kristniboðssambands-
ins fást á skrifstof-
unni, Holtavegi 28
(hús KFUM og K
gegnt Langholtsskóla)
sími 588-8899.
Í dag er föstudagur 16. maí, 136.
dagur ársins 2003. Orð dagsins:
Ávítur fá meira á hygginn mann
en hundrað högg á heimskingja.
(Orðskv. 16, 18.)
Eiríkur Bergmann Ein-arsson segir í pistli á
kreml.is að kosn-
ingaúrslitin veki blendn-
ar tilfinningar. „Þrátt
fyrir sætan sigur náði
Samfylkingin þó aðeins
einu af þremur mark-
miðum sínum og því er
sigurinn nokkurri
beiskju blandinn. Þrátt
fyrir að alla tíð hafi verið
langsótt að fimmta sætið
í Reykjavík norður gæti
orðið þingsæti voru það
mikil vonbrigði fyrir
Samfylkingarfólk að
vakna upp við það á
sunnudagsmorgni að
leiðtogi flokksins, Ingi-
björg Sólrún, væri ekki á
þingi, eftir að hafa verið
inni nær alla nóttina.
Ennfremur náði flokk-
urinn ekki því meg-
inmarkmiði sínu að fella
ríkisstjórnina,“ segir
Eiríkur.
Eiríkur segir að þráttfyrir að Framsókn-
arflokkurinn hafi aðeins
ríflega sautján prósenta
fylgi geti Halldór Ás-
grímsson ráðið hvort
hann verður forsætisráð-
herra í stjórn með Sjálf-
stæðisflokki eða Sam-
fylkingu.
Hann segir að það semhelst standi í vegi
fyrir áframhaldandi rík-
isstjórnarsamstarfi Sjálf-
stæðisflokks og Fram-
sóknar sé að ólíklegt
verði að teljast að Hall-
dór kæri sig um að sitja í
ríkisstjórn undir áfram-
haldandi forystu Davíðs
Oddssonar. „Jafn ólíklegt
er að Davíð kæri sig um
að taka við öðru ráðu-
neyti.
Davíð verður því aðstíga af stóli til að
tryggja áframhaldandi
stjórn. Hugsanlegt er að
Davíð sitji áfram í eitt ár
og að svo taki Halldór
við. Á næsta ári eru
hundrað ár frá því að Ís-
land fékk fyrsta ráð-
herrann og ekki er frá-
leitt að Davíð noti það
tilefni til að stíga niður.
Í fyrsta sinn í sögunni erunnt að mynda tveggja
flokka meirihlutastjórn á
Íslandi án þátttöku Sjálf-
stæðisflokks. Það sem
helst stendur í vegi fyrir
samstjórn Framsóknar
og Samfylkingar er að
hún hefði aðeins eins
manns meirihluta og
engin ríkisstjórn vill eiga
líf sitt undir Kristni H.
Gunnarssyni.
Heppilegra væri því aðkippa annaðhvort
frjálslyndum eða vinstri-
grænum með í slíka
stjórn eða semja um að
annar hvor flokkurinn
verji stjórnina vantrausti
í skiptum fyrir framgang
tiltekinna mála.
Þá er heldur ekki hægtað útiloka samstjórn
Sjálfstæðisflokks og
Samfylkingar en það
verður þó að teljast ólík-
leg niðurstaða.“
STAKSTEINAR
Súrsætur sigur
Samfylkingar
Víkverji skrifar...
ÍMORGUNBLAÐINU í gær birt-ist bréf til blaðsins frá nokkrum
ráðskonum og -körlum Femínista-
félags Íslands. Þar er lýst miklum
vonbrigðum með að fjölmiðlar hafi
ekki birt myndir af félagsmönnum
þar sem þeir tóku þátt í kröfugöngu
1. maí.
Í bréfinu segir: „Tíðindi dagsins
voru þau að ný hreyfing sem beitir
sér fyrir femínískri umræðu og að-
gerðum birtist á götum Reykjavíkur
af ótrúlegum krafti. Því voru fjöl-
miðlar greinilega ósammála eða
tóku þeir ekki eftir okkur? Vildu
þeir ekki sjá okkur? Hvað liggur að
baki slíku fréttamati? Í okkar huga
heitir þetta: ÞÖGGUN.
Þöggun er þekkt fyrirbæri og er
beitt þegar þeim sem valdið hafa (í
þessu tilviki fjórða valdinu – fjöl-
miðlunum) líkar ekki það sem gerist
og vilja ráða túlkun atburða.“
x x x
ÞETTA bréf þykir Víkverja meðhreinum endemum. Hann hefur
ekki orðið var við annað en að hið
nýja Femínistafélag hafi verið áber-
andi í umræðum í fjölmiðlum, eins
og full ástæða er til. Víkverji getur
a.m.k. alls ekki samþykkt að fjölmið-
illinn sem hann vinnur á, Morgun-
blaðið, hafi beitt Femínistafélagið
„þöggun“ eða reynt að „ráða túlkun
atburða“ . Þegar félagið var stofnað
var aðalmyndin á forsíðu blaðsins
daginn eftir frá stofnfundinum.
Stuttu síðar, og af sama tilefni, voru
forsíða og opna í Daglegu lífi lögð
undir viðtöl við fylgjendur félagsins.
Á þá umfjöllun var vísað með
þriggja dálka frétt á baksíðu blaðs-
ins. Skoðanir félagsins á auglýsinga-
málum voru gerðar að umræðuefni í
Innherja Viðskiptablaðs Morg-
unblaðsins. Morgunblaðið birti
fréttaumfjöllun um fund Femínista-
félagsins með frambjóðendum flokk-
anna. Þegar úrslit þingkosninganna
lágu fyrir, var álits talsmanns fé-
lagsins leitað á þeirri staðreynd að
konum á þingi fækkaði í kosning-
unum. Sú frétt birtist fjögurra dálka
á baksíðu blaðsins sl. mánudag.
x x x
ER ÞETTA „þöggun“? Víkverjiætlar ekki að halda því fram að
Femínistafélaginu hafi verið hossað
neitt umfram það sem eðlilegt getur
talizt á síðum blaðsins; það hefur
einfaldlega komið með áhugaverð
sjónarmið inn í umræður um jafn-
réttismál og blaðinu hefur þótt sjálf-
sagt að gera grein fyrir þeim sjónar-
miðum. Skiptir það, að sjónarmiðin
komi fram, ekki meira máli en hvort
tekin var mynd af fólki í bleikum bol-
um niðri í bæ á 1. maí? Eflaust telja
fleiri hópar, sem tóku þátt í kröfu-
göngunni þann daginn, að það hefði
átt að taka mynd af þeim af því að
þeir skáru sig úr. Hins vegar var
ekki gert upp á milli, heldur birtist
yfirlitsmynd af hinni myndarlegu
kröfugöngu í Morgunblaðinu.
Víkverji er hallur undir mörg
sjónarmið Femínistafélagsins, en
veltir því óneitanlega fyrir sér hvort
hann sé í réttum félagsskap þegar
hann les svona bull og vitleysu.
Femínistar á bleikum bolum 1. maí
– svo því sé haldið til haga.
Laun
forstjóra
ÉG las í Morgunblaðinu 5.
maí sl. að væntanlegur
væri til landsins Jack
Welch, fyrrverandi for-
stjóri General Electric, að
frumkvæði Kaupþings.
Mikið hefur verið deilt og
skrifað um laun forstjóra
íslenskra fyrirtækja und-
anfarið og þykir mörgum
þau í hærra lagi.
Ég leit aðeins yfir upp-
gefin laun forstjóra nokk-
urra fyrirtækja í Banda-
rikjunum árið 2002. Þeir
sem toppa þar liggja á
bilinu 22–195 milljónir doll-
ara. Semsagt laun + bón-
usar. Þetta eru tölur upp-
gefnar í nýlegu blaði
Buisness Week. Þarna
toppar Alfred Lerner, for-
stjóri MBNA, með 194,9
milljónir dollara.
J.R. Immelt, núverandi
forstjóri General Electric
og eftirmaður Welch, er
aðeins með um 15 milljónir
dollara.
Jack Welch sem nú er á
leið til landsins sem fyrr
getur, ætti að geta kennt
mönnum eitthvað og veitt
góðar heimildir úr sínum
viskubrunni. Jack var mjög
farsæll forstjóri en um-
deildur fyrir stjórnun sína
og að fara sínar eigin leiðir.
Hann vann í um 40 ár hjá
GE og þar af forstjóri síð-
ustu 20 árin, áður en hann
lét af störfum árið 2000.
Hann gerði GE að stór-
veldi, verðmæti fyrirtækis-
ins óx úr um 12 milljörðum
í 280 milljarða. Laun
Welch voru engin lúsar-
laun enda stór hluti bón-
usar o.fl. Nú las ég fyrir
skömmu að sporslur til
hans væru taldar fremur
miklar og ástæður til að
minnka þær, þ.á m. lúxus-
íbúðir, einkaþota, lúxusbíl-
ar o.fl. o.fl.
Auðvitað hljóta menn að
bjóða slíkan mann velkom-
inn til Íslands og forvitni-
legt verður að fræðast um
hvaða boðskap hann hefur
fram að færa.
Virðingarfyllst,
Svanur Jóhannsson.
Tek undir
MIG langar að taka undir
það sem neytandi skrifar í
Velvakanda 12. maí sl. um
salt í matvælum. Ástandið
á matvörum er afar slæmt
og alls ekki viðunandi.
Kona í vesturbænum.
Tapað/fundið
Svört axlartaska
tapaðist
SVÖRT axlartaska tapað-
ist síðastliðna helgi í
miðbæ Akureyrar. Í henni
er bæði peningaveski og
GSM-sími. Finnandi vin-
samlegast hafi samband í
síma 692-9705 eða skili
henni á lögreglustöðina.
Kreditkortaleð-
urveski tapaðist
LÍTIÐ kreditkortaveski
tapaðist v/bensínstöð í
Kópavogi. Í veskinu var
rafrænt örorkuskírteini
sem er eiganda afar mik-
ilvægt. Einnig var fleira í
veskinu. Skilvís finnandi er
vinsamlegast beðinn að
hafa samband í síma 557-
7958 eða 867-0776.
Nisti
tapaðist
HRINGLAGA silfrað,
svart og grænblátt nisti á
silfurkeðju tapaðist í
miðbæ Reykjavíkur sl.
laugardag. Finnandi vin-
samlegast hafi samband
við Margaret í síma 510-
2031.
Dýrahald
Kettlinga vantar
heimili
FJÓRA 8 vikna kettlinga
vantar góð heimili. Upplýs-
ingar í síma 894-3311 eða
564-3311.
Köttur
í óskilum
FALLEG læða, hvít með
gráar strípur, mjög loðin
(persnesk?) er í óskilum á
Fálkagötu í Reykjavík.
Upplýsingar í síma 552-
6219.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 Netfang velvakandi@mbl.is
Morgunblaðið/Arnaldur
Öndunum gefið brauð í góða veðrinu.
LÁRÉTT
1 efsti hluti hússtafns, 4
náðhús, 7 sleifar, 8 bur, 9
selshreifi, 11 autt, 13
tímabilin, 14 klakinn, 15
fjöl, 17 glyrna, 20 há-
vaða, 22 kjánar, 23
stoppa í, 24 auðvelda, 25
stokkur
LÓÐRÉTT
1 brotnaði, 2 blómum, 3
tyrfið mál, 4 úrræði, 5
tungl, 6 magran, 10
ástundunarsamur, 12
tímabil, 13 aula, 15 makk,
16 vitlaust, 18 klaufdýrið,
19 forfeðurna, 20 vaxa,
21 fiskar.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU
Lárétt: 1 svakalegt, 8 eltir, 9 tyfta, 10 nýr, 11 kárna, 13
arðan, 15 fengs, 18 hafur, 21 óra, 22 panil, 23 gerði, 24
hannyrðir.
Lóðrétt: 2 votar, 3 kirna, 4 letra, 5 gáfað, 6 verk, 7 hann,
12 nóg, 14 róa, 15 fipa, 16 nenna, 17 sólin, 18 hagur, 19
ferli, 20 reið.
Krossgáta
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16