Morgunblaðið - 16.05.2003, Qupperneq 45
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. MAÍ 2003 45
EF litið er á hendur NS
virðist hálfslemma í spaða
eða tígli góður kostur og al-
slemma gæti jafnvel unnist í
hagstæðri legu.
Suður gefur; allir á hættu.
Norður
♠ 1082
♥ 763
♦ K4
♣KD876
Vestur Austur
♠ D9543 ♠ –
♥ G10954 ♥ ÁKD82
♦ 9 ♦ D762
♣92 ♣G1053
Suður
♠ ÁKG76
♥ –
♦ ÁG10853
♣Á4
En legan er allt annað en
hagstæð. Spilið kom upp í
þriðju umferð Rottneros-
keppninnar í Svíþjóð og að-
eins eitt NS-par fékk töluna.
Það voru Helgi Jóhannsson
og Guðmundur Her-
mannsson, sem spiluðu fjóra
spaða og fengu tíu slagi með
harðfylgi. Á öðrum borðum
var meiri hasar í sögnum.
Lítum fyrst á viðureign
Færeyinga og Finna:
Vestur Norður Austur Suður
Hans JákúpHeikki Arnbjörn Lasse
– – – 1 spaði
Pass 2 spaðar 3 hjörtu 4 tíglar
5 hjörtu ! Dobl Pass 5 spaðar
Dobl ! Pass Pass Pass
Færeyingarnir Hans Ják-
up Petersen og Arnbjörn
Sivertsen voru í AV gegn
Heikki Lehtinen og Lasse
Utter. Það var djörf áætlun
hjá Hans Jákup að stökkva í
fimm hjörtu yfir slemmuleit
suðurs og fylgja því eftir
með dobli á fimm spöðum.
Uppskeran var reyndar að-
eins +200 fyrir einn niður,
en hugmyndin var góð.
Danirnir Jens Auken og
Lars Blakset fengu hins
vegar mun feitari bita gegn
sænsku sveitinni. Þar var
Magnús (okkar) Magnússon
í lykilhlutverki með Sven-
Aake Bjerregaard sem
makker:
Vestur Norður Austur Suður
Lars Sven-Aake Jens Magnús
– – – 1 lauf *
Pass 1 grand * 2 hjörtu 3 tíglar
4 hjörtu Pass Pass 5 hjörtu *
Pass 7 lauf Dobl 7 spaðar !
Dobl Pass Pass Pass
Eftir að Magnús fluttist til
Svíþjóðar hefur hann tekið
upp ýmsa þarlenda siði og er
meðal annars farinn að spila
Gulrótarlaufið. Í því kerfi er
laufopunin tvíræð, sýnir
annaðhvort yfirsterk spil
eða 10–12 punkta og grand-
skiptingu, og svar norðurs á
einu grandi er jákvætt, 8–13
punktar og jöfn skipting.
Þegar Magnús segir frjálst
þrjá tígla við innákomunni
lofar hann sterkri opnun.
Þetta eru fræðin, en þau
koma lítið við sögu í fram-
haldinu. Þegar AV eru
komnir í fjögur hjörtu sér
Magnús möguleika á al-
slemmu og ákveður að
ganga hreint til verks með
fimm hjörtum. En þá dynja
ósköpin yfir. Bjerregaard
stekkur í sjö lauf, sem aust-
ur útspilsdoblar. Magnús
túlkar það sem eyðu í spaða
og veðjar á að makker eigi
þar góðan þrílit. Svo var
ekki. Sjö spaðar fóru fjóra
niður (1.100), en á hinu borð-
inu spiluðu NS sex tígla, tvo
niður.
BRIDS
Umsjón Guðmundur Páll
Arnarson
STJÖRNUSPÁ
Frances Drake
NAUT
Afmælisbörn dagsins:
Þið eruð glæsileg og leggið
áherslu á að koma vel fyrir.
Komandi ár getur orðið
besta ár ævi ykkar.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Næsta mánuðinn hefurðu
óvenju mikla möguleika á
að safna auði. Leitaðu tæki-
færin uppi.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Þú hefur mikla þörf fyrir að
ná sambandi við aðra.
Næstu vikur henta því vel
til að gera upp gömul deilu-
mál.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Þú átt einstaklega auðvelt
með að láta þarfir annarra
ganga fyrir þínum eigin
þörfum. Þú vilt gera allt
fyrir þína nánustu.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Næstu vikur henta vel til
að njóta félagsskapar vina
þinna. Þú ættir að þiggja
þau boð sem þér berast. Þú
munt njóta þess að fara í
samkvæmi, á fundi og
íþróttaleiki.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Stjörnurnar eru þér hag-
stæðar í atvinnumálum.
Gerðu ráð fyrir því að sinna
skapandi störfum á næst-
unni.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Óvenjulegt fólk höfðar
sterkt til þín. Reyndu að
heimsækja staði sem þú
hefur aldrei komið á og
gera hluti sem þú gerir
ekki oft.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Þið verðið óvenju ástríðu-
full næstu vikurnar og því
eru líkur á nýjum ást-
arsamböndum sem geta
orðið eftirminnileg.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Þú átt óvenju auðvelt með
að tjá maka þínum og vin-
um tilfinningar þínar. Sam-
skipti ykkar eru fyrirhafn-
arlaus og gefandi.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Þú mátt búast við jákvæð-
um breytingum í starfi þínu
og vinnuumhverfi. Breyt-
ingarnar tengjast m.a.
bættum samskiptum þínum
við yfirmenn þína.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Næstu vikur verða góður
tími til að tengjast börnum
og njóta samskipta við þau.
Þig langar mest til að verða
barn á ný.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Frá og með deginum í dag
hefurðu mikla þörf fyrir að
vera heima hjá þér. Þú
finnur til öryggiskenndar
innan veggja heimilisins.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Leitaðu fegurðarinnar í um-
hverfi þínu. Það er mikil
fegurð í kring um þig. Opn-
aðu augun fyrir henni.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
ÁRNAÐ HEILLA
50 ÁRA afmæli. Gunn-ar Jóhannsson út-
gerðar- og hrefnu-
veiðimaður verður
fimmtugur mánudaginn 19.
maí. Af því tilefni er gestum
boðið að fagna með honum
áfanganum í sal Flugvirkja-
félags Íslands að Borg-
artúni 22 n.k. laugardags-
kvöld, 17. maí, á milli
klukkan 20 og 24.
50 ÁRA afmæli.Þriðjudaginn 20.
maí verður Halldór Rafn
Ottósson, Reykjabraut 20,
Þorlákshöfn, fimmtugur.
Að því tilefni bjóða þau
hjónin Rán Gísladóttir og
Halldór Rafn til veislu í
Versölum í Ráðhúsi Ölfuss,
laugardaginn 17. maí milli
kl. 19 og 23.
ÍSLANDSMINNI
Þið þekkið fold með blíðri brá
og bláum tindi fjalla,
og svanahljómi, silungsá
og sælu blómi valla,
og bröttum fossi, björtum sjá
og breiðum jökulskalla.
Drjúpi hana blessun drottins á
um daga heimsins alla.
Jónas Hallgrímsson
LJÓÐABROT
1. d4 Rf6 2. c4 g6 3. Rc3 d5 4. cxd5
Rxd5 5. e4 Rxc3 6. bxc3 Bg7 7. Bc4
c5 8. Re2 0-0 9. 0-0 Rc6 10. Be3 Bg4
11. f3 cxd4 12. cxd4 Ra5 13. Bd3 Be6
14. d5 Bxa1 15. Dxa1 f6 16. Bh6 He8
17. Kh1 Hc8 18. Rf4 Bd7 19. e5 Rc4
Staðan kom upp á Sigeman-mótinu
sem lauk fyrir skömmu í Málmey.
Curt Hansen (2.610) hafði hvítt gegn
Luke McShane (2.592) og hristi fram
úr erminni áhugaverða mannsfórn til
að halda sókn hvíts gangandi. 20.
Rxg6 Ba4 21. e6 hxg6 22. Bxg6 Re5
23. Be4 Bc2 24. Bxc2 Hxc2 25. Dd1
Kh7 26. f4 Kxh6 27. fxe5 Hc4 28.
Dd3 b5 29. exf6 exf6 30. d6 Kg7 Hér
kom til álita að gefa hrókinn til baka
þar eð eftir 30. ... Hxe6 31. Dh3+
Kg7 32. Dxe6 Hd4 hefur svartur góð
jafnteflisfæri. Í framhaldinu nær hvít-
ur óstöðvandi sókn. 31. Dg3+ Kh7 32.
Dh3+ Kg7 33. Dg3+ Kh7 34. Df3
Kg6 35. Dd5 Hh8 36. h3 a6 37. Dd3+
Kg7 38. Dg3+ Kh7 39. Hf5 De8 40.
Hxf6 Hg8 41. Dd3+ Kg7 42. Df5 Hc5
43. Hf7+ og svartur gafst upp.
SKÁK
Helgi Áss
Grétarsson
Hvítur á leik.
Stuttar og síðar kápur
sumarúlpur, heilsársúlpur,
regnúlpur, ullarjakkar,
hattar og húfur
Opið virka daga frá kl. 9-18
Laugardaga frá kl 10-15
Mörkinni 6 - Sími 588 5518
Opið 21.00-01.00 virka daga
og 21.00-05.30 um helgar
Þessi gamli góði
HUGARFARSÞJÁLFUN TIL BETRA LÍFS
EINKATÍMAR - NÁMSKEIÐ
Þú lærir að koma skilaboðum og jákvæðum huglægum hugmyndum og
viðhorfum inn í undirmeðvitundina. Þú lærir að upplifa tilfinningar þínar á
jákvæðan og uppbyggilegan hátt og að hafa betri stjórn á streitu og kvíða, auka
einbeitinguna og taka betri ákvarðanir. Þú byggir upp sjálfsöryggi og sterka
sjálfsmynd.
Leiðbeinandi Viðar Aðalsteinsson dáleiðslufræðingur.
Upplýsingar í síma 694 54 94
75 ÁRA afmæli. Í dag,föstudaginn 16. maí,
er sjötíu og fimm ára Jódís
Kristín Jósefsdóttir, Norð-
urgötu 54 á Akureyri. Hún
er að heiman í dag.
85 ÁRA afmæli. Í dag16. maí er áttatíu og
fimm ára Ólafía Helgadótt-
ir, Heiðarbraut 7, Garði.
Laugardaginn 17. maí býður
hún ásamt fjölskyldu sinni
til veislu frá kl. 15 í safn-
aðarheimilinu Sæborgu í
Garði.
80 ÁRA afmæli. Í dag,föstudaginn 16. maí,
er áttræður Björn R. Ein-
arsson.
Hann verður að heiman.
40 ÁRA afmæli. Ragn-heiður Linda Eyj-
ólfsdóttir, grafískur hönn-
uður, verður fertug
fimmtudaginn 22. maí nk.
Af því tilefni ætlar hún að
hafa opið hús á heimili
sínu, Langholtsvegi 163b,
á morgun laugardaginn 17.
maí kl. 17–20. Þeir sem
vilja koma og gleðjast með
henni eru velkomnir.
Hallgrímskirkja. Eldriborgarastarf í dag kl.
13. Leikfimi, æfingar við allra hæfi, Súpa,
kaffi og spjall.
Laugarneskirkja. Mömmumorgunn kl. 10.
Gönguhópurinn Sólarmegin leggur af stað
kl. 10.30 miðvikudaga og föstudaga
næstu vikur.
Breiðholtskirkja. Fjölskyldumorgnar kl.
10–12. Farið í bæinn og kíkt á endurnar.
Fella- og Hólakirkja. Starf fyrir 8–10 ára
drengi á laugardögum kl. 11. Starf fyrir
11–12 ára drengi á laugardögum kl.
12.30.
Akureyrarkirkja: Aftansöngur kl. 18. Sr.
Guðmundur Guðmundsson. Kammerkór
Akureyrarkirkju syngur, Vortónleikar Ung-
lingakórs Akureyrarkirkju á morgun kl. 17.
Stjórnandi: Eyþór Ingi Jónsson. Orgel/pí-
anó: Björn Steinar Sólbergsson.
Boðunarkirkjan, Hlíðarsmára 9. Samkom-
ur laugardaga kl. 11. Bænastund þriðju-
daga kl. 20. Biblíufræðsla allan sólar-
hringinn á Útvarpi Boðun FM 105,5.
Hvítasunnukirkjan Fíladelfía. Unglinga-
samkoma kl. 20.30.
Hjálpræðisherinn á Akureyri. Flóamarkað-
ur kl. 10–18 í dag.
Hvítasunnukirkjan á Akureyri. Föstudag-
ur, kl. 21 er unglingasamkoma.
Íslenska Kristskirkjan. Morgun-
guðsþjónusta á morgun kl. 11. Síðasta
morgunguðsþjónusta á þessu vori. Eivind
Fröen kennir. Samkoma kl. 20. Lofgjörð og
fyrirbænir. Eivind Fröen predikar. Þáttur
kirkjunnar „Um trúna og tilveruna“ verður
sýndur á sjónvarpsstöðinni Ómega kl.
13.30.
Kirkja sjöunda dags aðventista.
Samkomur laugardag:
Aðventkirkjan Ingólfsstræti 19. Biblíu-
fræðsla kl. 10. Guðsþjónusta kl. 11. Að-
ventskátavígsla.
Loftsalurinn, Hólshrauni 3, Hafnarfirði.
Biblíufræðsla/guðsþjónusta kl. 11.
Ræðumaður Björgvin Snorrason. Biblíu-
rannsókn og bænastund á fimmtudögum
kl. 20.
Safnaðarheimili aðventista, Blikabraut 2,
Keflavík: Biblíufræðsla kl. 10.15. Guðs-
þjónusta kl. 11. Umsjón: Unga fólkið. Bibl-
íurannsókn og bænastund á föstudögum
kl. 19.
Safnaðarheimili aðventista, Gagnheiði
40, Selfossi. Biblíufræðsla kl. 10. Guðs-
þjónusta kl. 11. Ræðumaður Eric Guð-
mundsson.
Aðventkirkjan, Brekastíg 17, Vest-
mannaeyjum. Biblíufræðsla/guðs-
þjónusta kl. 10.30. Biblíurannsókn og
bænastund á sunnudögum kl. 13.
Safnaðarstarf
AÐALSAFNAÐARFUNDUR
Grensássóknar verður hald-
inn fimmtudaginn 22. maí
nk. kl. 17.30. Fundurinn
verður haldinn í safn-
aðarheimili kirkjunnar. Dag-
skrá fundarins verður í sam-
ræmi við starfsreglur um
sóknarnefndir nr. 732/1998.
Þá mun og sóknarnefnd leita
samþykkis fundarins fyrir
sölu á kjallara undir safn-
aðarheimili og kirkju til
Kirkjumálasjóðs.
Nánari upplýsingar um
starf safnaðarins má sjá á
vefsvæðinu: www.kirkjan.is/
grensaskirkja.
Aðalfundur
Grensáskirkju
50ÁRA afmæli. GuðjónHalldórsson, vél-
stjóri, Hvolsvelli, áður til
heimilis í Karfavogi 40, verð-
ur fimmtugur laugardaginn
17. maí. Afmælisbarnið tek-
ur á móti vinum og velunn-
urum laugardagskvöldið 17.
maí í félagsheimilinu Hvoln-
um, Hvolsvelli.
… ég veit ekki! Er hann
gamli ennþá forsætisráð-
herra?
DAGBÓK