Morgunblaðið - 16.05.2003, Síða 46
ÍÞRÓTTIR
46 FÖSTUDAGUR 16. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
HALLDÓR Ingólfsson,
fyrirliði Íslandsmeistara
Hauka í handknattleik,
hefur hafnað tilboði
Fylkis um að taka að sér
þjálfun hjá liðinu á
næsta tímabili og ætlar
hann að leika áfram
með liði Hauka.
„Ég gaf Fylkis-
mönnum þau svör fyrir
nokkrum vikum að ég
væri tilbúinn að taka að
mér starfið ef tækist að
fá nægilegan sterkan
mannskap til liðsins en
það hefur ekki tekist og
þar með hef ég ákveðið
að vera um kyrrt í Haukum,“ sagði
Halldór við Morgunblaðið. Þetta
eru gleðifregnir fyrir
stuðningsmenn Hauka
enda hefur Halldór ver-
ið kjölfestan í Haukalið-
inu og besti leikmaður
þess mörg undanfarin
ár.
Ekki er reiknað með
miklum breytingum á
Haukaliðinu. Aron
Kristjánsson er á leið til
Danmerkur, Sigurður
Þórðarson hættir og
Bjarni Frostason er í
sömu hugleiðingum en
aðrir leikmenn verða
um kyrrt og Haukarnir
stefna á að styrkja lið
sitt með einum til tveimur sterkum
leikmönnum.
Halldór verður áfram
með meisturum Hauka
Halldór
SPÆNSKU blöðin fara ekki
fögrum orðum um fall Evrópu-
meistara Real Madrid úr Meist-
aradeildinni og þremur mönnum
er mest kennt um ófarirnar,
þjálfaranum Vicente del Bosque,
fyrirliðanum Fernando Hierro
og Luiz Figo. Blöðin gagnrýna
Bosque og til að mynda segir
Marca: „Leikskipulagið sem
þjálfarinn lagði upp var í molum
og liðið var ömurlegt allt frá
byrjun.“
Hinum 35 ára gamla varnar-
manni, Fernando Hierro, er
kennt um öll þrjú mörkin sem
Juventus skoraði og portúgalski
landsliðsmaðurinn Figo fær það
óþvegið en blaðið AS segir klúð-
ur Figos á vítapunktinum hafi
skipt sköpum í einvíginu.
Hið stjörnum prýdda lið Real
Madrid lék 16 leiki í Meistara-
deildinni. Liðið vann aðeins sjö
þeirra og heima fyrir hefur lið-
inu vegnað illa upp á síðkastið.
Meiðsli lykilmanna
Forseti Real Madrid, Floren-
tino Perez, vill hvorki skella
skuldinni á leikmenn né þjálfara
en segir meginástæðuna vera
meiðsli lykilmanna á borð við
Ronaldo og Raúl.
Búið að finna sökudólga
Real Madrid á Spáni
„ÉG er sömu skoðunar og aðrir –
Keflavík er liðið sem allir vilja
vinna. Keflvíkingar spila lang-
besta boltann og eru með heil-
steyptasta hópinn af þeim liðum
sem eru í deildinni. Þannig að ég
reikna með því að þeir vinni deild-
ina,“ segir Jónas Baldursson,
þjálfari Þórs, sem féll úr úrvals-
deildinni á síðustu leiktíð ásamt
Keflavík. Jónas tók við þjálfun
liðsins í vetur af Kristjáni Guð-
mundssyni.
Jónas telur lið sitt ásamt Vík-
ingi og Breiðabliki einna líklegust
til að fylgja Keflvíkingum upp í
efstu deild.
„Ég held að Víkingarnir verði
við toppinn eins og Blikar, sem
hafa verið brokkgengir í vor en ég
hef trú á að það lagist,“ segir Jón-
as, en lærisveinar hans eiga erfið-
an útileik gegn Breiðbliki á Kópa-
vogsvelli á sunnudaginn.
Þá sagði Jónas ennfremur að
Stjörnumenn gætu blandað sér í
baráttuna, en þeir Garðbæingar
hafa naumlega misst af úrvals-
deildarsæti undanfarin tvö tíma-
bil. Aðspurður sagðist Jónas telja
að betri liðin í deildinni væru betri
en undanfarin ár, þannig að óhætt
væri að spá skemmtilegu móti.
DÓMARARNIR sem dæma
fyrstu leiki 1. deildarkeppni
karla, sem hefst um helgina,
eru Magnús Þórisson, Kefla-
vík, sem dæmdir Breiðablik-
Þór, Erlendur Eiríksson,
Fram (Haukar-Njarðvík), Ein-
ar Örn Daníelsson, Víkingi
(Leiftur/Dalvík-HK), Eyjólfur
Ólafsson, Víkingi (Keflavík-
Stjarnan) og Gísli Hlynur Jó-
hannsson, Keflavík (Aftureld-
ing-Víkingur R.).
Dómararnir
sem dæma
fyrstu leikina
vonandi á spennandi baráttu um
efstu sætin í 1. deild.
„Ég býst við að Þór, Víkingur og
Breiðablik verði í baráttunni um að
komast upp og þá gæti lið HK komið
á óvart í sumar.“
Keflvíkingar hafa misst þrjá lyk-
ilmenn frá því í fyrra en fengið í stað-
inn Stefán Gíslason, miðjumanninn
efnilega, sem hefur spilað sem at-
vinnumaður í Austurríki og Noregi
síðustu árin.
Nánar er farið yfir breytingar á
liðum 1. deildar hér til hliðar, hvaða
leikmenn eru komnir eða farnir.
Keflavík tekur á móti Stjörnunni ífyrstu umferð á mánudags-
kvöldið en þá mætast einnig Aftur-
elding og Víkingur. Þrír leikir eru
hinsvegar á sunnudag, Leiftur/Dal-
vík mætir HK í Ólafsfirði, Haukar
taka á móti Njarðvík á Ásvöllum og
Breiðablik fær Þór í heimsókn á
Kópavogsvöllinn.
„Okkur hefur gengið
ótrúlega vel“
Milan Stefán Jankovic, þjálfari
Keflvíkinga, sagði við Morgunblaðið
í gær að ef lið hans væri í úrvals-
deildinni myndi það hæglega geta
skipað sér í hóp fjögurra efstu lið-
anna. „En við erum í 1. deild og það
er oft mun erfiðara að komast þaðan
en að halda sér í efstu deild. Okkur
hefur gengið ótrúlega vel í vetur og
vor, allt frá fyrstu æfingu, spilað vel
gegn liðum úr úrvalsdeildinni og
ekki lent í neinum meiðslum. En nú
byrjar alvaran og þá reynir á styrk-
inn í liðinu. Mitt hlutverk sem þjálf-
ara er að halda strákunum á jörðinni,
við erum með ungt lið og þeir verða
að gera sér grein fyrir því að þeir
þurfa að spila eins á móti liðum í 1.
deild og þeir hafa gert gegn ÍA og
KR.“
Milan Stefán sagði að hann ætti
Morgunblaðið/Halldór Kolbeins
Keflvíkingurinn Ólafur Ívar Jónsson á ferðinni með knöttinn í leik í deildabikarkeppninni.
Keflvíkingar þykja sigurstranglegir í 1. deild í knattspyrnu karla
„Gætum verið í hópi
bestu í úrvalsdeild“
KEFLVÍKINGAR þykja afar sigurstranglegir í 1. deild karla í knatt-
spyrnu en keppni þar hefst á sunnudaginn. Þeir féllu úr úrvalsdeild-
inni í fyrra og miðað við leiki í vetur og vor ætti lið þeirra fyllilega
heima í hópi þeirra bestu í sumar. Í öllum spám sem birst hafa um 1.
deildina eru Keflvíkingar settir í efsta sætið og flestir reikna með
því að baráttan í deildinni muni snúast um hvaða lið fylgi þeim upp.
Milan Stefán Jankovic
„Keflavík vinnur deildina“
DAVID Seaman, markvörður Ars-
enal, verður fyrirliði liðsins í bikar-
úrslitaleiknum gegn Southampton í
Cardiff á morgun. Þessi 39 ára
markvörður, sem hefur leikið yfir
1.000 leiki, hefur verið varafyrirliði í
vetur. Fyrirliðinn Patrick Vieira er
meiddur og getur ekki leikið.
BRASILÍSKU leikmennirnir Gil-
berto Silva og Edu hafa náð sér eftir
meiðsli og leika á miðjunni með Ars-
enal, sem leikur í rauðum búningi í
Cardiff.
BAKVÖRÐURINN Lauren er
einnig orðinn góður og þá mun Oleg
Luzhny líklega taka stöðu Pascals
Cygan, sem er meiddur og leika við
hlið Martins Keown sem miðvörður.
ARSENE Wenger, knattspyrnu-
stjóri Arsenal, hefur tú á því að
sænski landsliðsmaðurinn Freddie
Ljungberg setji met í Cardiff, með
því að verða fyrsti leikmaðurinn til
að skora í þremur bikarúrslitaleikj-
um í röð á Englandi. „Freddie er sig-
urvegari – hann getur hæglega gert
út um leiki,“ sagði Wenger.
LJUNGBERG skoraði mark gegn
Liverpool 2001, en þá varð Arsenal
að sætta sig við tap þegar Owen
skoraði tvö mörk fyrir Liverpool
undir lok leiksins, 2:1. Ljungberg
skoraði annað mark Arsenal, sem
lagði Chelsea í Cardiff í fyrra, 2:0.
ARSENE Wenger segir að hann
og leikmenn sínir vanmeti ekki
Southampton, þó svo að Arsenal
hafi unnið stórsigur á Southampton
fyrir fáeinum dögum í deildarleik á
Highbury, 6:1. „Ég ber mikla virð-
ingu fyrir Gordon Strachan, knatt-
spyrnustjóra Southampton, sem hef-
ur náð mjög góðum árangri með liðið
á sínu fyrsta heila keppnistímabili
með það.“
FÓLK