Morgunblaðið - 16.05.2003, Síða 47
ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. MAÍ 2003 47
VIGGÓ Sigurðsson, þjálfari ný-
krýndra Íslandsmeistara Hauka,
segist fastlega búast við því að vera
eitt ár til viðbótar með Haukum en
Viggó lét í veðri vaka í sigurlátum
Hauka á þriðjudagskvöldið að hann
kynni að láta af störfum eftir tíma-
bilið.
„Ég neita því ekki að maður er
orðinn ansi lúinn enda spannar tíma-
bilið orðið ellefu mánuði. Ég hef
svona verið að velta því fyrir mér
hvort ég ætti að láta þetta gott heita
en að vel athuguðu máli og þegar ég
er búinn að fá góða hvíld og spila
nokkra golfhringi er líklegast að ég
taki eitt ár til viðbótar með Hauk-
unum,“ sagði Viggó við Morgun-
blaðið í gær.
Viggó gerði samning við Hauka í
fyrra til ársins 2005 en sá samn-
ingur er uppsegjanlegur af beggja
hálfu.
Viggó áfram
hjá Haukum
Viggó Sigurðsson
SVO kann að fara að landsliðs-
miðherjinn í knattspyrnu Andri
Sigþórsson, framherji norska úr-
valsdeildarliðsins Molde, verði
að hætta knattspyrnuiðkun
vegna þrálátra meiðsla í hné.
Andri var frá í fjóra mánuði í
fyrra vegna meiðsla í hné, lék
aðeins 11 leiki með Molde á leik-
tíðinni, og nú er hann aftur kom-
inn á sjúkralistann með sams
konar meiðsli. Andri lék fyrsta
leik Molde í deildakeppninni í
vor en hefur ekkert getað verið
með síðan.
Sjúkraþjálfari Molde sagði við
norska fjölmiðla í gær að ferill
Andra héngi á bláþræði en svo
virðist sem hnjámeiðslin séu al-
varlegs eðlis.
Ferill Andra
í hættu
Guðmundur Þórður Guðmunds-son, landsliðsþjálfari í hand-
knattleik, hefur valið æfingahóp fyr-
ir verkefni landsliðsins í lok maí og
byrjun júní. Þrír nýliðar eru í hópn-
um, Haukamennirnir Vignir Svav-
arsson og Þorkell Magnússon, ásamt
Bjarna Fritzsyni úr ÍR. Hópurinn er
þannig skipaður:
Markverðir:
Guðm. Hrafnkelsson, Conversano
Roland Eradze, Valur
Birkir Ívar Guðmundsson, Haukar
Hornamenn og línumenn:
Guðjón V. Sigurðsson, Essen
Logi Geirsson, FH
Þorkell Magnússon, Haukar
Bjarni Fritzson, ÍR
Einar Örn Jónsson, Massenheim
Sigfús Sigurðsson, SC Magdeburg
Róbert Sighvatsson, Wetzlar
Róbert Gunnarsson, Aarhus
Vignir Svavarsson, Haukar
Útileikmenn:
Dagur Sigurðsson, Wakunaga
Jaliesky Garcia, Göppingen
Snorri Steinn Guðjónsson, Valur
Markús Máni Maute, Valur
Rúnar Sigtryggsson, Ciudad
Heiðmar Felixsson, Bidasoa
Einar Hólmgeirsson, ÍR
Patrekur Jóhannesson, Essen
Ólafur Stefánsson, Magdeburg
Aron Kristjánsson, Haukar
Ásgeir Örn Hallgrímsson, Haukar
Íslendingar mæta Dönum í
tveimur leikjum hér á landi 30. og 31.
maí. Hinn 4. júní verður leikið við úr-
valslið Katalóníu á Spáni og dagana
6.–8. júní heldur liðið til Antwerpen
og tekur þátt í móti ásamt Slóvenum,
Serbum og Dönum.
Guðmundur Þórður
velur æfingahóp
Bjarni hélt í morgun til Þýska-lands og eftir læknisskoðun
mun hann skrifa undir samninginn
við Bochum sem er til þriggja ára.
„Ég hef ákveðið að taka tilboðinu,
enda er það gott. Þetta verður mjög
spennandi og það verður sérlega
gaman að fá að spila með Þórði aftur.
Þetta er gott félag og vel að öllu stað-
ið hjá því,“ sagði Bjarni í samtali við
Morgunblaðið í gær.
Bjarni verður kynntur fyrir stuðn-
ingsmönnum Bochum á morgun á
síðasta heimaleik liðsins sem er á
móti Hamburger.
Bochum vann sér sæti í 1. deild-
arkeppninni í fyrra og eftir góða
byrjun í haust lenti liðið í fallbaráttu
en tókst að bjarga sér með 3:1 sigri á
Armena Bielefeld um síðustu helgi.
Þórður Guðjónsson, eldri bróðir
Bjarna, á tvö ár eftir af samningi sín-
um við Bochum en þeir bræður fá nú
tækifæri til að spila saman á nýjan
leik en þeir léku síðast saman með
Genk í Belgíu fyrir þremur árum.
Bjarni tók
tilboði
Bochum
BJARNI Guðjónsson knatt-
spyrnumaður hefur ákveðið að
taka tilboði þýska liðins Boch-
um, en eins og Morgunblaðið
greindi frá í vikunni fékk Bjarni í
hendur samningstilboð frá fé-
laginu.
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Þórður Guðjónsson ber
Bjarna á bakinu á æfingu
með landsliðinu. Þeir bræð-
ur verða saman í herbúðum
þýska liðsins Bochum.
SHEFFIELD United lagði Nott-
ingham Forest að velli í framlengd-
um leik í gærkvöldi, 4:3. Staðan var
jöfn eftir venjulegan leiktíma, 2:2.
Sheff. Utd. mætir Úlfunum í úrslita-
leik um sæti í ensku úrvalsdeildinni.
ANDRES Gunnlaugsson, hand-
knattleiksþjálfari, mun taka við
þjálfun á kvennaliði Fram í meist-
araflokki. Hann tekur við starfi Þórs
Björnssonar, sem hætti eftir að hafa
verið þjálfari liðsins í tvö ár..
MARK Viduka framherji Leeds
United er ekki til sölu að sögn John
McKenzie stjórnarformanns Leeds
en nokkur félög, þar á meðal Totten-
ham hafa borið víurnar í Ástralann
sem skoraði 21 mark í ensku úrvals-
deildinni á leiktíðinni. Viduka, sem
er 27 ára gamall og var keyptur til
Leeds á 6 milljónir punda fyrir
þremur árum, á þrjú ár eftir af sam-
ingi sínum við félagið.
CHRIS Coleman var í gær ráðinn
knattspyrnustjóri enska úrvalsdeild-
arliðsins Fulham en hann var ráðinn
tímabundið í starfið eftir að Frakk-
anum Jean Tigana var sagt upp.
Undir stjórn Colemans krækti Ful-
ham sér í 10 stig af 15 möguleikum á
lokasprettinum og tókst að halda
sæti sínu í deildinni.
TONY Blair, forsætisráðherra
Bretlands, ákvað á ríkisstjórnar-
fundi á miðvikudag að gefa breska
ólympíusambandinu græna ljósið á
að sækja um að fá að halda ólympíu-
leikana árið 2012. Bretar eru ekki
einir um að vilja halda keppnina því
búist er við því að umsóknir berist
frá stórborgunum, Madrid, New
York, Moskvu og París.
DAVID Bellion, leikmaður Sund-
erland, stendur þessa dagana í
samningaviðræðum við Manchester
United. Alex Ferguson, fram-
kvæmdastjóri Manchester United,
hefur lengi haft augastað á Frakk-
anum unga.
PETER Reid, knattspyrnustjóri
Leeds, hefur sagt upp aðstoðar-
mönnum sínum, þeim Eddie Gray og
Brian Kidd. Ástæða upsagnanna er
liður í þeim aðhaldsaðgerðum sem
nú standa yfir á fjárhag félagsins.
SAM Allardyce knattspyrnustjóri
Bolton er þeirra sem nefndir hafa
verið til sögunnar sem eftirmaður
Graham Taylors hjá Aston Villa.
Phil Gartside, stjórnarformaður
Bolton, var ekki lengi að kveða niður
sögusagnirnar og hann greindi fjöl-
miðlum frá í gær að „Big Sam“ væri
ekki á förum frá Bolton.
LENGJAN fékk þjálfara 1. deild-
arliðanna til að spá til um úrslit sum-
arsins og var niðurstaðan þessi:
1. Keflavík, 2. Þór A., 3. Breiðablik
4. Víkingur, 5. Haukar, 6. Stjarnan
7. Afturelding, 8. Njarðvík 9. HK og
10. Leiftur/Dalvík.
FÓLK
Keflavík
Komnir: Einar Ottó Antonsson
(Selfossi), Haraldur Axel Einarsson
(Víði), Stefán Gíslason (Grazer AK).
Farnir: Guðmundur Steinarsson
(Brönshöj/Fram), Haukur Ingi
Guðnason (Fylki), Jóhann R. Bene-
diktsson (Grindavík).
Þór
Komnir: Arnljótur Ástvaldsson
(KR), Hallgrímur Jónasson (Völ-
sungi), Pétur Kristjánsson (Leiftri/
Dalvík).
Farnir: Andri B. Þórhallsson
(Fjarðabyggð), Ashley Wooliscroft
(England), Gunnar Konráðsson
(ÍR), Helgi Þór Jónasson (Leiftur/
Dalvík), Óðinn Árnason (Grindavík),
Þórir Áskelsson (Reyni Árskógs-
strönd), Örlygur Helgason (KA).
Stjarnan
Komnir: Benedikt Egill Árnason
(FH), Besim Haxhijadini (Val),
Brynjar Sverrisson (Þrótti R.), Giss-
ur Jónasson (Leikni R.), Gunnar
Guðmundsson (Leiftri/Dalvík).
Farnir: Garðar Jóhannsson (KR),
Kristinn Guðbrandsson (Víði), Ólaf-
ur Páll Snorrason (Fylki), Ragnar
Árnason (Fram).
Afturelding
Komnir: Albert Arason (Leiftri/
Dalvík), Birgir Þór Birgisson (Val),
Brynjólfur Bjarnason (ÍR), Einar
Hjörleifsson (Fylki), Henning Jón-
asson (KR), Jón Eiríksson (Sindra),
Jón Þór Hauksson (ÍA), Sigurður A.
Hermannsson (Fylki), Sturla Guð-
laugsson (ÍA).
Farnir: Engir.
Víkingur R.
Komnir: Arnar Steinn Einarsson
(Val), Betim Haxhijadini (Leikni R.),
Grétar Sigurðarson (Sindra), Hösk-
uldur Eiríksson (ÍR), Stefán Logi
Magnússon (Bradford City), Stefán
Þórðarson (ÍR), Steinþór Gíslason
(Val), Tómas M. Reynisson (KFS),
Tryggvi Björnsson (Þrótti R.)
Farnir: Andri Tómas Gunnarsson
(Danmerkur), Igor Bjarni Kostic
(ÍBV), Ólafur Adolfsson (Skalla-
grím), Valur Úlfarsson (Þýska-
lands).
Haukar
Komnir: Davíð Ellertsson (FH),
Hrannar Már Ásgeirsson (HSH),
Magnús Ólafsson (KR), Róbert Óli
Skúlason (Val).
Farnir: Brynjar Gestsson (Hug-
in), Óskar Alfreðsson (Leikni R.)
Breiðablik
Komnir: Gunnar B. Ólafsson
(Fram), Hreiðar Bjarnason (Fylki),
Olgeir Sigurgeirsson (ÍBV), Páll
Gísli Jónsson (ÍA), Sævar Pétursson
(Deiglunni), Jesper Borup (Dan-
mörku).
Farnir: Ívar Sigurjónsson (Þrótt
R.), Jens Harðarson (HK), Kári Ár-
sælsson (Þrótt R.)
Leiftur/Dalvík
Komnir: Gunnar Jarl Jónsson
(Leikni R.), Helgi Þór Jónasson
(Þór), Jóhann H. Traustason
(Magna). Salar Yashin (Svíþjóð),
Zeid Yashin (Svíþjóð)
Farnir: Albert Arason (Aftureld-
ingu), Gunnar Guðmundsson
(Stjörnuna), Hermann Albertsson
(FH), Hjörvar Maronsson (KA), Jón
Örvar Arason (KA), Marinó Ólason
(Fjölni), Pétur Kristjánsson (Þór),
Sigurjón Egilsson (Fjarðabyggð),
Þorleifur K. Árnason (KA), Þorvald-
ur Sveinn Guðbjörnsson (KA).
HK
Komnir: Haraldur Hinriksson
(ÍA), Jens Harðarson (Breiðabliki),
Sigurjón Björn Björnsson (Fjarða-
byggð), Villy Þór Ólafsson (Létti),
Þórður Jensson (Víkingi R.)
Farnir: Gísli Freyr Ólafsson
(Drang), Óli Þór Júlíusson (Drang),
Pétur Geir Svavarsson (Færeyja),
Róbert Haraldsson (KS), Þórður
Guðmundsson (Drang).
Njarðvík
Komnir: Arjan Kats (Hollandi),
Jóhann Steinarsson (ÍR), Marteinn
Guðjónsson (Reyni S.)
Farnir: Gísli Þór Þórarinsson
(Reyni S.), Sævar Gunnarsson
(Sindra).
Breytingar á
liðum 1. deildar