Morgunblaðið - 04.06.2003, Page 2

Morgunblaðið - 04.06.2003, Page 2
FRÉTTIR 2 MIÐVIKUDAGUR 4. JÚNÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ VIÐRÆÐUR UM BÓKUN Von er á varautanríkisráðherra Bandaríkjanna, Elizabeth Jones, til landsins á morgun. Mun hún ræða bókun um framkvæmd varnarsamn- ingsins við Halldór Ásgrímsson ut- anríkisráðherra. Ekki áhugi á sameiningu Fyrirhuguðum fundi átta lífeyr- issjóða, þar sem ræða átti hug- myndir Framsýnar um sameiningu sjóðanna, var aflýst þegar ekki reyndist vera áhugi á hugmyndinni. Ólga í Garðabæ Um hundrað manns sátu borg- arafund í Garðabæ um gerð hljóð- manar á milli Silfurtúns og Hafn- arfjarðarvegar. Íbúar á svæðinu voru óhressir með að ekki hefði verið haft samráð við þá áður en fram- kvæmdin hófst. Mikil ólga var meðal fundarmanna og þurfti Ásdís Halla Bragadóttir bæjarstjóri ítrekað að biðja fundarmenn um að sýna sér- fræðingi, sem kynnti skýrslu um hljóðmengun, þá sjálfsögðu kurteisi að hafa hljótt meðan hann kláraði mál sitt. Hafna ofbeldisverkum Arabaleiðtogar hétu því á fundi með George W. Bush Bandaríkja- forseta í gær að berjast gegn hryðju- verkastarfsemi í Mið-Austurlöndum og sögðust hafna „ofbeldi í öllum myndum“. Bush ræðir í dag við for- sætisráðherra Ísraels og palestínsku heimastjórnarinnar í Jórdaníu. Telur samkeppni raskað Framkvæmdastjórn Evrópusam- bandsins hefur úrskurðað að fisk- kvótar, sem héraðsstjórnir Orkneyja og Hjaltlands hafa keypt og leigt heimamönnum, samræmist ekki reglum um innri markað sambands- ins. FLATAHRAUNI 31 • HAFNARFIRÐI SÍMI 555 6025 • www.kia.is K IA ÍSLAND Bílar sem borga sig! Þjónustuaðili fyrir öryggis- og þjófavarnarbúnað frá DIRECTED. VIPER á Íslandi S u ð u r l a n d s b r a u t 2 2 S í m i 5 4 0 1 5 0 0 w w w. l y s i n g . i s LÝSING Alhliða lausn í bílafjármögnun  TRANSPORTER Í POZNAN  VÉLHJÓLAÞOLAKSTUR  UMHIRÐA Á RAFGEYMUM PORSCHE CARRERA GT  BÍLASALAN EYKST  SMÁDÆLDIR LAGAÐAR  REYNSLUEKIÐ FIAT STILO-LANGBAK B L A Ð A L L R A L A N D S M A N N A PATREKUR HÖFÐAR MÁL GEGN ÞÝSKA HANDKNATTLEIKSSAMBANDINU / B8 DUNCAN Ferguson, leikmaður Everton í ensku úrvalsdeildinni, var í gær úrskurðaður í þriggja leikja bann af enska knattspyrnu- sambandinu. Ferguson gaf Jóhannesi Karli Guðjónssyni, leikmanni Aston Villa, ljótt oln- bogaskot í leik Everton og Aston Villa á Go- odison Park heimavelli Everton í apríl. Dóm- ari leiksins, Graham Poll, missti af brotinu en nú hefur sérstök nefnd skoðað atvikið og ákveðið að veita Ferguson þriggja leikja bann. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem leikmanni er refsað eftir viðskipti sín við Jóhannes Karl Guðjónsson, því Christophe Dugarry fékk í maí mánuði peningasekt fyrir að hrækja á Skagamanninn. Ferguson í bann fyrir brot á Jóhannesi Karli SILJA Úlfarsdóttir, hlaupakona úr FH, „sat föst“ á Heathrow- flugvelli í Lúndunum allan mánu- daginn á leið sinni á Smáþjóðaleik- ana – eftir að hafa komið þangað með flugi frá Bandaríkjunum. Silja átti að fljúga frá Heathrow til Möltu, en þar sem hún var ekki með flugmiða báðar leiðir var henni meinað að fara með þeirri vél sem hún átti að fara með. Silja kemur með íslenska íþróttahópn- um til Íslands beint frá Möltu og var því ekki með miða til baka í farteskinu. Eftir langa bið, mörg símtöl fram og aftur á milli manna, fékk Silja að fljúga frá Heathrow seint á mánudags- kvöldið eftir að ljósrit hafði verið tekið af miða hennar og menn ver- ið sannfærðir um að Silja myndi snúa til baka frá Möltu. Kom hún til móts við íslenska hópinn á Möltu þegar nokkuð var liðið á að- faranótt þriðjudagsins og fékk því stuttan svefn. Silja keppti í 100 m hlaupi í gær og í undanrásum í 400 m hlaupi og lét röskun ferðaáætl- unarinnar ekki hafa áhrif á sig. Silja lenti í vandræð- um í Lund- únum ÓLAFUR Stefánsson var kvaddur af stuðningsmönnum þýska hand- knattleiksliðsins Magdeburg á sunnudag en þá var settur upp sér- stakur kveðjuleikur fyrir Ólaf og þrjá aðra leikmenn sem eru á för- um frá félaginu, Christian Gaudin, Sven Liesegang og Uwe Mauer. 8.000 áhorfendur mættu í Bördel- andhalle-höllina í Magdeburg og hylltu Ólaf sérstaklega en Ólafur hefur átt stóran þátt í velgengni Magdeburg undanfarin ár en er nú á förum til spænska liðsins Ciudad Real. Leikurinn, sem settur var upp, var á milli Magdeburgarliðsins sem hampaði EHF-meistaratitl- inum árið 1999 og liðsins í dag. Ólafur lék með fyrrnefnda liðinu en leiknum lyktaði með jafntefli 50:50. Ólafur var leystur út með gjöf- um, risastór keppnistreyja með nafni hans var hengd upp í höllinni og er hann sjöundi leikmaður Magdeburg frá upphafi sem verð- ur þess heiðurs aðnjótandi. Ólafur kvaddur í Magdeburg Það var fyrir löngu búið aðákveða að gefa Óla frí frá þessu verkefni og þar sem hann er ekki með sem og Patrekur Jóhann- esson, Sigurður Bjarnason, Sigfús Sigurðsson, Gústaf Bjarnason, og Heiðmar Felixson fá ungu menn- irnir gott tækifæri til að sýna sig og sanna. Þeir öðlast reynslu og við fáum að sjá meiri breidd hjá okkur,“ sagði Einar Þorvarðarson, aðstoð- arþjálfari íslenska landsliðsins, við Morgunblaðið í gær. Landsliðshóp- urinn hélt utan í gærmorgun og á Spáni kemur Rúnar Sigtryggsson til móts við liðið en hann tók ekki þátt í leikjum við Dani um nýliðna helgi. Óvíst var hvort Jaliesky Garcia gæti farið með vegna meiðsl- anna sem hann hlaut í síðari leikn- um við Dani en að sögn Einars Þor- varðarsonar var ákveðið að Garica færi með. „Garcia er ekki í góðu standi og hann verður örugglega ekki með í leiknum við Katalóníuliðið. Það verður svo bara að koma í ljós hvort hann getur spilað á mótinu í Belgíu en hann mun verða í stöðugum með- ferðum hjá okkar læknum og nudd- ara,“ sagði Einar við Morgunblaðið en Garcia fékk slæmt högg á öxlina og við það teygðist á liðböndunum. Úrvalslið Katalóníu er að mestu skipað spænskum leikmönnum frá Barcelona og Granollers og þar get- ur að líta nöfn eins og Barrufet, að- almarkvörð spænska landsliðsins og fyrirliða landsliðsins, og Enric Ma- sip, en báðir leika þeir með Bör- sungum. Ólafur fékk frí frá landsleikjunum ÓLAFUR Stefánsson verður ekki með íslenska landsliðinu í hand- knattleik í leiknum við úrvalslið Katalónu sem fram fer í Girona á Spáni í kvöld og heldur ekki á æfingamótinu í Belgíu um helgina þar sem leikið verður á móti Slóvenum, Serbum og Dönum. REYNT var að fá kringlur þær sem Magnús Aron Hallgrímsson á við- urkenndar á mótinu en það fékkst ekki þannig að keppendur urðu að nota það sem mótshaldarar útveg- uðu þeim. Fyrir leikana var gefið út hvernig verkfæri yrðu til afnota fyr- ir keppendur og þar á meðal voru kringlur sem Magnús Aron hefur notað. Þegar á hólminn var komið voru þær ekki til staðar og því var reynt að fá hans kringlur við- urkenndar, sem venjulega er ekkert mál. Kringlurnar eru þá vigtaðar og mældar og eru auðvitað löglegar, en ekki á Möltu. Magnús Aron lét þetta ekki á sig fá og stóð uppi sem sigurvegari í kringlukastskeppninni, kastaði 50.01 m, sem er langt frá hans besta. 2003  MIÐVIKUDAGUR 4. JÚNÍ BLAÐ B Kringlur Magnúsar ekki lögleg- ar á Möltu Morgunblaðið/Brynjar Gauti Magnús Aron Hallgrímsson sigraði í kringlukasti í gær og gaf þar með frjálsíþróttafólkinu tóninn. Yf ir l i t Í dag Sigmund 8 Viðhorf 28 Viðskipti 12/13 Minningar 28/34 Erlent 14/16 Hestar 35 Höfuðborgin 17 Bréf 36 Akureyri 18 Kirkjustarf 37 Suðurnes 19 Dagbók 38/39 Landið 20 Fólk 40/45 Listir 21/22 Bíó 42/45 Umræðan 23 Ljósvakamiðlar 46 Forystugrein 24 Veður 47 * * * Kynning - Blaðinu í dag fylgir tímaritið Lifun. Tímaritinu verður dreift um allt land. Í NÆSTU viku verður boðin upp skissa, sem er í eigu íslensks fiskimanns, hjá uppboðsfyrirtæk- inu Sotheby’s í London og metur fyrirtækið verkið á 40 til 60 þús- und pund, um 4,760 til 7,140 milljónir króna. Samkvæmt fréttum breska dag- blaðsins Guardian vafraði íslensk- ur skipstjóri um listaverkabúðir sem höfðu ódýr verk á boðstólum þegar hann þurfti ekki að sinna skyldustörfum um borð. Á meðal þess sem hann keypti var uppkast að verkinu The Lady of Shalott eftir John William Waterhouse, en endanlegt málverk málaði listamaðurinn 1894 og er það í Listasafninu í Leeds. Ekkert hefur verið vitað um skissuna, sem er 91,5x52 cm að stærð, í nær öld en Guardian seg- ir að Íslendingurinn hafi haft samband við Sotheby’s mörgum árum eftir að hann komst yfir verkið, sem var ómerkt og án dagsetningar, og óskað eftir upp- lýsingum um það. Einhverra hluta vegna var erindinu ekki sinnt en fyrir tilviljun löngu síðar sá sérfræðingur hjá fyrirtækinu myndina sem Íslendingurinn hafði sent af uppkastinu og þekkti þegar verkið. Haft var uppi á eigandanum og tók það nokkra mánuði, að sögn blaðsins, en þegar hann heyrði matsverðið var hann tilbúinn að selja og verður skissan boðin upp í London 12. júní. Metin á um 4,8 til 7,1 milljón króna Skissa í eigu Íslendings boðin upp hjá Sotheby’s Ljósmynd/Sotheby’s Uppkast að verkinu The Lady of Shalott eftir John W. Waterhouse. DANSKA ballerínan Silja Schandorff, sem var í sviðsljósinu í gær- kvöld í sýningu Konunglega danska ballettsins í Kaupmannahöfn í Þjóðleikhúsinu, á rætur að rekja til Íslands. Amma hennar, Rósa, fluttist til Danmerkur þar sem hún giftist og bjó síðan. Hér á Silja ættingja sem komu að sjá hana dansa í gærkvöld. „Ég hef ekki mikil tengsl við Ísland, en suma ættingja mína hitti ég þegar ég kom hing- að síðast fyrir fjórum árum að dansa með Konunglega ballettinum,“ segir hún. Amma Silju var móðursystir Ingunnar Stefánsdóttur, en Ingunn mætti í Þjóðleikhúsið í gærkvöld ásamt fleiri fjölskyldumeðlimum og voru þau afar stolt af frænkunni. „Hún var alveg stórkostleg,“ segir hún, en þær frænkur ætla að eyða deginum í dag saman á listasafni og fara jafnvel til Vestmannaeyja á morgun. Íslenskir ættingjar Silju komu og sáu hana dansa í Þjóðleikhúsinu í gærkvöld. Á eftir voru teknar nokkrar fjölskyldumyndir. Íslenskt blóð í danskri ballerínu Frænkurnar Silja og Ingunn. Morgunblaðið/Sverrir SPARISJÓÐSSTJÓRI Sparisjóðs Hólahrepps er í Reykjavík í dag til þess að ræða við forsvarsmenn Sambands íslenskra sparisjóða varðandi harðar deilur um atkvæð- isrétt stofnfjáreigenda í sparisjóðn- um, sem tengdir eru Kaupfélagi Skagfirðinga (KS) eða dótturfyrir- tækjum þess. „Menn þurfa að tala saman, það er ekki nema eðlilegt. Þetta varðar ekki bara Sparisjóð Hólahrepps heldur er þetta hagsmunamál allra sparisjóða í landinu,“ segir Kristján Hjelm sparisjóðsstjóri. Málið sé ákveðinn prófsteinn á reglur um at- kvæðisrétt stofnfjárhafa og næstu skref verði tekin í samráði við heildarsamtök sparisjóða. „Við er- um að vinna í að styrkja stöðu sparisjóðanna í heild sinni til þess að ekki verði stílbrot á starfsemi sparisjóðanna með því að Sparisjóð- ur Hólahrepps rífi sig á einhvern hátt út úr heildarsamtökunum.“ Aðspurður segist hann telja lík- legt að það myndi gerast ef aðilar tengdir KS næðu undirtökunum í stjórn sjóðsins. „Þetta er þó frekar spurning sem þeir ættu að svara: Hver er meining þeirra með að komast yfir minnsta sparisjóð landsins?“ Kristján segir málið skylt deilum sem urðu um stofnfé Sparisjóðs Reykjavíkur og nágrennis í vetur. Fundar með samtökum sparisjóða SALA á nýjum bílum jókst um rúm 46% fyrstu fimm mánuði ársins. Alls seldust 3.932 nýir fólksbílar á þess- um tíma en 2.687 fyrstu fimm mán- uðina 2002. Sem fyrr er markaðs- hlutdeild Toyota mest, 28%. Bílasala eykst um 46%  Sala/C2 ♦ ♦ ♦ SAMKEPPNISYFIRVÖLD í Nor- egi, Danmörku og hér á landi hafa í rúm tvö ár haft með sér samstarf um rannsókn á samkeppnishömlum og nú hefur Svíþjóð bæst í þennan hóp. Guðmundur Sigurðsson, forstöðu- maður samkeppnissviðs Sam- keppnisstofnunar, segir að samstarf af þessu tagi sé ekki óþekkt milli ná- grannaríkja, það sé til að mynda fyr- ir hendi milli Bandaríkjanna og Kan- ada. Samstarfið feli í sér að samkeppn- isyfirvöld geti leitað til systurstofn- ana erlendis ef rannsaka á mál sem grunur leikur á að teygi sig yfir landamæri. Þetta hafi ekki verið hægt áður en samstarfið var tekið upp vegna reglna um meðferð trún- aðarupplýsinga. Þátttaka Finnlands hefur reynst þyngri í vöfum Þátttaka samkeppnisyfirvalda í Svíþjóð í þessu samstarfi á sér nokk- urn aðdraganda og krafðist meðal annars lagabreytinga þar í landi. Einnig var til umræðu að Finnland gerðist aðili að samstarfinu, en að sögn Guðmundar hefur þátttaka þess reynst þyngri í vöfum og ekki er áformað að það eða önnur ríki bætist við á næstunni. Aðspurður sagði Guðmundur að ekki hefði reynt á samstarfið hér á landi, en gott væri að hafa mögu- leikann ef slíkt tilvik kæmi upp. Hann segir hins vegar að dæmi séu um að samkeppnisyfirvöld í Dan- mörku og Noregi hafi starfað saman að rannsókn á meintum samkeppn- isbrotum. Aukið samstarf samkeppnisyfirvalda á Norðurlöndum Geta leitað til systurstofnana TVÆR stúlkur, innan við tví- tugt, réðust inn á skyndibita- staðinn Subway í Spönginni í Grafarvogi, vopnaðar hnífum, og hrifsuðu til sín peninga úr sjóðvél á tíunda tímanum í gærkvöld. Einnig náðu þær farsímum og veskjum af þrem- ur starfsmönnum. Stúlkurnar mjög ógnandi og starfsfólkið skelkað Að því loknu skipuðu þær starfsfólki að fara inn í kæli- klefa á staðnum og læstu það inni. Starfsfólkið þorði ekki strax út en gat opnað klefann stuttu seinna með öryggis- hnappi, sem er inni í klefan- um. Það tilkynnti lögreglu ránið klukkan 21.47 og fór hún þeg- ar á staðinn. Stúlkurnar voru mjög ógnandi og starfsfólkið skelkað. Talið er að þær hafi náð í hnífana inni á staðnum. Vitað var í gærkvöld hverj- ar voru þarna á ferð og leitaði lögreglan þeirra. Þær þekktu til á ránsstaðnum, að sögn lög- reglu. Ekki liggur fyrir hve mikla fjármuni þær komust yfir í ráninu. Lokuðu starfsfólk inni í kæliklefa Réðust inn á skyndi- bitastað

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.