Morgunblaðið - 04.06.2003, Page 6

Morgunblaðið - 04.06.2003, Page 6
FRÉTTIR 6 MIÐVIKUDAGUR 4. JÚNÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ Formaður Samtaka verslunarinnar um Samkeppnisstofnun Setja þarf skýran ramma SAMTÖK verslunarinnar eru fylgj- andi Samkeppnisstofnun og því sem hún hefur verið að gera. „Við viljum efla hana til allra góðra verka,“ segir Pétur Björnsson, formaður samtak- anna, en Ari Edwald, framkvæmda- stjóri Samtaka atvinnulífsins, sagði í Morgunblaðinu á sunnudag að Sam- keppnisstofnun ætti ekki að stýra uppbyggingu atvinnulífsins og að skipulag samkeppnismála væri þung- lamalegt og óskilvirkt. „Við erum mjög mikið á móti fá- keppni sem hefur verið að taka yfir hverja verslunargreinina á fætur annarri í okkar samfélagi, þróun sem okkur finnst ekki til framfara,“ segir Pétur. „Þetta er mjög skýr afstaða hjá okkur.“ Um þau ummæli Ara Edwald að Samkeppnisstofnun geti ekki stýrt uppbyggingu atvinnulífsins segir Pét- ur að setja verði skýran ramma um samkeppnismál. „Það er full þörf á því. Við getum litið á þær greinar þar sem fákeppnin ræður ríkjum og þar er hægt að benda á hverja húsleitina á fætur annarri hjá fyrirtækjum í þeim greinum. Það hlýtur nú að skorta eitt- hvað á frjálsa samkeppni þegar málin eru þannig vaxin. Okkur finnst ekkert veita af því að það sé skýr rammi. Við erum ekki að óska eftir einhverri rík- isforsjá en við erum algjörlega á móti fákeppninni sem birtist á fleiri og fleiri sviðum og viljum að samkeppn- isyfirvöld hafi þau tól sem þarf til þess að sporna við því.“ Borgarstjóri um ummæli mennta- málaráðherra vegna framhaldsskóla „Rangtúlkun á málinu“ ÞETTA er rangtúlkun á málinu,“ seg- ir Þórólfur Árnason borgarstjóri um ummæli menntamálaráðherra þess efnis að kostnaðarskipting fram- haldsskóla í Reykjavík strandi á fjár- hagsaðstæðum Reykjavíkurborgar. Þórólfur Árnason segir að hann hafi verið í viðræðum við mennta- málaráðherra um framtíð uppbygg- ingar framhaldsskóla í Reykjavík frá því hann hafi tekið við sem borgar- stjóri í byrjun árs. Ljóst sé að taka þurfi fyrir bæði forgangsröðun, upp- byggingu eldri skóla, viðbyggingar við þá og viðhald, auk nýbygginga. Þetta sé því mjög flókið mál en við- ræður við menntamálaráðherra og milli starfsmanna þeirra hafi verið í mjög góðum farvegi. „Þessar viðræð- ur hafa legið niðri í aðdraganda kosn- inga og stjórnarmyndunar en það er mér tilhlökkunarefni að ganga frá þessum málum til framtíðar.“ Borgarstjóri segir að Reykjavíkur- borg hafi sett 300 milljónir króna til hliðar sem lágmark í þennan mála- flokk vegna næstu þriggja ára. Aftur á móti vilji borgin horfa til lengri tíma, jafnvel fimm til tíu ára. „Skóla- starf snýst um hvers konar og hvern- ig framhaldsskóla við viljum og ekki síst um hugsanlega styttingu fram- haldsskólastigsins, sem mun létta mjög á húsnæðisþörfinni,“ segir Þór- ólfur. „Málið er í mjög viðunandi far- vegi og engin ástæða til annars en að halda þessum góða tóni milli mín og menntamálaráðherra við lýði.“ Íslendingur í farbanni í Dubai Búist við að mál skýrist í næstu viku BÚIST er við að mál Flosa Arn- órssonar, sem handtekinn var á flugvellinum í Dubai í Samein- uðu arabísku furstadæmunum fyrir ólöglegan vopnaburð þann 24. apríl, skýrist í næstu viku þegar hann mætir á fund sak- sóknara. Er búist við að þá komi í ljós hvort höfðað verði opinbert mál á hendur honum eða fallist á lok málsins með sektargreiðslu. Flosi var leystur úr gæsluvarð- haldi þann 1. júní en er í far- banni í landinu á meðan mál hans er til umfjöllunar. Hann sagði í samtali við Morgunblaðið að gæsluvarð- haldsvistin hafi ekki verið slæm út af fyrir sig, enda passað upp á hreinlæti í fangelsinu og aðbún- aður viðunandi. „Það voru allir mjög almennilegir við mann og ekkert yfir því að kvarta. Það er ekki til ofbeldi í lögreglunni hérna,“ sagði hann. Flosi var handtekinn fyrir að vera með riffil sem hann ætlaði að taka með sér heim í flugi. Hann framvísaði rifflinum á flugvellinum en var þá handtek- inn fyrir ólöglegan vopnaburð. ÞÓRÓLFUR Árnason borgarstjóri opnaði nýtt vefsvæði Strætó bs. í gær en markmið nýja svæðisins er að auka þjónustu og upplýsingagjöf til almennings. Strætó bs. er byggðasamlag í eigu sjö sveitarfélaga á höfuðborg- arsvæðinu. Ásgeir Eiríksson, fram- kvæmdastjóri Strætó, segir að um mikið framfaraskref sé að ræða en Ráðgjafinn, gagnvirkt upplýs- ingakerfi um áfangastaði, sé mesta nýjungin. Þar geti notandinn slegið inn brottfararstað og áfangastað og fengið tillögu um hvaða strætó sé best að taka. Þægileg leið Ásgeir segir að með þessu sé fyrst og fremst verið að reyna að koma til móts við þá sem kunna ekki á leiða- kerfið eða eru að ferðast annað en þeir eru vanir. Þetta sé því þægileg leið til að geta nálgast nauðsynlegar upplýsingar. Í þessu sambandi má nefna að Þórólfur Árnason, borgarstjóri í Reykjavík, komst að því að fljótleg- ast væri að ferðast með leið 111 frá Ráðhúsi Reykjavíkur að að- alstöðvum Strætó í Mjódd. Hann tók vagninn klukkan 15.03 við Ráðhúsið og var kominn í Mjódd kl. 15.19 til að opna vefsvæðið en ökumaður í ferðinni var Ásgeir Eiríksson. Á nýja vefnum er m.a. fréttasíða, umsóknareyðublað vegna ferða- þjónustu fatlaðra og möguleiki á að panta einstakar ferðir auk þess sem hægt er að kaupa miða og tímabila- kort á vefnum, sem síðan má nálgast á næsta afgreiðslustað Strætó. Þá eru almennar upplýsingar um fyrirtækið og starfsemina. Fyrirtækið Sjá ehf. sá um þarfa- greiningu og vann að innra skipu- lagi vefjarins. Hugbúnaðarfyr- irtækið Trackwell, sem hefur sérhæft sig í staðsetningarlausnum ásamt fleiru, var fengið til að sjá um smíði og uppsetningu Ráðgjafans. Íslenska vefstofan hannaði vefinn í vefumsjónarkerfinu Eplica frá Hug- smiðjunni. Sjá ehf. hafði yfirumsjón með verkinu. Strætó bs. kynnir gagnvirkt upplýsingakerfi um áfangastaði Morgunblaðið/Golli Þórólfur Árnason, borgarstjóri, tók leið 111 klukkan 15:03 við Ráðhús Reykjavíkur og var kominn í Mjódd kl. 15:19 til að opna vefsvæðið. Ökumaður í ferðinni var Ásgeir Eiríksson, framkvæmdastjóri Strætó. Aukin þjónusta fyrir al- menning Trúði því að vopn- in væru í Írak HALLDÓR Ásgrímsson utanríkis- ráðherra segir að umræða um að bandarísk og bresk stjórnvöld hafi hugsanlega breytt skýrslum og ýkt hættuna af gereyðingarvopnum Íraka hafi ekki orðið til þess að breyta skoðun hans varðandi innrás- ina í landið. „Ég hafði trú á því að það væru gereyðingarvopn í Írak. Ég tel ólík- legt að Saddam Hussein hafi neitað að sýna samvinnu ef engin gereyð- ingarvopn voru til staðar. Hvort þeim hafi verið eytt eða komið ein- hvers staðar fyrir þegar stríð var orðið óhjákvæmilegt skal ég ekki segja um. Það er að minnsta kosti ljóst að sú ríkisstjórn sem var Írak er ein sú versta sem hefur verið á jarðkringlunni frá upphafi skráðrar sögu. Þannig að ég held að allir séu sammála um að það var mikil ástæða til breytinga. Ég hef ekki trú á því að þessi mál verði ofarlega á baugi á næstunni. Hins vegar er það að sjálf- sögðu alvarlegt mál ef einhverjir hafa hagrætt sannleikanum og fals- að skýrslur. En Tony Blair (for- sætisráðherra Bretlands) hefur sagt að hann muni gefa nákvæma skýrslu um þessi mál og ég tel rétt að meta þetta þegar hún kemur fram,“ segir hann. Hljóta Bandaríkjamenn og Bretar ekki að þurfa að finna gereyðingar- vopnin sem voru réttlætingin fyrir innrás þeirra í Írak? „Innrásin var ekki bara réttlætt með því. Hún var réttlætt með ýms- um öðrum ástæðum. Það lá alveg fyrir að gereyðingarvopnin voru til staðar árið 1991 og Saddam Huss- ein hafði aldrei gert grein fyrir því hvort, hvernig og hvenær þeim var eytt,“ segir Halldór. Í ljósi þess að engin vopn hafa fundist telur þú að framlengja hefði mátt dvöl vopnaeftirlitsmanna Sam- einuðu þjóðanna í Írak enn lengur? „Það hefði sjálfsagt mátt gera það. En það var búið að bíða með aðgerð- ir í tólf ár og það er alltaf umdeil- anlegt hversu lengi átti að bíða. Og maður spyr: Af hverju var Saddam Hussein ekki áfram um að sýna fram á að þessi vopn væru ekki til ef svo var? Hann sýndi ekki nauðsynlegan samstarfsvilja eins og skýrt kom fram af hálfu vopnaeftirlitsmanna Sameinuðu þjóðanna.“ Aðspurður segir Halldór að sagan muni dæma um hvort innrásin hafi verið réttlætanleg. „Stríð er alltaf vondur kostur og örþrifaráð. Ég hef ekkert breytt um skoðun í þeim efn- um,“ segir Halldór Ásgrímsson. Björn Ingi Hrafnsson Stjórnarfor- maður Þróun- arsamvinnu- stofnunar HALLDÓR Ásgrímsson utan- ríkisráðherra hefur skipað Björn Inga Hrafnsson formann stjórnar Þróunarsamvinnu- stofnunar Íslands til fjögurra ára í stað Árna Magnússonar sem látið hefur af því starfi að eigin ósk. ÞORSTEINN Ingólfsson mun taka sæti sem aðal- fulltrúi Norð- urlanda og Eystrasalts- ríkja í stjórn Alþjóðabank- ans í Wash- ington í októ- ber og verður hann jafnframt yfirmaður skrifstofu Norður- landa- og Eystrasaltsríkja hjá bankanum næstu þrjú árin. Norðurlöndin hafa skipst á að eiga aðalfulltrúa í stjórn bank- ans en Jónas Haralz gegndi þessu starfi fyrir Íslands hönd fyrir 12 árum. Þorsteinn hefur starfað í utanríkisþjónustunni í rúm þrjátíu ár. Hann hefur gegnt störfum víða, bæði hér heima og erlendis, nú síðast sem fastafulltrúi Íslands hjá Sameinuðu þjóðunum í New York. Að sögn Stefáns Skjald- arsonar, skrifstofustjóra Al- þjóðaskrifstofu utanríkisráðu- neytisins, verður í framhaldinu sett upp eining fjögurra til sex starfsmanna innan Alþjóða- skrifstofunnar til þess meðal annars að vinna við samræm- ingu og stefnumótun fyrir Norðurlöndin og Eystrasalts- ríkin gagnvart bankanum. Þorsteinn Ingólfsson í stjórn Al- þjóðabankans Þorsteinn Ingólfsson Á BÆNUM Lyngbrekku í Þingeyj- arsveit er að finna ýmsa sjaldgæfa liti í sauðfénu og hænsnahópurinn er einkar litskrúðugur. Þegar fréttaritara bar að garði voru syst- urnar Hildigunnur og Kristín Mar- grét Jónsdætur að vinna í fjárhús- unum og fékk hann bæði að líta á lífleg vorlömb og afar fallega skrauthana. Morgunblaðið/Atli Vigfússon Litadýrð í búskapnum Laxamýri. Morgunblaðið.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.